Morgunblaðið - 04.08.1999, Síða 29

Morgunblaðið - 04.08.1999, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ ERLENT MIÐVIKUDAGUR 4. ÁGÚST 1999 29 w w Ocalan hvet- ur PKK til afvopnunar Istanbúl. Reuters. ABDULLAH Öcalan, leiðtogi skæruliðahreyfingar Verkamanna- flokks Kúrda (PKK), hvatti í gær liðsmenn sína til að hætta vopnaðri baráttu sinni við tyrknesk stjórn- völd fyrir sjálfstæðu Kúrdistan í suðurhluta landsins. Ekki er enn ljóst hvernig PKK mun taka áskor- un Öcalans, sem nú situr í fanga- klefa á Imrali-eyju, og eru næstu dægur talin munu sýna hve mikil áhrif hann hefur innan hreyfingar- innar. Á meðan réttarhöldin yfir Öcal- an - þar sem hann var dæmdur tO lífláts - stóðu sem hæst bauðst hann til að láta liðsmenn PKK gefa sig fram ef lífi hans yrði þyrmt. Hins vegar sagði hann þá ekkert um það hvort vopnaðri baráttu PKK yrði hætt. í yfirlýsingu Öcalans sem lög- menn hans lásu upp á blaðamanna- fundi í Istanbúl í gær, sagðist hann hvetja liðsmenn PKK til að leggja niður vopn og draga vopnaðar sveitir sínar frá svæðum utan Tyrklands fyrir 1. september 1999. Dauðadómurinn sem kveðinn var upp yfir Öcalan bíður nú með- ferðar hjá áfrýjunardómstóli í Tyrklandi og ef niðurstaða dóms- ins verður samhljóða niðurstöðu hins sérstaka herréttar er dæmdi Öcalan til dauða er fyrirséð að tyrkneska þingið verði að skera úr um hvort dómnum verði fullnægt eða ekki. Þá hefur dómnum einnig verið áfrýjað til Mannréttindadóm- stóls Evrópu og er talið að dóms- niðurstöðu verði ekki fullnægt íyrr en í íyrsta lagi eftir eitt ár. Spurningin er nú hvort skæru- liðaleiðtoginn hafi enn nægileg áhrif innan PKK til að fá liðsmenn hreyfingarinnar ofan af því að berjast fyrir málstað sínum. Hefur hreyfingin stutt Öcalan til þessa þótt talið sé að yfirlýsingar hans um friðarvilja og sáttfýsi hafi vald- ið miklum deilum innan PKK. „Að sjálfsögðu er hægt að líta á þetta sem prófstein á styrk [Öcal- ans] innan hreyfingarinnar," sagði lögmaður hans, Mahmut Sakar. „Hann er í einangrun núna og því ómögulegt að staðfesta hvað hon- um og PKK fer á milli.“ Kærir breska knattspyrnusam- bandið fyrir brot á jafnréttislögum London. Reuters. RACHEL Anderson, sem er umboðsmaður tuga brezkra at- vinnumanna í knattspyrnu og eini kvenmaðurinn í því fagi, var ekki boðið til árlegs hátíð- arkvöldverðar brezka knatt- spyrnusambandsins (PFA). Nú er hún farin í mál. Málaferli hófust við dómstól í Lundúnum í gær, þar sem kæra Andersons var tekin íyrir, en hún byggist á brezkum jafn- réttislögum. Dómurinn verður nú að skera úr um hvort hátíð- arkvöldverðir PFA hafi árin 1997 og 1998 verið opinberar eða einkasamkomur. Lögmaður Anderson heldur því fram að boðin hafi verið op- inber þar sem aðgöngumiðar hafi verið seldir almenningi, og að ákvörðun stjórnar PFA um að neita Anderson um miða brjóti í bága við brezku jafn- réttislögin. Einkasamkvæmi eru undanþegin þeirri löggjöf. Anderson er eina konan sem hefur starfsleyfi FIFA sem um- boðsmaður atvinnuknatt- spyrnumanna. Talsmaður hennar segir að hún hafi ákveð- ið að kæra til að reyna að þvinga knattspyrnusambandið til að breyta þeirri stefnu sinni að halda konum úti. „Knatt- spyrna er ekki bara karlamál nú á dögum. Rachel hefur sann- að það. Kate Hoey, nýi íþrótta- málaráðherrann, hefur sannað það. Hún [Anderson] er aðeins að reyna að sanna að við höfum sagt skilið við gömlu tímana,“ sagði talsmaðurinn. Framkvæmdastjóri PFA, Gordon Taylor, segir meðlimi félagsins hafa ákveðið að bjóða aðeins karlmönnum í því skyni að hámarka fjölda atvinnuleik- manna á hinum árlega hátíðar- kvöldverði. „Þetta er ekki boð fyrir umboðsmenn. Það er ætl- að leikmönnum og gestum." Segir hann þessa stefnu nauð- synlega vegna þess að sé einni konu boðið geti leikmennirnir farið að gera kröfu um að eigin- konur þeirra og vinkonur fái að koma líka, og þá geti ekki eins margir leikmenn komizt. Því sé úr vöndu að ráða. Agúst BYGGINGAVÖRUTILBOÐ MÁN AÐARINS Háþrýstidæla, WAP: 100 bör Veró áður: 21.200,- Volke glerstelnn. 2 flokkur stanley málband: 5 metra, 2 gerðir 19xl9cm. Verð áður: 8.898,- m2 verð áður: 1.444,- Þ°' Þakmálnlng: 4 Itr. Allir litir Verð áður: 3.334,- Veluxþakgluggar: 55x78 tii 94X160 Þarf að endurnýja raflögnina? Gerum verðtilboð Smáverkaþjónusta Htl RAFLAGNIR ÍSLANDS ehf Skipholti 29*105 Reykjavík • Þjónustudeild sími511 1122 Virkir dagar Laugard. Sunnud. Brelddiit-Verslun Sfmi: 515 4001 8-18 10-16 Brelddin-Tlmbursala Sími: 515 4100 (Lokað 12-13) 8-18 10-14 Brelddin-Hólf & Gólf Sfmi: 515 4030 8-18 10-16 Hringbraut Sfmi: 562 9400 8-18 10-16 11-15 Virkir dagar Laugard. Hafnarf]örður 8-18 9-13 Sfmi: 555 4411 Suðurnes Sfmi: 421 7000 8-18 9-13 Akureyri Sfmi: 461 2780 8-18 10-14 www.byko.ls

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.