Morgunblaðið - 04.08.1999, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913
172. TBL. 87. ÁRG.
MIÐVIKUDAGUR 4. ÁGÚST 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Járnbrautamálaráðherra Indlands segir af sér vegna lestarslyssins
Mínnst 258 manns létu lífið
Bresk
gæludýr fá
vegabréf
London. Reuters.
BRESK stjómvöld kynntu í
gær áform um að gefa út vega-
bréf fyrir gæludýr, sem gera
eigendum þeirra kleift að ferð-
ast með þau milli landa án þess
að dýrin þurfi að dvelja í sótt-
kví í sex mánuði eftir heim-
komu.
Nýju reglurnar gera ráð fyr-
ir að ferðast megi með gæludýr
til Evrópusambandsríkjanna,
íslands, Noregs og Sviss, en
þær taka gildi í apríl á næsta
ári. Verður þetta fyrirkomulag
fyrst um sinn haft til reynslu,
en reynist það vel munu regl-
urnar verða framlengdar. Aður
en lagt er upp í ferðalag verður
að taka blóðprufu úr dýrunum
og bólusetja þau gegn hunda-
æði og öðrum sjúkdómum, auk
þess sem örflögu með upplýs-
ingum um dýrin verður komið
fyrir undir feldi þeirra. Að
sögn Hayman barónessu, að-
stoðarráðherra í breska land-
búnaðarráðuneytinu, ættu
Bretar ekki að þurfa að óttast
útbreiðslu hundaæðis þrátt
fyrir hinar nýju reglur.
Ströng lög um innflutning
dýra voru sett í Bretlandi árið
1901. Fyrsta gæludýrið sem
sloppið hefur við vist í sóttkví
síðan kom til Bretlands í byrj-
un þessa mánaðar, en það var
hundurinn Cassis, sem var
fluttur frá Frakklandi eftir að
eigandi hans, 15 ára krabba-
meinssjúkur drengur, ritaði
forsætisráðherranum, Tony
Blair, bréf og óskaði eftir und-
anþágu.
Að sögn lögreglu hafa yfir 100.000
manns safnast saman á slysstað og
hefur það hamlað nokkuð framvindu
björgunarstarfsins. Rannsókn á til-
drögum slyssins fer nú fram en lög-
regla leitaði fjögurra jámbrautar-
starfsmanna sem taldir eru hafa sent
röng skilaboð til Avadh-Assam-hrað-
lestarinnar sem var á leið frá Nýju
Delhí. Afleiðingamar urðu þær að
henni var skipt yfir á rangt brautar-
spor, að því er talið er, og rakst á lest
sem var að koma frá Guwahati.
Jóhannes Páll páfi vottaði aðstand-
endum fómarlambanna samúð sína í
yfirlýsingu og fullvissaði þá um að
„Guð almáttugur væri hjá þeim á
þessari sorgarstundu". Bill Clinton
og Hillary eiginkona hans vottuðu
einnig samúð sína auk Kofi Annans,
framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóð-
anna.
Slysið er eitt það mannskæðasta á
Indlandi en í landinu er stærsta lesta-
kerfi í heimi sem flytur um þrettán
milljónir farþega daglega.
Þeir sem björguðust úr slysinu
vora fluttir í gær með sérstakri lest á
brautarstöðina í Guwahati og biðu
hennar hundrað örvæntingarfullra
ættingja og vina í von um að ástvinir
þeirra væra um borð.
Gaisal, Guwahati, Nýju Delhí. Reuters, AFP, The Daily Telegraph.
NITISH Kumar, jámbrautamálaráð-
herra Indlands, sagði af sér embætti í
gær. Hann segist bera siðferðilega
ábyrgð á lestarslysinu sem varð að-
faranótt mánudags skammt frá lest-
arstöðinni í Gaisal, um 500 km frá
Kalkútta í Vestur-Bengal. Að
minnsta kosti 258 létust í slysinu en
óttast er að fómarlömbin séu mun
fleiri, eða yfir fjögur hundrað talsins.
„Eg hef afhent forsætisráðherra
(Atal Behari Vajpayee) afsagnar-
beiðni mína þar sem ég tel mig bera
siðferðilega ábyrgð á slysinu,“ sagði
Kumar. Ennfremur sagði hann
„glæpsamlega vanrækslu" af hálfu
starfsfólks hafa orsakað slysið.
„Allt sem ég sá við athugun mína á
slysstað gefur til kynna að sökina sé
að finna hjá jámbrautastarfsfólki.
Það kemur ekki til greina að ég dragi
uppsögn mína til baka,“ sagði Kumar.
Björgunarstarfsmenn unnu að því í
gær að fjarlægja lík úr jámbrauta-
vögnum en um borð í hvorri lest vora
yfir eitt þúsund farþegar og vora
flestir í fasta svefni er slysið varð.
Um þrjú hundrað slösuðust alvarlega
er lestarnar rákust saman á um 90
km hraða á klukkustund.
Enn átti eftir að leita í þremur
vögnum í gær en þá var unnið að því
að taka þá í sundur með krana þar
sem þeir lágu í einni kös. Óttast er að
tvö hundrað lík til viðbótar sé að
finna í þeim.
