Morgunblaðið - 12.10.1999, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
ÞRIÐJUDAGUR 12. OKTÓBER 1999 35
Leitað
upp-
runans
í KVÖLD verður frumsýnd á
Stöð 2 heimildarmyndin Frá ís-
landi eftir Guðjón Arngrímsson,
David Árnason og Stephen
Lucas. Myndin hefur verið lengi
í smíðum, fjármögnunarferlið
verið langt og flókið þótt efnis-
lega sé myndin næsta blátt
áfram; þar er rakin saga ungrar
stúlku, Petrínu Soffíu Arngríms-
dóttur, sem fór ein síns liðs til
Kanada í lok síðustu aldar og
lést af barnsförum þremur árum
síðar. Afkomendur hennar eru
nú rúmum 100 árum síðar orðnir
125 og þeirra á meðal er David
Árnason, rithöfundur í Kanada.
Myndin er byggð upp í kringum
leit hans að uppruna og sögu
Petrínu langömmu sinnar; leit
sem dregur hann til íslands og
norður í Svarfaðardal þaðan
sem Petrína var upprunnin,
dóttir Arngn'ms Gíslasonar mál-
ara frá Tjörn.
Guðjón Arngrímsson, sem er
aðalhöfundur og hvatamaður að
gerð myndarinnar, segir að hún
eigi sér langan aðdraganda.
„Upphafið má rekja aftur til ár-
sins 1990 þegar ég starfaði sem
fréttamaður á Stöð 2 og vann
frétt um rannsóknir á Vestur-
íslendingum á vegum Háskóla
íslands. I framhaldi af því hugs-
aði ég með mér að það væri al-
veg kjörið að gera heimildar-
mynd um þetta efni. Það
þróaðist síðan þannig að 1993
Hópurinn sem stóð að baki Frá Islandi úti fyrir Gullbringu, húsi
sem Arngrímur Gíslason málari reisti í Svarfaðardal. Á myndinni
eru Huldar Freyr Arnarson hljóðmeistari, David Árnason höfund-
ur, Andy Blicq upptökustjóri, Guðjón Arngrímsson höfundur,
Vignir Guðjónsson aðstoðarmaður og Friðrik Friðriksson
kvikmyndatökumaður.
fór ég vestur og byrjaði að
Ieggja drög að þessu. Hugsunin
var alltaf sú að gera vandaða
heimildarmynd og nýta fagþekk-
ingu og fjármagn í Kanada og
þetta hefur tekið þennan tíma,
5-6 ár, og mér er sagt að það sé
nokkuð eðlilegur framleiðslu-
tími svona verkefnis.“
Guðjón segir að Iengstan tíma
hafi tekið að undirbúa verkefnið
þannig að væntanlegir fjár-
mögnunaraðilar í Kanada hafí
léð máls á þátttöku. „Til þess að
einhver kaupi hugmyndina þarf
nánast að vera búið að vinna
hana fyrirfram. Handritið verð-
ur að liggja fyrir ásamt ná-
kvæmri vinnu- og fram-
leiðsluáætlun. Þetta eru nokkuð
óvenjuleg vinnubrögð hér heima
þar sem sjónvarpsmyndir eru
annars vegar. I þessu tilfelli var
róðurinn þyngri þar sem þessi
mynd hefur ekki þá eiginleika
sem flestar heimildarmyndir
sem framleiddar eru í dag eru
taldar þurfa. Þar er annars veg-
ar um að ræða fréttatengingu,
fjallað um einhvern þekktan at-
burð, átök eða náttúruhamfarir,
eða hins vegar þátttöku ein-
hverrar frægrar persónu, ann-
aðhvort sem umfjöllunarefni
myndarinnar eða sem kemur
fram í henni. Við þurftum því að
vanda undirbúninginn enn betur
vegna þess að hvort tveggja
vantaði. Á tímabili strandaði
framleiðslan á því að ekki var til
samstarfssamningur milli Is-
lands og Kanada um kvikmynda-
gerð, en í Kanada er gerð krafa
um slíkan samning ef leyfí á að
fást fyrir fjármögnun. Þessi
samningur var síðan gerður og
undirritaður og myndin var tek-
in í fyrra og í ár. Hún var svo
frumsýnd á History Television í
Kanada hinn 8. september og
fékk mjög góðar viðtökur, sér-
staklega á þeim svæðum þar sem
fólk af íslenskum ættum er bús-
ett.“
David Árnason er þekktur rit-
höfundur og prófessor í bók-
menntum við háskólann í Winn-
ipeg. „Hann tók þessari
hugmynd fagnandi þegar við
leituðum til hans um samstarf og
leikur í rauninni aðalhlutverkið í
inyndinni," segir Guðjón. Mynd-
in lýsir leit Davids að uppruna
sínum á Islandi er hann reynir
að fínna upplýsingar um lan-
gömmu sína bæði í Kanada og
uppi á Islandi. Ferð hans til Is-
lands reynist árangursrík og
höfundar myndarinnar hafa
fengið ýmsa þjóðþekkta menn til
að taka þátt í gerð myndarinnar
m.a. forseta Islands. Leit Davids
leiðir hann að lokum norður í
Svarfaðardal þar sem hann
kemst loks að uppruna Petrínu
og uppgötvar þar stóran ætt-
boga og frændgarð sem kominn
er út af systkinum Petrínu.
Að sögn Guðjóns var fram-
leiðslukostnaður myndarinnar
um 20 milljónir. „Okkur tókst að
fjármagna myndina að fullu og
kostnaðurinn skiptist þannig að
frá Kanada komu um 60-70% og
hitt var Qármagnað héðan.“
Framleiðendur myndarinnar
eru kvikmyndafyrirtækin Pega-
sus Pictures á íslandi og Buffaio
Gal Pictures í Kanada í sam-
vinnu við Stöð 2, History Telev-
ision og CBC í Kanada. Aðrir
sem studdu gerð myndarinnar
eru Menningarsjóður útvarps-
stöðva, Landafundanefnd,
Canadian Television Fund, Tel-
efílm Canada, Manitoba Film &
Sound og National Film Board of
Canada. Sýning myndarinnar er
á Stöð 2 og hefst klukkan 21.15.
mri
til útlanda
-auövelt aÖ muria
SÍMINN
www.simi.is
SÉRMERKTAR
HÚFUR OG HANDKLÆÐI
Fáið sendan
myndalisla
Afsláttur
til 15. nóv.
MYNDSAUMUR
Hellisgata 17, 220 Hafnarfjörður
Sími 565 0122
www. if. is/myndsaumur
Hvers vegna hefur engum dottiö þetta í hug.
Hugmyndin um fjöldiskageislaspilara er að vísu ekki ný af nálinni.
Þægindin leyna sér ekki.
BeoSound 9000 geisladrifið færist hratt og hljóðlaust frá einu lagi til
annars; biðtímin er alltaf sá sami.
Ef þú stillir á sjálfval er rétt eins og að hlusta á útvarp. Munurinn er
að þú velur tónlistina og sleppur við allt blaður á milli laga.
BANG & OLUFSEN
Síöumúla 21. Reykjavík.
Síml 581 1100.