Morgunblaðið - 24.09.1999, Síða 32
32 FÖSTUDAGUR 24. SEPTEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
fMnfgtiínMaMlí
STOFNAÐ 1913
ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík.
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson.
RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
ARANGUR
LÖGREGLU OG
TOLLGÆZLU
MIKILL árangur hefur náðst hjá lögreglu og tollgæzlu í
baráttu gegn ólöglegum innflutningi fíkniefna. Lögreglan
í Reykjavík lagði nýlega hald á 24 kg af hassi, 6 þúsund e-töfl-
ur, 4 kg af amfetamíni og 1 kg af kókaíni. Fjórir menn sitja í
gæzluvarðhaldi vegna rannsóknar málsins og tveggja er enn
leitað erlendis. Ennfremur hefur lögreglan lagt hald á átta
dýrar bifreiðir, sem tengjast mönnunum, sem handteknir hafa
verið. Verðmæti þeirra ásamt fleiri eignum þeirra, sem eru í
gæzluvarðhaldi, mun nema um 51 milljón króna. Árangur yfír-
valda í baráttunni gegn ólöglegum innflutningi fíkniefna hefur
því borið verulegan árangur, því að þetta magn er meira en áð-
ur hefur fundizt í baráttunni gegn fíkniefnainnflutningi.
I Morgunblaðinu síðastliðinn laugardag segir m.a.: „Ánægja
ríkir meðal lögreglu og tollgæzlu með samstarf það sem leitt
hefur af sér þann árangur, sem náðst hefur nú þegar í málinu.
Telur tollgæzlan að í málinu hafi reynt á samstarfssamning í
fíkniefnamálum, sem gerður var milli embættis ríkislögreglu-
stjóra og tollgæzlunnar í vetur. Þá hefur mannafli beggja aðila
verið samnýttur og tollgæzlan tekið aukinn þátt í rannsókninni
sem slíkri, m.a. farið í húsleitir ásamt lögreglu sem telst
nýlunda í starfsemi tollgæzlunnar.“
Fyrir rétt rúmum 6 mánuðum var umræddur samstarfs-
samningur milli ríkislögreglustjóra og ríkistollstjóra undirrit-
aður. Það er því ánægjulegt að þessi árangur næst svo fljótt
sem raun ber vitni. Samningarnir voru kynntir á sínum tíma
undir kjörorðinu „Tökum höndum saman gegn fíkniefnum," en
vinnuhópur á vegum beggja embætta hafði þá unnið að tillög-
um um samstarfið frá því í nóvember á síðasta ári.
Ríkislögreglustjóri sagði er samstarfið var kynnt í marz-
mánuði síðastliðnum að með samningnum væri verið að koma í
veg fyrir að ííkniefnamarkaðurinn á Islandi fengi að vera
óáreittur. „Við erum að reyna að ráðast gegn fíkniefnamarkað-
inum með samstilltum vinnubrögðum lögreglu og tolls.“ Þau
vinnubrögð hafa þegar skilað mikilvægum árangri og ber að
fagna því.
MENNTUN OG
ATVINNULÍF
FJÖLBREYTNI í íslenzku atvinnulífi hefur farið stöðugt
vaxandi undanfarin ár og krefst það margs konar sér-
fræðiþekkingar og tæknikunnáttu, sem ekki þekktist fyrir ör-
fáum áratugum. Nýjar atvinnugreinar hafa sprottið upp, sem
eru taldar vaxtarbroddur efnahagslífsins og má þar nefna hug-
búnaðargerð. Þörf hefðbundinna atvinnugreina á sérmenntuðu
og sérþjálfuðu fólki vex hratt, m.a. vegna örrar tækniþróunar.
Þetta hefur haft í för með sér, að sumar greinar atvinnulífsins
eiga í erfiðleikum með að fullnægja þörf á vel menntuðu og
þjálfuðu starfsfólki. Það hefur aftur í för með sér, að álag er
víða of mikið á starfsfólki og vinnutími langur. Fari fram sem
horfír má búast við, að þetta hamli nauðsynlegri tæknivæðingu
og þróun atvinnulífsins, en það mun spilla samkeppnishæfni ís-
lenzkra fyrirtækja á erlendum mörkuðum.
Finnur Geirsson, formaður Samtaka atvinnulífsins, vék sér-
staklega að menntunarmálum í ræðu sinni á stofnfundi þeirra
fyrir skemmstu. Hann lýsti því sem einu af meginmarkmiðum
samtakanna í framtíðinni að taka þátt í umfjöllun bæði hér-
lendis og erlendis um menntamál, rannsóknar- og þróunar-
störf, auk þess sem umhverfis- og orkumál yrðu mikilvæg í
starfsemi þeirra. Hann kvað Samtök atvinnulífsins myndu
leggja áherzlu á, að fyrirtækin ættu kost á vel menntuðu fólki
á vinnumarkaði og að ungt fólk ætti völ á áhugaverðum störf-
um og góðri afkomu í íslenzku atvinnulífi.
