Morgunblaðið - 24.09.1999, Side 8

Morgunblaðið - 24.09.1999, Side 8
8 FÖSTUDAGUR 24. SEPTEMBER 1999 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ íslendingar vilja kaupa 51% í Stoke: Stoke handa Guðjóni - landsliðsþjálfaranum boðinn kaupréttur og bónusar 111 '3 ■ 1 EEEi/ (3-/MUAJQ W ?? Á lappirnar með ykkur, Guðjón er að koma. Tilbúnir blómvendir afsláttur Verð Verð áður J«i4ð0ð Ver Verð áður kr-3M0' Verð Verð áður kr-§000' Verð áðurjb-^Oeð Rósir 10 stk kr. 799 Ráðstefna um málefni leikskólans Hvernig læra börn í leikskóla? Idag hefst á Grand Hóteli í Reykjavík ráðstefna undir yfír- skriftinni: Hvernig læra börn í leikskóla? Ráð- stefnan er haldin á vegum Félags íslenskra leik- skólakennara og Félags leikskólafulltrúa. Jóhanna Einarsdóttir dósent held- ur inngangserindi á ráð- stefnunni. Um hvað skyldi það fjalla? „I inngangserindinu ætla ég að fjalla um rann- sóknir sem gerðar hafa verið um áhrif leikskóla- dvalar á börn og er meg- inniðurstaða að börn hafi verulegan ávinning af að ganga í góða leikskóla. I framhaldi af því mun ég velta upp spurningunni: Hvað er góður leikskóli? Þá ætla ég líka að fjalla um nýjar rannsóknir um nám og kennslu ungra barna. En niðurstöður þeirra benda til þess að mikil- vægi kennarans eða þess full- orðna sem annast börnin sé jafn- vel enn meira en áður var talið. Börn læra best þegar þau eru virk og hafa samband við annað fólk. Hlutverk kennarans er að styðja við börnin og örva þau svo að viðfangsefnin verði eins og áskorun sem þau takast á við.“ - Hvert er markmið þessarar ráðstefnu? „Það er annars vegar að upp- lýsa þá sem fjalla um leikskóla- mál í sveitarfélögum um innra starf leikskólans og þá þróun og strauma sem efst er á baugi í þessum málaílokki. Hins vegar er markmið ráðstefnunnar að kynna nýja aðalnámskrá leik- skóla og þau námssvið sem þar eru sett fram. I nýrri aðal- námskrá kemur fram að hver leikskóli skuli byggja upp sína skólanámskrá. Sett eru fram sex námssvið leikskóla og til að tryggja þeim veglegan sess í leikskólastarfinu ber hverjum leikskóla að semja skólanámskrá og gera uppeldis- og námsáætl- anir. Skólanámskrá er stefnu- skrá hvers leikskóla og á að sýna hvernig hann hyggst vinna að þeim markmiðum sem aðal- námskráin setur. Þessi ráðstefna er sem sagt líka hugsuð sem vettvangur til að ræða fram- kvæmd og uppbyggingu skóla- námskráa fyrir leikskóla.“ - Hvað fleira verður á dag- skrá ráðstefnunnar? „Hrönn Pálmadóttir, kennari við leikskólaskor KHI, mun í sínu erindi ræða tengsl leiks og náms og meðal annars fjalla um samþættingu náms og svokallaða könnunaraðferð í kennslu leik- skólabarna, en í þeirri aðferð er gengið út frá spurningum sem börnin setja fram. Leitað er svara við þeim spurningum með því að fara og kanna málið og að lokum draga börnin ------------- saman niðurstöður sínar og gera þær sýnilegar öðrum í máli, myndum, söng _______ og tónlist. Námssviðin sem sett eru fram í nýrri aðal- námskrá verða kynnt á ráðstefn- unni en þau eru: Heilsa og hreyf- ing, mál og málörvun, mynd- sköpun og myndmál, tónlist og tónlistariðkun, náttúran og um- hverfíð og menning og samfélag. Leikskólakennarar sem hafa sér- Jóhanna Einarsdóttir ►Jóhanna Einarsdóttir fæddist í Reykjavík 1952. Hún lauk kennaraprófi frá Kennarahá- skóla íslands 1973 og stúdents- prófi frá sama skóla 1974. BS- prófi í kennslufræði lauk hún frá háskólanum í Illinois í Bandaríkjunum og MED-prófi frá sama skóla 1977 í menntun- arfræðum yngri barna. Hún er nú að vinna að doktorsverkefni um kennsluaðferðir lcikskóla- kennara. Jóhanna hefur starfað við kennslu og nú er hún dósent við Kennaraháskóla Islands og skorarstjóri við leikskólaskor þess skóla. Jóhanna er gift Bjarna Reynarssyni skipulags- fræðingi og eiga þau þrjú börn. Við eigum vel útbúna leikskóla hæft sig í einstaka námssviðum munu kynna þau og gera grein fyrir hvernig þeir hafa unnið með þau. Þess má geta að Guð- rún Alda Harðardóttir, lektor við Háskólann á Akureyi'i, mun fjalla um tölvur og leikskólabörn en það er efni sem menn velta gjarnan fyrir sér nú á tímum tölvu- og upplýsingatækni." -Hvað telur þú vera góðan leikskóla? „Það eru nokkrir þætth’ sem koma oftast fram þegar reynt er að skilgreina gæði leikskóla. Það eru bæði ytri og innri þættir. Hvað snertir ytri þætti er hæfni starfsfólks mikilvæg forsenda góðs uppeldisstarfs við leikskól- ann. Annar þáttur er fjöldi barna í umsjá hvers starfsmanns og hópastærðir. Svo er stöðugleiki í starfsmannahópnum þriðji þátt- urinn sem hefur áhrif á gæði leikskólans. Hvað varðar innri þætti er ein mikilvægasta við- miðunin um gæði í leikskólum samskipti fullorðinna og barna. Svo og að námskráin taki mið af þekkingu á börnum almennt og þekkingu á börnunum í leikskól- unum. Til að viðhalda og bæta gæði leikskólans er nauðsynlegt að meta starfið skipulega. Aðrir þættir sem eru mikil- vægir mælikvarðar eru efniviður og um- hverfi, samstarf við foreldra og stjórnun leikskólans." -Eigum við góða leikskóla á íslandi? „Já, við eigum vel útbúna leik- skóla þar sem fram fer gott starf, en ég vildi samt gjarnan sjá fleiri menntaða leikskóla- kennara við störf í leikskólum landsins.“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.