Morgunblaðið - 24.09.1999, Side 56
> 56 FÖSTUDAGUR 24. SEPTEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Gamli sjarmörínn Leonard Cohen
á tvær plötur á llsta vikunnar.
Suðrænir
tónar á
toppnum
LÖG Harry Kalapana frá Hawai
eru á toppi safnplötulistans þessa
vikuna og eflaust eru einhverjir
að treina sér geisla sumarsins
fyrir vetrarbyrjun. Pottþétt plata
með vinsælum íögum frá níunda
áratugnum er í öðru sæti og
Skólaplatan í því þriðja. Vik-
ingarna sem skemmtu landanum
hérna nýverið eru með bestu lög
sín frá tíunda áratugnum í fjórða
sætinu, og kannski hafa þeir
kapparnir eignast nýja aðdáend-
ur eftir heimsóknina til Islands.
Athygli vekur að Leonard
Cohen á tvær plötur á lista vik-
unnar. Hann kemur inn á listann
með plötu sína I’m Your Man, en
sú plata naut mikilla vinsælda
hérna í kringum tónleika hans í
Laugardalshöllinni fyrir
nokkrum árum og eins er safn-
plata með bestu lögum hans í 20.
35.-36.VIKA
1999
:n i'i f
Nr. var vikur Diskur Flytjandi Útgefandi
1. 4 4 Aloho Hawoii Hnrry Kalnpana... Music Collection
2. 16 4 Pottþétt 80’s Ýmsir Pottþétt
3. 1 6 Skólaploton Ýmsir Baugur
4. 20 4 Bestu lögin 1990-1999 Vikingarna Tónaflóð
5. 2 8 Greece, Traditional Songs Ýmsir MCI
6. 5 10 88/99 SSSól íslenskir tónar
7. 9 31 Gold Abba Universol
8. 24 6 Songs of Ireland The Evergreens MCI
9. 7 16 Boyzone By Request (Greotest hits) Universol
10. 8 8 í dalnum: Eyjalögin sívinsæl Ýmsir íslenskir tónar
11. 209 6 lm Your Man Leonard Cohen Sony
12. 6 14 lcelandic Folk Favourites Ýmsir íslenskir tónar
13. 63 6 Karíus og Baktus fmsir Spor
14. 94 5 Grace Jeff Buckley Sony
15. 3 51 Gling Gló Björk Smekkleysa
16. 29 2 Underground OST Ýmsir Universol
17. 21 26 Dýrin i Hólsaskógi Ýmsir Spor
18. 62 14 Best of 1980-1990 U2 Universol
19. 2 Bridge Over Troubled Water Simon and Garfunkel Sony
20. 5 Greatest Hits Leonard Cohen Sony
Unnið of PricewQterhouseCoopers í somstarfi við Samband hljómplötufromleiðenda og Morgunblaðið.
sæti listans. Víst mun vera
Cohens á listanum ylja mörgum
um hjartaræturnar sem kunna að
meta ljúfar og lágstemmdar tón-
smíðar með góðum textum.
Strákarnir í Boyzone eru í ní-
unda sæti með plötuna By
Request, en þeir hafa verið þaul-
sætnir á Iistanum undanfarnar
16 vikur.
Sveitatónlistaverðlaunin
Shania Twain
tók af skarið
KANADÍSKA „kántrý“-söngkonan
Shania Twain var valin tónlistar-
maður ársins þegar „kántrý“-verð-
launin voru afhent á miðvikudag og
er hún fyrsta konan til að vinna til
þeirra verðlauna. Twain, sem er frá
Timmins í Ontario, sló í gegn árið
1995 þegar breiðskífan „The Wom-
an in Me“ seldir í 6,6 mOljónum ein-
taka. Þriðja breiðskífa hennar
„Come On Over“ hefur selst í ríf-
lega 13 milljónum eintaka.
Kvennasveitin Dixie
Chieks var valin hljómsveit
ársins og einnig verðlaunuð
fyrir smáskífu ársins og
myndband ársins, hvort
tveggja fyrir lagið „Wide
Open Spaces“. Ný breiðskífa
sveitarinnar „Fly“ náði efsta
sæti vinsældalistans og seldist
í ríflega 340 þúsund eintök-
um.
Meðal annarra sem unnu
til verðlauna má nefna Jo
Dee Messina, Tim McGraw,
Martina McBride og Randy
Scruggs, sonur goðsagnar-
innar Earl Scruggs. Dolly
Parton var heiðruð fyrir
æviframlag sitt til sveitatónlistar-
innai- ásamt Conway Twitty og
Johnny Bond, sem báðir eru fallnir
frá.
