Morgunblaðið - 23.09.1999, Qupperneq 54
54 FIMMTUDAGUR 23. SEPTEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Heilir
sturtuklefar
Sturtuklefar heilir með 4 hliðum,
sturtubotni og sturtusetti.
Stærðir 70x70, 80x80, 90x90,
72x92 og 80x120.
i ferkantaðir og bogadreg-
Ítt VATNSVIRKINN ehf
v Ármúla 21, 533 2020. y
—
UMRÆÐAN
Blöndunartæki
Moratemp High-Lux hentar sérlega vel
í eldhúsum þar sem koma þarf háum
ílátum undir kranann.
Mora - Sænsk gæðavara
TEnGlehf.
Smiðjuvegi 11 •
Sími: 5641088
200 Kópavogur
> Fax: 564 1089
Fást í byggingavöruverslunum um land allt
ori/lcime
Náttúrulegar sænskar snyrtivörur
Vilj um bæta við okkur
sölufólki um allt land
Sími 567 7838 - fax 557 3499
e-mail raha@islandia.is
www.oriflame.com
_____■_____................
Landsbyggðin í skinnskóna
NÚ eru öfgahópar á
íslandi að höfða til er-
lendra samtaka um að
eyðileggja mögulega
atvinnulífsuppbygg-
ingu utan höfuðborg-
arsvæðisins. Öfgahóp-
ar þessir ráðast nú til
atlögu gegn okkur á
landsbyggðinni með
slíkum svívirðingum
að það hálfa væri nóg.
Ef þessir öfgahópar
vilja stríð þá fá þeir
stríð og það harkalegt.
Fram að þessu hef-
ur hálendi landsins
verið líkt við og skil-
greint í einu lagi sem
stærsta eyðimörk í Evrópu. Ætli
SS og Greenpeace vilji að við kaup-
um úlfalda af Saddam Hussein og
ríðum með ferðamennina um eyði-
merkur Eyjabakka. (Nei takk.) Sa-
hara-eyðimörkin nægir. Nú hefur
allt í einu uppgötvast að mýrarflák-
ar norðan Vatnajökuls eru nokkurs
konar útibú frá Yellow Stone-þjóð-
garðinum í Ameríku, enda því gerð
skil í Ríkissjónvarpinu með tOheyr-
andi, SS- og Greenpeace-áherslum.
Já, hugsið ykkur Yellow Stone, því-
líkt bull og hræsni.
Á nokkrum blettum næst jöklin-
um er ræfilslegan gróður að finna
sem gleður augað eftir margra
klukkutíma ferð um eyðimörk
Eyjabakka. Þessar fátæklegu vinj-
ar virðast vera helgir staðir ýmissa
SS- og Greenpeace-sinna eða nátt-
úruverndarsinna og svo gæsahóps
sem kemur þar við stuttan tíma ár-
sins til að fella fjaðrir og éta upp
þennan vesæla gróður. En nú rís
þessi öfgahópur fólks upp, sem
aldrei hefur komið á Eyjabakkana
fyrr - fólk sem skilur gæsir betur
en samborgara sína - fólk sem þarf
aldrei að berjast fyrir atvinnu sinni
eða horfa á eignir sínar verða verð-
lausar vegna atvinnuþróunar í
landinu. Vonandi verða þessar
stéttir einkavæddar sem allra fyrst
svo þær skilji alvöru lífsins.
Ef virkjun og uppbygging stór-
iðju mistekst verðum við vesaling-
arnir sem eftir verðum að reyna að
þjóna ferðamanninum fyrir eins lág
laun og hægt er, helst klæddir vað-
málsbuxum og skinnskóm (en í ál-
veri eru borguð há laun og þar þarf
hámenntaða tæknimenn). Svo þeg-
ar bömin okkar verða spurð: „Hvað
ætlar þú að verða þegar þú ert orð-
in/n stór?“ „Halló, ég ætla að verða
ferðamaður! (en þetta voru svörin á
Kúbu - sorglegt)“
Það verða ekki famar troðnar
slóðir heldur hver í þá
áttina sem hann lystir
í leit að ævintýram
eyðimerkurinnar.
Hjólför hingað og
þangað, kókflöskur í
gjótum og rifnir hjól-
barðar eftir hraunk-
löppina. Á góðviðris-
dögum stíga upp
rykmekkir af öllum
farartækjunum, og
leggjast yfir sandhaf-
ið. Smurolía og sót út
um allt. Svo ég tali nú
ekki um alla mengun-
Björn Emil ina sem af þessu hlýst.
