Morgunblaðið - 04.08.1999, Side 4

Morgunblaðið - 04.08.1999, Side 4
4 MIÐVIKUDAGUR 4. ÁGÚST 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR * Rokkstjarnan Mick Jagger birtist óvænt á Isafírði Ljósmynd/Árný Herbertsdóttir MICK Jagger á ísafirði ásamt Ólafi Helga Kjartanssyni. „Maður mjög líkur söngvaran- um fræga“ ÁRRISULIR ísfirðingar ráku margir hverjir upp stór augu þeg- ar þeir urðu varir við útlending einn, enskumælandi, sem óneitan- lega liktist rokkstjörnunni og aðal- söngvara hljómsvcitarinnar Roll- ing Stones á ferð um bæinn ásamt föruneyti á sunnudagsmorgun. Aðrir sem honum mættu tóku þó ekki eftir neinu sérstöku enda áttu bæjarbúar allra síst von á að hitta Mick Jagger á förnum vegi á Isa- firði. Söngvarinn í fylgd fimm manna hjólaði, eins og ekkert væri, um götur bæjarins, og tóku nokkrir einna helst eftir því að þeir væru ekki á fjallahjólum eins og aðrir útiendingar heldur á gamaldags reiðhjólum með li'till körfu framan á. títlendingarnir komu m.a. við í Neðstakaupstað þar sem þeir fengu sér að borða, keyptu nokkrar bækur í Bókhlöð- unni og komu við á Byggðasafn- inu. Sagan um manninn sem líktist Mick Jagger spurðist þó fljótt út og leið ekki á löngu þar til helstu aðdáendur Rolling Stones gátu staðfest að þarna væri á ferðinni enginn annar en rokkarinn frægi. Ólafur Helgi Kjartansson sýslu- maður á Isafirði og mikill aðdá- andi hljómsveitarinnar lýsir því svo í samtali við Morgunblaðið, að hann hafi fengið upphringingu snemma dags, þar sem hann hefði verið spurður að því hvort gæti verið að Mick Jagger væri staddur í bænum. „Alltjént væri maður við Bókhlöðuna sem líktist mjög söngvaranum fræga,“ átti maður- inn á hinum enda h'nunnar að hafa sagt. „Ég ákvað að athuga hvort þessar sögusagnir væru sannar,“ segir Ólafur Helgi, „og þegar ég ók Silfurgötuna komu Jagger og félagar hans hjólandi á móti mér.“ Ólafur Helgi hitti si'ðan goðið skammt frá útvarpshúsinu og átti þar stutt en ánægjulegt spjall við hann. Mick Jagger kom með íslands- flugi til Isafjarðar á laugardag og á milli þess sem hann hjólaði um bæinn og sigldi um ísafjarðardjúp og Homstrandir hafðist hann við í stórri snekkju, í eigu i'taisks auð- kýfings, skammt frá höfninni. Jagger og félagar notuðu daginn í gær til þess að fara í útsýnisflug yfir landið, en síðla dags komu þeir aftur til ísafjarðar og sigldu á brott með snekkjunni seinna um kvöldið. Jagger kom m.a. við á Byggða- safninu á Isafirði á sunnudag og sýndi þar að sögn Jóns Sigurpáls- sonar safnvarðar mikinn áhuga á jarðhitasvæðum og virkni eldfjalla. „Hann er ósköp geðugur og hroka- laus náungi," segir Jón m.a., en Jagger eyddi dágóðum tíma á safninu. Seinna um daginn hélt Jagger ásamt föruneyti út í snekkjuna, þaðan sem siglt var á stómm hraðbáti m.a. til Lónafjarð- ar, en aðdáendum hans til mikilla vonbrigða mætti hann ekki á krár bæjarins um kvöldið, eins og hann hafði reyndar lýst yfir í fréttavið- tali i' Sjónvarpinu sama kvöld. Að sögn þeirra sem til þekkja hefur sjaldan eða aldrei verið eins fjiil- mennt á skemmtistöðum bæjarins um verslunarmannahelgi og þetta sunnudagskvöld. Á mánudag og fram á þriðju- dagsmorgun ferðuðust Jagger og félagar um Hornstrandir undir leiðsögn Snorra Grímssonar leið- sögumanns á Isafirði. „Við sigldum á snekkjunni norður í Hornvík að- faranótt mánudags og vomm kom- in þangað um morguninn," segir Snorri við Morgunblaðið en veðrið var reyndar ekki upp á sitt besta, fremur lágskýjað og þoka í um 200 metra hæð. Því var horfið frá þeim áformum að fara á Hornbjarg