Morgunblaðið - 04.08.1999, Qupperneq 66
> 66 MIÐVIKUDAGUR 4. ÁGÚST 1999
MORGUNBLAÐIÐ
S.O.S. Kabarett
í leikstjórn Sigga Sigurjónss.
Frumsýning lau. 7/8 kl. 20.30.
2. sýn. fös. 13/8 kl. 20.30.
3. sýn. lau. 14/8 kl. 20.30.
4. sýn. lau. 21/8 miðnætursýning
á menningamótt Reykjavíkur.
Miðasala i s. 552 3000. Opið virka daga
kl. 10—18 og fram að sýningu sýningardaga.
Miðapantanir allan sólarhringinn.
T1IIII
ISLENSKA OPERAN
__iim
Ósóttar pantanir
seldar daglega
1J Bssnmn
Gamanleikrit í leikstjórn
Sigurðar Sigurjónssonar
Næstu sýningar
auglýstar
sunnudaginn 8. ágúst
Símapantanir í síma 551 1475 frá kl. 12
Miðasala opin frá kl. 13—19 alla daga
nema sunnudaga
5 30 30 30
Mðasala npin Irá 12-18 og tran að sýrfngu
sýiiwrtaBa. Odð Ira 11 lyrtp ladedileMiBlð
HÁDEGISLEIKHÚS - kl. 12.00
Fim 5/8 örfá sæti laus.
Fös. 6/8 örfá sæti laus.
Mið. 11/8 laus sæti.
Fim. 12/8. Fös. 13/8.
SNYRAFTUR
Fos 13/8 kl. 23.00, nokkur sæti laus.
Fos 20/8 kl. 23.00.
Ath! Aðeins þessar sýningar
TILBOÐ TIL LEIKHUSGESTA!
20% afsiáttur af mat fyrir leikhúsgesti í Iðnó.
Borðapantanir í síma 562 9700.
FÓLK í FRÉTTUM
KRAKKAR
frá félagsmið-
stöðinni
Frostaskjóli
örkuðu
brosmild á
milli skrif-
borða bjá
starfsfólki
Morgunblaðs-
ins. ' 'jk
Morgunblaðið/Golli
Morgunblaðið/Jim Smart
KRÖKKUNUM frá Grandaskóla fannst greinilega mjög skemmtilegt í stiganum.
Skemmtilegar heimsóknir
MORGUNBLAÐIÐ fékk skemmtilegar
heimsóknir á dögunum þegar hópar 6
til 9 ára krakka af leikjanámskeiðum
frá Frostaskjóli, Grandaskóla, Miðbergi
og Laugarnesskóla komu í heimsókn.
Þessir áhugasömu gestir skoðuðu
prentsmiðju Morgunblaðsins, horfðu á
myndband um sögu og starfsemi blaðs-
ins og fóru í skoðunarferð um húsið. í
prentsmiðjunni hittu þau verkstjórann
sem fræddi þau um starfsemina og
þótti krökkunum mikið til koma að sjá
prentvélina sem er á við þriggja hæða
hús.
W ~ JJ f Ik l ^ g|l4
TtL :'í
Morgunblaðið/Emilía
KRAKKARNIR frá félagsmiðstöðinni Miðbergi í Breiðholti skoða
prentsmiðjuna og fannst þeim mikið tii stóru prentvélarinnar koma.
Morgunblaðið/Emiiía
KANNSKI eru þessir krakkar frá Laugarnesskóla tilvonandi
blaðamenn eða ljósmyndarar.
BÍÓIN í BORGINNI
Sæbjörn Valdimarsson/Arnaldur Indriðason Hildur Loftsdóttir
BÍÖBORGIN
Villta, villta vestrið ++
Innihaldsrýrt Hollywood-bruðl
um tvo félaga að bjarga gamla,
góða, villta vestrinu. Ekki leiðin-
leg en skilur enga innistöðu eftir.
Wing Commander ★V2
Óttalega glænepjuleg geimópera
með fáum og lítið spennandi
átakaatriðum.
Matrix ★★★1/2
Bráðskemmtileg og hugmyndarík
framtíðarfantasía, með Keanu
Reeves í „Speed“-formi. Óvenju
útpæld afþreying.
Lolita ++
Útvötnuð útgáfa sögunnar um
dónakallinn Humbert Humbert
og telpukrakkann Lolitu sem er
borin uppi af Jeremy Iroms og
Dominique Sanda í hlutverkum
þeirra. Útlitið er flott.
Babe: Pig In the City ++
Afturför í flesta staði frá fyrri
myndinni að öpunum undanskild-
um. Tölvuvinnan fín.
Mulan ★★★1/2
Disneymyndir gerast vart betri.
Fín tónlist, saga og teikningar.
Afbragðs fjölskylduskemmtun.
SAMBÍÓIN, ÁLFABAKKA
Villta, villta vestrið-k-k
Innihaldsrýrt Hollywood-bruðl
um tvo félaga að bjarga gamla,
góða, villta vestrinu. Ekki leið-
inleg en skilur enga innistöðu
eftir.
