Morgunblaðið - 04.08.1999, Page 8
8 MIÐVIKUDAGUR 4. ÁGÚST 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Forsætisráðherra segir vísbendingar
um að verðbólgan fari minnkandi
GÓÐÆRIÐ er annaðhvort í ökla eða eyra.
ERU ÞEIR AÐ FA’ANN?
Gott á urriðasvæðinu
URRIÐAVEIÐI í Laxá í Mývatns-
sveit hefur verið afar góð í sumar að
sögn Hólmfríðar Jónsdóttur á Am-
arvatni, veiðivarðar á svæðinu. Um
helgina voru komnir hátt í þrjú þús-
und urriðar á land. Hólmfríður
sagði veiðina eitthvað lakari heldur
en í fyrra, en hún væri samt langt
yfír meðalveiði og það væri mikill
fiskur á svæðinu og gott ástand á
honum.
„Pað hefur ekki borið á slýi í ánni,
en hún er grænleit. Ástandið er
mjög gott og fiskurinn vænn eins og
í fyrra. Það vantar þó þessa allra
stærstu í aflann, nokkrir 7 punda
eru stærstir, en 2 til 5 punda eru al-
gengastir. Það eru hefðbundnar
flugur sem eru að gefa, straumflug-
urnar og púpumar með kúluhaus-
ana,“ bætti Hólmfríður við.
Enn bíða menn eftir að Gljúfurá í
Borgarfirði lifni. í helgarbyrjun
vom aðeins komnir 79 laxar úr ánni
og menn sem vom að veiðum sáu
lítið af físki.
í fyira var aflabrestur í ánni og
kenndu menn um vatnsleysi, en í
allt sumar hefur vatnsmagn verið
ákjósanlegt. Fiskifræðingar töldu
forsendur fyrir veiðibata í sumar
vera fyrir hendi, en laxinn hefur lát-
ið bíða eftir sér.
Miðá á réttu róli
Miðá í Dölum tók vel við sér í
fyrra og byrjar einnig vel í ár. I gær
voru komnir milli 25 og 30 laxar á
land og hátt í 300 bleikjur. Besti
tíminn í Miðá er að fara í hönd og
því óhætt að segja að vel gangi. Þó
hefur dofnað þar vestra síðustu
daga, enda heitt og bjart veður með
minnkandi vatni að undanfömu.
DANIEL Jónsson úr Mosfellsbæ
gerði það gott í Þingvallavatni
fyrir skömmu. Hann var að veið-
um í landi Nesja og fékk þá fihan
afla, m.a. 7 punda bleikju.
Marsir litir
25mm os 50mm
meö os án borða
Frábært verö
Tré-
rimlaslu
Aðalfundur Norrænu bændasamtakanna
Alþjóðaviðskipti
með landbún-
aðarvörur
Guðmundur Stefánsson
DAGANA 4.-5.
ágúst verður aðal-
fundur Norrænu
bændasamtakanna haJd-
inn á Akureyri en slíkur
fundur var síðast haldinn
hér á landi fyrir tíu árum.
Guðmundur Stefánsson
hefur haft veg og vanda af
undmbúningi fundaríns.
„Á fundinum verða
rædd ýmis mál. Sum
varða beinlínis starfsemi
Norrænu bændasamtak-
anna en önnur starfsum-
hverfi norrænna bænda
almennt. Hæst ber um-
fjöllun um næstu samn-
inga um alþjóðaviðskipti
með landbúnaðarvörur en
þær fara fram innan
WTO, Alþjóða viðskipta-
stofnunarinnar. I WTO
samningunum er samið
um reglur og takmarkanir á
stuðningi við landbúnað í aðildar-
löndunum en þær reglur sem nú
gilda voru ákveðnar í Úrúgvæ-
samningnum sem tók gildi árið
1995.“
Guðmundur segir að um næstu
áramót hefjist ný samningalota
og Norðurlöndin hafa lagt
áherslu á að í þeim verði ekki
bara rætt um frekari hömlur á
stuðningi og óheft frelsi til við-
skipta, heldur verði einnig tekið
tillit til sérstöðu landbúnaðar á
norðlægum slóðum. Þá hefur
einnig verið lögð áhersla á rétt
þjóða til að banna eða takmarka
innflutning á búvörum sem inni-
halda óæskileg efni s.s. hormóna
og önnur vaxtarhvetjandi efni,
genblönduð matvæli og fleiri at-
riði er lúta að heilnæmi fæðu,
dýravemd og svo frv. Þó ekki sé
eining innan Norðurlandannna
um öll þessi atriði þá hafa þau
sameiginlegan skiining á að land-
búnaður er þess eðlis að ekki er
unnt að leggja hann á markaðs-
lega mælistiku eingöngu. Taka
þarf tillit til annarra gilda
einnig.“
-Hvaða fyrirlesarar verða á
aðalfundinum?