en þess í stað fóm rokkarinn og föm- neyti í land í Rekavík og þaðan var haldið til Reykjafjarðar, þar sem hópurinn fékk sér sundsprett í heitri sundlaug. Snorri kveður hópinn hafa verið ánægðan með ferðina og segir að Jagger og fé- lagar hafi sérstaklega verið hrifnir af ferðinni til Rekavíkur, þar sem refir vora að sniglast í kringum þá. „Fyrir mig var skemmtilegast að sjá svipinn á fólkinu, því það var steinhissa á því hvað refirnir vom gæfir," segir Snorri að síð- ustu. íbúðalánasjóður greiðir 118 milljónir kr. vegna vaxtabóta sem fóru til sjóðsins 2.800 einstakling- ar fá vaxtabætur sínar að fullu ÍBÚÐALÁNASJÓÐUR greiðir 3.426 einstaklingum samanlagt 118,4 milljónir króna vegna vaxta- bóta sem ráðstafað var til sjóðsins vegna gjaldfallinna afborgana íbúðalána. Þá hefur verið skulda- jafnað inn á gjaldfallnar afborganir 2.990 einstaklinga rúmlega 161 milljón króna en samanlagt fékk íbúðalánasjóður tæpar 280 milljónir króna til ráðstöfunar vegna þessa. í frétt frá íbúðalánasjóði kemur fram að sjóðurinn hafi sent upplýs- ingar til ríkissjóðs um gjaldfallnar afborganir húsnæðislána í byrjun júlí í samræmi við reglugerð nr. 64/1999. Tekið hafi verið mið af dag- setningunni 30. júní og með þá til- vísun hafi rfldssjóður sent greiðslu vaxtabóta til Ibúðalánasjóðs þann 30. júlí. Fengu vaxtabætur 5.800 einstaklinga Guðmundur Bjamason, forstjóri íbúðalánasjóðs, sagði að sjóðurinn hefði fengið vaxtabætur 5.800 ein- staklinga og endurgreiða hefði þurft um 3.400 þeirra aftur. Þar af fengju 2.800 einstaklingar að fullu þær vaxtabætur sem teknar hefðu verið af þeim. Það stafaði af því að teknar hefðu verið vaxtabætur vegna seinasta gjalddaga og menn hefðu verið búnir að greiða hann í júlímánuði. Guðmundur sagðist aðspurður telja eðlilegt að endurskoða reglur í þessum efnum í ljósi reynslunnar nú og þess háa hlutfalls sem vaxta- bætur hefðu verið teknar af þótt lánin væru komin í skil. Hins vegar væri þetta í fyrsta skipti sem skuldajafnað væri vaxtabótum á móti gjaldföllnum afborgunum íbúðalána. „Við renndum alveg blint í sjóinn. Við höfðum í raun ekki hugmynd um það hve margir væru að greiða svona á fyrstu dögum eft- ir eindaga en það sýnir sig að það er ansi hátt hlutfall sem dregur þetta í meira en hálfan mánuð, kannski mánuð til einn og hálfan," sagði Guðmundur. Hann sagði að lögin og reglu- gerðin segðu að skuldajafna skyldi á móti gjaldföllnum afborgunum og vöxtum og hann teldi að skoða yrði hvort ekki væri ástæða til að rýmka þessi ákvæði. Hann hefði rætt við fjármálaráðuneytið í gær í Ijósi þessarar reynslu og hann teldi að farið yrði yfir reglumar í þessum efnum í framhaldinu. ---------------- Bfll með sjö ára dreng fer fram af fjallsbrún SJÖ ára drengur var einn í bifreið sem rann niður fjallshlíð og fram af hárri fjallsbrún suður af Húsavíkur- fjalli á föstudag. Endaði bfllinn síð- an í miðri hlíðinni. Drengurinn meiddist lítið en bfllinn er talinn gjörónýtur. Foreldrar drengsins höfðu lagt bflnum á vegslóða en drengurinn komist inn í bflinn og tekið hann úr gír eða handbremsu, með fyrrgreindum afleiðingum, að sögn lögreglunnar á Húsavík. Skipverjar Odincova vekja athygli á launakröfum sínum Vilja fá Eimskip til að þrýsta á útgerðina Morgunblaðið/Ásdís HLUTI skipveija Odincova hélt í aðalstöðvar Eimskips í gær og vildi fá fyrirtækið til að beita útgerðina þvingunum og þrýsta á hana að greiða laun. Tekinn með tæpt kíló af hassi TOLLGÆSLAN á Keflavíkurflug- velli gerði upptækt tæpt kfló af hassi sem fannst við líkamsleit á manni sem