Morgunblaðið - 23.09.1999, Síða 24
24 FIMMTUDAGUR 23. SEPTEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
NEYTENDUR
Matvöruverðköniiun á Eyjafíarðarsvæðinu
KEA Sunnuhlíð hefur
hækkað verð um 6,1%
K^Akurefe
.M
Reykjavík
97,1%
Verðmunur milli verslana
í Reykjavík og á Akureyri
14. september
96,0%
NETTÓ
103,0% 103,2%
HAGKAUP
Matvöruverslanjr á Eyjafjarðarsvæðinu
Hlutfallslegur verðmunur milli 7 verslana 14. september
VERSLANIR LÆGRA VERÐ HÆRRAVERÐ
Nettó, Akureyri -12,0% L r' Nleðalverð úr öllum verslunum, er sett sem 0% jj +0,8%
Hagkaup, Akureyri -3,7% l KEA Hrísalundur -3,3% | Hraðkaup, Akureyri KEA, Byggðavegi ' Svarfdælabúð, Dalvík KEA, Sunnuhlíð
WM +5,5%
IMffl +5,7%
H +7,9%
Verðbreytingar á tímabilinu
29. júní til 14. september
VERSLANIR
Nettó, Akureyri
Hraðkaup, Akureyri
Svarfdælabúð, Dalvík
KEA Hrisalundur
Hagkaup, Akureyri
KEA, Sunnuhlíð
LÆGRA VERÐ HÆRRA VERÐ
+6,1%
í verðkönnun sem
N eytendasamtökin
gerðu í samvinnu við
verkalýðsfélögin á
Eyjafjarðarsvæðinu í
síðustu viku kom
í ljós að verð er hæst í
KE A Sunnuhlíð
og þar hækkar það einn-
ig mest frá því verð-
könnun var síðast gerð í
júní sl. eða um 6,1%
Að sögn Úlfhildar Rögnvaldsdótt-
ur, starfsmanns Neytendasamtak-
anna á Akureyri, er Nettó með
lægsta verðið og Hagkaup með
næst lægsta verðið. Þá kemur
KEA Hrísalundi og Hraðkaup.
KEA Sunnuhlíð er með mestu
verðhækkunina frá því könnun var
síðast gerð eða 6,1% og síðan kem-
ur Hagkaup með um 2,2% hækkun.
Verð í Nettó lækkar mest eða um
1,6% og í Hraðkaup um 1,2%.
Verðkönnun Neytendasamtak-
anna sem gerð var í samvinnu við
verkalýðsfélögin á Eyjarfjarðar-
svæðinu var gerð í 7 matvöruversl-
unum hinn 14. september síðastlið-
inn á sama tíma og hún var gerð á
höfuðborgarsvæðinu.. „Hún var
gerð samtímis í öllum verslunum
og ekki var tilkynnt um verðkönn-
un heldur höguðu þeir sem gerðu
könnunina sér eins og þeir væru í
verslunarferð," segir Ulfhildur.
Komið í veg
fyrir misferli
„Þegar búið var að renna vörun-
um í gegnum kassann var tilkynnt
um verðkönnunina. Með þessum
hætti endurspeglast best vöruúr-
val verslananna á þeim tíma sem
verðkönnunin er gerð og einnig er
komið í veg fyrir misferli."
I könnuninni sem framkvæmd
var 29. júní sl. var ekki mælanleg-
ur munur á Nettó Reykjavík og
Akureyri og Hagkaupi í Reykjavik
og á Akureyri. I könnuninni sem
framkvæmd var 14. september sl.
kom í ljósum 1% verðmunur milli
Nettó í Reykjavík og á Akureyri.
Ekki var mælanlegur verðmunur
milli Hagkaups í Reykjavík og á
Akureyri.
„Þetta kemur okkur á óvart þar
sem við keyrum eitt tölvukerfi fyr-
ir báðar búðirnar," segir Hannes
Karlsson, aðstoðarframkvæmda-
stjóri verslunarsviðs hjá KEA,
þegar hann er spurður hvers
vegna verð sé lægra í Nettó Akur-
eyri en í Nettó Reykjavík. „Það er
því alltaf sama verð í báðum búð-
um og lítið annað um þetta að
segja.“
Aðstandendur könnunarinnar
vilja að lokum benda á að um bein-
an verðsamanburð er að ræða og
ekki er lagt mat á þjónustustig
sem er mismunandi.
Innkalla á alla pýramídastjaka af þessari gerð
Pýramídakerta-
stjakar innkallaðir
UPP hefur komið galli á svo-
kölluðum pýramídakertastjök-
um úr vírneti sem geta valdið
brunahættu. í fréttatilkynningu
frá heildversluninni Bergís ehf.
kemur fram að stjakarnir séu
hannaðir til að hanga niður úr
lofti. Þeir eru ætlaðir fyrir telj-
ós og hafa verið seldir í blóma-
verslunum og gjafavöruversl-
unum. Stjakarnir hafa fengist
silfraðir og gylltir.
í fréttatilkynningunni kemur
fram að þó að erlendi fram-
leiðandinn hafi enga kvörtun
fengið um umræddan kerta-
stjaka hafi sölu- og dreifingar-
aðilinn hér á landi, heildversl-
unin Bergís, ákveðið að
innkalla alla umrædda pýra-
mídastjaka. Allar nánari upp-
Iýsingar um söluaðila fást á
skrifstofu Bergíss ehf. í síma
533 3377.
Ný 11-11
verslun í
Garðabæ
FYRIR skömmu var opnuð
ný 11-11 verslun í Gilsbúð 1 í
Garðabæ. í fréttatilkynn-
ingu frá 11-11 verslununum
kemur fram að þessi verslun
sé fimmtánda 11-11 verslun-
in.
Klaki og kaffi
Sá háttur verður hafður á
eins og í öðrum 11-11 versl-
unum að bjóða upp á ókeypis
klaka og frítt kaffi. Þá eru
alltaf föst tilboð í gangi, eins
og til dæmis tilboðsverð á
hamborgurum á föstudögum
og sælgæti sem er selt með
50% afslætti á sælgætisbar á
laugardögum.
Opið er frá 10-23 alla
daga.
Ke^AINI^URENT
OFURSTAÐA UM ALDAMÓT
Kynning á
„SUPER POSITION"
haust- og vetrarlitunum
1999-2000
í dag, á morgun
og á laugardag. Við kynnum einnig:
„BABY DOLL"
nýja ilminn sem þú verður að prófa og
frábærar nýjungar í kremum.
Njóttu persónulegrar ráðgjafar
frá Yves Saint Laurent sérfræðingi.
Vertu velkomin.
Kringlunni, sími 568 9033
Opið kl. 9-16. lau. kl. 10-12
Eru rimlagardínurnar óhreinar!
Vib hreinsum:
Rimla, strimla, plíseruð og sólargluggatjöld.
Setjum afrafmagnandi bónhúð.
Sækjum og sendum ef óskab er.
JP* Níl*
U tBBkn&bmwwm
IHihrnM > tw IU1+H • aUA! Uí UM
lief hafið sölu
á glæsilegum
samkvæmisfatnaði,
pilsum, drögtum
og toppum frá
Ronald Joyce
London.
Garðatorgi,
sími 565 6680
liams® y Negro
Skólavörðustíg 21 a
101 Reykjavík
Sími/fax 552 1220
mr
HCILSUDRYKKUR UíD ÁVAXTABRAGDI
Netfang:
blanco@itn.is
Veffang:
www.blanco.ehf.is