Morgunblaðið - 04.08.1999, Side 1

Morgunblaðið - 04.08.1999, Side 1
STOFNAÐ 1913 172. TBL. 87. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 4. ÁGÚST 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Járnbrautamálaráðherra Indlands segir af sér vegna lestarslyssins Mínnst 258 manns létu lífið Bresk gæludýr fá vegabréf London. Reuters. BRESK stjómvöld kynntu í gær áform um að gefa út vega- bréf fyrir gæludýr, sem gera eigendum þeirra kleift að ferð- ast með þau milli landa án þess að dýrin þurfi að dvelja í sótt- kví í sex mánuði eftir heim- komu. Nýju reglurnar gera ráð fyr- ir að ferðast megi með gæludýr til Evrópusambandsríkjanna, íslands, Noregs og Sviss, en þær taka gildi í apríl á næsta ári. Verður þetta fyrirkomulag fyrst um sinn haft til reynslu, en reynist það vel munu regl- urnar verða framlengdar. Aður en lagt er upp í ferðalag verður að taka blóðprufu úr dýrunum og bólusetja þau gegn hunda- æði og öðrum sjúkdómum, auk þess sem örflögu með upplýs- ingum um dýrin verður komið fyrir undir feldi þeirra. Að sögn Hayman barónessu, að- stoðarráðherra í breska land- búnaðarráðuneytinu, ættu Bretar ekki að þurfa að óttast útbreiðslu hundaæðis þrátt fyrir hinar nýju reglur. Ströng lög um innflutning dýra voru sett í Bretlandi árið 1901. Fyrsta gæludýrið sem sloppið hefur við vist í sóttkví síðan kom til Bretlands í byrj- un þessa mánaðar, en það var hundurinn Cassis, sem var fluttur frá Frakklandi eftir að eigandi hans, 15 ára krabba- meinssjúkur drengur, ritaði forsætisráðherranum, Tony Blair, bréf og óskaði eftir und- anþágu. Að sögn lögreglu hafa yfir 100.000 manns safnast saman á slysstað og hefur það hamlað nokkuð framvindu björgunarstarfsins. Rannsókn á til- drögum slyssins fer nú fram en lög- regla leitaði fjögurra jámbrautar- starfsmanna sem taldir eru hafa sent röng skilaboð til Avadh-Assam-hrað- lestarinnar sem var á leið frá Nýju Delhí. Afleiðingamar urðu þær að henni var skipt yfir á rangt brautar- spor, að því er talið er, og rakst á lest sem var að koma frá Guwahati. Jóhannes Páll páfi vottaði aðstand- endum fómarlambanna samúð sína í yfirlýsingu og fullvissaði þá um að „Guð almáttugur væri hjá þeim á þessari sorgarstundu". Bill Clinton og Hillary eiginkona hans vottuðu einnig samúð sína auk Kofi Annans, framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóð- anna. Slysið er eitt það mannskæðasta á Indlandi en í landinu er stærsta lesta- kerfi í heimi sem flytur um þrettán milljónir farþega daglega. Þeir sem björguðust úr slysinu vora fluttir í gær með sérstakri lest á brautarstöðina í Guwahati og biðu hennar hundrað örvæntingarfullra ættingja og vina í von um að ástvinir þeirra væra um borð. Gaisal, Guwahati, Nýju Delhí. Reuters, AFP, The Daily Telegraph. NITISH Kumar, jámbrautamálaráð- herra Indlands, sagði af sér embætti í gær. Hann segist bera siðferðilega ábyrgð á lestarslysinu sem varð að- faranótt mánudags skammt frá lest- arstöðinni í Gaisal, um 500 km frá Kalkútta í Vestur-Bengal. Að minnsta kosti 258 létust í slysinu en óttast er að fómarlömbin séu mun fleiri, eða yfir fjögur hundrað talsins. „Eg hef afhent forsætisráðherra (Atal Behari Vajpayee) afsagnar- beiðni mína þar sem ég tel mig bera siðferðilega ábyrgð á slysinu,“ sagði Kumar. Ennfremur sagði hann „glæpsamlega vanrækslu" af hálfu starfsfólks hafa orsakað slysið. „Allt sem ég sá við athugun mína á slysstað gefur til kynna að sökina sé að finna hjá jámbrautastarfsfólki. Það kemur ekki til greina að ég dragi uppsögn mína til baka,“ sagði Kumar. Björgunarstarfsmenn unnu að því í gær að fjarlægja lík úr jámbrauta- vögnum en um borð í hvorri lest vora yfir eitt þúsund farþegar og vora flestir í fasta svefni er slysið varð. Um þrjú hundrað slösuðust alvarlega er lestarnar rákust saman á um 90 km hraða á klukkustund. Enn átti eftir að leita í þremur vögnum í gær en þá var unnið að því að taka þá í sundur með krana þar sem þeir