Morgunblaðið - 24.09.1999, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ
KIRKJUSTARF
Safnaðarstarf
Helgiganga
frá Garðakirkju
að Hafnarfjarð-
arkirkju
ÞEGAR rétt ár er liðið frá blessun
Hásala Strandbergs, safnaðar-
heimilis Hafnarfjarðarkirkju, sem
þar með var að fullu tekið í notkun,
verður efnt til helgigöngu frá
Garðakirkju að Hafnarfjarðar-
kirkju sunnudaginn 26. september.
Komið verður við í Fríkirkjunni.
Eftir stutta helgistund í Garða-
kirkju, sem hefst kl. 16 og sr. Hans
Markús Hafsteinsson mun annast,
verður lagt af stað í gönguna og
fylgt göngukrossi og ljóskerum. I
Fríkirkjunni mun fara fram helgi-
stund, sem sr. Einar Eyjólfsson
annast. Þegar komið verður í
Hafnarfjarðarkirkju fer þar einnig
fram helgistund í umsjá presta
hennar. Þaðan verður svo gengið
inn í Hásali Strandbergs þar sem
göngufólki verður boðið upp á létt-
an kvöldverð.
Fylgt verður svo sem hægt er
hinni fornu kirkjuleið sem lá að
Görðum og staldrað við tiltekin
kennileiti á söguslóð og um þau
fjallað af staðkunnugum. Sóknar-
börn úr Garða- og Bessastaðasókn-
um munu sameinast sóknar- og
safnaðarfólki úr Hafnarfjarðar-
kirkju og Fríkirkjunni á þessari
gönguleið. Rúta leggur af stað frá
Hafnarfjarðarkirkju að Görðum kl.
16.40. Hún mun síðan fylgja
göngumönnum á leið þeirra til
baka.
Gönguferðir milli helgra staða
þar sem staldrað var við og lesið úr
Guðs orði og farið með sálmavers
eða bænir tíðkuðust forðum. Og við
hæfi er nú þegar rifjuð er upp saga
kristni á liðinni tíð að efna til helgi-
göngu eftir kirkjuveginum foma
milli Garðakirkju og Hafnarfjarð-
arkirkju. Anægjulegt væri að sem
flestir tækju þátt í þessari helgi-
göngu.
Prestar viðkomandi sókna
og safnaða.
Fræðslukvöld
Dómkirkj unnar
í KVÖLD kl. 20.30 verður upp-
byggingarstund í safnaðarheimili
Dómkirkjunnar. Sr. Jóna Hrönn
Bolladóttir mun fjalla um vöxt í
trú. Sér til fulltingis í umfjöllun
sinni hefur hún Kínverjann Watch-
mann Nee (1903-1972) sem var
mikill kristniboði í Kína um miðja
öldina. Hann sat í fangelsi vegna
trúar sinnar frá 1952-1972. Watch-
mann setti fram á skýran hátt
hvernig best væri að ganga veg
trúarinnar og þá um leið að vaxa í
trúnni.
Allir eru velkomnir í safnaðar-
heimilið í Lækjargötu 14a. Ekki
síst þeir sem hafa sótt æðruleysis-
messur Dómkirkjunnar.
Góðir gestir
á samkomum
Hjálpræðis-
hersins
AÐALRITARAR Hjálpræðishers-
ins fyrir Noreg, Færeyjar og ís-
land heimsækja Island dagana 23.-
27. september. Þau hjónin eru
sænsk og heita Edith og Kehs Da-
vid Löfgren.
Fyrsta samkoma þeirra verður í
Herkastalanum í Reykjavík á
fimmtudag kl. 20.30, svo verða þau
á Akureyri á föstudag kl. 20. Á
sunnudag verða þau svo í Reykja-
vík kl. 11, kl. 17 (fyrir meðlimi
Hjálpræðishersins) og kl. 20. Þau
hjónin munu tala á öllum samkom-
unum og einnig ber að nefna að
Edith er mikiil söngkona og mun
hún syngja á samkomunum.
Neskirkja -
ferming
vorið 2000
Skráning í fermingarfræðslu fer
fram í kirkjunni í dag, föstudag, kl.
12-14. Prestarnir.
Freddie Filmore
í KEFAS
FREDDIE Filmore verður gesta-
prédikari í KEFAS, Dalvegi, laug-
ardaginn 25. september. Freddie
Filmore er forstöðumaður og
stofnandi Freedom Ministries sem
er líflegur og óháður söfnuður í
Apopka í Flórídafylki Bandaríkj-
anna. Hann ber mikinn kærleika til
íslands og er nú að koma hingað í
þriðja sinn. Með honum í för er
Carroll Filmore, eiginkona hans.
Hann er mörgum kunnur af sjón-
varpsþáttunum Frelsiskallinu (A
Call to Freedom) sem sýndir eru á
sjónvarpsstöðinni Omega.
