Morgunblaðið - 24.09.1999, Page 20
20 FÖSTUDAGUR 24. SEPTEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FORSETI ÍSLANDS Á AUSTURLANDI
Yngsta kynslóð Vopnfirðinga tók hlýlega á móti forsetanum.
Hrafnkell A. Jónsson, héraðsslqalavörður, útskýrir byggingu tilgátuhússins.
Heimsókn forseta íslands til Austurlands
Menningar- og
sögulegar áherslur
FORSETI íslands, Ólafur Ragnar
Grímsson, hélt í gær áfram ferð sinni
um Austurland. En hann er nú í opin-
berri heimsókn í Norður-Múlasýslu
og Fjarðabyggð og voru Fellabær,
Norður-Hérað, Bakkafjörður og
Vopnafjörður heimsótt að þessu sinni.
Það var Lárus Bjamason sýslu-
maður sem tók á móti forsetanum við
sýslumörkin á Fagradal og var ekið
þaðan til Fellabæjar þar sem oddvit-
inn, Eyjólíúr Valgarðsson, tók á móti
gestum og fylgdi þeim um bæinn.
í Fellaskóla ræddi forsetinn við
nemendur og skoðaði vinnu þeirra.
En þar mátti sjá 7. bekkjar nemendur
vinna hörðum höndum að gerð fresku,
sem unnin er fyrir samtökin ,Art
Child“. Freskan sem sýnir framtíðar-
sýn nemendanna, verður send til New
York ásamt annarri, en þar verður
hún hluti sýningar þar sem börn víðs-
vegar að úr heiminum tjá framtíðar-
sýn sína. Fellaskóli er eini íslenski
skólinn sem tekur þátt í verkefninu.
Leikskólaböm í Hádegishöfða voru
sótt heim þar sem þau sátu og lituðu
Lagarfljótsorminn og fullvissuðu þau
forsetann um tilvist ormsins. Þá var
virkjanasvæði Hitaveitu Egilsstaða og
Fella skoðað í fylgd Guðmundar Da-
víðssonar, framkvæmdastjóra Hita-
veitunnar. En þar bættist í hópinn
Hákon Aðalsteinsson, hreppstjóri
Fljótsdalshrepps, sem veitti forseta
og fylgdarliði leiðsögn um nálægar
sveitir.
Bygging tilgátuhússins skoðuð
Því næst var haldið til Norður-Hér-
aðs, en þar veitti Hrafnkell A. Jóns-
son héraðsskjalavörður leiðsögn um
tilgátuhúsið að Litla-Bakka. Torf-
kirkjan sem þar rís er hluti tilrauna til
að endurgera fomminjar í sem upp-
runalegastri mynd, en reyna á þannig
að kanna um leið stað- og lifnaðar-
hætti fólks á fyrri öldum. Fram-
kvæmdin vakti töluverðan áhuga hjá
forsetanum sem sagði hana merka og
áhugavert yrði að fylgjast með hvem-
ig tíminn og veðráttan leiki kirkjuna.
A Norður-Héraði vora einnig heim-
sóttir nemendur Brúarásskóla og
starfsfólk Sláturhúss KHB. Hádegis-
verður var snæddur í Svartaskógi í
boði Fellabæjar og Norður-Héraðs og
léku nemendur tónskóla Norður-Hér-
aðs þar nokkur lög.
Oddviti Bakkafjarðar, Steinar
Hilmarsson, tók á móti forsetanum á
svæði smábátahafnar Bakkafjarðar
og var litið inn í fiskverkun Gunnólfs
hf., gamla bryggjan skoðuð og rætt
við heimamenn yfir kaffisopa í grann-
skóla staðarins.
A Vopnafirði var forsetanum síðan
tekið opnum örmum af yngri kynslóð-
inni, sem fagnaði honum veifandi fán-
um og tók nokkur lög fyrir gesti eftir
að hafa reynst ófeimin við að ræða við
forsetann um skólann, lífið og hvað-
eina annað sem þeim lá á hjarta.
Grannskóli Vopnafjarðai’ var þá skoð-
aður í fylgd Aðalbjöms Bjömssonar,
en unnið er að mikilli stækkun á skól-
anum, sem mun hafa bætt við sig
bæði bókasafni og tónlistarskóla
næsta haust. Þá var gengin stuttur
hringur um bæinn og m.a. numið stað-
ar við minnisvarða skáldsins Gunnars
Gunnarssonar.
Kvöldverður var snæddur á Hótel
Tanga og héraðssamkoma haldin síð-
ar um kvöldið í íþróttahúsi staðarins.
Þar afhenti forseti „Hvatningu forseta
íslands til ungra íslendinga", auk
þess sem fram komu Samkór Vopna-
fjarðar og nemendur úr Tónlistar-
skóla Vopnafjarðar.
