Morgunblaðið - 25.08.1999, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1913
190. TBL. 87. ÁRG.
MIÐVIKUDAGUR 25. ÁGÚST 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Alls hafa átján þúsund fundist látnir á skjálftasvæðunum í Tyrklandi
Eftirlifendur
reyna að
komast í skjól
Izmit, Golcuk, Ankara, Istanbúl. AFP, Reuters.
ALLS höfðu um 18.000 lík fundist á
jarðskjálftasvæðinu í norðvestur-
hluta Tyrklands í gærkvöldi og hafði
þá tala látinna af völdum skjáiftans
ógurlega, sem reið yfir í síðustu viku,
hækkað um 6.000 á einum sólar-
hring. Þeir eftirlifendur skjálftans
sem hvergi eiga höfði sínu að halla
reyndu hvað þeir gátu til að koma yf-
ir sig skjólshúsi í beljandi rigning-
unni á skjálftasvæðunum og gagn-
rýni almennings á stjómvöld fyrir
slæleg viðbrögð eftir skjálftann virt-
ist síst minnka. Sagt var frá þvi í
gær að tyrkneska ríkisstjómin hefði
pantað um 45.000 líkpoka og sam-
kvæmt óstaðfestum fréttum tyrk-
neskra fjölmiðla er talið að alls sé
um 30-35.000 manns enn saknað.
Hafa Tyrkir gefið upp von um að
fleiri kunni að finnast á lífi.
Reiði almennings í garð stjóm-
valda hélt áfram að aukast í gær í
kjölfar þess er tyrkneskar sjón-
varpsstöðvar sýndu myndir af fólki
sem leitaði skjóls undan rigningunni
í líkpokum og reyndi að skýla böm-
um sínum í skýlum úr teppum, rúm-
fötum og einangrunarplasti. Þá flúðu
íbúar þorpa og bæja, er taldir em
vera á hættusvæðum, til strandar
Marmarahafsins og fundu sumir sér
tímabundinn samastað í skipum úti
fyrir ströndum Tyrklands. Sadettin
Tantan, innanríkisráðherra landsins,
sagði að ríkisstjómin hefði farið
frtun á að fjölda skóla og íþróttahúsa
yrði breytt svo unnt yrði að taka á
móti húsnæðislausu fólki.
Bulent Ecevit, forsætisráðherra
Tyrklands, sagði í viðtali við sjón-
varpsstöðina CNN að ríkisstjómin
væri að reyna að leysa húsnæðis-
vanda fólks og hét þvi að allir þeir er
misst hafa húsnæði sitt yrðu komnir
í tjaldbúðir innan eins mánaðar.
Sagði hann að fjöldi húsnæðislausra
væri á milli 150.000 og 200.000.
Fjórtán létust í eftir-
skjálfta í nótt
Breska dagblaðið Daily Tele-
graph greinir frá því í dag að fjór-
tán manns hafi týnt lífi í nótt er
hálfeyðilögð bygging hmndi til
gmnna í bænum Yalova. Hafði fólk-
Reuters
Feðgin sem komust lífs af úr jarðskjálftanum í Tyrklandi. Myndin er
tekin eftir að stúlkan fékk mjólk og súkkulaði hjá hjálparstarfs-
mönnum í borginni Adapazari í gær.
ið verið að ná húsgögnum og öðmm
munum látinna ættingja úr húsa-
rústunum er eftirskjálfti, sem talinn
er hafa verið um fimm á Richter,
reið yfir og olli því að það sem eftir
stóð af húsinu hrandi. Hefur atvikið
undirstrikað hættumar sem fylgja
eftirskjálftum í húsarústunum sem
almenningur hefur víðast hvar
greiðan aðgang að.
Schröder
sker niður
ríkisútgjöld
Berlín. Reuters.
BÚIST er við að tillögur Gerhard
Schröders, kanslara Þýskalands,
um verulegan niðurskurð á ríkisút-
gjöldum verði samþykktar af ríkis-
stjórninni á morgun og af þingflokki
jafnaðarmanna á fimmtudag þrátt
fyrir verulega andstöðu vinstri-
armsins. Fullur stuðningur er
einnig við þær innan samstarfs-
flokks jafnaðarmanna, græningja,
en kristiiegir demókratar, sem em í
stjómarandstöðu, hafa snúist gegn
þeim.
Peter Strack, þingflokksformað-
ur jafnaðarmanna, sagði í gær að
gert væri ráð fyrir að minnka ríkis-
útgjöldin um 1.168 milljarða ísl. kr.,
m.a. með því að lækka framlög til
velferðarmála. Er tU dæmis fyrir-
hugað að tengja lífeyrisgreiðslur
verðbólgunni næstu tvö ár í stað
þess að hækka þær í takt við al-
mennar kauphækkanir.