Þetta er einlægur guðsmaður
sem þráir að sjá fagnaðarerindið
boðað um allan heim. Samkoman
hefst kl. 14 og eru allir hjartanlega
velkomnir.
Langholtskirkja. Opið hús fyrir
alla aldurshópa kl. 11-13. Létt
hreyfing, slökun og kristin íhugun.
Kyrrðar- og bænastund í kirkj-
unni kl. 12. Orgelleikur, sálma-
söngur. Fyrirbænaefnum má
koma til sóknarpresta og djákna.
Kærleiksmáltíð, súpa, salat og
brauð eftir helgistundina. Opið
hús - hádegistónleikar kl. 12-
12.30. Douglas A. Brotchie org-
anisti Háteigskirkju.
Laugarneskirkja. Morgunbænir
kl. 6.45. Mömmumorgunn kl. 10-12.
Kaffispjall fyrir mæður, góð upplif-
un fyrir börn.
Neskirkja. Síðdegistónleikar kl. 18.
Kjartan Sigurjónsson organisti
Digraneskirkju.
Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús í
Strandbergi laugardagsmorgna.
Trú og mannlíf, biblíulestur og
kyrrðarstund.
Hofskirkja. Kirkjuskóli kl. 13.30.
KFUM og KFUK. Lofgjörðar-,
lista- og bænakvöld í umsjá Guð-
laugs Gunnarssonar kristniboða
hefst í aðalstöðvum KFUM og
KFUK í kvöld kl. átta. Allir vel-
komnir.
Hvítasunnukirkjan Ffladelfia.
Unglingasamkoma kl. 20.30. Mikill
og hress söngur. Ræðumaður Erl-
ing Magnússon. Allir hjartanlega
velkomnir.
Alfa-námskeið í Hafnarfjarðar-
kirkju. í fréttatilkynningu um
Alfa-námskeið Hafnarfjarðar-
kirkju misritaðist klukkan hvað
námskeiðin hæfust. Hið rétta er að
þau fara fram á fimmtudagskvöld-
um kl. 19 en ekki klukkan 10.
Sjöunda dags aðventistar á Is-
landi:
Aðventkirkjan, Ingólfsstræti: Bi-
blíufræðsla kl. 10.15. Guðsþjónusta
kl. 11.15. Ræðumaður Björgvin
Snorrason.
Safnaðarheimili aðventista, Blika-
braut 2, Keflavik: Guðsþjónusta kl.
10.15. Biblíufræðsla eftir guðsþjón-
ustu. Ræðumaður Einar V. Ara-
son.
Safnaðarheimili aðventista, Gagn-
heiði 40, Selfossi: Biblíufræðsla kl.
10. Guðsþjónusta kl. 11. Ræðumað-
ur Erie Guðmundsson.
Aðventkirkjan, Brekastíg 17,
Vestmannaeyjum: Biblíufræðsla
kl. 10.
Loftsalurinn, Hólshrauni 3, Hafn-
arfírði: Guðsþjónusta kl. 11. Bibl-
íufræðsla að lokinni guðsþjónustu.
Umsjón: Barnastarfið í kirkjunni.
BRIÐS
Umsjún Arnúr G.
Itag nursson
Vetrarstarf Bridsfélags
Reykjavíkur á skrið
Nú er vetrardagskrá Bridsfélags
Reykjavíkur byrjuð og er helsta
breytingin sú að aðalspilakvöld fé-
lagsins er á þriðjudögum í stað mið-
vikudaga undanfarin ár. Á miðviku-
dögum og föstudögum verða spilað-
ir einskvölds tvímenningar með for-
gefnum spilum. Mitchell og Monrad
Barómeter til skiptis. Fyrsta
keppni félagsins á þriðjudögum var
3ja kvölda haust-Monrad Barómet-
er. 34 pör tóku þátt og staðan eftir 2
kvöld af 3 er:
Sverrir G. Kristinss. - Björgvin M. Kristinss.+132
Isak ðm Sigurðsson - Frímann Stefánsson+125
Gunnl. Kristjánss. - Hróðmar Sigurbjömss.+125
Esther Jakobsdóttir - Gylfi Baldursson +118
Hjálmar S. Pálss. - Vilhjálmur Sigurðss. jr. +91
Páll Bergsson - Bjöm Theodórsson +55
Hæstu skor fyrsta kvöldið náðu:
Esther Jakobsdóttir - Gylfi Baldursson +155
Hjálmar S. Páiss. - Vilhjálmur Sigurðss. jr. +69
Sverrir G. Kristinss. - Björgvin M. Kristinss.+67
Hæsta skor annað kvöldið:
Stefanía Skarphéðinsd. - Gunnlaug Einarsd.+1(M
Gunnl. Kristjánss. - Hróðmar Sigurbjömss.+84
Isak ðm Sigurðsson - Frímann Stefánsson +73
Síðasta spilakvöldið í hausttví-
menningnum verður þriðjudaginn
28. September og þriðjudaginn þar
á eftir byrjar aðaltvímenningur fé-
lagsins. Tekið er við skráningu í
síma 587-9360.
