Morgunblaðið - 04.08.1999, Page 4
4 MIÐVIKUDAGUR 4. ÁGÚST 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
*
Rokkstjarnan Mick Jagger birtist óvænt á Isafírði
Ljósmynd/Árný Herbertsdóttir
MICK Jagger á ísafirði ásamt Ólafi Helga Kjartanssyni.
„Maður
mjög líkur
söngvaran-
um fræga“
ÁRRISULIR ísfirðingar ráku
margir hverjir upp stór augu þeg-
ar þeir urðu varir við útlending
einn, enskumælandi, sem óneitan-
lega liktist rokkstjörnunni og aðal-
söngvara hljómsvcitarinnar Roll-
ing Stones á ferð um bæinn ásamt
föruneyti á sunnudagsmorgun.
Aðrir sem honum mættu tóku þó
ekki eftir neinu sérstöku enda áttu
bæjarbúar allra síst von á að hitta
Mick Jagger á förnum vegi á Isa-
firði. Söngvarinn í fylgd fimm
manna hjólaði, eins og ekkert
væri, um götur bæjarins, og tóku
nokkrir einna helst eftir því að
þeir væru ekki á fjallahjólum eins
og aðrir útiendingar heldur á
gamaldags reiðhjólum með li'till
körfu framan á. títlendingarnir
komu m.a. við í Neðstakaupstað
þar sem þeir fengu sér að borða,
keyptu nokkrar bækur í Bókhlöð-
unni og komu við á Byggðasafn-
inu. Sagan um manninn sem líktist
Mick Jagger spurðist þó fljótt út
og leið ekki á löngu þar til helstu
aðdáendur Rolling Stones gátu
staðfest að þarna væri á ferðinni
enginn annar en rokkarinn frægi.
Ólafur Helgi Kjartansson sýslu-
maður á Isafirði og mikill aðdá-
andi hljómsveitarinnar lýsir því
svo í samtali við Morgunblaðið, að
hann hafi fengið upphringingu
snemma dags, þar sem hann hefði
verið spurður að því hvort gæti
verið að Mick Jagger væri staddur
í bænum. „Alltjént væri maður við
Bókhlöðuna sem líktist mjög
söngvaranum fræga,“ átti maður-
inn á hinum enda h'nunnar að hafa
sagt. „Ég ákvað að athuga hvort
þessar sögusagnir væru sannar,“
segir Ólafur Helgi, „og þegar ég
ók Silfurgötuna komu Jagger og
félagar hans hjólandi á móti mér.“
Ólafur Helgi hitti si'ðan goðið
skammt frá útvarpshúsinu og átti
þar stutt en ánægjulegt spjall við
hann.
Mick Jagger kom með íslands-
flugi til Isafjarðar á laugardag og
á milli þess sem hann hjólaði um
bæinn og sigldi um ísafjarðardjúp
og Homstrandir hafðist hann við í
stórri snekkju, í eigu i'taisks auð-
kýfings, skammt frá höfninni.
Jagger og félagar notuðu daginn í
gær til þess að fara í útsýnisflug
yfir landið, en síðla dags komu
þeir aftur til ísafjarðar og sigldu á
brott með snekkjunni seinna um
kvöldið.
Jagger kom m.a. við á Byggða-
safninu á Isafirði á sunnudag og
sýndi þar að sögn Jóns Sigurpáls-
sonar safnvarðar mikinn áhuga á
jarðhitasvæðum og virkni eldfjalla.
„Hann er ósköp geðugur og hroka-
laus náungi," segir Jón m.a., en
Jagger eyddi dágóðum tíma á
safninu. Seinna um daginn hélt
Jagger ásamt föruneyti út í
snekkjuna, þaðan sem siglt var á
stómm hraðbáti m.a. til Lónafjarð-
ar, en aðdáendum hans til mikilla
vonbrigða mætti hann ekki á krár
bæjarins um kvöldið, eins og hann
hafði reyndar lýst yfir í fréttavið-
tali i' Sjónvarpinu sama kvöld. Að
sögn þeirra sem til þekkja hefur
sjaldan eða aldrei verið eins fjiil-
mennt á skemmtistöðum bæjarins
um verslunarmannahelgi og þetta
sunnudagskvöld.
Á mánudag og fram á þriðju-
dagsmorgun ferðuðust Jagger og
félagar um Hornstrandir undir
leiðsögn Snorra Grímssonar leið-
sögumanns á Isafirði. „Við sigldum
á snekkjunni norður í Hornvík að-
faranótt mánudags og vomm kom-
in þangað um morguninn," segir
Snorri við Morgunblaðið en veðrið
var reyndar ekki upp á sitt besta,
fremur lágskýjað og þoka í um 200
metra hæð. Því var horfið frá þeim
áformum að fara á Hornbjarg en
þess í stað fóm rokkarinn og föm-
neyti í land í Rekavík og þaðan var
haldið til Reykjafjarðar, þar sem
hópurinn fékk sér sundsprett í
heitri sundlaug. Snorri kveður
hópinn hafa verið ánægðan með
ferðina og segir að Jagger og fé-
lagar hafi sérstaklega verið hrifnir
af ferðinni til Rekavíkur, þar sem
refir vora að sniglast í kringum
þá. „Fyrir mig var skemmtilegast
að sjá svipinn á fólkinu, því það
var steinhissa á því hvað refirnir
vom gæfir," segir Snorri að síð-
ustu.