Margir þingmenn jafnaðarmanna
hafa náin tengsl við verkalýðshreyf-
inguna og því vekur það athygli að
tUlögumar skuli njóta öraggs
stuðnings í þingflokknum. Það þyk-
ir hins vegar sýna að Schröder sé
búinn að vinna afgerandi sigur í
átökunum við vinstriarminn.
Græningjar virðast einhuga í
stuðningi sínum við niðurskurðinn
og einn helsti talsmaður þeirra á
þingi, Kerstin Miiller, sagði í gær,
að ekkert svigrúm væri tU breyt-
inga á meginefni tillagnanna.
Átökin í Kákasus-lýðveldinu Dagestan
1.000 skæru-
liðar vegnir
Moskvu, Tando. Reuters, AFP.
RÚSSNESKAR hersveitir streymdu að vígjum tsjetsjenskra uppreisn-
armanna í Kákasus-lýðveldinu Dagestan í gær í lokaatlögu gegn skæru-
liðum sem barist hafa fyrir íslömsku ríki í Dagestan. Skæruliðarnir,
sem hafa barist við rússneska herinn undanfarnar tvær vikur, lýstu því
yfir í gær að þeir hefðu horfið frá vígstöðvunum. Stjórnvöld í Moskvu
sögðu að um eitt þúsund skæruliðar lægju í valnum eftir átökin.
Talsmaður rússneskra stjómvalda
sagði í gær að árdegis hefðu rússn-
eskar hersveitir náð bæjunum
Tando, Rakhata og Ashino á sitt vald
og þaðan hefðu hermenn haldið til
þorpanna Ansalta og Shodoroda sem
enn vora talin vera undir stjóm upp-
reisnarmanna. Talsmaðurinn sagði
að hermálayfirvöld væra enn ekki
fullviss um hvort skæraliðamir væra
á bak og burt eins og þeir hefðu lýst
yfir. Vildu Rússar tryggja að átökin
eða áhrif þeirra breiddust ekki út til
nágrannasvæða.
Vladimír Kazantsev, hershöfðingi
og hæstráðandi hersins í norður-
hluta Kákasusfjalla, sagði í gær að
hersveitir Rússa hefðu vegið 1.000
uppreisnarmenn en aðeins 59 rúss-
nesldr hermenn hefðu týnt lífi í átök-
unum. Alls hefðu um 2.000 íslamskir
skæraliðar og 1.500 rússneskir her-
menn tekið þátt í átökunum i Dag-
estan. Sagði hann að vígstöðvamar
væra nú á valdi Rússa og að rússn-
eski fáninn hefði verið dreginn að
húni því til staðfestingar.
Norskur olíuiðnaður
Yerkfall
boðað
Ósló. AFP.
STARFSMENN í norskum
olíuiðnaði hafa boðað verkföll frá
og með 6. september nk. Ekki
vegna deilna um kaup og kjör
heldur til að mótmæla ákvörðun
ríkisstjómarinnar um að fresta
vinnslu á nýjum olíusvæðum.
Talsmenn starfsmanna sögðu
það vera hneyksli að ekki skyldi
ráðist í nýja vinnslu þegar hrá-
olíuverð væri mjög hátt og líkur
bentu til að svo yrði áfram.
Norska stjórnin ákvað í des-
ember sl. að fara að dæmi
OPEC-ríkjanna og draga úr
framleiðslu í því skyni að hækka
olíuverðið.
Arekstur á Ermarsundi
Reuters
Bandaríkin
London. Reuters.
SKEMMTIFERÐASKIP, með
2.400 farþega innanborðs, og
stórt flutningaskip rákust saman
undan ströndum Suðaustur-Eng-
lands, skammt frá strandbænum
Margate, í fyrrinótt. Um tuttugu
manns voru færðir á slysadeild í
kjölfar árekstursins.
Farþegar skemmtiferðaskips-
ins, Norwegian Dream, voru
flestir í fastasvefni er árekstur-
inn átti sér stað.
Kviknaði í lest flutningaskips-
ins, Ever Decent, og töluverður
sjór fiæddi inn í það. Þá féllu sex
gámar útbyrðis og þrír lentu á
þiifari Norwegian Dream, sem nú
liggur bundið við höfnina í
Dover. Þyrlur og björgunarbátar
komu áhöfn Ever Decent til
hjálpar. Eru orsakir slyssins enn
ókunnar en mikið blíðskaparveð-
ur var á Ermarsundi er slysið átti
sér stað.
Vextir hækka
Washington. Reuters.
BANDARÍSKI seðlabankinn til-
kynnti í gær um 0,25% vaxtahækkun
og eru vextir því 5,25%. Búist hafði
verið við vaxtahækkun seðlabankans
sem var gerð með það að markmiði að
koma í veg fyrir verðbólgu.
Spáð er 4% aukningu á vergri þjóð-
arframleiðslu í Bandaríkjunum á síð-
asta fjórðungi þessa árs og hafa sér-
fræðingar varað við afleiðingum þess.