Morgunblaðið - 29.07.1999, Page 84
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181
PÓSTHÓLF3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
FIMMTUDAGUR 29. JÚLÍ 1999
VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK
Innflutningrir íslenskra hrossa í rannsókn hjá þýskum tollayfirvöldum
Innflutningsverð í toll-
skýrslum talið vera of lágt
INNFLUTNINGUR íslenskra hrossa til Þýska-
lands er til rannsóknar hjá þýskum tollayfirvöld-
um vegna gruns um að rangt verð hafi verið gefið
upp í innflutningsskýrslum í þeim tilgangi að
komast hjá háum tollgreiðslum. Þýskalands-
markaður hefur í mörg ár verið mikilvægasti
markaðurinn fyrir íslenska hestinn erlendis, en
útflutningur þangað hefur þó heldur dregist sam-
an í seinni tíð.
Morgunblaðið hafði samband við Karolu Sch-
meil, lögfræðing í Hannover, sem sinnt hefur
fjölmörgum skjólstæðingum úr hópi íslenskra og
þýskra hestamanna og staðfesti hún að í rann-
sókn þarlendra tollayfirvalda hefði komið fram
talsvert misræmi á skráðu kaupverði og því verði
sem eðlilegt mætti teljast.
Schmeil sagði að á undanfömum misserum
hefðu þýsk tollayfirvöld rannsakað innflutning á
íslenskum hrossum og komist að því að í innflutn-
ingskýrslum væri kaupverð þeirra skráð of lágt.
Þar af leiddi að tollar lækkuðu úr því sem eðlilegt
mætti teljast.
Lagði SchmeU áherslu á að það misræmi sem
fram hefði komið gæti haft afar flókna eftirmála,
sérstaklega með tilliti til samræmis milli þýskra
refsUaga og evrópskra tollareglna. Þá taldi hún
að rannsóknir þýskra tollayfirvalda á innflutn-
ingsaðUum íslenskra hrossa hefðu leitt í ljós hve
mikla fjárhagslega þýðingu málið hefði.
VUdi hún ekki tjá sig um nánari atriði máls-
ins en sagði að samkvæmt samningi Evrópu-
bandalagsins við íslensk stjórnvöld frá árinu
1972 hefði niðurfelling tolla, á grundvelli upp-
runavottorða, verið felld úr gUdi og tollar sem
lagðir væru á hross sem flutt væru inn tU
Þýskalands væru fremur háir, eða 14,8% í
seinni tíð. Aðeins lítill hluti innfluttra hrossa
hefði því verið undanþeginn tollum vegna sérá-
kvæða.
Riðuveiki greinist á bæ
í A-Húnavatnssýslu
Stefnt að
slátrun
1.600 fjár
FYRSTA tilvik riðuveiki á þessu ári
greindist í byrjun júlímánaðar á bæ á
Vatnsnesi í Austur-Húnavatnssýslu.
A bænum eru um 400 kindur. Sigurð-
ur Sigurðarson, dýralæknir á Keld-
um, segir að bústofninum verði farg-
að í kjölfar haustsmölunar og bindi
menn vonir við að samstaða náist um
að farga kindum á ellefu bæjum á
svæðinu, alls um 1.600 skepnum.
„Bóndinn á bænum kallaði til dýra-
lækni og bað hann að athuga kind
sem hafði veikst og í framhaldi af því
greindist hún með riðuveiki. Við
reiknum með að allt sauðfé á bænum
sé sýkt og það má búast við að skepn-
ur á næstu bæjum hafi smitast einnig
enda samgangur milli þessa fjár. Við
viljum reyna að komast íyrir rætum-
ar á veikinni á þessu svæði og það er
engin lækning til. Þessi veiki getur
farið talsvert dult og það er vonast til
að með því að farga þessum skepnum
verði meiri von til að veikinni verði
útrýmt á svæðinu,“ segir hann.
Morgunblaðið/Ásdís
Blómarósir í blómahafí
EINN sólskinsdagur í Reykjavík lýsir ekki aðeins
upp hús borgarinnar, götur og gangstéttir heldur
einnig íbúana sjáifa sem virðast allir breyta um
svip, brosa og bjóða góðan daginn, þegar sólin loks-
ins sendir geisla sína á höfuðstaðinn. Þær Marta
Rós (t.v.), Katrín og Nína Björk, sem staddar voru á
Austurvelli í gær, hafa greinilega notið sólargeisl-
anna því ekki leynir sér brosið og ánægjusvipurinn.