íbúðalánasjóður greiðir 118 milljónir kr.
vegna vaxtabóta sem fóru til sjóðsins
2.800 einstakling-
ar fá vaxtabætur
sínar að fullu
ÍBÚÐALÁNASJÓÐUR greiðir
3.426 einstaklingum samanlagt
118,4 milljónir króna vegna vaxta-
bóta sem ráðstafað var til sjóðsins
vegna gjaldfallinna afborgana
íbúðalána. Þá hefur verið skulda-
jafnað inn á gjaldfallnar afborganir
2.990 einstaklinga rúmlega 161
milljón króna en samanlagt fékk
íbúðalánasjóður tæpar 280 milljónir
króna til ráðstöfunar vegna þessa.
í frétt frá íbúðalánasjóði kemur
fram að sjóðurinn hafi sent upplýs-
ingar til ríkissjóðs um gjaldfallnar
afborganir húsnæðislána í byrjun
júlí í samræmi við reglugerð nr.
64/1999. Tekið hafi verið mið af dag-
setningunni 30. júní og með þá til-
vísun hafi rfldssjóður sent greiðslu
vaxtabóta til Ibúðalánasjóðs þann
30. júlí.
Fengu vaxtabætur 5.800
einstaklinga
Guðmundur Bjamason, forstjóri
íbúðalánasjóðs, sagði að sjóðurinn
hefði fengið vaxtabætur 5.800 ein-
staklinga og endurgreiða hefði
þurft um 3.400 þeirra aftur. Þar af
fengju 2.800 einstaklingar að fullu
þær vaxtabætur sem teknar hefðu
verið af þeim. Það stafaði af því að
teknar hefðu verið vaxtabætur
vegna seinasta gjalddaga og menn
hefðu verið búnir að greiða hann í
júlímánuði.
Guðmundur sagðist aðspurður
telja eðlilegt að endurskoða reglur í
þessum efnum í ljósi reynslunnar
nú og þess háa hlutfalls sem vaxta-
bætur hefðu verið teknar af þótt
lánin væru komin í skil. Hins vegar
væri þetta í fyrsta skipti sem
skuldajafnað væri vaxtabótum á
móti gjaldföllnum afborgunum
íbúðalána. „Við renndum alveg blint
í sjóinn. Við höfðum í raun ekki
hugmynd um það hve margir væru
að greiða svona á fyrstu dögum eft-
ir eindaga en það sýnir sig að það er
ansi hátt hlutfall sem dregur þetta í
meira en hálfan mánuð, kannski
mánuð til einn og hálfan," sagði
Guðmundur.
Hann sagði að lögin og reglu-
gerðin segðu að skuldajafna skyldi
á móti gjaldföllnum afborgunum og
vöxtum og hann teldi að skoða yrði
hvort ekki væri ástæða til að rýmka
þessi ákvæði. Hann hefði rætt við
fjármálaráðuneytið í gær í Ijósi
þessarar reynslu og hann teldi að
farið yrði yfir reglumar í þessum
efnum í framhaldinu.
----------------
Bfll með sjö ára
dreng fer fram
af fjallsbrún
SJÖ ára drengur var einn í bifreið
sem rann niður fjallshlíð og fram af
hárri fjallsbrún suður af Húsavíkur-
fjalli á föstudag. Endaði bfllinn síð-
an í miðri hlíðinni. Drengurinn
meiddist lítið en bfllinn er talinn
gjörónýtur. Foreldrar drengsins
höfðu lagt bflnum á vegslóða en
drengurinn komist inn í bflinn og
tekið hann úr gír eða handbremsu,
með fyrrgreindum afleiðingum, að
sögn lögreglunnar á Húsavík.
Skipverjar Odincova vekja athygli á launakröfum sínum
Vilja fá Eimskip til
að þrýsta á útgerðina
Morgunblaðið/Ásdís
HLUTI skipveija Odincova hélt í aðalstöðvar Eimskips í gær og vildi
fá fyrirtækið til að beita útgerðina þvingunum og þrýsta á hana að
greiða laun.
Tekinn með
tæpt kíló
af hassi
TOLLGÆSLAN á Keflavíkurflug-
velli gerði upptækt tæpt kfló af
hassi sem fannst við líkamsleit á
manni sem var að koma til landsins
frá Kaupmannahöfn sl. laugardags-
kvöld.