Finnur kvað mikilvægi menntunar sívaxandi fyrir atvinnu-
lífið og leyfa þyrfti framtakssömum einstaklingum að spreyta
sig á rekstri skóla. Nýjar lausnir ættu að vera eftirsóknar-
verðar bæði fyrir nemendur og kennara - og ekki sízt atvinnu-
lífið, sem bráðvantaði hæft og menntað starfsfólk.
Formaður SA hefur hreyft hér athyglisverðri hugmynd, sem
full ástæða er til að fylgja eftir. Vafasamt er, að hefðbundnir
skólar geti menntað og þjálfað nemendur í takt við þá öru þró-
un, sem einkennir atvinnulíf nútímans, nema þá með sérstök-
um ráðstöfunum. Eðlilegt er, að Samtök atvinnulífsins taki
þau mál upp við menntamálaráðuneytið og geri þá nánari
grein fyrir þeirri hugmynd, sem nýkjörinn formaður þeirra
hefur nefnt um nýjar lausnir á skólarekstri.
Skattleysismörk hafa dregist aftur úr launaþróun segir í skýrslu ASÍ og BSRB
Dregið hefur
úr tekjujöfn-
unarhlutverki
skattkerfísins
Tekjumunur hefur aukist í þjóðfélaginu
vegna breytinga á tekjuskattskerfínu á und-
anförnum árum. I skýrslu Alþýðusambands
—7----------------------------------------
Islands og Bandalags starfsmanna ríkis og
bæja um launamanninn og skattkerfið segir
að þar sem skattleysismörk hafí dregist
aftur úr launaþróun hafi skattbyrðar hinna
lægst launuðu aukist hlutfallslega mest.
EKJUSKATTSKERFIÐ
hefur tekið umtalsverðum
breytingum á síðustu árum
þar sem skattleysismörk
hafa dregist mjög aftur úr launaþró-
un. Slík breyting þyngir skattbyi'ðar
hinna lægst launuðu hlutfallslega
mest og eykur því tekjumun í samfé-
laginu. Ráðstöfunartekjur þeirra
aukast hlutfallslega minna en þeirra
sem hæst hafa launin og því hefur
dregið úr tekjujöfnunarhlutverki
skattkerfisins þrátt fyrir lækkun
tekjuskattshlutfallsins um 4 prósentu-
stig á síðustu árum.
Þetta kemur meðal annars fram í ít-
arlegri skýrslu sem Alþýðusamband
íslands og Bandalag starfsmanna rík-
is og bæja hafa unnið um launamann-
inn og skattkerfið. Á blaðamannafundi
í gær þar sem skýrslan var kynnt
sagði Ögmundur Jónasson, formaður
BSRB, að með því að leggja fram
þessa skýrslu nú vildu samtökin kort-
leggja stöðuna í þessum efnum til að
mynda hvað varðaði samspil bóta og
skattkerfisins. Skýrslan yrði umræðu-
grundvöllur í samtökunum, en auðvit-
að vildu þau einnig að skýrslan yrði
notuð sem vinnugagn og upplýsingarit
hjá þeim sem endanlega tækju
ákvarðanir um skattkerfisbreytingar.
Grétar Þorsteinsson, forseti Al-
þýðusambands Islands, tók í sama
streng. Samtökin væru ekki með þess-
ari skýrslu að kynna tillögur til breyt-
inga á sköttum. Fyrst og fremst væru
samtökin að kynna hér mjög gagnlega
úttekt á skattkerfinu sem yrðu vænt-
anlega á næstu vikum skoðaðar með
hliðsjón af hugsanlegri tillögugerð til
breytinga á skattkerfinu við gerð
kjarasamninga. „Eg ætla ekkert að
fullyrða um hvort það verður, en ef
það verður þá eru þetta mjög mikil-
vægar upplýsingar sem við erum með
hér. Þær gera okkur líka mun auð-
veldara að bregðast við tillögum og
hugmyndum um breytingar á skatt-
kerfinu," sagði Grétar.
Hann bætti því við að samtökin
legðu mikla áherslu á það í framtíðinni
að allar ákvarðanir sem teknar væru
um breytingar á skattkerfinu grund-
völluðust á mjög ítarlegri úttekt á
hvaða afleiðingar þær myndu hafa.
