Morgunblaðið - 04.08.1999, Side 8

Morgunblaðið - 04.08.1999, Side 8
8 MIÐVIKUDAGUR 4. ÁGÚST 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Forsætisráðherra segir vísbendingar um að verðbólgan fari minnkandi GÓÐÆRIÐ er annaðhvort í ökla eða eyra. ERU ÞEIR AÐ FA’ANN? Gott á urriðasvæðinu URRIÐAVEIÐI í Laxá í Mývatns- sveit hefur verið afar góð í sumar að sögn Hólmfríðar Jónsdóttur á Am- arvatni, veiðivarðar á svæðinu. Um helgina voru komnir hátt í þrjú þús- und urriðar á land. Hólmfríður sagði veiðina eitthvað lakari heldur en í fyrra, en hún væri samt langt yfír meðalveiði og það væri mikill fiskur á svæðinu og gott ástand á honum. „Pað hefur ekki borið á slýi í ánni, en hún er grænleit. Ástandið er mjög gott og fiskurinn vænn eins og í fyrra. Það vantar þó þessa allra stærstu í aflann, nokkrir 7 punda eru stærstir, en 2 til 5 punda eru al- gengastir. Það eru hefðbundnar flugur sem eru að gefa, straumflug- urnar og púpumar með kúluhaus- ana,“ bætti Hólmfríður við. Enn bíða menn eftir að Gljúfurá í Borgarfirði lifni. í helgarbyrjun vom aðeins komnir 79 laxar úr ánni og menn sem vom að veiðum sáu lítið af físki. í fyira var aflabrestur í ánni og kenndu menn um vatnsleysi, en í allt sumar hefur vatnsmagn verið ákjósanlegt. Fiskifræðingar töldu forsendur fyrir veiðibata í sumar vera fyrir hendi, en laxinn hefur lát- ið bíða eftir sér. Miðá á réttu róli Miðá í Dölum tók vel við sér í fyrra og byrjar einnig vel í ár. I gær voru komnir milli 25 og 30 laxar á land og hátt í 300 bleikjur. Besti tíminn í Miðá er að fara í hönd og því óhætt að segja að vel gangi. Þó hefur dofnað þar vestra síðustu daga, enda heitt og bjart veður með minnkandi vatni að undanfömu. DANIEL Jónsson úr Mosfellsbæ gerði það gott í Þingvallavatni fyrir skömmu. Hann var að veið- um í landi Nesja og fékk þá fihan afla, m.a. 7 punda bleikju. Marsir litir 25mm os 50mm meö os án borða Frábært verö Tré- rimlaslu Aðalfundur Norrænu bændasamtakanna Alþjóðaviðskipti með landbún- aðarvörur Guðmundur Stefánsson DAGANA 4.-5. ágúst verður aðal- fundur Norrænu bændasamtakanna haJd- inn á Akureyri en slíkur fundur var síðast haldinn hér á landi fyrir tíu árum. Guðmundur Stefánsson hefur haft veg og vanda af undmbúningi fundaríns. „Á fundinum verða rædd ýmis mál. Sum varða beinlínis starfsemi Norrænu bændasamtak- anna en önnur starfsum- hverfi norrænna bænda almennt. Hæst ber um- fjöllun um næstu samn- inga um alþjóðaviðskipti með landbúnaðarvörur en þær fara fram innan WTO, Alþjóða viðskipta- stofnunarinnar. I WTO samningunum er samið um reglur og takmarkanir á stuðningi við landbúnað í aðildar- löndunum en þær reglur sem nú gilda voru ákveðnar í Úrúgvæ- samningnum sem tók gildi árið 1995.“ Guðmundur segir að um næstu áramót hefjist ný samningalota og Norðurlöndin hafa lagt áherslu á að í þeim verði ekki bara rætt um frekari hömlur á stuðningi og óheft frelsi til við- skipta, heldur verði einnig tekið tillit til sérstöðu landbúnaðar á norðlægum slóðum. Þá hefur einnig verið lögð áhersla á rétt þjóða til að banna eða takmarka innflutning á búvörum sem inni- halda óæskileg efni s.s. hormóna og önnur vaxtarhvetjandi efni, genblönduð matvæli og fleiri at- riði er lúta að heilnæmi fæðu, dýravemd og svo frv. Þó ekki sé eining innan Norðurlandannna um öll þessi atriði þá hafa þau sameiginlegan skiining á að land- búnaður er þess eðlis að ekki er unnt að leggja hann á markaðs- lega mælistiku eingöngu. Taka þarf tillit til annarra gilda einnig.