Morgunblaðið - 23.09.1999, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 23. SEPTEMBER 1999 49,
UMRÆÐAN
Krafist útskúfunar
- hvað kemur næst?
VERKALÝÐSFÉ-
LAG Reyðarfjarðar
hefur gert kröfu um að
Hrafnkell A. Jónsson
verði gerður brott-
rækur úr stjórn Al-
þýðusambands Aust-
urlands vegna
skoðana sinna á virkj-
unarmálum. Þetta er
enn einn vitnisburður-
inn um það ótrúlega
andrúmsloft sem stór-
iðjumálið hefur skap-
að í annars friðsam-
legu samfélagi. Hvers
konar ástand er það
sem getur fengið for-
ystu verkalýðsfélags
Hjörleifur
Guttormsson
til að bregðast þannig
við? Eru ekki önnur
verkefni nærtækari
íyrir samtök verka-
fólks en að ganga í lið
með þeim sem beita
sér fyrir skoðanakúg-
un og sjá það helst til
ráða að berja á fjölm-
iðlafólki og þeim Aust-
firðingum sem ekki
vilja orðalaust játast
undir stóriðjutrú?
Ég óttast að þetta
sé aðeins forsmekkur
af öðru verra. Múgæs-
ingafundurinn á Egils-
stöðum 27. ágúst 1999
gaf tóninn. Frum-
kvöðlar þess fundar völdu fólki sem
lætur sér annt um náttúru landsins
heitið umhverfísfasistar. „Konur á
peysufötum" sem lesa ættjarðar-
ljóð á Austurvelli eru af formanni
Afl-félagsins stimplaðar sem óvinir
Austfirðinga. Hvemig halda menn
að umræðán sé í skúmaskotum
þegar þannig er talað upphátt til
landsmanna?
Þótt nú sé Verkalýðsfélagi Reyð-
arfjarðar beitt til að berja á and-
stæðingum stóriðju heima fyrir eru
forsöngvarar í útskúfunarkómum
annars staðar. I þeim kór standa
fremstir sveitarstjórnarfulltrúar
og aðrir trúnaðarmenn ríkisstjóm-
arflokkanna og Samfylkingarinnar
á Austurlandi að þingmönnum
Stóriðja
Auðvitað tekst
stóriðjukórnum ekki
það ætlunarverk,
segir Hjörleifur
Guttormsson, að kveða
niður gagnrýnar
raddir heima fyrir.
þessara flokka meðtöldum. Þessir
fulltrúar láta sem þeir tali í nafni
Austfirðinga, vitandi þó að fjöldi
fólks á Austurlandi er á öðm máli
og hefur skömm á málflutningi
þeirra. Uthrópanir Afls og krafan
um brottrekstur Hrafnkels úr
trúnaðarstarfi, sem nú er fram
komin, eru vissulega óhugguleg
dæmi. Þó em þau aðeins lítið sýnis-
hom af þeim aðferðum sem nú er
beitt leynt og ljóst um allt Austur-
land til að þagga niður í heima-
mönnum sem efasemdir hafa um
risaálbræðslu og virkjun í hennar
þágu.
Auðvitað tekst stóriðjukórnum —-
ekki það ætlunarverk að kveða nið-*-
ur gagnrýnar raddir heima fyrir.
Aðferðir þeirra munu hafa þveröf-
ug áhrif. Þeir eru margir á Austur-
landi sem átta sig á að stóriðja er
ekki sú allsherjarlausn sem reynt
er að telja mönnum trú um. Menn
ættu að hafa í huga að algjör óvissa
ríkir um hvort af slíkum fram-
kvæmdum verður. Á að setja allt á
annan endann og kljúfa samfélagið
fyrirfram? Þau klingja nú víða
skilaboðin: „Burt með þá sem ekki
vilja stóriðju!" Risaálbræðslu
fylgja miklar umhverfisfórnir og
félagslegar afleiðingar hennar yrðu
í meira lagi tvísýnar. Þeir sem hæst
kalla nú á stóriðju ættu að hafa fyr-
ir því að setja sig inn í málavöxtu og
þora að taka þátt í eðlilegri rök-
ræðu í stað kröfu um útskúfun
þeirra sem eru á öðru máli.
Höfundur er fv. alþwgisnmður.
Hame® y Negro
Skólavöröustíg 21 a
101 Reykjavík
Sími/fax 552 1220
Netfang:
blanco@itn.is
Veffang:
www.blanco.ehf.is
BIODROGA
snyrtivörur
*Q-10*
húðkremið
Bankastræti 3, sími 551 3635.
Póstkröfusendum
pm
til útlanda
-auövelt að muaa
SÍMINN
www.simi.is
Olafur
Konrád
Olavs. otL
G ri
a n m m u r!