Umsamdar launahækk-
anir skila sér misvel
Skýrsluhöfundar eru Edda Rós
Karlsdóttir og Rannveig Sigurðar-
dóttir, hagfræðingar ASI. I skýrslunni
segir að skoða verði sérstaklega áhrif
skattkerfisins og breytinga á því á
ráðstöfunartekjur hinna lægst laun-
uðu og þeirra sem beri þyngstar fram-
færslubyrðar með það að markmiði að
tryggja að þessir hópar njóti í raun
kjarabóta. Það sé staðreynd að um-
samdar launahækkanir og tekjuaukn-
ing almennings skili sér misvel og nið-
urstaðan sé sú að rót vandans felist í
samspili tekjuskattkerfisins og tekju-
tengingar bóta. „Þótt skattbyrði sé
lægri hér á landi en í flestum við-
skiptalöndum Islands og umtalsverð
tekjujöfnun eigi sér stað í gegnum
skattkerfið er sá vandi enn óleystur að
þeir hópar sem verða harðast fyrir
barðinu á svokölluðum ,jaðaráhrifum“
skatta- og bótakerfis er fólk með lágar
millitekjur og þungar framfærslu-
byrðar. Auknar tekjur vegna launa-
hækkana eða meiri vinnu skila sér
mun verr til þeirra sem hafa börn á
framfæri og njóta barnabóta eða bera
miklar vaxtabyrðar vegna húsnæðis-
skulda,“ segir í skýrslunni.
Þá segir að eitt af þeim vandamál-
um sem menn standi frammi fyrir
þegar gera eigi úrbætur á skattkerf-
inu sé hvernig hægt sé að draga úr
jaðaráhrifum á þá hópa sem verst hafi
orðið fyrir barðinu á þeim án þess að
eyðileggja um leið þau áhrif til jöfnun-
ar tekna og aðstöðumunar sem sé ann-
að af meginmarkmiðum skattkerfisins
að rnati verkalýðshreyfingarinnar.
I skýrslunni er farið yfir ýmsa
möguleika á lagfæringum innan nú-
verandi skattkerfis, auk þess sem
hugmynd um fjölþrepa skattkerfi er
varpað fram sem mögulegri lausn.
„Helsti kostur fjölþrepa skattkerfa,
sem tíðkast í nær öllum ríkjum OECD
nema hér á landi, er sá að jaðaráhrif
vegna hækkandi tekna og tekjujöfn-
unar skattkerfisins, fer fram með
sjálfri tekjuskattsálagningunni. Greitt
er hærra skatthlutfall af hærri tekj-
um. Þetta felur einnig í sér að hægt er
að hafa bein áhrif á skattbyrði mis-
munandi tekjuhópa, ólíkt því sem er í
núverandi kerfi þar sem allar breyt-
ingar snerta alla skattgreiðendur.
Auðveldara verður því að beita skatt-
kerfinu til sveiflujöfnunar. Helsti
ókosturinn er sagður vera flókin fram-
kvæmd. En eins og fram kemur í
greinargerð ríkisskattstjóra vegna
fyrirspurnar skýrsluhöfunda, hefur ný
upplýsingatækni auðveldað mjög alla
framkvæmd. Auk þess snýr „einfald-
leiki“ íslenska tekjuskattkerfisins
bara að innheimtuaðilanum en ekki
launafólki. Það er staðreynd að launa-
fólk sem hefur börn á framfæri og
skuldar húsnæðislán stendur frammi
fyrir sex mismunandi skattþrepum
vegna tekjutengingar bóta. Gagnvart
launafólki er því helsti munurinn á
hinni íslensku útgáfu af fjölþrepa
skattkerfi og þeim sem tíðkast í öllum
helstu viðskiptalöndum okkar sá að
hér eru hæstu skattprósenturnar hjá
þeim sem eru með lágar millitekjur,"
segir síðan.
Sex skattþrep en ekki tvö
í einstökum köflum skýrslunnar er
fjallað um ólíka þætti skattkerfisins
hér á landi og erlendis. Til að mynda
er fjallað ítarlega um tekjujöfnun og
ráðstöfunartekjur einstakra fjöl-
skyldugerða og fjallað um samspil
skattleysismarka, hátekjuskatts,
barnabóta og vaxtabóta og birt dæmi
þar um. Til dæmis kemur fram að úti-
vinnandi hjón með tvö börn, annað
yngra en sjö ára og hitt eldra, sem
skulda 5 milljónir króna, og hafa 150
þúsund krónur í heildartekjur á mán-
uði fá rúmar 31 þúsund krónur til
baka úr skatt- og bótakerfinu í hverj-
Meðalskattbyrði hjóna með tvö börn
Heildartekjur Tekju- Barna- Vaxta- Bætur - Meðal-
á mánuði skattur bætur bætur skattur skattur
kr. 150.000 -8.552 20.200 19.418 +31.066 -20,7%
200.000 -26.955 15.700 17.167 +5.912 -3,0%
250.000 -45.358 11.200 14.167 -19.991 +8,0%
350.000 -82.164 2.200 8.167 -71.797 +20,5%
Hversu mörg eru tekjuskattsþrepin?
