Morgunblaðið - 04.08.1999, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
MIÐVIKUDAGUR 4. ÁGÚST 1999 29
w w
Ocalan hvet-
ur PKK til
afvopnunar
Istanbúl. Reuters.
ABDULLAH Öcalan, leiðtogi
skæruliðahreyfingar Verkamanna-
flokks Kúrda (PKK), hvatti í gær
liðsmenn sína til að hætta vopnaðri
baráttu sinni við tyrknesk stjórn-
völd fyrir sjálfstæðu Kúrdistan í
suðurhluta landsins. Ekki er enn
ljóst hvernig PKK mun taka áskor-
un Öcalans, sem nú situr í fanga-
klefa á Imrali-eyju, og eru næstu
dægur talin munu sýna hve mikil
áhrif hann hefur innan hreyfingar-
innar.
Á meðan réttarhöldin yfir Öcal-
an - þar sem hann var dæmdur tO
lífláts - stóðu sem hæst bauðst
hann til að láta liðsmenn PKK gefa
sig fram ef lífi hans yrði þyrmt.
Hins vegar sagði hann þá ekkert
um það hvort vopnaðri baráttu
PKK yrði hætt.
í yfirlýsingu Öcalans sem lög-
menn hans lásu upp á blaðamanna-
fundi í Istanbúl í gær, sagðist hann
hvetja liðsmenn PKK til að leggja
niður vopn og draga vopnaðar
sveitir sínar frá svæðum utan
Tyrklands fyrir 1. september 1999.
Dauðadómurinn sem kveðinn
var upp yfir Öcalan bíður nú með-
ferðar hjá áfrýjunardómstóli í
Tyrklandi og ef niðurstaða dóms-
ins verður samhljóða niðurstöðu
hins sérstaka herréttar er dæmdi
Öcalan til dauða er fyrirséð að
tyrkneska þingið verði að skera úr
um hvort dómnum verði fullnægt
eða ekki. Þá hefur dómnum einnig
verið áfrýjað til Mannréttindadóm-
stóls Evrópu og er talið að dóms-
niðurstöðu verði ekki fullnægt íyrr
en í íyrsta lagi eftir eitt ár.
Spurningin er nú hvort skæru-
liðaleiðtoginn hafi enn nægileg
áhrif innan PKK til að fá liðsmenn
hreyfingarinnar ofan af því að
berjast fyrir málstað sínum. Hefur
hreyfingin stutt Öcalan til þessa
þótt talið sé að yfirlýsingar hans
um friðarvilja og sáttfýsi hafi vald-
ið miklum deilum innan PKK.
„Að sjálfsögðu er hægt að líta á
þetta sem prófstein á styrk [Öcal-
ans] innan hreyfingarinnar," sagði
lögmaður hans, Mahmut Sakar.
„Hann er í einangrun núna og því
ómögulegt að staðfesta hvað hon-
um og PKK fer á milli.“
Kærir breska
knattspyrnusam-
bandið fyrir brot
á jafnréttislögum
London. Reuters.
RACHEL Anderson, sem er
umboðsmaður tuga brezkra at-
vinnumanna í knattspyrnu og
eini kvenmaðurinn í því fagi,
var ekki boðið til árlegs hátíð-
arkvöldverðar brezka knatt-
spyrnusambandsins (PFA). Nú
er hún farin í mál.
Málaferli hófust við dómstól í
Lundúnum í gær, þar sem kæra
Andersons var tekin íyrir, en
hún byggist á brezkum jafn-
réttislögum. Dómurinn verður
nú að skera úr um hvort hátíð-
arkvöldverðir PFA hafi árin
1997 og 1998 verið opinberar
eða einkasamkomur.
Lögmaður Anderson heldur
því fram að boðin hafi verið op-
inber þar sem aðgöngumiðar
hafi verið seldir almenningi, og
að ákvörðun stjórnar PFA um
að neita Anderson um miða
brjóti í bága við brezku jafn-
réttislögin. Einkasamkvæmi
eru undanþegin þeirri löggjöf.
Anderson er eina konan sem
hefur starfsleyfi FIFA sem um-
boðsmaður atvinnuknatt-
spyrnumanna. Talsmaður
hennar segir að hún hafi ákveð-
ið að kæra til að reyna að
þvinga knattspyrnusambandið
til að breyta þeirri stefnu sinni
að halda konum úti. „Knatt-
spyrna er ekki bara karlamál
nú á dögum. Rachel hefur sann-
að það. Kate Hoey, nýi íþrótta-
málaráðherrann, hefur sannað
það. Hún [Anderson] er aðeins
að reyna að sanna að við höfum
sagt skilið við gömlu tímana,“
sagði talsmaðurinn.
Framkvæmdastjóri PFA,
Gordon Taylor, segir meðlimi
félagsins hafa ákveðið að bjóða
aðeins karlmönnum í því skyni
að hámarka fjölda atvinnuleik-
manna á hinum árlega hátíðar-
kvöldverði. „Þetta er ekki boð
fyrir umboðsmenn. Það er ætl-
að leikmönnum og gestum."
Segir hann þessa stefnu nauð-
synlega vegna þess að sé einni
konu boðið geti leikmennirnir
farið að gera kröfu um að eigin-
konur þeirra og vinkonur fái að
koma líka, og þá geti ekki eins
margir leikmenn komizt. Því sé
úr vöndu að ráða.
Agúst
BYGGINGAVÖRUTILBOÐ
MÁN AÐARINS
Háþrýstidæla, WAP: 100 bör
Veró áður: 21.200,-
Volke glerstelnn. 2 flokkur stanley málband: 5 metra, 2 gerðir
19xl9cm. Verð áður: 8.898,- m2 verð áður: 1.444,-
Þ°' Þakmálnlng: 4 Itr. Allir litir
Verð áður: 3.334,-
Veluxþakgluggar:
55x78 tii 94X160
Þarf að endurnýja raflögnina?
Gerum verðtilboð
Smáverkaþjónusta
Htl RAFLAGNIR ÍSLANDS ehf
Skipholti 29*105 Reykjavík • Þjónustudeild sími511 1122
Virkir dagar Laugard. Sunnud.
Brelddiit-Verslun Sfmi: 515 4001 8-18 10-16
Brelddin-Tlmbursala Sími: 515 4100 (Lokað 12-13) 8-18 10-14
Brelddin-Hólf & Gólf Sfmi: 515 4030 8-18 10-16
Hringbraut Sfmi: 562 9400 8-18 10-16 11-15
Virkir dagar Laugard.
Hafnarf]örður 8-18 9-13
Sfmi: 555 4411 Suðurnes Sfmi: 421 7000 8-18 9-13
Akureyri Sfmi: 461 2780 8-18 10-14
www.byko.ls