Shania Twain
varð fyrst
kvenna til að
vera valin
„kántrí"
-tónlistarmað-
ur ársins.
Dixie
Chicks
hömpuðu
þremur
verðlaun-
um.
Dolly Parton tekur lagið með
Vince GiU. Hún var heiðruð fyrir
æviframlag sitt til sveitatónlistar.
KVIKMYNDIR/Góðar stundir í samvinnu við Háskólabíó
frumsýna um helgina nýjustu kvikmynd Sörens
Kragh-Jacobsens, Síðasta söng Mifune.
Glæsileg kynning
á nýju haustlitunum
frá Clarins,
föstudag og laugardag,
í snyrtivöruversluninni
Hygeu, Laugavegi.
CLARINS
Litbrigði
framtíðarinnar
dnyrttvðruver
Kynnt verður:
Smart Stick farði í stifti.
Lip Glaze varagloss.
Nýir augnskuggar og púður.
Nýir litir í augnblýöntum,
naglalökkum og margt
fleira spennandi.
Komdu og skoðaðu
það allra nýjasta í
förðunarvörunum
frá Clarins og fáðu
faglega ráðgjöf.
Vertu velkomin
Uppinn Kersten og mellan Liva, leikin af
Berthelsen og Hjejle.
Síðasti söngur Mifune; Kersten hermir eftir japanska
leikaranum Mifune, bróður sínum til ánægju.
Síðasti söngur Mifune
Frumsýning
Daginn eftir brúðkaup uppanna
Kerstens (Anders W.
Berthelsen) og Claire (Sofie
Grabol) fær Kersten þær fréttir að
faðir hans hafi látist. Kersten hafði
aldrei sagt eiginkonu sinni eða fjöl-
skyldu hennar frá föður sínum, sem
lafað hefur á niðurníddri bújörð sinni
árum saman. Þá hefur hann heldur
ekki sagt neinum frá móður sinni,
sem hengdi sig í „einu elsta tré Dan-
rnerkur", eða frá bróður sínum Rud
(Jesper Asholt), sem er geðveikur.
Kersten heldur heim á æskustöðv-
arnar og í ljós kemur að hann verður
að hafa uppi á einhverjum sem séð
w
Hættu að raka á þérfótleggina!
Notaðu One Touch háreyðingarkrem! Sársaukalaus ogfljótleg
aðferð sem skýrir vinsælair One Touch á íslandi í 12 ár.
Svo einfalt er það
Rúllið kreminu yfir hársvæðið og strjúkið
það síðan afmeð rökum þvottaklút.
(Sjá leiðbeiningar.)
Húðin verður mjúk,
ekki hrjúf!
One Touch
er ofnæmisprófað
Margra ára reynsla segir sína sögu!
Fæst í apótekum og stórmörkuðum.
Sensitive
■&rÍr
viðkvæma
húð
Regular
fyrir
venjulega
húð
Bikini
fyrir
„ínkini"
svæði
getur um bróður hans. Umsækjandi
um starfið er kona að nafni Liva
(Iben Hjelje), sem lætur þess ógetið
að hún er fyrsta klassa gleðikona úr
borginni og á flótta undan mellu-
dólgnum sínum og dularfullum
manni sem er sífellt hringjandi í
hana með hótanir.
Síðasti söngur Mifune er nýjasta
mynd danska leikstjórans Sörens
Kragh-Jacobsens og er sögð sú
þriðja í röðinni af svokölluðum Dog-
mamyndum frá Danmörku en hinar
fyrri tvær voru Veislan eftir Thomas
Vinterberg og Fávitarnir eftir Lars
Von Trier.
Jacobsen er rafmagnsverkfræð-
ingur sem leiddist út í kvikmynda-
gerð með Sjáðu sæta naflann minn
árið 1978 og gerði myndir á borð við
Gúmmí-Tarzan og Skuggann af
Emmu. Nafnið á nýju myndinni hans
er fengið frá einum af þekktustu
leikurum japanska leikstjórans
Akira Kurosawa, Toshiro Mifune,
sem lést árið 1997. Mifune fór með
aðalhlutverkið í Sjö samúræjum en
Kersten skemmtir bróður sínum
Rud með því að herma eftir ieikaran-
um í þeirri mynd.
Handrit myndarinnar gerir Jacob-
sen sjálfur ásamt Anders Thomas,
en klippari myndarinnar er Islend-
ingurinn Valdís Oskarsdóttir. Mynd-
in hlaut Gullbjörninn á kvikmynda-
hátíðinni í Berlín. Jacobsen verður
viðstaddur frumsýningu myndarinn-
ar á íslandi en fyrirtækið Góðar
stundir í eigu Friðberts Pálssonar
hefur sýningarrétt á myndinni.