Skattþrep hjóna sem ekkert skulda og ekki eiga börn
Fjöldi skattþrepa Tekjumörk m.v. skattstofn Skatt- prósenta
0 0%
1. þrep 121.695 38,34% staðgreiðsla hefst
2. þrep 533.000 45,34% greiðsla hátekjuskatts hefst
Skattþrep hjóna með tvö börn og 4 m.kr í húsnæðisskuld
Fjöldi skattþrepa Tekjumörk m.v. skattstofn Skatt- prósenta
0 0%
1. þrep kr. 54.144 6% skerðing vaxtabóta hefst
2. þrep 97.464 15,00% skerðing barnabóta hefst
3. þrep 121.695 53,34% staðgreiðsla hefst
4. þrep 241.581 44,34% barnabætur búnar
5. þrep 377.788 38,34% vaxtabætur búnar
6. þrep 533.000 45,34% greiðsla hátekjuskatts hefst
Skattþrep einhleypra foreldra með tvö börn og 3 m.kr í húsnæðisskuld
Fjöldi skattþrepa Tekjumörk m.v. skattstofn Skatt- prósenta
0 0%
1. þrep kr. 48.732 9% skerðing barnabóta hefst
2. þrep 60.848 47,34% staðgreiðsla hefst
3. þrep 87.633 53,34% skerðing vaxtabóta hefst
4. þrep 266.500 60,34% greiðsla hátekjuskatts hefst
5. þrep 283.333 54,34% vaxtabætur búnar
6. þrep 356.665 45,34% barnabætur búnar
um mánuði eða sem nemur 20,7%. Ef
sömu hjón eru með 350 þúsund króna
mánaðartekjur greiða þau hins vegar
tæpar 72 þúsund krónur í skatt á
mánuði og er skatthlutfall þeirra því
um 20%.
I framhaldinu er fjallað um jaðar-
skatta og bent á að skattþrep barna-
fólks með húsnæðisskuldir eru í raun
sex í samanburði við tvö hjá þeim sem
engin börn eiga og ekkert skulda. I
síðara tilvikinu er einungis um að
ræða tekjuskattsprósentuna 38,34%
og hátekjuskattinn til viðbótar þegar
tilteknum tekjum er náð. Skattpró-
senta þeirra verður hæst 45,34% á
fjölskyldutekjur umfram 533 þúsund
krónur. Skattprósenta hjóna með tvö
börn og húsnæðisskuld sem nemur
fjórum milljónum króna verður hins
vegar hæst 55,34% og rúm 60% hjá
einhleypu foreldri með tvö börn og
þriggja milljón króna húsnæðisskuld.
Er það við 266 þúsund króna mörkin
þegar greiðsla hátekjuskatts hefst.
Þá er í sérstökum kafla fjallað um
kjarasamningana 1997 og skattbreyt-
ingarnar síðan þá, en á þessu tímabili
hefur skattprósentan lækkað um fjög-
ur prósentustig. Þá hefur hátekju-
skattur hækkað úr 5% í 7% og tekju-
viðmið hans úr 234 í 260 þúsund kr.
hjá einstaklingi og 520 þúsund kr. hjá
hjónum, auk þess sem barnabætur
voru að fullu tekjutengdar. Fjallað er
um samhengi skattleysismarka, per-
sónuafsláttar og skattprósentu og
bent á að ef persónuafslætti sé haldið
óbreyttum þegar tekjuskattsprósenta
sé lækkuð hækki skattleysismörkin,
en þau lækki hins vegar í raun sé þeim
haldið óbreyttum þegar tekjuskatts-
prósenta lækki. í fyrra tilvikinu kost-
ar lækkun tekjuskatts um eitt pró-
sentustig ríkissjóð 2,6 milljarða króna,
en í því seinna 1,5 milljarð króna og
því skipti þetta samhengi meginmáli.