Traustason Hreindýr og gæsimar
hafa þá fyrir löngu yf-
irgefið dvalarstaðina vegna ágangs
ferðafólksins og leitað til staða þar
sem friður ríkir. Nei, þá vil ég nú
frekar sjá ferðamennina siglandi
um virkjunarlónið á fallegum segl-
skútum eða Eyjabakkaferjunni og
virða fyrir sér glæsilegan fjalla-
hringinn svo ég tali nú ekki um all-
ar eyjamar og ísjakana. Þetta
svæði yrði næstum því eins fallegt
og fjörðurinn okkar héma á Horna-
firði.
Ástæða fyrir fækkun atvinnu-
tækifæra er sú að atvinnutækifær-
um í fiskvinnslu hefur fækkað og
ekki er fjárfest í nýjum tækifæram
og tækniþróun í núverandi atvinnu-
greinum er svo gífurleg að aðilar
sem ekki þekkja til geta ekki í-
myndað sér hver hún hefur verið.
Landbúnaður og sjávarútvegur
hafa farið í gegnum slíka tækni-
byltingu undanfarin ár og atvinnu-
tækifærum í þessum greinum hefur
Stóriðja
Yirkjun Eyjabakka og
álver í Reyðarfírði eru,
að mati Björns Emils
Traustasonar, þau at-
vinnutæki sem lands-
íslenskir aðalverktakar
Skráning skuldabréfa
Verðbréfaþing hefurákveðið að taka skuldabréf
íslenskra aðalverktaka, 1. flokk 1999, á skrá
þingsins. Bréfin verða skráð 1. október 1999.
Skuldabréfin eru vaxtagreiðslubréf með
gjalddaga höfuðstóls 22. júlí 2006 og bera þau
5,53% vexti. Vextirnir greiðast á 14 gjalddögum,
þann 22. júlí og þann 22. janúar ár hvert.
Skuldabréfin eru bundin vísitölu neysluverðs.
Skráningarlýsingu er hægt að nálgast hjá
umsjónaraðila skráningarinnar, Kaupþingi hf.
Hjá Kaupþingi hf. er einnig hægt að nálgast
þau gögn sem vitnað er til í skráningar-
lýsingunni.
Auglýsing þessi er eingöngu birt í upplýsingaskyni
og felur ekki í sér tilboð um sölu verðbréfa.
KAUPÞING
Ármúli 13A • 108 Reykjavík
Sími 5151500 • Fax 5151509
www.kaupthing.is
byggðina sárvantar.
fækkað um helming og á eftir að
fækka enn meira. Þegar ég byrjaði
að vinna í Bræðslunni á Neskaup-
stað árið 1976 var 21 starfsmaður á
vakt. Núna, 1999, era 6 á vakt. Hjá
okkur í bræðslunni á Homafirði,
þegar öll tæknin er komin í gang,
verða 3 á vakt. Þá sjáið þið þróun-
ina á 23 áram. Það hafa tapast 18
störf á vakt sem þýða 36 störf á sól-
arhring. Með öðram orðum þarf 36
færri starfsmenn árið 2000 en árið
1976. Þetta er eðlileg þróun þar
sem framleiðniaukningar er þörf í
þessum greinum ef þær eiga að
geta staðist eðlilega samkeppni í
stækkandi heimi, skilað þjóðinni
arði, og bætt lífsskilyrði fólks. Til
að mæta þessari tækniþróun og
jafnframt viðhalda byggð þarf nýj-
ar fjárfestingar. Með byggingu ál-
vers eða samsvarandi fyrirtækja
skapast tækifæri til þess að ráða
heim menntað fólk sem gjarnan vill
koma heim en hefur hingað til ekki
viljað koma vegna fábreytni at-
vinnulífsins.
Störfum á íslandi öllu fjölgar
með tilkomu fjárfestinga í virkjun-
um og álveri vegna margfeldis-
áhrifanna. Þjóðin veit, að með til-
komu álversins í Straumsvík og
byggingu Búrfellsvirkjunar snerist
atvinnulífsuppbygging til betri veg-
ar fyrir rúmum þrjátíu árum. Und-
anfarin þrjátíu ár hefur hagsæld
þjóðarinnar aukist hratt og einu
kaflarnir sem hafa verið neikvæðir
eru þau ár sem ekki var virkjað, eða
þau ár sem sjávarútvegur hefur
staðið höllum fæti.