Tollgæslan var með hund til fíkni-
efnaleitar við störf sín. Maðurinn,
sem bar fíkniefnin á sér innan-
klæða, játaði í yfirheyrslum hjá yf-
irvöldum að eiga efnið. Honum var
sleppt úr haldi síðar um kvöldið en
mál hans verður sent áfram til við-
eigandi meðferðar.
Á norðurleið
með fíkniefni
TVEIR menn hafa verið hand-
teknir í tengslum við fund lögregl-
unnar á Sauðárkróki á fíkniefnum
í bíl í Varmahlíð. Bfli mannanna
var stöðvaður þegar hann var á
leið norður síðastliðinn fimmtudag.
Annar þeirra var úrskurðaður í
gæsluvarðhald en var látinn laus
sl. laugardag en hinn er ennþá í
gæslu lögreglu.
I bílnum fannst eitthvert magn
af kókaíni og amfetamíni og um
200 grömm af hassi. Til stendur að
fara fram á gæsluvarðhald yfir
manninum sem er nú í haldi lög-
reglunnar. Málið er ekki að fullu
upplýst.
SKIPVERJAR af skipinu Odincova,
sem ekki hafa fengið laun sín greidd
frá því snemma á árinu og segjast
eiga inni um 10 milljónir hjá Sæ-
mundi Árelíussyni útgerðarmanni,
vöktu í gær athygli á málstað sínum
með því að ræða við embættismenn í
dómsmálaráðuneytinu. Einnig sett-
ust þeir inn í afgreiðslu Eimskips um
tíma síðdegis í gær og óskuðu lið-
sinnis félagsins en fyrirtækið hefur
þjónustað fiskveiðiskipið Erlu sem
er í eigu sömu aðila.
Fjórtán skipverjar eru á Odincova,
flestir frá Lettlandi, og segir Genna-
diy skipstjóri að skipshöfnin hafi ekki
fengið laun frá því í febrúar og skipið
legið bundið við bryggju. Fór skips-
höfnin fram á það við Eimskip í gær
að ekki yrði losaður farmur úr fisk-
veiðiskipinu Erlu í Argentia á
Nýfundnalandi fyrr en tryggt væri
að laun skipverja á Odincova yrðu
greidd en sama útgerð gerir út bæði
skipin. Skipstjórinn sagði eðlilegt að
fá Eimskip til að beita útgerðina
þrýstingi, fyrirtækin ættu í viðskipt-
um og Eimskip gæti lagt skipverjum
lið með því að neita að þjónusta út-
gerðina. Sagði hann skipverja ekki
fara úr byggingunni fyrr en stuðn-
ingur við þá yrði tryggður. Þeir yfir-
gáfu þó afgreiðslu Eimskips við Póst-
hússtræti í Reykjavík rétt eftir lokun
eftir að hafa rætt málin við fulltrúa
fyrirtækisins.
Ábyrgðin ekki Eimskips
Guðný Káradóttir, kynningar-
stjóri Eimskips, tjáði Morgunblaðinu
að Eimskip annaðist ýmsa þjónustu
við útgerðir, m.a. í Færeyjum,
Nýfundnalandi og víðar og hefði fyr-
irtækið verið beðið að losa Erlu í Ár-
gentia. Hún sagði Eimskip á engan
hátt aðila að deilumáli skipverja Od-
incova og útgerðarinnar en sagði að
losun yrði ekki hafin fyrr en ljóst
yrði að staðið yrði löglega að öllum
málum. Hún sagði Eimskip enga
ábyrgð bera á launakröfum skip-
verja hvorki á Odincova né Erlu.
Eimskip hefði lagt áherslu á það við
útgerðina að hún leysti launamál
skipverja sinna.
Borgþór Kjærnested, fulltrúi Al-
þjóðaflutningaverkamannasam-
bandsins, hefur ásamt Jónasi Garð-
arssyni hjá Sjómannafélagi Reykja-
víkur aðstoðað skipverja við að leit-
ast við að fá laun sín greidd. Sagði
Borgþór að skipverjar Erlu hefðu
neitað að losa skipið í gær og reyna
ætti að fá það kyrrsett í dag.
Skipverjar Odincova hafa fengið
ýmsa aðstoð hérlendis og hafa þeim
m.a borist matarsendingar og annað.
Gennadiy skipstjóri sagði að útgerð-
armaðurinn hefði þó hvorki sýnt lit í
að greiða skipverjum laun né að-
stoða þá við að leita læknis eða á
neinn annan hátt allan þann tíma
sem þeir hafa orðið að dvelja í skip-
inu.
S BREF
o
OKKAR SÉRFRÆÐINGAR
þín ávöxtun
BUNAÐARBANKINN
VERÐBRÉF
• byggir á trausti