Fyrsta miðvikudagskvöldið var
frekar dræm mæting en spilaður
var Barómeter með 5 spilum á milli
para.
Efstu pör voru:
Hermann Friðrikss. - Hlynur Angantýss. +14
Ormarr Snæbjörnsson - Bjöm Árnason +7
Soffia Daníelsdóttir - Óli Bjöm Gunnarsson +5
Á miðvikudögum gefst pörum
kostur á að taka þátt í verðlauna-
potti eins og hefur tíðkast á þriðju-
dagskvöldum undanfarin spilaár.
Föstudaginn 17. september var
spilaður Monrad Barómeter með
þátttöku 20 para.
Efstu pör voru:
Guðmundur Grétarsson - Porsteinn Berg +48
Gylfi Baldurss. - Siprður B. Þorsteinss. +39
Daníel Már Sigurðsson - Árni Hannesson +36
Hjálmar S. Pálsson - Steinberg Ríkarðsson +35
Jökull Kristjánsson - Jón Ámason +24
Að tvímenningnum loknum var
spiluð miðnætursveitakeppni með
útsláttarfyrirkomulagi. 5 sveitir
tóku þátt og til úrslita spiluðu sveit-
ir Eggerts Bergssonar og Baldurs
Bjartmarssonar. Sveit Baldurs sigr-
aði með 9 impum gegn 6. Með
Baldri spiluðu Friðrik Jónsson,
Guðmundur Grétarsson og Þor-
steinn Berg.
Spilarar sem eru 20 ára og yngri
spila frítt á miðvikudags- og föstu-
dagskvöldum hjá BR í vetur og eru
spilarar hvattir til að láta alla spil-
ara með einhverja reynslu á þessum
aldri vita af þessu kostaboði BR.
Spilamennska byrjar kl. 19:30 á
þriðjudögum og miðvikudögum en
kl. 19.00 á föstudögum.
Bridsfélag eldri
borgara í Kópavogi
Þriðjudaginn 14. sept. spiluðu 20
pör Mitchell-tvímenning og urðu
eftirtalin pör efst í N/S:
Ólafur Ingvarsson - Þórarinn Árnason 282
Albert Þorsteinss. - Björn Ámason 249
Sigríður Pálsd. - Eyvindur Valdimarss. 221
Lokastaða efstu para í A/V:
Ásta Erlingsd. - Sigurður Pálsson 261
Jón Stefánss. - Sæmundur Björnsson 258
Eysteinn Einarsson - Magnús Halldórss. 245
Föstudaginn 17. sept. spiluðu 23
pör og þá urðu úrslit þessi í N/S:
Sigurleifur Guðjónss. - Ólafur Lámss. 266
Ásthildur Sigurgíslad. - Láms Arnórss. 245
Vilhjálmur Sigurðss. - Þórður Jörandss. 240
Lokastaðan í A/V:
Albert Þorsteinss. - Auðunn Guðmundss. 289
Rafn Kristjánss. - Oliver Kristóferss. 287
Vilhjálmur Sigurðss. - Þórður Jörundss. 250
Meðalskor var 216 báða dagana.
Bridsfélag
Hreyfils
Tuttugu og þrjú pör taka þátt í
hausttvímenningnum og er staða
efstu para þessi:
Ragnar Bjömsson - Daníel Halldórss. 259
Valdimar Elíasson - Sigurður Karlsson 258
Friðbjöm Guðmundss. - Bjöm Stefánsson 250
Ami Halldórsson - Þorsteinn Sigurðss. 246
Sigurður Ólafsson - Flosi Ólafsson 238
Guðm. Friðbjörnss. - Kristinn Ingvason 235
FÖSTUDAGUR 24. SEPTEMBER 1999 51
r^orrrri
til útlanda 1 -auövelt dö mund 1 tiL útlanda -duövelt dð mund
SÍMINN SÍMINN
www.simi.is www.simi.is
Nýr sjúkrabiálfari
Morgit Klein hefur hafið störf í Sjúkraþjólfun Reykjavíkur, Seljavegi 2, Héðinshúsið. Sérsvið hennar er sjúkraþjólfun barna, einkum spastískra barna. Vinnutími fró kl. 11-17 mánud. til föstud. Tímapantanir í síma 562 1916.
Lagerlausnir
CONSTRUCTOR GROUP
GLOBAL STORAGE SOLUTIONS
Bjóðum allar
tegundir lagerlausna.
Lagerlausn frá Ofnasmiðjunni
er góð fjárfesting til framtíðar.
Háteigsvegi 7 105 Reykjavík Sími 51 I 1100
GARAGA
Einangraðar stál- og álbílskúrshurðir með frábærri endingu
HÚSASMIÐJAN
Sími 525 3000 • www.husa.is