Morgunblaðið - 12.10.1999, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 12.10.1999, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN ÞRIÐJUDAGUR 12. OKTÓBER 1999 ' fí> KIRKJUSTARF Gi^tarlína Gigtarfélags Islands, símaráðgjöf gigfarsjúkling-a , GIGTARFÉLAG Islands hefur staðið fyrir undirbúningi Gigtarlínunnar síð- ustu misseri. Tilgan- gur línunnar er að upplýsa, fræða, styðja og leiðbeina gigtsjúk- um, aðstandendum þeirra og öðrum sem á því þurfa að halda. Þverfaglegt teymi Gigtarlínu félagsins sér um þjónustu lín- unnar, en í því eru fé- lagsráðgjafi, næring- arráðgjafi, hjúkrunarfræðingur og sjúkraþjálfari. Allt einstaklingar sem hafa áhuga og reynslu af vinnu með einstakling- um með gigtarsjúkdóma. Tveir fagaðilar sitja við símann í einu, en allir vinna þeir náið saman, funda reglulega og njóta sameiginlegrar handleiðslu og ráðgjafar. Fyrsti símatimi Gigtarlínunnar var 20. september sl. en símatímar línunn- ar eru alla mánudaga og fimmtu- daga milli kl. 14:00 og 16:00. Um er að ræða símaráðgjöf fyrir gigtsjúka, aðstandendur þeirra og aðra sem hafa spurningar um gigt, s.s. varðandi greiningu, meðferð og réttarstöðu. Fyrst og fremst eru veitar almennar upplýsingar um gigtarsjúkdóma, meðferð og önnur möguleg úrræði. Leiðbeining er lyki- lorðið. Vísað er á þau úrræði sem fyrir hendi eru, hvort sem þau eru læknisfræði- leg, varða greiningu, endurhæfingu, matar- æði, félagslega þjón- ustu eða annað sem brennur á fólki. Unnið er að því að koma upp sameiginlegum gagnagrunni um þau meðferðarúrræði, félagsleg og tryggingaleg réttindi sem eru til staðar. En einnig er tilgangúrinn að fá upplýsingar frá notendum þjónustunnar um það sem vantar og hvar skórinn kreppir hjá þeim sem eru að berjast við afleiðingar gigtarsjúkdóma. Símaráðgjöfin gefur á þann hátt félaginu og öðr- um er þjónustu veita, kost á að koma betur til móts við persónu- legar þarfir fólksins, s.s. varðandi úiTæði, stuðning og fræðslu. Allir landsmenn sitja við sama borð og hafa sama aðgengi að símaþjónust- Gigt Okkar von er, segir Jónína Björg Guð- mundsdóttir, að þjón- usta Gigtarlínunnar flýti nauðsynlegri með- ferð og auki sjálfs- ábyrgð fólks í barátt- unni við gigt. unni. Því miður hafa landsmenn misjafnt aðgengi að sérfræðingum á sviði gigtar, en því fyrr sem fólk með gigtarsjúkdóma eða fólk sem farið er að finna fyrir óþægindum kemst í meðferð því er meira hægt að hjálpa því. Ökkar von er að þjónusta Gigtarlínunnar flýti nauðsynlegri meðferð og auki sjálfsábyrgð fólks í baráttunni við verki, hreyfihömlun og önnur óþægindi sem gigtin veldur. Höfundur er félagsrá ðgjafi í teymi Gigtarlín unnar. Jónína Björg Guðmundsdóttir Tölvur nýtast gigtar sj úkling’um Gigtarsjúklingar hafa aðeins nýtt sér möguleika tölvutækn- innar að takmörkuðu leyti. Ástæðurnar eru margar. Meðal annars má nefna að fyrir marga tekur það tíma að ná tökum á tölvunni eða að vinna við tölvu getur haft í för með sér verki, þreytu eða aðra vanlíðan. Einnig getur skortur á upp- lýsingum