Morgunblaðið/Þorkell
Nemendur í sjöunda bekk Fellaskóla mála fresku sem tjáir framtíðar-
sýn þeirra. Myndin verður send á sýningu í New York.
Sjö ungmenni hljóta viðurkenningu
Á HÁTÍÐARSAMKOMU á
Vopnafirði í gærkvöld var sjö
ungmennum veitt viðurkenning
forseta íslands, „Hvatning for-
seta íslands til ungra íslend-
inga“, en hún var fyrst veitt
haustið 1996. Á Vopnafirði fór
afhendingin fram á héraðssam-
komu í íþróttahúsi staðarins. Við-
urkenninguna hlutu að þessu
sinni: Helga Ösp Bjarkadóttir, 15
ára Vopnfirðingur, en hún hefur
sýnt mikinn dugnað í félagsmál-
um og unnið ötullega og af ósér-
hlífni fyrir unglingadeild Björg-
unarsveitarinnar Vopna. Ingi-
björg Ólafsdóttir, 15 ára Vopn-
firðingur, sem hefur þrátt fyrir
erfíð veikindi sýnt eftirtektar-
verðan dugnað við að þjálfa sig
og stundar nú íþróttir af miklu
kappi. Jóhann Gunnarsson, 18
ára, frá Refsstað. Jóhann er afar
góður nemandi og hefur sýnt ein-
stakan námsárangur á landsvísu.
Kári Gautason, 10 ára, frá
Grænalæk, En hann er skapandi
einstaklingur með góða hæfileika
til að túlka hlutina á fjölbreyttan
hátt í máli, myndum og með leik-
rænni tjáningu. Theodóra Rún
Baldursdóttir, 11 ára Vopnfirð-
ingur, sem þykir frábær nemandi
og hefur sýnt einstakan námsár-
angur á landsvísu. Tryggvi Aðal-
björnsson, 13 ára Vopnfirðingur,
sem er afburðanámsmaður og
hefur einnig sýnt góða hæfileika
í tóniistarnámi. Hann hefur á
skömmum tíma tekið III stig í
saxófónleik. Þuríður Árnadóttir,
10 ára, frá Vopnafirði, sem hefur
sýnt framúrskarandi árangur og
skjótar framfarir í hljóðfæra-
námi.
V opnfírðingar
áminning um mikil-
vægi menningar
FORSETI íslands, Ólafur Ragnar
Grímsson, gerði söguna og bók-
menntir að umræðuefni sínu á hér-
aðssamkomu í íþróttahúsinu á
Vopnafirði í gærkvöld. Þar sagði
hann m.a. að þakka bæri Vopnfirð-
ingum sinn þátt í íslenskri bók-
menntasögu og sagði menningará-
huga þeirra þarfa áminningu fyrir
íslendinga.
I ræðu sinni sagði forsetinn sögu
og bókmenntir, jafnt fomar sem
nýjar, eiga djúpar rætur á Vopna-
firði, því í umhverfí staðarins væri
að finna bæði söguslóðir og efnivið
skáldverka sem ættu sér tryggan
sess í íslenskri menningu. Vopnfirð-
ingasaga væri t.d. gott dæmi um
slíkt, auk helsta skálds staðarins,
Gunnars Gunnarssonar.
Andinn sem er innblástur
listamanna
Vestur-íslendingar með ættir að
rekja tU Vopnafjarðar urðu forset-
anum einnig að umræðuefni, en
hann sagðist hafa hitt marga þeirra
á ferð sinni um Bandaríkin og
Kanada fyrr á árinu. Forsetinn
sagði þá áhugasama um uppruna
sinn og heimabyggðir forfeðra sinna
á Vopnafirði. Verðugt viðfangsefni
væri að rækta tengsl við þá og gam-
an í því sambandi að búa tU dag-
skrár sem gerði Vestur-íslending-
um kleift að kynna sér heimabyggð
forfeðranna.
Forsetanum varð einnig að um-
talsefni menningaráhugi Vopnfirð-
inga en þeir hafi á síðari árum
skapað sér menningardaga og -vik-
ur sem vakið hafi athygli allrar
þjóðarinnar sakir frumleika, at-
orku og víðsýni. Slíkt væri sönnun
þess að í austfirskum byggðum búi
andinn sem veiti hirðmönnum list-
anna innblástur til ódauðlegra
verka. Menningarviðburðir á
Vopnafirði væru því þjóðinni þörf
áminning um að rækta vel efnivið-
inn sem búi í byggðum landsins,
sem og að varðveita hæfUeika til
nýrra verka og listrænnar túlkun-
ar. Þetta væri ekki síst áminning
um að menning sé sameign þjóðar-
innar og sem slík ekki bundin við
starfstíma stofnana á höfuðborgar-
svæðinu.