Mjólkursamsalan
kaupir mjólkur-
samlagið á Blönduósi
Minnka
skuldir slát-
urhússins
NOKKRAR milljónir eða milljóna-
tugir sparast við mjólkurvinnslu í
landinu með kaupum Mjólkursam-
sölunnar í Reykjavik á Mjólkursam-
lagi Sölufélags Austur-Húnvetninga
á Blönduósi og sameiningu rekstrar-
ins frá 1. september næstkomandi.
Stjórnir félaganna samþykktu kaup-
in á fundum í gær, með fyrirvara um
samþykki félagsráðsfunda.
Sölufélag Austur-Húnvetninga
seldi mjólkursamlagið til þess að
minnka skuldir félagsins og auðvelda
áframhaldandi rekstur sláturhúss og
kjötvinnslu. Ólafur H. Magnússon
framkvæmdastjóri segir þó að félagið
sé áfram reiðubúið til viðræðna um
sameiningu eða samvinnu við aðrar
afurðastöðvar í slátrun og kjötvinnslu.
Guðlaugui’ Björgvinsson, fram-
kvæmdastjóri Mjólkursamsölunnar,
segir að verulegt hagræði hljótist af
kaupum á mjólkm’samlaginu á
Blönduósi og sameiningu þess við
Mjólkursamsöluna. Það komi neyt-
endum og framleiðendum til góða.
Mjólkurpökkun hætt
I Austur-Húnavatnssýslu eru 55
mjólkurframleiðendur sem framleiða
4,2 milljónir lítra á ári og bætast þeir
í hóp 845 innleggjenda á starfssvæði
Mjólkursamsölunnar sem fyrir er
með innlegg upp á um 57 milljónir
lítra á ári. Guðlaugur telur að það
hljóti að vera styrkur fyrir bændur að
ganga inn í félagskerfi MS og njóta
þeirrar þjónustu sem það bjóði upp á.
Fyrst um sinn verður óbreyttur
rekstur í mjólkursamlaginu á
Blönduósi. Það mun heyra undir
mjólkursamlagið í Búðardal sem
Mjólkursamsalan á og rekur. Þar
verður áfram framleitt nýmjólkur-
duft til sælgætisframleiðslu. Hins
vegar flyst mjólkurpökkun til MS í
Reykjavík og 700-800 þúsund lítrar
mjólkur fara til vinnslu í Búðardal.
Síðar verður ákveðin verkaskipting
með búunum.
■ Tugir milljóna sparast/10
Alvarlegar fregnir
Sigurður kveðst telja um alvarleg-
ar fregnir að ræða, enda sé riðuveikin
talsvert lengi að búa um sig og þar
sem lítið sé vitað um veikina geti vaf-
ist fyrir mönnum að átta sig á hvað
um er að ræða. „Ef menn láta ekki
vita er hætta á að sýktar kindur smiti
út frá sér. Það þýðir margra ára bar-
áttu til viðbótar," segir Sigurður.
I fyrravor kom upp eitt tilfelli
riðuveiki á bæ á Vatnsnesi og var þá
um 180 kindum fargað, en alls komu
upp fimm tilfelli í fyrra hérlendis.
Arið 1997 komu sömuleiðis upp fimm
tilfelli en tólf árið 1996. „Við von-
umst eftir góðri samstöðu um að
farga þessum kindum, enda skilja
bændur hvaða vá riðuveikin er,“ seg-
ir Sigurður.
Vart hefur orðið riðuveiki í um 120
ár en árið 1978 hófust skipulagðar
aðgerðir til að stemma stigu við veik-
inni. Arið 1986 var ákveðið að freista
'oess að útrýma henni og leggja í nið-
urskurð á öllu fé á sýktum bæjum.
Talið var þá að sýkt fé fyndist á á
annað hundrað bæjum hérlendis.
Sigurður kveðst telja þær aðgerðir
hafa skilað ótrúlega góðum árangri
og að dregið hafi stórlega úr veikinni
eftir að þær hófust. Meðal annars
var stofnum fargað á stórum svæð-
im á Norðurlandi og Austurlandi,
eða samtals tugum þúsunda kinda.
