Morgunblaðið - 04.08.1999, Síða 62
i 62 MIÐVIKUDAGUR 4. ÁGÚST 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Hundalíf
Ljóska
OQ Gunrux, bjábex.
Okkar L mat á fpsta -
V dogskuðkdia. ÁOsn
\___v -fiana?
ipar
JtL. Gun/^a, e-r dqeetí
og -frixbxr kokkurt~( VfCiu
en Jon er iangorffu^ fanx 2
L&iainda skarfu
Ferdinand
*
i
YOU CAN T BORROU) A D06..
YOU CAN 60RR0U) MONEY,
ORA 6A5E6ALL 6L0VE,0R
A CAR, BUT YOU CAN'T
BORROW A P06..
Hl, CHARLES..MAY I
BORROW YOUR D06
FOR THE DAY?
Hæ, Kalli..má ég fá hundinn
þinn lánaðan x' dag?
Maður getur ekki fengið hunda Það vissi ég ekki..
lánaða..það er hægt að fá lánaða
peninga eða horuaboltahanska eða bfl,
en það er ekki hægt að fá hund
lánaðan..
Spyrðu pabba þinn hvort
hann geti lánað mér bílinn
sinn..
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Svar til Sverris
Heiðars Júlíussonar
Frá menntamálaráðuneytinu:
í VE LVAKANDA hinn 23. júh' sl.
birtust fyrirspurnir frá Sverri Heið-
ari Júlíussyni kennara um samræmd
próf. Menntamálaráðuneytið fer þess
á leit við Morgunblaðið að það birti
eftirfarandi svör:
1. „Getur verið að mismunandi sé
hve margir úr árgangi þreyti prófín í
hverjum skóla? Hver metur það hver
tekur próf og hver ekki? Ef svo er
væri þá ekki rétt að birta líka þátt-
töku % í prófinu íyrir hvern skóla?“
I skýrslu menntamálaráðherra tii
Alþingis um framkvæmd skólahalds
í grunnskólum skólaárin 1995-96,
1996-97 og 1997-98 eru birtar upp-
lýsingar um fjölda og hlutfall þeirra
nemenda sem ekki þreyttu sam-
ræmd próf 1997 og 1998. Ástæður
þess að nemendur þreyta ekki sam-
ræmd próf geta verið vegna undan-
þága, veikinda eða vegna þess að
nemendur mæta ekki. Árið 1997 var
brottfall eftir námsgreinum þannig;
íslenska 3,6%, stærðfræði 3,4%,
enska 3,8% og danska 5,1%. Árið
1998 var brottfallið eftirfarandi; ís-
lenska 3,5%, stærðfræði 3,3%, enska
3,3% og danska 4,3%. í bæklingi sem
Rannsóknarstofnun uppeldis- og
menntamála (RUM) gaf út í kjölfar
samræmdu prófanna nú í vor kemur
fram hve margir nemendur í hverj-
um skóla taka hvert próf fyrir sig, en
hlutfallstölur eru ekki birtar þar.
Vegna fyrirspurnarinnar kannaði
RUM að beiðni ráðuneytisins hvert
hlutfallið_ hefði verið nú í vor eftir
skólum. I Ijós kom að hlutfall nem-
enda sem þreyta samræmd próf er í
flestum tilfellum um eða yfir 90% og
í mjög mörgum tilfellum þreyttu allir
nemendur í árgangnum samræmd
próf. Hlutfallstölur geta verið vill-
andi því ef um fámenna skóla er að
ræða lækkar hlutfallið verulega þeg-
ar 1 eða 2 nemendur taka ekki próf.
Fyrirspyrjanda er bent á að hægt er
að fá frekari upplýsingar um úr-
vinnslu samræmdra prófa hjá RUM.
Það er í höndum ráðuneytisins að
veita undanþágur frá töku sam-
ræmdra prófa og þarf að sækja um
slíkt til menntamálaráðuneytisins.
2. „Er það rétt að kennslan sé ekki
samræmd milli skóla? T.d. mismun-
andi tímafjöldi við kennslu í sam-
ræmdu greinunum? Síðastliðin ár
hafa samræmd próf í 10. bekk verið í
stærðfræði, íslensku, dönsku og
ensku. Samkvæmt viðmiðunar-
stundaskrá sem hefur gilt undanfarin
ár áttu nemendur í 10. bekk grunn-
skóla að fá 5 kennslustundir á viku að
lágmarki í íslensku og stærðfræði í
hvoi-ri grein og 4 stundir að lágmarki
í dönsku og ensku í hvorri grein.