var að koma til landsins frá Kaupmannahöfn sl. laugardags- kvöld. Tollgæslan var með hund til fíkni- efnaleitar við störf sín. Maðurinn, sem bar fíkniefnin á sér innan- klæða, játaði í yfirheyrslum hjá yf- irvöldum að eiga efnið. Honum var sleppt úr haldi síðar um kvöldið en mál hans verður sent áfram til við- eigandi meðferðar. Á norðurleið með fíkniefni TVEIR menn hafa verið hand- teknir í tengslum við fund lögregl- unnar á Sauðárkróki á fíkniefnum í bíl í Varmahlíð. Bfli mannanna var stöðvaður þegar hann var á leið norður síðastliðinn fimmtudag. Annar þeirra var úrskurðaður í gæsluvarðhald en var látinn laus sl. laugardag en hinn er ennþá í gæslu lögreglu. I bílnum fannst eitthvert magn af kókaíni og amfetamíni og um 200 grömm af hassi. Til stendur að fara fram á gæsluvarðhald yfir manninum sem er nú í haldi lög- reglunnar. Málið er ekki að fullu upplýst. SKIPVERJAR af skipinu Odincova, sem ekki hafa fengið laun sín greidd frá því snemma á árinu og segjast eiga inni um 10 milljónir hjá Sæ- mundi Árelíussyni útgerðarmanni, vöktu í gær athygli á málstað sínum með því að ræða við embættismenn í dómsmálaráðuneytinu. Einnig sett- ust þeir inn í afgreiðslu Eimskips um tíma síðdegis í gær og óskuðu lið- sinnis félagsins en fyrirtækið hefur þjónustað fiskveiðiskipið Erlu sem er í eigu sömu aðila. Fjórtán skipverjar eru á Odincova, flestir frá Lettlandi, og segir Genna- diy skipstjóri að skipshöfnin hafi ekki fengið laun frá því í febrúar og skipið legið bundið við bryggju. Fór skips- höfnin fram á það við Eimskip í gær að ekki yrði losaður farmur úr fisk- veiðiskipinu Erlu í Argentia á Nýfundnalandi fyrr en tryggt væri að laun skipverja á Odincova yrðu greidd en sama útgerð gerir út bæði skipin. Skipstjórinn sagði eðlilegt að fá Eimskip til að beita útgerðina þrýstingi, fyrirtækin ættu í viðskipt- um og Eimskip gæti lagt skipverjum lið með því að neita að þjónusta út- gerðina. Sagði hann skipverja ekki fara úr byggingunni fyrr en stuðn- ingur við þá yrði tryggður. Þeir yfir- gáfu þó afgreiðslu Eimskips við Póst- hússtræti í Reykjavík rétt eftir lokun eftir að hafa rætt málin við fulltrúa fyrirtækisins. Ábyrgðin ekki Eimskips Guðný Káradóttir, kynningar- stjóri Eimskips, tjáði Morgunblaðinu að Eimskip annaðist ýmsa þjónustu við útgerðir, m.a. í Færeyjum, Nýfundnalandi og víðar og hefði fyr- irtækið verið beðið að losa Erlu í Ár- gentia. Hún sagði Eimskip á engan hátt aðila að deilumáli skipverja Od- incova og útgerðarinnar en sagði að losun yrði ekki hafin fyrr en ljóst yrði að staðið yrði löglega að öllum málum. Hún sagði Eimskip enga ábyrgð bera á launakröfum skip- verja hvorki á Odincova né Erlu. Eimskip hefði lagt áherslu á það við útgerðina að hún leysti launamál skipverja sinna. Borgþór Kjærnested, fulltrúi Al- þjóðaflutningaverkamannasam- bandsins, hefur ásamt Jónasi Garð- arssyni hjá Sjómannafélagi Reykja- víkur aðstoðað skipverja við að leit- ast við að fá laun sín greidd. Sagði Borgþór að skipverjar Erlu hefðu neitað að losa skipið í gær og reyna ætti að fá það kyrrsett í dag. Skipverjar Odincova hafa fengið ýmsa aðstoð hérlendis og hafa þeim m.a borist matarsendingar og annað. Gennadiy skipstjóri sagði að útgerð- armaðurinn hefði þó hvorki sýnt lit í að greiða skipverjum laun né að- stoða þá við að leita læknis eða á neinn annan hátt allan þann tíma sem þeir hafa orðið að dvelja í skip- inu. S BREF o OKKAR SÉRFRÆÐINGAR þín ávöxtun BUNAÐARBANKINN VERÐBRÉF • byggir á trausti

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.