um mögu- leika tölvunnar verið ein af ástæðunum. Oft er nauðsynlegt að hanna sérstaklega vinnuaðstöðuna við tölvuna fyrir fólk sem þjáist af gigt. Þekking á sérstökum vandamálum og þörfum gigtarsjúklinga við tölvuvinnu er mikilvæg til að sem flestir geti nýtt sér möguleika tölvunnar. I samvinnu við hin Norðurlöndin hafa Gigtarfélag íslands og Hjálp- artækjamiðstöð Tryggingastofnun- ar ríkisins tekið þátt í verkefni til að móta hagnýtar leiðbeiningar um rétta hönnun og uppsetningu vinnuaðstöðu við tölvur fyrir gigt- arsjúklinga. Frumkvæðið að þessu verkefni á Norræna gigtarráðið. Verkefnið var fjármagnað af Nor- rænu þróunarmiðstöðinni fyrir hjálpartæki fatlaðra (NUH), Norræna gigtarráðinu og einnig af gigtarfélögunum í hverju landi. Unnur Stefanía Alfreðsdóttir Leiðbeiningarnar eru á netfangi: www.nordrit.org. Á upplýsingavefn- um eru m.a. eftirtalin atriði: - Möguleikar tölv- unnar, s.s. fjarskipti, þekkingaröflun, versl- un á Netinu. - Líkaminn og gigt. -Búnaður við tölv- uvinnu - Leiðbeiningar um val á búnaði og inn- réttingum í kringum tölvuna. Þess er vænst að upplýsingavefurinn nýtist gigtarsjúklingum sem vilja fá upplýsingar og hugmyndir um vinnuaðstöðu við tölvuna. Þá gagn- ast hann einnig fagfólki sem að- stoðar gigtarsjúklinga. Vefurinn er ætlaður öllum sem starfa við upp- setningu vinnuaðstöðu við tölvur og aðlögun hjálpartækja og þeim sem sjá um innkaup á tölvubúnaði. Þarfir gigtarsjúklinga eni í mörgum tilvikum þær sömu og þarfir annarra tölvunotenda. Vef- urinn ætti því að geta orðið mörg- um uppspretta nýrra hugmynda og fróðleiks. f dag er hægt að lesa vef- Gigt Þess er vænst að upp- lýsingavefurinn nýtist gigtarsjúklingum, segir Unnur Stefanía Al- freðsdóttir. Slóðin er www.nordrit.org inn á sænsku, norsku og dönsku. Fljótlega verður einnig hægt að lesa hann á íslensku, finnsku og ensku. Verið velkomin á vefinn: www.nordrit.org. Vefurinn verður kynntur á Gigtardeginum 12. okt. nk. á ráðstefnu á Hótel Sögu. Höfundur er iðjuþjálfí á Gigtar- miðstöðinni og þátttakandi GÍ ( verkefninu. GÓLFEFNABÚÐIN Mikið úrval fallegra flísa Borgartún 33 • RVK Laufásgata 9 • AK SUNDABORG 1 • SlMI S68-3300 HUGRÆKTARNÁMSKEIÐ GUÐSPEKIFÉLAGSINS Frá Guðspeki- félaginu Ingólfsstræti 22 Askriftarsími Ganglera er 896-2070 hefst fimmtudaginn 14. október nk. kl. 20.30 í húsakynnum félagsins í Ingólfsstraeti 22. Námskeiðið verður vikulega á sama tíma í sjö skipti og er í um- sjá Jóns L. Arnalds, Sigurðar Boga Stefánssonar, Bjarna Björg- vinssonar og Önnu S. Bjarnadóttur. Fjallað verður um mikilvæga þætti hugræktar, hugleiðingar og jóga. Námskeiðið er ókeypis og öllum opið og fer skráning fram við upphaf þess. Upplýsingar í síma 899 4729. Guðspekifélagið. Safnaðarstarf Áskirkja. Opið hús í safnaðar- heimilinu fyrir alla aldurshópa kl. 10-14. Léttur hádegisverður. Mömmu- og pabbastund í safnað- arheimilinu kl. 14-16. Bústaðakirkja. Æskulýðsfélagið fyrir unglinga í 8. bekk í kvöld kl. 19.30 í félagsmiðstöðinni Bústöð- um. Dómkirkja. Barnastarf