Múmían +++
Notalega vitlaus ævintýramynd
um múmíu, fjársjóði, plágumar
10, bölvun, kumlrof, græðgi,
spennu og grín. Hvað viljið þið
hafa það betra? Fínt léttmeti.
Matrix ★★★1/2
Bráðskemmtileg og hugmyndarík
framtíðarfantasía, með Keanu
Reeves í „Speed“-formi. Óvenju
útpæld afþreying.
Wing Commander +V2
Óttalega glænepjuleg geimópera
með fáum og lítið spennandi
átakaatriðum.
Ten Things I Hate About You
++
Gamansöm unglingamynd með
nokkrum góðum bröndurum,
annars gengur allt sinn vana-
gang.
My Favorite Martian ++
Enn ein mislukkuð tilraun til að
færa gamla sjónvarpsþætti yfír á
stóra tjaldið. Fyrir yngstu börn-
in.
Jóki björn ++
Jóki bjöm og Búbú lenda í ævin-
týmm er þau bjarga Sindí úr
vonda sirkusnum.
HÁSKÓLABÍÓ
Notting Hill ★★/2
Þokkaleg öskubuskuafþreying
um breska búðarloku (Hugh Gr-
ant) og ameríska ofurstjörnu
(Julia Roberts), sem verða ást-
fangin. Skemmtilegur aukaleik-
arahópur bjargar skemmtuninni.
Go+++
Svört kómedía sem samanstend-
ur af þrem gamansögum um ungt
fólk á refílstigum. Fínasta
skemmtun.
Múmían +++
Notalega vitlaus ævintýramynd
um múmíu, fjársjóði, plágurnar
10, bölvun, kumlrof, græðgi,
spennu og grín. Hvað viljið þið
hafa það betra? Fínt léttmeti.
Hásléttan ++
Dáðlaus framvinda, vandræða-
legt handrit og mistækir leikarar
draga góða kvikmyndatöku, tón-
list og leik Woody HaiTelsons
niður í meðalmennsku þegar
heOdin er skoðuð.
Fávitarnir +++V2
Sláandi kvikmynd von Triers um
ungt fólk sem leikur sig vangefið,
sem er í raun um það að þora að
vera maður sjálfur. Ferskleikinn,
hugdirfskan, næmið og dýptin,
skOja mann agndofa eftir.
KRINGLUBÍÓ
Villta, villta vestrið++
Innihaldsrýrt Hollywood-bruðl
um tvo félaga að bjarga gamla,
góða, villta vestrinu. Ekki leið-
inleg en skilur enga innistöðu
eftir.
Wing Commander +V2
Óttalega glænepjuleg geimópera
með fáum og lítið spennandi
átakaatriðum.
Matrix +++V2
Bráðskemmtileg og hugmyndarík
framtíðarfantasía, með Keanu
Reeves í „Speed“-formi. Óvenju
útpæld afþreying.
My Favorite Martian ++
Enn ein mislukkuð tOraun tO að
færa gamla sjónvarpsþætti yfir á
stóra tjaldið. Fyrir yngstu börn-
in.
Pöddulíf +++
Ágætlega heppnuð tölvuteikni-
mynd frá höfundum Leikfanga-
sögu; fjörug, litrík og skemmti-
leg.
LAUGARÁSBÍÓ
Notting Hill ++V2
Þokkaleg öskubuskuafþreying
um breska búðarloku (Hugh Gr-
ant) og ameríska ofurstjörnu
(Julia Roberts), sem verða ást-
fangin. Skemmtilegur aukaleik-
arahópur bjargar skemmtun-
inni.
Njósnarinn sem negldi mig
++
Nær ekki hæðum fyrri myndar-
innar, treystir of mikið á endur-
tekið efni.
Illur ásetningur ++V2
SkemmtOega Olkvittin og fyndin,
en stundum fullósmekkleg ung-
lingamynd um ástlaus stjúpsystk-
in sem hafa það eitt fyrir stafni að
fleka sem flesta.
REGNBOGINN
Vfrus +V2
Dæmigerð formúlumynd sem
hefur engu að bæta við útjaskaða
klisju.
Skrifstofublók +++
Kemur á óvart, enda óvenju
hressdeg og meinfyndin mynd
sem má taka á ýmsa vegu. Þó
einkum sem háðsádeilu á kerfið
og almennan aumingjaskap.
Svikamylla +++
Meistaraþjófarnir Sean Connery
og Catherine Zeta Jones gerast
milljarðaræningjar. Það er stfll
yfir þeim og myndinni, sem er vel
lukkuð afþreying.
Lífið er fallegt
Hrífandi, margföld Óskarsverð-
launamynd Italans Roberto
Benigni er óður tfl lífsins, já-
kvæður og fallegur undir ömur-
legustu kringumstæðum sem
mannskepnan hefur tekist að
klambra saman: útrýmingarbúð-
um nasista.
STJÖRNUBÍÓ
Dauðagildran ++
ForvitnOeg hugmynd um fólk
sem er lokað inni í nýstárlegu
fangelsi. Heldur athyglinni lengst
af en skilur sáralítið eftir .