Guðmundur Kristjánsson útgerðarmaður fjárfestir á Yestfjörðum
Hefur keypt Olíufélagið út
og á nú 36,13% í Básafelli
GUÐMUNDUR Kristjánsson, út-
gerðarmaður frá Rifi, hefur keypt
28,53% hlut Kers ehf. og íshafs hf. í
Básafelli. Fyrir átti Guðmundur um
7,6% hlutafjár og er nú langstærsti
hluthafi í Básafelli með 36,13% hlut
í félaginu en Isafjarðarbær á 10%.
Hlutabréfasjóðurinn íshaf, sem
var að mestu í eigu Olíufélagsins
hf., átti 4,76% en Ker ehf., sem
einnig er í eigu Olíufélagsins hf.,
23,77% hlutafjár í Básafelli.
Samtals var nafnvirði hlutafjár-
ins sem skipti um eigendur í gær
216.644.657 krónur. Kaupverð hef-
ur ekki fengist uppgefið. Loka-
gengi hlutabréfa í Básafelli á Verð-
bréfaþingi íslands á þriðjudag var
1,73. Miðað við það gengi er verð-
mæti þess hlutafjár sem skipti um
hendur við samninginn um 374,8
milljónir króna en Geir Magnús-
son, forstjóri Olíufélagsins, sagði í
samtali við Morgunblaðið í gær að
kaupverðið væri hærra en 1,73.
Um hve mikið hærra væri hann
bundinn trúnaði.
Gott verð
Geir sagði að það hefði ráðið
ákvörðun Olíufélagsins um að selja
hlutabréfin að gott verð hefði verið í
boði. „Þetta er að okkar mati hæfur
maður til að leiða fyrirtækið áfram í
að verða arðbært," sagði Geir og
vísaði þar til Guðmundar Kristjáns-
sonar.
Olíufélagið hefur haft tvo fulltrúa
í stjórn Básafells, Ragnar Bogason
og Gunnar Birgisson, en Geir
kvaðst reikna með að þeir gengju úr
stjóm á hluthafafundi sem haldinn
verður fljótlega.
Olíufélagið hefur nýlega selt hlut
sinn í Búlandstindi og nú einnig í
BásafelM og Geir var spurður hvort
uppi væru áform um frekari sölu á
eignum félagsins í fiskvinnslufyrir-
tækjum, t.d. Vinnslustöðinni. Geir
sagði að Olíufélagið hefði markvisst
unnið að því að ná arðsemi í rekstri
þeirra sjávai-útvegsfyrirtækja, sem
það hefði átt hlut í, en engin áform
væru um sölu hlutafjár í Vinnslu-
stöðinni, þvert á móti. „Ég hef lagt
sérstaka áherslu á að við emm ekki
að fara að selja hlut okkar í
Vinnslustöðinni,“ sagði Geir Magn-
ússon.
Áhættusöm fjárfesting
Guðmundur Kristjánsson, út-
gerðarmaður frá Rifi, vildi ekki gefa
upp kaupverð það sem hann hefði
gefið fyrir hlutabréf Ishafs og Kers.
Hann hóf afskipti af málefnum
Básafells með kaupum á 7,6% hlut í
vor og sagði aðspurður að hann
hefði frá upphafi alveg eins átt von
á að auka frekar eign sína í fyrir-
tækinu. „Þetta félag er búið að eiga
við mikla erfiðleika að etja og það er
mikil vinna framundan," sagði Guð-
mundur. Hann sagði að vissulega
væri fyrirtækið mjög skuldsett og
fjárfestingin áhættusöm. Hann
sagði að við fyrsta tækifæri yrði
haldinn hluthafafundur og gengið
frá breytingum á stjórn félagsins.
Guðmundur hefur ekki setið í
stjóminni til þessa en kvaðst ætla
sér að setjast í stjómina á hluthafa-
fundinum.
Aðspui’ður hvort hann keypti
hlutabréfin í eigin nafni eða í umboði
fjölskyldufyrirtækis síns, Kristjáns
Guðmundssonar á Rifi, sagði hann
að það kæmi í Ijós fljótlega.