“ -Hvaða fyrirlesarar verða á aðalfundinum? „NBC hefur fengið þrjá fyrir- lesara sem allir eru með alþjóð- legan bakgrann á sviði viðskipta- mála til að fjalla um WTO. Rud- olf Strohmeier er aðstoðarráðu- neytisstjóri í landbúnaðarráðu- neyti Evrópusambandsins. Hann er lögfræðingur og starf hans felst m.a. í eftirliti og mati, sam- skiptum við Evrópuþingið, gerð fjárhagsáætlana og umsjón með alþjóðlegum málum varðandi landbúnað. Þá kemur hingað til lands hag- og lögfræðingurinn Raul Damien Shanahan sem er ráðgjafi í þeirri deild WTO sem annast landbúnaðarvörur. Shanahan starfar sem ritari WTO-nefndar um landbúnað sem fylgist með því hvem- ig aðildarlöndin að Urúgvæ-samningnum standa að lagasetning- um heima fyrir. Að lokum er það Pekka Juhani Huhtaniemi, sendiherra Finn- lands í Genf. Hann er stjórn- málafræðingur og hefur gegnt ýmsum trúnaðarstörfum innan finnska stjómkerfisins á liðnum árum. Hann var m.a. yfirmaður ráðuneytis Erkki Liikanen og talsmaður norræna samstarfs- hópsins í landbúnaðarhluta Úrúgvæ-viðræðnanna. ►Guðmundur Stefánsson er fæddur í Reykjavík árið 1951. Hann lauk námi í landbúnaðar- hagfræði frá Norska landbún- aðarháskólanum í Ási í Noregi árið 1979. Hann starfaði hjá Stéttarsambandi bænda og Framleiðsluráði Iandbúnaðar- ins til ársins 1986. Hann var framkvæmdastjóri fóðurverk- smiðjunnar Istess og Laxár á Akureyri til ársins 1997. Guðmundur gerðist þá hag- fræðingur bændasamtakanna uns hann tók við starfi fram- kvæmdasljóra Lánasjóðs land- búnaðarins í apríl sl. Eiginkona hans er Hafdís Jónsdóttir, grafískur hönnuður, og eiga þau tvo syni, Þórarin Ægi og Stefán Hrannar. Á fundinum verða einnig ýmis innri mál til umræðu og m.a. verður fjallað um matvörustefnu á Norðurlöndunum, gildi aðildar að bændasamtökum og sérstak- ur dagskrárliður verður um stöðu kvenna í norrænum land- búnaði." -Hvernig er staða kvenna í landbúnaði hér á landi? „Út á við hefur landbúnaður verið karlagrein sem endur- speglast t.d. í því að í stjóm Bændasamtakanna hefur bara einu sinni verið kona. Þá eru karlar yfirleitt í meirihluta í öllu félagsstarfi, stjórnum og stjóm- unarstöðum. Þetta gefur þó ekki rétta mynd af þátttöku kvenna í greininni sjálfri því mjög víða eru konur virkir þátttakendur í búskap. - Hvert er hlutverk Norrænu bændasamtakanna NBC? „Þetta eru samtök bænda á Norðurlöndunum fimm og eru sameiginlegur vettvangur þeirra til að ræða ýmis mál er varða samstarf, sérstöðu og samstöðu bænda um sín mál. Þau voru stofnuð árið 1934 og íslendingar gerðust þátttakendur í samtökunum árið 1950.“ Guðmundur segir að aðil- ar að Islandsdeildinni séu Bændasamtök íslands, Fram- leiðsluráð landbúnaðarins og Samtök afurðastöðva í mjólkur- iðnaði. Löndin skiptast á um for- mennsku í samtökunum og sl. tvö ár hefur Ari Teitsson, for- maður Bændasamtakanna, verið formaður NTC og Guðmundur Stefánsson aðalritari. Aðeins ein kona hefur setið í stjórn bændasam- takanna

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.