Morgunblaðið - 24.09.1999, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 24. SEPTEMBER 1999 9
FRÉTTIR
Doktorspróf
í stjórn-
málafræði
•BALDUR Þórhallsson varði ný-
verið doktorsritgerð við stjórnmála-
fræðideild háskólans í Essex á
Englandi. Ritgerðin, sem heitir á
ensku: „The role
of smaller states
in the decision-
making process of
the Common
Agricultural
Policy and the
Regional Policy of
the European
Union“, fjallar um
hvaða leiðir
smæm ríki innan Evrópusam-
bandsins nota innan landbúnaðar-
og uppbyggingarstefnu ESB til að
ná fram markmiðum sínum. Rann-
sóknin náði til sjö smærri ríkja
ESB, á árunum 1986 til 1994, þ.e.
Luxemborgar, írlands, Danmerkur,
Belgíu, Portúgals, Grikklands og
Hollands og eru áhrif þeirra borin
saman við áhrif stærri ríkja sam-
bandsins, þ.e. Þýskalands, Bret-
lands, Frakklands, Ítalíu og Spánar.
Niðurstöður rannsóknarinnar eru
m.a. að stærð og einkenni stjórn-
sýslu smærri ríkjanna og einsleit
hagkerfi skýri hegðun þeirra innan
ESB og geri hana frábrugðna hegð-
un stærri ríkjanna. Samráðskerfi
smærri ríkja skýra hins vegar ekki
muninn á hegðun smærri og stærri
ríkja.
Það sem einkennir vinnubrögð
smærri ríkja innan ESB eru ófonn-
legir starfshættir og sveigjanlegt
ákvarðanatökuferli. Samningamenn
fá jafnan svigrúm til eigin ákvarð-
ana eða leiðbeiningar um hvemig
haga beri samningaviðræðum en
samningamenn stærri ríkjanna fá
bein fyrirmæli. Hins vegai' setur
það smærri ríkjunum ákveðnar
skorður hvað stjórnsýsla þeirra er
smá. Þau þurfa að forgangsraða
hvaða málaflokkum þau beina sjón-
um sínum að og geta því ekki tekið
virkan þátt í öllum ákvörðunum.
Stærri ríki taka hins vegar virkan
þátt í öllum málaflokkum án nokk-
urra vandkvæða og geta leyft sér að
vera ósveigjanleg í öllum samninga-
viðræðum. Smærri ríkin eru á hinn
bóginn einungis ósveigjanleg í
samningaviðræðum þar sem lykil-
hagmuni þeirra er að finna en
sveigjanleg í öðrum. I ljósi þessa
þurfa smærri ríkin frekar að
treysta á stuðning framkvæmda-
stjórnar ESB. Smærri ríkin byggja
því upp sérstakt samband við fram-
kvæmdastjórnina og reyna að fá
málum sínum framgengt innan
hennar.
Baldur Þórhallsson er fæddur ár-
ið 1968. Hann lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum að Laugarvatni
árið 1988, BA-prófi í stjórnmála-
fræði frá Háskóla Islands árið 1991
og mastersgráðu í „Western
European Politics" frá háskólanum
í Essex árið 1994. Hann er stunda-
kennari við félagsvísindadeOd Há-
skóla íslands. Foreldrar Baldurs
eru Þórhallur Ægir Þorgiisson,
rafvirkjameistai'i og Þorbjörg
Hansdóttir, kaupmaður. Baldur er í
sambúð með Felix Bergssyni, leik-
ara,_ og eiga þeir tvö börn, Guðmund
og Álfrúnu Perlu.
Sjö sóttu um
Garðaprestakall
UMSÓKNARFRESTUR um emb-
ætti prests í Garðaprestakalli rann
út 20. september sl. Sr. Bjarni Þór
Bjarnason hefur gegnt því embætti
frá 16. júní 1997 en hefur sagt því
lausu þar sem hann hefur farið til
starfa erlendis.
Umsækjendur um embættið voru
sjö og eru þessir: Auður Inga Ein-
arsdóttir, cand. theol., Elínborg
Gísladóttir, cand. theol., sr. Friðrik
Hjartar, sr. Jón Hagbarður Knúts-
son, sr. Magnús Bj. Björnsson, Stef-
án Karlsson, cand. theol. og sr.
Þórey Guðmundsdóttir.
Biskup skipar í embætti prests frá
1. október nk. til fimm ára.
m*
NY STIMPLASENDING
ifóðinsgötu 7 TIFFflWS Sími 562 8448
lilboð
Buxur á tilboði
föstudag
kl. 10-18 og
laugardag
Id. 10-16.
Laugavegi 46
s. 561 4465
m
bHoiyf
Ný
sending
JR- ^ M i J| ' ■ u j Opið laugard. kl. 10-14
rZft+ðsuírO tískuverslun
Rauðarárstfg 1, sfmi 561 5077
Baldur
Þórhallsson
Sölusýning
á handhnýttum, austurlenskum gæðateppum
á Grand Hótel, Reykjavík,
föstudag 24. sept. frá kl. 13-19
laugardag 25. sept. frá kl. 12-19
sunnudag 26. sept. frá kl. 13-19
Jh..
HÓTEIy
REYKJAVIK
Hnésíð pils, toppar og jakkar.
TESS
Opið virka daga 9-18,
iaugard. 10-14.
1 m. istulíns DrúSur
Námskeíð /jpt'vlnternational I jFoundation of jÞoU'Mciken í ger^ postulínsbrúða. Olafía Sveínsdóttir, simi 557 Ó8Ó8. 4
Nýtt frá Ítalíu
Tweed buxvir,
mohair jakkar og
svartar sparidragtir
hjáX$Gafhhilclí
Engjateigi 5, sími 581 2141.
Opið virka daga frá kl. 10.00—18.00, laugardaga frá kl. 10.00—15.00.
Silfurpottar í Háspennu frá 8. til 22. sept.1999
Dags. Staður Upphæð
Dags. Staður Upphæð
10. sept. Háspenna, Hafnarstræti...94.248 kr.
13. sept. Háspenna, Laugavegi.....128.092 kr.
13. sept. Háspenna, Laugavegi......56.130 kr.
14. sept. Háspenna, Laugavegi......128.731 kr.
17. sept. Háspenna, Laugavegi.....186.150 kr.
17. sept. Háspenna, Laugavegi..........72.685 kr.
20. sept. Háspenna, Laugavegi.....239.982 kr.
21. sept. Háspenna, Laugavegi.....144.889 kr.
22. sept. Háspenna, Laugavegi.....106.429 kr.
22. sept. Háspenna, Hafnarstræti..129.363 kr.
22. sept. Háspenna, Hafnarstræti........129.363 kr.
Fréttir á Netinu
^mbl.is
-alltaf errruvAÐ nýtt