Skólum var hins vegar heimilt að
bjóða upp á fleiri kennslustundir í of-
angreindum námsgreinum en til-
greint var í viðmiðunarstundarskrá.
Samkvæmt nýrri aðalnámskrá
grunnskóla mun tími til stærðfræði-
og íslenskukennslu aukast og fá þess-
ar tvær greinar (kjarnagreinar) tæp
40% alls kennslutíma í grunnskóla, þó
svo að sami kennslustundafjöldi verði
í 10. bekk. Nú sem fyrr er skólum
heimilt að bæta við kennslustundum í
einstökum greinum ef þeir kjósa svo.
Hvað varðar samræmingu kennslu
þá ber skólum að fylgja aðalnámski-á
grunnskóla og byggja kennsluna upp
með tilliti til þeirra markmiða sem
þar eru sett, nánara skipulag kennsl-
unnar er í höndum hvers skóla/kenn-
ara fyrir sig.
3. „Getur það verið að ákveðinn
hópur kennara miði kennsluna í sam-
ræmdu greinunum beinlínis við próf-
formið á samræmdu prófunum og
skapi þannig sínum nemendum for-
skot?“
Samræmdum prófum er einkum
ætlað að mæla hvort áfangamarkmið-
um aðalnámskrár hefur verið náð og
gefa nemendum, foreldrum, starfs-
mönnum skóla og fræðsluyfirvöldum
upplýsingar og viðmiðanir á landsvísu.
í prófunum er því verið að kanna
þekkingu og færni nemenda miðað við
þau markmið sem sett eru í aðal-
námskrá. Það er alfarið í höndum
hvers skóla að skipuleggja kennslu, en
eins og tekið er fram hér að framan þá
er ljóst að í aðalnámskrá eru sett fram
þau markmið sem skólastarfið og sam-
ræmd próf eiga að miðast við.
Rétt er að vekja athygli á því, að á
vegum menntamálaráðuneytisins
hafa verið kynntar hugmyndir um
breytingu á samræmdum prófum. í
haust verður væntanlega lagt fram
frumvarp á Alþingi til breytinga á
grunnskólalögum á þann veg að
samræmd próf í 10. bekk verði val-
frjáls, þannig að hver nemandi
ákveði í samráði við foreldra og
skólann og með hliðsjón af inntöku-
skilyrðum á einstakar brautir fram-
haldsskóla, hvort hann gengst undir
öll prófin, sum þeirra eða engin.
Jafnframt er gert ráð fyrir að próf-
um fjölgi úr fjórum í sex skólaárið
2000-2001. Auk íslensku, stærð-
fræði, ensku og dönsku geti nem-
endur einnig þreytt samræmd loka-
próf í náttúrufræði og samfélags-
greinum.
MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ.
Málvenjur
Frá Þóri N. Kjartanssyni:
TILEFNI þessa bréfs er hvemig
ýmsar málvenjur virðast vera að
breytast og hvemig orð og orðasam-
bönd festast í notkun, sérstaklega hjá
blaða- og fréttamönnum. Eitt af þeim
orðum sem tekið hafa sér bólfestu í
fréttum blaða og ljósvakamiðla í seinni
tíð er að „slasast". Dæmi um það er
frétt á baksíðu Morgunblaðsins 31. júlí
sl. þar sem sagt er að geitungar hafi
ráðist á þrjá hunda og „slasað þá“.
Annað dæmi úr sjónvarpi fyrir
nokkrum vikum: Fjórir féllu í
skotárás og nokkrir „slösuðust“.
Samkvæmt minni málkennd hefði í
báðum þessum tilvikum verið miklu
réttara að nota orð eins og særðust,
meiddust eða hlutu áverka. Ég trúi
því varla að fréttamenn, sem flestir
eru langskólagengnir, læri málnotk-
un eins og þessa í Háskóla Islands.
Fjölmiðlafólk ber mikla ábyrgð
þegar íslenskt mál er annars vegar.
Sennilega hefur það meiri áhrif en
allir íslenskukennarar landsins.
ÞÓRIR N. KJARTANSSON
framkvæmdastjóri, Bakkabraut 14,
Vík í Mýrdal.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.