í safnað- arheimilinu kl. 14 fyrir 6-7 ára börn, kl. 15.30 fyrir 8-9 ára börn og kl. 17 fyrir 10-12 ára börn. Æskulýðsfélag Dómkirkju og Neskirkju. Sameiginlegur fundur í safnaðarheimili Neskirkju kl. 20. Grensáskirkja. Kyrrðarstund kl. 12.10. Orgelleikur, ritningarlest- ur, altarisganga, fyrirbænir. Létt- ur málsverður í safnaðarheimilinu eftir stundina. Hallgrímskirkja. Fyrirbæna- guðsþjónusta kl. 10.30. Beðið fyr- ir sjúkum. Laugarneskirkja. Morgunbænir kl. 6.45. Fullorðinsfræðsla kl. 20. Markviss kennsla og trú. Skrán- ing á skrifstofu í síma 588 9422. „þriðjudagur með Þorvaldi" kl. 21. Lofgjörðarstund. Neskirkja. Æskulýðsfélag Nesk- irkju og Dómkirkju. Sameiginleg- ur fundur í safnaðarheimili Nesk- irkju kl. 19.30. Litli kórinn, kór eldri borgara, kl. 16.30 í umsjón Ingu J. Backman og Reynis Jón- assonar. Nýir félagar velkomnir. Árbæjarkirkja. Foreldramorgn- ar í safnaðarheimilinu kl. 10-12. Hittumst, kynnumst, fræðumst. Breiðholtskirkja. Bænaguðsþjón- usta með altarisgöngu kl. 18.30. Bænaefnum má koma til sóknar- prests í viðtalstímum hans. Digraneskirkja. Starf aldraðra kl. 11.15. Leikfimi ÍAK, léttur málsverður, helgistund og sam- vera. Kl. 17 TTT 10-12 ára starf á vegum KFUM og K og Digran- eskirkju. Kl. 20 æskulýðsstarf á vegum KFUM og K og Digran- eskirkju. Fella- og Hólakirkja. Foreldi'sefif, und kl. 10-12. Starf fyrir 9-10 ára stúlkur kl. 15-17. Starf fyrir 11- 12 ára stúlkur kl. 16.30-17.30. Grafarvogskirkja. Opið hús kl. 13.30-16 fyrir eldri borgara, kyrrðarstund, handavinna, spjall, spil og kaffiveitingar. Kirkjukr- akkar í Rimaskóla kl. 17-18 fyrir 7-9 ára börn. KFUK fyrir stúlkur 9- 12 ára kl. 18-19. Æskulýðsstarf fyrir unglinga kl. 20-22. Hjallakirkja. Bæna- og kyrrðar- stund kl. 18. Kópavogskirkja. Mæðramorgunn í safnaðarheimilinu Borgum í dág kl. 10-12. Seljakirkja. Mömmumorgnar kl. 10- 12. Opið hús. Víðistaðakirkja. Aftansöngur og fyrirbænir kl. 18.30. Opið hús fyr- ir 8-9 ára börn kl. 17-18.30. Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús fyrir 10-12 ára börn í Vonarhöfn, Strandbergi, kl. 17-18.30. Frikirkjan í Hafnarfirði. Opið hús kl. 17-18.30 fyrir 7-9 ára börn. Lágafellskirkja. Foreldramorg- unn kl. 9.30-11.30. Umsjón Þórdís og Þuríður. Landakirkja Vestmannaeyjum. Kl. 16.30 kirkjuprakkarar (7-9 ára börn). Söngur, leikir, bængfc spunasmiðja. Grindavíkurkirkja. Foreldra- morgunn kl. 10-12. Borgarneskirkja. Mömmumorg- unn í safnaðarheimilinu milli kl. 10 og 12. Helgistund í kirkjunni sömu daga kl. 18.30. Krossinn. Almenn samkoma kl. 20.30 í Hlíðasmára 5. Allir vel- komnir. Hvammstangakirkja. Æskulýðsf- undur í kvöld kl. 20.30 á prests- setrinu. ■ Gœðavara Gjafavara — matar- og kaffislell Allir veróflokkar. . 9\C<)€/í>4s\ Heimsírægir hönnuóir m.a. Gianni Versace. <K.,i r.. VERSLUNIN Langavegi 52, s. 562 4244. RPC KYNNING I LYFJU HAMRABORG, ÞRIÐJUDAGINN 12. OKTÓBER FRÁ KLUKKAN 14 - 18. KOMDU OG KYNNTU ÞÉR RPC VÖRURNAR. LYFJA RPC v-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.