Fjögurra starfsmanna leitað
Reuters
LESTARNAR tvær, sem skuliu saman aðfaranótt mánudags, voru á um 90 km hraða og um borð í þeim voru
rúmiega tvö þúsund farþegar.
Reutcrs
Allt á floti í SA-Asíu
Næsti framkvæmdastjóri NATO
Robertson væntan-
lega skipaður í dag
Brussel. Reuters.
Sókn Talebana í
Afganistan
250.000
manns á flótta
Kabúl. Reuters. The Daily Telegraph.
UM 250.000 manns hafa flúið harða
bardaga milli Talebana og andstæð-
inga þeirra í Afganistan síðustu
daga, en Talebanar hafa hafið mikla
sókn til að ná á sitt vald þeim tíunda
hluta landsins sem verið hefur undir
stjórn uppreisnarmanna.
Haft er eftir foringjum uppreisn-
armanna að helsti leiðtogi þeirra,
Ahmad Shah Masood, hafi hörfað
með lið sitt inn í Panjshir-dal, norð-
ur af Kabúl, og að menn hans hafí
sprengt upp kletta til að tálma leið
Talebana inn í dalinn. Talebanar
hertóku á mánudag stærstu borgina
á sléttunum milli Kabúl og Panjshir,
Charikar, og náðu einnig á sitt vald
mikilvægri bækistöð uppreisnar-
manna í Gulbahar. Starfsmenn
hjálparsamtaka í Kabúl segja að
þúsundir manna hafi lagt á flótta
undan sókninni. Talsmaður Ahmad
Shah Mashoods sagði í gær að allt
að 250 þúsund manns hefðu leitað
skjóls í Panjshir, og hvatti hann ríki
heims til að veita þeim neyðarað-
stoð. Talið er að um 1.500 hermenn
hafi látið lífið eða særst í átökunum
síðustu fimm daga, flestir úr liði Ta-
lebana.
ÞESSI fiiippseyski verkamaður
skýlir sér hér með regnhlíf fyrir
monsúnrigningunni, vaðandi elg-
inn upp fyrir mitti á götu í
Manila, höfuðborg Filippseyja, í
gær.
Gífurlegt úrhelli hefur dunið
yfir nokkur lönd Suðaustur-Asíu
undanfarna daga og valdið flóð-
um sem tugir manna hafa týnt
lífi í og eyðilagt mannvirki og
ræktarland í stórum stfl.
Fellibylurinn Olga gekk yfir
Kóreuskagann í gær með tiiheyr-
andi steypiregni og ofsavindi,
sem felldi hús og reif upp tré og
símastaura. Að minnsta kosti 54
Suður-Kóreubúar höfðu í gær
farizt eða var saknað vegna veð-
urofsans.
■ Mannskætt úrheili/30
GEORGE Robertson, varnarmála-
ráðherra Bretlands, verður að öllum
líkindum formlega útnefndur næsti
framkvæmdastj óri
Atlantshafsbanda-
lagsins í dag, mið-
vikudag, sam-
kvæmt heimildum
Reuters innan höf-
uðstöðva NATO í
Brassel í gær.
Nokkur töf varð á
því að þetta yrði
staðfest, þar sem
þrjú aðildarrfld
bandalagsins - Holland, Belgía og
Lúxemborg - höfðu ekki verið alls
kostar sátt við hvemig staðið var að
útnefningu Robertsons.
Tony Blair, forsætisráðherra Bret-
lands, tilnefndi Robertson í embættið
sl. fostudag og búist hafði verið við
því að hann hlyti strax blessun sendi-
herra aðildarríkjanna 19 á fundi
þeirra í Brassel á mánudag. Þá
reyndust sendiherrar „Benelux“-
ríkjanna þriggja vilja áskilja sér
meiri tíma til að hafa ráðrúm til frek-
ari ráðfærslu við rfldsstjórnir sínar.
„Robertson er sá eini sem tilnefnd-
ur hefur verið í embættið. Banda-
mennirnir þrír sem báðu um lengri
umþóttunartíma vora með því aðeins
að gefa til kynna óánægju sína með
að „stóra strákarnir" völtuðu yfir
þá,“ sagði ónafngreindur embættis-
maður NATO í samtali við Reuters.
Talsmaður Hollandsstjórnar vísaði
í gær á bug fréttum þess efnis, að
löndin þrjú hafi tekið sig saman um
að reyna að hindra skipun Robert-
sons. Frásagnir stjórnarerindreka í
höfuðstöðvum NATO herma, að
Belgar hafi hvað mest verið hvumsa
yfir skyndilegri tilnefningu Robert-
sons í embættið, þar sem þeir höfðu
áður reynt að afla stuðnings við til-
nefningu Jean-Lucs Dehaenes, fyiT-
verandi forsætisráðherra Belgíu.
Ráðamenn í Hollandi og Lúxem-
borg munu hafa verið ósáttir við
þann mikla hraða sem átti að af-
greiða málið á, og vinnubrögð stóra
aðildarríkjanna, en Bandaríkin, Bret-
land, Þýskaland og Frakkland virt-
ust hafa ákveðið þetta sín í milli og
síðan ætlað að keyra málið í gegn í
hvelli.
Robertson