Morgunblaðið - 04.08.1999, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 4. ÁGÚST 1999 35
LISTIR
Frábær tækni og
glæsileg túlkun
TÖJVLIST
Hallgrímskirkja
ORGELTÓNLEIKAR
Roger Sayer flutti orgelverk eftir
Howells, Vivaldi, Whitlock, Eben
og Vierne. Sunnudagurinn
1. ágúst, 1999.
ÞRÁTT fyrir að flestir Reykvík-
ingar hafi hleypt heimdraganum og
vistað sig víðsvegar um landið, voru
orgeltónleikarnir í Hallgrímskirkju,
sl. sunnudagskvöld, mjög vel sóttir
og afsannar það, að fólk hafí aðeins
áhuga á skemmtitónlist, rétt eins og
það sé víst, að enginn hafi áhuga á
að brjóta heilann um eitthvað alvar-
legt og að hlátur, glens og skringi-
læti séu einu litfletir mannlegrar
ánægju og upplyftingar. Orgelleikur
er ef til vill lengst frá því, sem fólk
velur sér til skemmtunar og það er
því sérkennilegt, að ekkert lát er á
góðri aðsókn á þá tónleika, sem
ganga undir nafninu „Sumarkvöld
við orgelið", sem er réttnefni, því hið
stóra og glæsilega Klais-orgel Hall-
grímskirkju er hér í aðalhlutverki
og hingað sækja þeir, sem víða um
heim hafa getið sér gott orð fyrir
mikla kunnáttu í orgelleik og því á
fólk erindi í Hallgrímskirkju, að
þiggja góðan flutning, góða tónlist
og mikillátan hljóm Klais-orgelsins í
Hallgrímskirkju.
Það var enski orgelleikarinn,
Roger Sayer, sem sótti okkur Is-
lendinga heim sl, sunnudag og hóf
tónleikana á orgelverki eftir Her-
bert Howells, sem hann kallar Pae-
an, og merkir þakkargjörð, lofsöng-
ur (til Apollosar) og sigursöngur,
þétt ritað hljómrænt verk, ákaflega
hlaðið en á köflum sundurlaust.
Roger sýndi í flutningi verksins, að
hann er frábær orgelleikari. Her-
bert Norman Howells (1892-1983)
lærði hjá Stanford og samdi ball-
etttónlist, nokkur hljómsveitar-
verk, tvo píanókonserta, sónötur
fyrir píanó, fiðlu, orgel, óbó og klar-
inett, alls konar kammertónlist,
auk kirkjutónlistar og sönglaga,
sem þykja að mörgu leyti ágætlega
samin verk.
Annað viðfangsefni Roger Sayers,
var þriðji, eða d-moll, konsertinn,
eftir Vivaldi, sem J.S. Bach umritaði
fyrir orgel. Vitað er að konsertar Vi-
valdis höfðu mikil áhrif á þýsk tón-
skáld og er til bréf frá Johann Qu-
antz, þar sem hann lýsir hrifningu
sinni en hins vegar mun Telemann
ekki hafa verið eins hrifinn, enda
var hann á línu Frakka og mikill að-
dáandi rókókótónlistar. J.S. Bach
umritaði 22 konserta eftir önnm-
tónskáld, sex fyrir orgel, þar af 3
efth’ Vivaldi og 16 fyrir sembal, þai’
af 6 eftir Vivaldi, svo að hann hefur
verið vel að sér um vinnuaðferðir Vi-
valdis. Konsert umritanirnar eru
meira en hrein umskrift og því
hangir enn þá nafnið Bach við þess-
ar útfærslur. Samt eru þessi verk
ekta Vivaldi, lifandi og skemmtileg
tónlist, og vai’ d-moll konsertinn
glæsilega fluttur af Roger Sayers,
með sérlega hljómfallegri raddskip-
an, er hæfði vel opinskáum „galant“-
stíl meistai’a Vivaldis.
Þriðja verk tónleikanna var
Plymoth svítan, eftir Percy William
Whitlock (1903-1946), skemmtilegt
verk í fimm þáttum, þar sem heyra
má hefðbundin stíl í hljómum og
stefjaleik, stflfærðan með þéttum
hljómum og en harmonískum
hljómskiptum, vel unnið verk og vel
samið fyrir orgelið. Leiktækni
Roger Sayers naut sín svo sannar-
lega sérstaklega í jaðarþáttunum,
Allegro Risoluto og lokaþættinum,
Tokkötu, sem eru rismiklir í gerð.
Þá var leikur Sayers einkar
skemmtilegur í leikandi þjóðlegum
dansþætti sem tónskáldið nefnir
Chanty. Það má í raun segja sama
um tónstfl Petr Eben og um Whit-
lock, þótt tónstfll Ebens sé ómstríð-
ari, eins og heyra mátti næsta
verki, eftir Eben. Einföld niðurlög
og tónöl stefbrot, sem unnið er
tematískt með, einkenndu verk
Ebens, sem heitir Moto ostinato
(þrástefjaður háttur). Þetta er
glæsilegt verk, er var ótrúlega vel
flutt og vel leikið með margvísleg
tónblæbrigði raddanna.
Fjölbreytni í raddskipan var þó
mest í orgelsinfóníu nr. 3, eftir
blinda tónskáldið og orgelleikarann
Louis Vierne (1870-1937) Fyrsti
þáttur verksins er sinfónískur í
gerð, glæsileg tónlist, er var frá-
bærlega vel flutt. Hinir kaflarnir
bera þess merki, að hann lærði hjá
Franck og Vidor, leiktæknilega vel
gerð tónlist, rómantísk ljúf og fal-
lega útfærð, er Sayer lék af næmi
fyrir hinum fallegu tónlínum Vier-
ne, eins og t.d. í Cantflene og
Adagio köflunum, sem eru í ekta
Franck stfl, þó einstaka sinnum
gægðist fram hljómskipan er minn-
ir á Debussy, eins t.d. í hinu
skemmtilega intermezzo. Lokakafl-
inn, sem að hluta til er eins konar
tokkata í tónmáli „manúalsins“, á
móti þrumandi stefjum í pedal, sem
um síðh’ birtust í lengingu, var
glæsilega fluttur af Roger Sayers,
sem er bæði frábær tekninker og
glæsilegur túlkandi.
Jón Ásgeirsson
ERK í Galleríi Listakoti eftir írsku listakonuna Áine Scannell.
Myndlistarsýningin
Isbörn í Listakoti
NU stendur yfir sýning írsku
listakonunnar Áine Scannell í
Galleríi Listakoti. Áine sýnir
verk sem hún hefur unnið sér-
staklega til sýningar í Reykjavík
og nefnist sýningin „Ice Babies"
og eru verkin byggð á ljósmynd-
um af ísjökum í Jökulsárlóni sem
hún tók árið 1996.
Sýningin er opin mánudaga til
föstudaga kl. 10-18, laugardaga
kl. 10-16 og lýkur 14. ágúst.
Hvers vegna hefur engum dottið þetta í hug.
Hugmyndin um fjöldiskageislaspilara er aö vísu ekki ný af nálinni.
Þægindin leyna sér ekki.
BeoSound 9000 geisladrifið færist hratt og hijóðlaust frá einu lagi til
annars; biðtímin er alltaf sá sami.
Ef þú stillir á sjálfval er rétt eins og að hlusta á útvarp. Munurinn er
að þú velur tónlistina og sleppur við allt blaður á milli laga.
BANG &OLUFSEN
Síöumúla 21 ■ Sími 581 1100