Fram kemur að með því að láta
skattleysismörk dragast aftur úr
launaþróun sé meðvitað verið að auka
tekjumun í þjóðfélaginu, því ráðstöf-
unartekjur láglaunafólks aukist hlut-
fallslega minna en ráðstöfunartekjur
hálaunafólks þrátt fyrir hlutfallslega
sömu launahækkun. „Undanfarin ár
hefur 4% lækkun á skattprósentu ekki
dugað til að vega upp á móti þróun
skattleysismarka hjá ákveðnum hóp-
um. Þessi þróun bitnar fyrst og fremst
á þeim sem hafa mjög lágar tekjur og
þeim sem eru á bótum almannatrygg-
inga; elli- og örorkulífeyrisþegum,“
segir síðan.
Þróist í samræmi við lágmarks-
hækkanir samninga
Spurningu um það hvernig rétt sé
að skattleysismörkin þróist er svarað
á þann veg í skýrslunni að út frá sjón-
arhóli verkalýðshreyfingarinnar verði
skattleysismörk að minnsta kosti að
fylgja lágmarkshækkunum sam-
kvæmt kjarasamningum. Þannig sé
tryggt að kjarabætur skili sér að fullu
til þeirra sem fái einungis launahækk-
anir samkvæmt kjarasamningum.
Meðalskattbyrði aukist hins vegar
eitthvað hjá þeim sem njóti launa-
skriðs umfrarn umsamdar hækkanir
en lækki hjá þeim sem af einhverjum
ástæðum verði fyrir launatapi. Ef
skattprósentan sé hins vegar lækkuð
þurfi að tryggja að skattleysismörk
hækki a.m.k. þannig að meðalskatt-
byrði láglaunafólks þyngist ekki á
sama tíma og skattbyrði annarra létt-
ist.
I skýrslunni segir að það sé að
mörgu leyti byggt á misskilningi að
halda því fram að það sé dýrt að láta
skattleysismörk fylgja launum. Það
kosti ekki neitt, því ef skattleysismörk
fylgi launaþróun aukist tekjur ríkis-
sjóðps jafnt og tekjur í landinu. Það sé
hins vegar mjög freistandi að láta
skattleysismörk ekki fylgja launaþró-
un, því þá hækki tekjur ríkissjóðs mun
meira en tekjur almennings.
Tekið er dæmi af 10% hækkun
launa. Ef skattleysismörk og persónu-
afsláttur haldist óbreytt hækka sam-
anlagðar skatttekjur ríkissjóðs og
sveitarfélaga um 17,6%. Útsvarstekj-
ur sveitarfélaga hækka um 10% og
tekjur ríkissjóðs af tekjuskatti um
rúm 20%. Tekjur aukist um 12 millj-
arða króna og meðalskattbyrði launa-
fólks hafi aukist. Ef hins vegar skatt-
leysismörk og persónuafsláttur hækka
hlutfallslega jafnmikið og laun þá
aukast tekjur ríkissjóðs hlutfallslega
um það sama. Tekjuauki hins opin-
bera er tæplega 7 milljarðar og meðal-
skattbyrðin helst óbreytt.
FÖSTUDAGUR 24. SEPTEMBER 1999 33
_________________a__H_^__________^^^.........______ M
Jafnaðarmenn skortir
ímynd í augum kjósenda
Niðurstöður kosninganna í Saxlandi
í Þýskalandi um síðustu helgi voru mikið
áfall fyrir þýska jafnaðarmenn. Davíð
Kristinsson, fréttaritari í Berlín, segir
aðstæður í Saxlandi hafa ráðið miklu um
úrslitin sem séu engu að síður hluti af
víðtækari vanda jafnaðarmanna.
Hans Eichel,
fjárniálaráð-
herra Þýska-
lands, kynnir
hin umdeildu
niðurskurðar-
áform á Sam-
bandsþinginu
fyrr í mánuð-
inum. Gerhard
Schröder
kanslari
hlýðir á.
Reuters
ÍÐASTLIÐINN sunnudagur
var sá þriðji í röð sem kosið
var til landsþings í Sam-
bandslýðveldinu Þýskalandi.
Að þessu sinni var kosið í fjölbýlasta
sambandslandi fyrrverandi Austur-
Þýskalands, Saxlandi. Þótt einungis
63% hafi nýtt kosningarétt sinn í
landsþingskosningunum í Saxlandi að
þessu sinni, jókst þátttakan um 5%
frá því í kosningunum 1994.
Fyrir fimm árum náðu Kristilegir
demókratar (CDU) besta árangri sín-
um í sögu Sambandslýðveldisins þeg-
ar frambjóðandi þeirra í Saxlandi,
Kurt Biedenkopf, hlaut 58,1% at-
kvæða. Eini flokkurinn sem hefur
náð betri árangri í landsþingskosn-
ingum er bæverski systurflokkurinn
CSU sem hlaut rúmlega 62% at-
kvæða í kosningum árið 1974.