Það er óþolandi að við skulum
ekki öll fá að njóta þenslu og hag-
vaxtar á tímum sem það þykir sjálf-
sagður hlutur á suðvesturhorninu.
Höfum við á landsbyggðinni ekki
rétt á okkar uppsveiflu? Á að halda
landsbyggðinni í heljai’greipum
lágra launa svo að þeir ríku frá suð1
vesturhominu geti komið austur og
skoðað Eyjabakkaeyðimörkina.
Virkjun Eyjabakka og álver í Reyð-
arfirði er það atvinnutæki sem
landsbyggðina sárvantar. Önnur
tækifæri munum við ekki eignast
næstu áratugi til að endurheimta
okkar fólk úr námi og stuðla þannig
að vexti á landsbyggðinni.
Hafa þessi SS- og Greenpeace-
samtök eitthvað annað fram að
færa en að setja landsbyggðarfólk í
vaðmálsbuxur, skinnskó og halda
okkur á lágum launum? Nei!
Ef ekki verður virkjað hið bráð-
asta og reist stóriðja á Austurlandi
verður fólksflóttinn enn meiri en
orðið er.
Höfundur er verksmiðjustjóri.
Starf á styrk-
um grunni
HEILSUSTOFNUN
NLFI í Hveragerði er
Igörinn vettvangur fyr-
ir alla sem þurfa á end-
urhæfingu, styrkingu
og hvíld að halda, en
stofnunin hefur verið
starfrækt frá því um
sumarið 1955. Þeir sem
helst koma til dvalar í
Heilsustofiiun NLFÍ er
fólk sem þjáist af
streitu, síþreytu, vefja-
gigt, ofþyngd, bak-
verkjum og gigtsjúk-
dómum. Endurhæfing
er einnig í boði fyrir
fólk eftir hjartaáföll og
krabbameinsmeðferð.
Kjaminn í hugmyndafræði stofn-
unarinnar er að efla heilbrigði, auka
vellíðan og styrkja einstaklinginn í að
bera ábyrgð á eigin heilsu.
Starfsemin fer eftir ákveðnum lín-
um, en aðalmarkmiðið með þeim er
að meðferðin gagnist öllum sem best.
Anna Pálsdóttir
Fjögurra vikna hóp-
meðferð er í boði fyrir
þá sem eiga við offitu að
stríða. Einnig er í boði
hópmeðferð fyrir fólk
sem fengið hefur
krabbameinsmeðferð.
í _ Heilsustofnun
NLFÍ er reynt að
mæta þörfum allra eins
og kostur er, bæði hvað
andlega og líkamlega
heilsu varðar. Almennir
fyrirlestrar, umræður,
gönguferðir, vatnsleik-
fimi, þjálfun í tækjasal
o.fl. er í boði alla virka
daga. Stuðningsviðtöl
era veitt þeim dvalargestum sem
eiga um sárt að binda vegna ýmissa
áfalla.
Sjúkranudd, leir- og heilsuböð hafa
verið stunduð í Heilsustofnun um
árabil og sjúkraþjálfun er vaxandi
þáttur í starfseminni. Næringarfræð-
ingur heldur almenna fyrirlestra um
NLFI
Með góðu samstarfi
dvalargesta og starfs-
fólks, segir Anna Páls-
dóttir, má búast við góð-
um árangri af dvöl í
Heilsustofnun NLFI í
Hveragerði
rétt fæðuval og hefur einnig einstakl-
ingsviðtöl við þá sem á þurfa að halda.
I Heilsustofnun og er fjölbreytt
heilsufæði í boði. Fiskur er á borðum
einu sinni til tvisvar í viku. Grænmeti
er lífrænt ræktað í eigin gróðurhús-
um.
I flestum tilfellum þarf beiðni frá
lækni um dvöl í Heilsutofnun. Viku-
námskeið gegn reykingum eru und-
anþegin þessari reglu en næsta nám-
skeið hefst 27. september.
Með góðu samstarfi dvalargesta og
starfsfólks má búast við góðum ár-
angri af dvöl í Heilsustofnun NLFÍ í
Hveragerði.
Höfundur er upplýsingafulltrúi
Heilsuhælis NLFI í Hveragerði.
I
SUITABLE
Nýr stíll^frábært sófasett
Raðgrelðslur j !
húsgögn
Ármúla 44
sími 553 2035