„NBC hefur fengið þrjá fyrir-
lesara sem allir eru með alþjóð-
legan bakgrann á sviði viðskipta-
mála til að fjalla um WTO. Rud-
olf Strohmeier er aðstoðarráðu-
neytisstjóri í landbúnaðarráðu-
neyti Evrópusambandsins. Hann
er lögfræðingur og starf hans
felst m.a. í eftirliti og mati, sam-
skiptum við Evrópuþingið, gerð
fjárhagsáætlana og umsjón með
alþjóðlegum málum varðandi
landbúnað. Þá kemur hingað til
lands hag- og lögfræðingurinn
Raul Damien Shanahan sem er
ráðgjafi í þeirri deild WTO sem
annast landbúnaðarvörur.
Shanahan starfar sem
ritari WTO-nefndar
um landbúnað sem
fylgist með því hvem-
ig aðildarlöndin að
Urúgvæ-samningnum
standa að lagasetning-
um heima fyrir. Að
lokum er það Pekka Juhani
Huhtaniemi, sendiherra Finn-
lands í Genf. Hann er stjórn-
málafræðingur og hefur gegnt
ýmsum trúnaðarstörfum innan
finnska stjómkerfisins á liðnum
árum. Hann var m.a. yfirmaður
ráðuneytis Erkki Liikanen og
talsmaður norræna samstarfs-
hópsins í landbúnaðarhluta
Úrúgvæ-viðræðnanna.
►Guðmundur Stefánsson er
fæddur í Reykjavík árið 1951.
Hann lauk námi í landbúnaðar-
hagfræði frá Norska landbún-
aðarháskólanum í Ási í Noregi
árið 1979. Hann starfaði hjá
Stéttarsambandi bænda og
Framleiðsluráði Iandbúnaðar-
ins til ársins 1986. Hann var
framkvæmdastjóri fóðurverk-
smiðjunnar Istess og Laxár á
Akureyri til ársins 1997.
Guðmundur gerðist þá hag-
fræðingur bændasamtakanna
uns hann tók við starfi fram-
kvæmdasljóra Lánasjóðs land-
búnaðarins í apríl sl.
Eiginkona hans er Hafdís
Jónsdóttir, grafískur hönnuður,
og eiga þau tvo syni, Þórarin
Ægi og Stefán Hrannar.
Á fundinum verða einnig ýmis
innri mál til umræðu og m.a.
verður fjallað um matvörustefnu
á Norðurlöndunum, gildi aðildar
að bændasamtökum og sérstak-
ur dagskrárliður verður um
stöðu kvenna í norrænum land-
búnaði."
-Hvernig er staða kvenna í
landbúnaði hér á landi?
„Út á við hefur landbúnaður
verið karlagrein sem endur-
speglast t.d. í því að í stjóm
Bændasamtakanna hefur bara
einu sinni verið kona. Þá eru
karlar yfirleitt í meirihluta í öllu
félagsstarfi, stjórnum og stjóm-
unarstöðum. Þetta gefur þó ekki
rétta mynd af þátttöku kvenna í
greininni sjálfri því mjög víða
eru konur virkir þátttakendur í
búskap.
- Hvert er hlutverk Norrænu
bændasamtakanna NBC?
„Þetta eru samtök bænda á
Norðurlöndunum fimm og eru
sameiginlegur vettvangur þeirra
til að ræða ýmis mál
er varða samstarf,
sérstöðu og samstöðu
bænda um sín mál.
Þau voru stofnuð árið
1934 og íslendingar
gerðust þátttakendur
í samtökunum árið
1950.“ Guðmundur segir að aðil-
ar að Islandsdeildinni séu
Bændasamtök íslands, Fram-
leiðsluráð landbúnaðarins og
Samtök afurðastöðva í mjólkur-
iðnaði. Löndin skiptast á um for-
mennsku í samtökunum og sl.
tvö ár hefur Ari Teitsson, for-
maður Bændasamtakanna, verið
formaður NTC og Guðmundur
Stefánsson aðalritari.
Aðeins ein
kona hefur
setið í stjórn
bændasam-
takanna