Morgunblaðið - 12.10.1999, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 12. OKTÓBER 1999 11
FRÉTTIR
Arangursrík samvinna vísindamanna 1 rannsóknum á rauðum úlfum
Hafa staðsett litningasvæði sem
geyma erfðavísa sjúkdómsins
Morgunblaðið/Þorkell Þorkelsson
Rannsóknastofa í gigtarsjúkdómum er til húsa á Landspítalalóð. Hér
er Kristján Steinsson lengst til hægri ásamt samstarfsmönnum, þeim
Gerði Gröndal, Helgu Kristjánsdóttur og Alfreð Árnasyni.
Með því að staðsetja
litningasvæði sem hafa
að geyma erfðavísa
rauðra úlfa er stigið
mikilvægt skref í þá
átt að útskýra orsakir
sjúkdómsins og um leið
skyldra gigtsjúkdóma.
Alþjóðlegi gigtardag-
urinn er í dag.
ÍSLENSKUM vísindamönnum hef-
ur í samvinnu við sænska starfs-
bræður tekist að staðsetja ákveðin
litningasvæði sem sýnt þyki að hafi
að geyma erfðavísa sem tengjast
gigtsjúkdómi sem nefndur er rauðir
úlfar. Dr. Kristján Steinsson, yfir-
læknir á gigtarskor Landspítalans
og Rannsóknarstofu í gigtarsjúk-
dómum, segir þessa uppgötvun mjög
mikilvæga og leiði hún vonandi til
þess að menn átti sig betur á orsök-
um sjúkdómsins. Síðar hafi hún
hugsanlega í för með sér skjótari
greiningu og bætta meðferðarmögu-
leika.
Rauðir úlfar geta komið fram á
ýmsan hátt og segir Kristján sjúk-
dóminn geta reynst erfiðan í grein-
ingu og greiningartöf vera allt frá
nokkrum dögum upp í ár. „Sjúkdóm-
urinn einkennist af mikilli mótefna-
myndun er beinist gegn eigin líkama
og veldur bólgu í liðum, húð og innri
líffærum. Afleiðingar bólgunnar geta
oft verið mjög alvarlegar. Mikilvægt
er að geta hafið meðferð sem fyrst
og því er nauðsynlegt að greina sjúk-
dóminn snemma," segir Kristján.
Rauðir úlfar eru mun algengari með-
al kvenna, einkum ungra kvenna, og
er hlutfallið 8 konur á móti hverjum
einum karli.
Upphaf þessara rannsókna er á
þann veg að samstarf tókst á milli
Kristjáns og erfðafræðideildar
Uppsalaháskóla. Gerð var kembileit
eða skimun í erfðaefni íslenskra fjöl-
skyldna þar sem sjúkdómui'inn er
ættlægur. Rannsóknin var unnin hér
á landi og í Uppsala.
„Með arfgerðargreiningu tókst að
staðsetja nokkra erfðavísa, meðal
annars á litningi 2,“ segir Kristján.
„Þá er ljóst að skortur á ákveðnum
þætti í ónæmiskerfínu, svokölluðum
kompliment-þætti 4 sem er mikil-
vægur liður í ónæmiskerfmu, eykur
áhættu á að einstaklingur með vissa
arfgerð fái sjúkdóminn. í framhaldi
af þessum niðurstöðum voru athug-
aðar sænskar og norskar fjölskyldur
og hefur fengist sama niðurstaða
hvað varðar viss litningasvæði, með-
al annars svæðið á litningi 2,“ segir
Kristján og að þess vegna sé ljóst að
niðurstöður á íslenska hópnum megi
yfirfæra á sjúklinga í öðrum lönd-
um.
Um þessar mundir eru að birtast
tvær greinar um þessar niðurstöður
í alþjóðlegum vísindaritum og hafa
niðurstöðurnar þegar verið kynntar
á ráðstefnum erlendis. I næsta mán-
uði verða þær til dæmis kynntar á
bandaríska gigtarlæknaþinginu.
Svipaðar rannsóknir fara fram að
minnsta kosti á tveimur öðrum stöð-
um í Bandaríkjunum og segir Krist-
ján ennþá ríkja ákveðna samkeppni
milli hópanna en síðar meir sér hann
fram á mikilvæga samvinnu á milli
þeirra.