Skoðanakannanh’ undanfarinna
vikna spáðu því að Biedenkopf, sem
verið hefur forsætisráðherra Sax-
lands í níu ár, tækist að verja hreinan
meh'ihluta líristilegra demókrata á
landsþinginu í Dresden. Úrslit kosn-
inganna voru þau að flokkurinn hlaut
56,9% atkvæða, tapaði einungis rúmu
prósenti og hélt öllum 77 þingmönn-
um sínum. Kristilegh' demókratar
stóðu þannig uppi sem öruggir sigur-
vegarar kosninganna, og tryggðu sér
hreinan meirihluta á landsþinginu í
þriðja sinn. Aðalritari Kristilegra
demókrata, Merkel, sagðist eiga
erfitt með að finna orð til að lýsa
þessum þriðja sigri Kristilegra demó-
krata á jafn mörgum vikum, en hún
túlkaði úrslitin sem „gífurlega
traustsyfirlýsingu“. Hún sagði úrslit-
in endurspegla aukið fylgi CDU á
landsvísu svo og góðan árangur ríkis-
stjórnarinnar í Saxlandi.
Stjórnmálaskýrendur benda þó á
að kosið var um persónur fremur en
flokka og minna á að lýðræðið í Aust-
ur-Þýskalandi sé ennþá með öðrum
hætti en í vesturhluta landsins. Hinn
vingjarnlegi föðurlandsvinur Bieden-
kopf, sem áður var einn harðasti
gagnrýnandi Kohls, virðist falla vel
að þeim anda sem verið hefur ráðandi
í Austur-Þýskalandi eftir fall múrs-
ins, en íbúar Saxlands nefna hann
gjarnan „Kurt konung". Biedenkopf
sagði að á komandi kjörtímabili
myndi flokkurinn beita sér áfram fyr-
ir uppbyggingu efnahagsins, vinna
gegn atvinnuleysi og efla vísindi og
rannsóknir. Hann sagðist jafnframt
ætla að beita sér fyrir því að samn-
ingurinn um efnahagsaðstoð frá sam-
bandslöndunum í Vestur-Þýskalandi
verði endumýjaður, en Saxland fær
árlega 5,4 milljarða marka aðstoð
fram til ársins 2004.
Sósíalistar einnig sigurvegarar
Ekki minni athygli vakti þó annar
sigurvegari kosninganna: Flokkur
hins lýðræðislega sósíalisma PDS).
Líkt og í Thuringen vikunni áður fór
PDS, arftaki austur-þýska sósíalista-
flokksins (SED), fram úr Jafnaðar-
mannaflokknum (SPD) og er nú ann-
ar sterkasti flokkurinn í Saxlandi.
Sósíalistar bættu við sig tíu þingsæt-
um, hlutu 22,2% atkvæða (16,5% árið
1994), og fengu þannig um helmingi
fleiri atkvæði en Jafnaðarmanna-
flokkurinn.
Fyrsti maður á lista Sósíalista-
flokksins, Peter Porsch, segir að ár-
angurinn megi rekja tO þess að flokk-
urinn hafi einblínt á spurninguna um
félagslegt réttlæti, og raunar má
segja að „félagslegt réttlæti“ hafi
verið slagorð PDS í kosningabarátt-
unni. Porsch sagði markmið PDS
hafa verið að hindra að Kristilegir
demókratar næðu aftur hreinum
meirihluta á þinginu, og sagðist
harma að þetta mai'kmið hefði ekki
náðst sökum þess að Jafnaðarmanna-
flokkurinn hefði brugðist. Porsch
sagði að það væri greinilega orðið
nær sjálfgefið að PDS næði meira
fylgi í Austur-Þýskalandi en Jafnað-
armannaflokkurinn, og var þannig að
vísa til þeirrar staðreyndar að sósí-
alistar eru orðnir næststerkasti
flokkurinn í tveimur sambandslönd-
um í Austur-Þýskalandi, Saxlandi og
Thuringen.
Porsch sagði að Biedenkopf gæti
átt von á sterkum mótvindi stjómai'-
andstöðunnar. Gregor Gysi, leiðtogi
sósíalista á sambandsþinginu, sagðist
ekki lengur hafa neinar áhyggjur af
framtíð flokksins, sem tvöfaldað hef-
ur fylgi sitt á þessum áratug. Gysi
sagði jafnaðarmenn geta kennt sjálf-
um sér um slæmt gengi, og að tími
væri kominn til að endurskoða stefnu
Schröders, en sósíalistar gagnrýndu
sparnaðaraðgerðir jafnaðarmanna ít-
rekað í kosningabaráttunni. Með
slagorðinu „Nýja miðjan“ virðast
safnaðaiTnenn vera að tapa ímynd
sinni sem „vinur litla mannsins" með-
al þýskra kjósenda og í kjölfarið hef-
ur PDS nýtt sér það sóknarfæri sem
myndast hefur á vinstri vængnum.