lágu í einni kös. Óttast er að tvö hundrað lík til viðbótar sé að finna í þeim. Fjögurra starfsmanna leitað Reuters LESTARNAR tvær, sem skuliu saman aðfaranótt mánudags, voru á um 90 km hraða og um borð í þeim voru rúmiega tvö þúsund farþegar. Reutcrs Allt á floti í SA-Asíu Næsti framkvæmdastjóri NATO Robertson væntan- lega skipaður í dag Brussel. Reuters. Sókn Talebana í Afganistan 250.000 manns á flótta Kabúl. Reuters. The Daily Telegraph. UM 250.000 manns hafa flúið harða bardaga milli Talebana og andstæð- inga þeirra í Afganistan síðustu daga, en Talebanar hafa hafið mikla sókn til að ná á sitt vald þeim tíunda hluta landsins sem verið hefur undir stjórn uppreisnarmanna. Haft er eftir foringjum uppreisn- armanna að helsti leiðtogi þeirra, Ahmad Shah Masood, hafi hörfað með lið sitt inn í Panjshir-dal, norð- ur af Kabúl, og að menn hans hafí sprengt upp kletta til að tálma leið Talebana inn í dalinn. Talebanar hertóku á mánudag stærstu borgina á sléttunum milli Kabúl og Panjshir, Charikar, og náðu einnig á sitt vald mikilvægri bækistöð uppreisnar- manna í Gulbahar. Starfsmenn hjálparsamtaka í Kabúl segja að þúsundir manna hafi lagt á flótta undan sókninni. Talsmaður Ahmad Shah Mashoods sagði í gær að allt að 250 þúsund manns hefðu leitað skjóls í Panjshir, og hvatti hann ríki heims til að veita þeim neyðarað- stoð. Talið er að um 1.500 hermenn hafi látið lífið eða særst í átökunum síðustu fimm daga, flestir úr liði Ta- lebana. ÞESSI fiiippseyski verkamaður skýlir sér hér með regnhlíf fyrir monsúnrigningunni, vaðandi elg- inn upp fyrir mitti á götu í Manila, höfuðborg Filippseyja, í gær. Gífurlegt úrhelli hefur dunið yfir nokkur lönd Suðaustur-Asíu undanfarna daga og valdið flóð- um sem tugir manna hafa týnt lífi í og eyðilagt mannvirki og ræktarland í stórum stfl. Fellibylurinn Olga gekk yfir Kóreuskagann í gær með tiiheyr- andi steypiregni og ofsavindi, sem felldi hús og reif upp tré og símastaura. Að minnsta kosti 54 Suður-Kóreubúar höfðu í gær farizt eða var saknað vegna veð- urofsans. ■ Mannskætt úrheili/30 GEORGE Robertson, varnarmála- ráðherra Bretlands, verður að öllum líkindum formlega útnefndur næsti framkvæmdastj óri Atlantshafsbanda- lagsins í dag, mið- vikudag, sam- kvæmt heimildum Reuters innan höf- uðstöðva NATO í Brassel í gær. Nokkur töf varð á því að þetta yrði staðfest, þar sem þrjú aðildarrfld bandalagsins - Holland, Belgía og Lúxemborg - höfðu ekki verið alls kostar sátt við hvemig staðið var að útnefningu Robertsons. Tony Blair, forsætisráðherra Bret- lands, tilnefndi Robertson í embættið sl. fostudag og búist hafði verið við því að hann hlyti strax blessun sendi- herra aðildarríkjanna 19 á fundi þeirra í Brassel á mánudag. Þá reyndust sendiherrar „Benelux“- ríkjanna þriggja vilja áskilja sér meiri tíma til að hafa ráðrúm til frek- ari ráðfærslu við rfldsstjórnir sínar. „Robertson er sá eini sem tilnefnd- ur hefur verið í embættið. Banda- mennirnir þrír sem báðu um lengri umþóttunartíma vora með því aðeins að gefa til kynna óánægju sína með að „stóra strákarnir" völtuðu yfir þá,“ sagði ónafngreindur embættis- maður NATO í samtali við Reuters. Talsmaður Hollandsstjórnar vísaði í gær á bug fréttum þess efnis, að löndin þrjú hafi tekið sig saman um að reyna að hindra skipun Robert- sons. Frásagnir stjórnarerindreka í höfuðstöðvum NATO herma, að Belgar hafi hvað mest verið hvumsa yfir skyndilegri tilnefningu Robert- sons í embættið, þar sem þeir höfðu áður reynt að afla stuðnings við til- nefningu Jean-Lucs Dehaenes, fyiT- verandi forsætisráðherra Belgíu. Ráðamenn í Hollandi og Lúxem- borg munu hafa verið ósáttir við þann mikla hraða sem átti að af- greiða málið á, og vinnubrögð stóra aðildarríkjanna, en Bandaríkin, Bret- land, Þýskaland og Frakkland virt- ust hafa ákveðið þetta sín í milli og síðan ætlað að keyra málið í gegn í hvelli. Robertson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.