Mikið verk framundan
„Þótt þessi niðurstaða sé fengin er
mikið verk framundan við að ein-
angra þessa erfðavísa og komast að
því hvaða hlutverki þeir hugsanlega
gegna í tilurð sjúkdómsins. Við erum
að stíga eitt mikilvægt skref í þá átt
að útskýra orsakir rauðra úlfa og um
leið annarra skyldra gigtsjúkdóma,"
segir Kristján en varar við því að
þessar fréttir séu túlkaðar þannig að
lækning og meðferð séu héðan af
leikur einn. „Framtíðin verður að
skera úr um hvort og hvernig ný lyf
geta þróast sem beinast að því að
ráðast að rótum sjúkdómsins og
hvernig bæta má meðferð og fyrir-
byggjandi aðgerðir."
Orsakir gigtsjúkdóma eru taldar
ráðast bæði af erfðum og þáttum í
umhverfinu en Kristján segir ýmis-
legt benda til þess að erfðaþátturinn
sé mjög sterkur. Hér á landi er verið
að vinna með 10 fjölskyldum en alls
eru fjölskyldurnar milli 30 og 35 í
rannsóknarhópnum í löndunum
þremur. Islenski hópurinn telur
150-200 manns og segir Kristján
styrk Islendinga liggja því að hér sé
hægt að rekja sig gegnum marga
ættliði. Það hafi gefið mikilvæga vit-
neskju um hversu sjúkdómurinn sé
ættlægur. Rannsóknirnar byggjast
m.a. á gögnum sem safnað var í far-
aldsfræðilegri rannsókn á rauðum
úlfum sem fram fór hérlendis fyrir
nokkrum árum. Haldin er nákvæm
skrá yfir alla einstaklinga hérlendis
með rauða úlfa og meðferð sjúkling-
anna er að miklu leyti miðstýrð, þ.e.
flestir eru til eftirlits og meðferðar á
gigtarskor Landspítalans.
Rannsóknir að eflast
Rannsóknarstofu í gigtarsjúkdóm-
um var komið á fót haustið 1996 og
segir Rristján þá hafa verið stigið
mikilvægt skref til eflingar á grunn-
rannsóknum á gigtsjúkdómum. Stof-
an er hluti af gigtarskor Landspítal-
ans og var byggð upp í samvinnu við
Gigtarfélag Islands og læknadeild
Háskóla Islands. Þá átti Lionshreyf-
ingin stóran þátt í að koma henni
upp með afrakstri af sölu á rauðu
fjöðrinni árið 1995. Rannsóknarverk-
efnin eru meðal annai's kostuð með
styrkjum frá Rannsóknaráði Islands,
Rannsóknasjóði Háskólans, Vísinda-
sjóði Landspítalans, NORFA, nor-
rænum rannsóknasjóði, og stórum
styrk frá Evrópusambandinu.
„Þessi framlög hafa gert það að
verkum að við höfum getað tekið upp
samvinnu við önnur lönd og höfum
við rannsóknir á leit að erfðavísum
fyrir rauða úlfa átt samvinnu við
erfðafræðideild Uppsalaháskóla,“
segir Kristján. Ásamt honum hafa
unnið að þessum hluta rannsókn-
anna á rauðum úlfum Helga Krist-
jánsdóttir líffræðingur, Gerður
Gröndal læknir og dr. Alfreð Árna-
son erfðafræðingur.
Auk rannsókna á rauðum úlfum
hafa þai- farið fram rannsóknir á ikt-
sýki, sem er algengt form liðagigtar
og getur valdið verulegum skemmd-
um á liðum, auk rannsókna á
ákveðnum þáttum í ónæmiskerfinu.
Helstu samstarfsaðilar hérlendis
hafa verið Rannsóknarstofa í ónæm-
isfræði og Blóðbankinn og á Gigtar-
skor er hafið samstarf við íslenska
erfðagreiningu á rannsóknum á erfð-
um iktsýki.
Andlát
JOHANN
ÞORVALDS-
SON
JOHANN Þorvaldsson fyrrverandi
skólastjóri í Siglufii'ði er látinn á
nítugasta og fyrsta aldursári.
Jóhann fæddist 16. maí 1909 á
Tungufelli í Svarfaðardal. Hann
lauk kennaraprófi árið 1932 og var
kennari í einn vetur í Olafsvík og á
Suðureyri við Súgandafjörð næstu
fimm. Jóhann var kennari við
bamaskóla Siglufjarðar frá árinu
1938 til ársins 1973 og skólastjóri
frá 1973-1979. Hann var skólastjóri
Iðnskóla Siglufjarðar frá
1945-1973.
Jóhann var forstöðumaður gesta-
og sjómannaheimOis Siglufjarðar,
sem stúkan Framsókn rak á árun-
um 1941-1960. Hann var ritstjóri
Regins, blaðs templara, um árabil.