Ljóst er að kjósendur sem sneru
baki við SPD kusu frekar PDS en
CDU. Einnig er talið að PDS hafi lað-
að að fyrrum kjósendur hægri öfga-
flokka, og að margh' kjósendur veiti
flokknum atkvæði sitt í mótmæla-
skyni. Nú er að bíða og sjá hvemig
kristilegir demókratar bregðast við
þeirri staðreynd að sósíalistar séu
orðnir sterkasti flokkur stjórnarand-
stöðunnar, en á síðasta kjörtímabili
kom fyrir að þingmenn þeirra yfir-
gáfu þingið þegar þingmenn sósí-
alista tóku til máls.
SPD í mikilli lægð
Saxland á sér rauða fortíð og í upp-
hafi aldarinnar vom forystumenn
þýski'a jafnaðarmanna á borð við
August Bebel og Wilhelm Liebknecht
fulltrúar Saxlands á ríkisþinginu.
Fyrir fimm árum fékk Jafnaðar-
mannaflokkurinn aðeins 16,6% at-
kvæða eða 0,1% meira en PDS og
þóttu úrslitin mikið áfall. Að þessu
sinni biðu jafnaðarmenn hins vegar
versta kosningaósigur sinn í kosning-
um í fimmtíu ár. Þeir hlutu aðeins
10,7% atkvæða sem þýðir að þriðj-
ungur kjósenda flokksins 1994 hefur
ákveðið að veita flokknum ekki at-
kvæði sitt. Jafnaðarmenn hafa nú um
45% minna fylgi í Saxlandi en CDU,
en enn verri þykir sú staðreynd að
flokkurinn fékk helmingi minna fylgi
en PDS. Slæmt gengi jafnaðarmanna
á landsvísu virðist ekki ætla að taka
enda. Franz Muntefering, fram-
kvæmdasjtóri SPD, sagði flokks-
bræður sína í Saxlandi hafa lent í erf-
iðri stöðu milli vinsæls forsætisráð-
herra sem hefði tekist að persónu-
gera stjórnmál annars vegar, og
vægðarlauss lýðskrums tækifæris-
sinnaðra sósíalista hins vegar. Sem
annan áhrifavald úrslitanna í
Saxlandi nefndi hann stjórnmálaá-
standið í kjölfar undanfarinna lands-
þingskosninga, en flokkurinn tapaði
meirihluta sínum í Saarlandi, 15%
fylgi í Brandenburg og í Thuringen
féllu jafnaðarmenn í fyrsta skipti nið-
ur í þriðja sæti.
Múntefering ítrekaði að þrátt fyrir
slæmt gengi ætluðu Jafnaðannenn
engar breytingar að gera á niður-
skurðaráætlun sinni (sem gerir ráð
fyrir 30 milljarða marka niðurskurði
á ári). Hann sagði engan annan val-
kost standa til boða. Það væri sama
hver væri við stjóm, óhjákvæmilegt
væri að gera það sem sambands-
stjórnin gerir nú. Hann skammaði
stjórnarandstöðuna fyrir að viður-
kenna ekki þessa staðreynd.
Karl-Heinz Kunckel, frambjóðandi
jafnaðarmanna í Saxlandi, sagði nið-
urstöðuna sýna að flokknum hefði
ekki tekist að koma kjósendum í
skilning um að sparnaðaraðgerðir
sambandsstjórnarinnar væru nauð-
synlegar ætluðu menn sér að styrkja
framtíðarstöðu Þýskalands og vinna
þannig að félagslegu réttlæti. Skoð-
anakannanir sýna þó að ónægja kjós-
enda beinist fyrst og fremst að því að
þeir hafi ekki tekið nægilega á spurn-
ingunni um félagslegt réttlæti.
Schröder virtist sér meðvitandi um
þetta í viðtali ríkissjónvarpsins kvöld-
ið eftir kosningarnar, þar sem hann
ítrekaði að eingungis með því að
draga úr opinberum skuldum mætti
stuðla að félagslegu réttlæti í fram-
tíðinni. Hann sagði sambandsstjórn-
ina hafa beitt sér fyrir félagslegu
réttlæti á ýmsum sviðum, m.a. með
því að stuðla að réttlátari skattlagn-
ingu.