Jóhann starfaði mikið í góðtempl-
arareglunni og var heiðursfélagi
Stórstúku íslands. Hann var gæslu-
maður barnastúkunnar Eyrarrós
nr. 68 og æðstitemplar stúkunnar
Framsókn, nr. 187.
Jóhann starfaði lengi að skóg-
rækt í Siglufírði og var formaður
Skógræktarfélags Siglufjarðar tO
ársins 1987. Jóhann vai' heiðursfé-
lagi í Skógræktarfélagi íslands og
hann var sæmdur Fálkaorðunni fyr-
ir störf að kennslu og skógrækt.
Jóhann tók einnig þátt í öðrum
félagsmálum og stjórnmálum í
Siglufirði og var m.a. ritstjóri Ein-
herja, blaðs framsóknarmanna í
Siglufirði, í fjórtán ár.
Eftirlifandi kona Jóhanns er
Friðþóra Stefánsdóttir. Böm þeirra
em fimm.
Kötluæfíng í Mýrdal og Skaftárhreppi
Vel gekk að rýma hús
NÁGRANNAR Kötlu æfðu síð-
astliðinn Iaugardag viðbrögð við
eldgosi og jökulhlaupi úr Mýr-
dalsjökli. Meðal annars var æfð
rýming húsa í Mýrdal, Álftaveri
og Meðallandi. Æfingin gekk vel
að sögn Sigurðar Gunnarssonar
sýsiumanns.
Kötluæfingin var verklagsæf-
ing með það að markmiði að
þjálfa almannavarnanefndir og
hjálparlið þeirra í boðun, skipu-
lagi og framkvæmd rýmingar,
sla'áningar og fjarskipta vegna
eldsumbrota í Kötlu. Æfingin
hófst klukkan hálf tíu um morg-
uninn með því að ímynduð til-
kynning barst til almannavarna-
nefndanna í Mýrdal, Skaftár-
hreppi og Rangárvallasýslu um
að tíðii' smáskjálftar væru í Mýr-
dalsjökli. Almannavarnanefnd-
irnar komu saman og fóru í yfir
viðbúnaðaráætlanir og haft var
samband við björgunarsveitir og
aðra sem taka þátt í æfíngunni.
Gert var hættumat og lýst yfir
viðbúnaðarstigi. Æfingin þróað-
ist síðan í hættustig þannig að
vegum var lokað, hús rýmd á
hættusvæðinu og íbúum vísað í
skráningarstöðvar fljótlega eftir
hádegið.
Sigurður Gunnarsson sýslu-
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Félagar í Rauðakrossdeildinni í Vík önnuðust skráningu fólks sem
gert var að rýma hús sín í Kötluæfingunni um helgina.
maður í Vík segir að æfíngin
hafi gengið vel. Það tók um 45
mínútur að rýma húsin í Vík
neðan bakka, um eina klukku-
stund að rýma bæi í Álftaveri og
um eina klukkustund og tuttugu
mínútur að rýma í Meðallandi.
Einu vandræðin vora með fjar-
skipti vegna þess að neyðarrásin
var of mikið notuð og tepptist
hún um tíma. „Annars á þetta að
vera nokkuð gott hjá okkur þótt
það kæmi gos með litlum fyrir-
vara,“ segir Sigurður.
Fyrirhugað er að halda æf-
ingu með börnum og kennurum
í Víkurskóla og síðar í vetur svo-
kallaða skrifborðsæfingu með
almannavarnanefndunum.
Helgarferö til
28. október
Heimsferðir bjóða nú ótrúlegt tilboð í helgarferðina 28. október til London.
Við hölum nú fengið 10 herbergi á frábæru verði á Grand Plaza hótelinu í
Bayswater. Einfalt 2ja stjörnu hótel í hjarta London og þú getur notið helg-
arinnar í þessari vinsælustu höfuðborg Evrópu, og að sjálfsögðu nýtur þú
traustrar þjónustu fararstjóra Heimsferða allan tímann.
4 nætur - 28. október
Verð kr 24,990
Flug, gisting og flugvallarskattar.
Flug út á fimmtudegi 28. október, heim
á mánudegi 1. nóv. Aðeins 10 herbergi.
Flugsæti til London
Verðkr 19.990
Flug út á fimmtudegi 28. október, heim
á mánudegi 1. nóv.
Austurstræti 17, 2. hæð • sími 562 4600 • www.heimsferdir.is