Rök SPD sannfæra ekki
Þótt ætla megi að Þjóðverjar séu
almennt móttækilegir fyrir sparnað-
ai'áformum virðist sem þýskum kjós-
endum finnist rök sambandsstjórnar- v
innar fyrh' sparnaðaraðgerðunum lítt
sannfærandi. Sparnaður sparnaðar-
ins vegna virðist ekki nægja kjósend-
um og ljóst er að mai'gir kjósendur
SPD vilja staðfestingu á því að að-
gerðir þessar bitni ekki einungis á
tekjulægri hópum. Fyrir sambands-
þingskosningarnar boðuðu jafnaðar-
menn minna atvinnuleysi, en hálfu ári
síðar var megináherslan á niðurskurð
ríkisútgjalda. Því má ætla að atvinnu-
lausir séu meðal þeirra sem refsað
hafa jafnaðarmönnum að undan-
fömu. Auk þess virðast íbúar
Saxlands, svo og íbúar annarra sam-
bandslanda austurhluta Þýskalands,
þehTar skoðunar að Schröder hafi
vanrækt samskiptin við Þjóðverja í ~
austurhlutanum, hann geri of lítið th
að jafna út lífskjör milli austurs og
vesturs. Skoðanakannanir sýna að
74% íbúa Saxlands eru þeirrar skoð-
unar að sambandsstjómin geri of lítið
fyrir Austur-Þýskaland.
Áhyggjur andstæðinga
Andstæðingar SPD jafnt til vinstri
og hægri hafa áhyggjur af stöðunni.
Kristilegir demókratar hafa áhyggjur
af auknu fylgi PDS í austurhlutanum
en flokknum sem flestir töldu að yrði
skammlífur eftir fall múrsins hefur í
millitíðinni tekist að tvöfalda fylgi
sitt. Biedenkopf sagðist sem lýðræð-
issinni hai'ma hið slæma gengi jafn-
aðarmanna í Saxlandi. Kristilegir
demókratar kenna jafnaðarmönnum
um þessa þróun, og segja þá ekki
hafa dregið skýrar línur milli sín og
PDS eftir myndun fyrstu samsteypu-
stjórnar SPD og PDS í fyrra. Kristi-
legir demókratar líta á PDS sem
„vinstri öfgaflokk", þó svo að þeir
forðist að nota þetta heiti, og vísa
óspart til kommúnískrar fortíðar
flokksins.
Dvínandi fylgi SPD vekur einnig
takmarkaða ánægju í röðum sósí-
alista þar sem ætlun þeirra var að
koma í vega fyrir hreinan meirihluta
Kristilegra demókrata. Sósíalistar
virðast ekki sækjast eftir að leysa
jafnaðaiTnenn af hólmi og eru þeir
meðvitaðir um að jafnaðarmenn séu
mikilvægt afl á vinstri vængnum.
Græningjar og Flokkur frjálsra
demókrata (FDP), svo og ellefu
minni flokkar sem buðu sig fram,
eiga sem fyrr enga fulltrúa á lands-
þinginu. Gunda Röstel, frambjóðandi
Græningja, sem hlutu 2,6% atkvæða
miðað við 4,1% fyrir fimm árum,
sagði úrslitin vera sárt tap og að
staða Græningja í austurhluta Þýska-
lands væri orðin mjög erfið. Hún
minnti á að Græningjar hefðu hvergi
aukið við fylgi sitt síðan kosið var í .
Hamborg 1997. Hægri öfgaflokkarn-
ir, NPD og Repúblíkanar (REP),
hlutu báðir fleiri atkvæði en FDP
sem hlaut einungis 1,1% atkvæða
(1,7% árið 1994) og er nú aðeins átt-
undi stærsti flokkur Saxlands.
Hinn 69 ára gamli Biedenkopf hef-
ur lýst því yfír að hann muni ekki
bjóða sig fram að fimm árum liðnum
og búast má við því að erfitt verði
fyrir CDU að finna arftaka sem getur
náð nægilegum vinsældum til að
tryggja flokknum áframhaldandi
hreinan meirihluta á saxneska lands-
þinginu. En það er langt í þær kosn- -
ingar og nú er að bíða úrslita síðustu
kosninga þessa árs, þegar gengið
verður til kosninga í sambandsland-
inu Berlín 10. október. Fátt bendir til
þess að fylgishrun jafnaðarmanna
muni taka enda og samkvæmt skoð-
anakönnunum er talið að CDU fái
helmingi meira fylgi en jafnaðar-
menn í höfuðborginni. *