Morgunblaðið - 12.10.1999, Page 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 12. OKTÓBER 1999
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Marie-Lucie Morin, sendiherra Kanada, heimsótti fsland á Kanadadögum
Um 100 viðburðir til að minnast
sameiginlegrar sögu landanna
Nýyfírstaðnir Kanada-
dagar snerust að mestu
-------------7----------
um viðskipti Islands og
Kanada. Geir Svansson
ræddi við gestgjafann,
Marie-Lucie Morin,
sendiherra Kanada.
NÁLEGA eitt hundrað viðburðir
verða settir á svið í Kanada þegar
Kanada og Island halda sameiginlega
upp á þúsund ára sögu á næsta ári.
Víkingaskip mun taka land á
Nýfundnalandi til að minnast landa-
fundar Leifs Eiríkssonar og ýmislegt
mun verða gert til að minnast þess að
fyrstu landnemamir settust að við
Winnipeg-vatn fyrir 125 árum. Allt
þetta mun án efa enn styrkja tengsl
landanna sem hafa farið vaxandi á
undanfórnum árum, að sögn sendi-
herra Kanada á Islandi.
Marie-Lucie Morin hefur verið
sendiherra Kanada á íslandi um
tveggja ára skeið. Hún er með aðset-
ur í Osló en hér á landi er starfrækt
aðalræðisskrifstofa í Reykjavík.
Sendiherrann setti Kanadadaga fyrir
hönd aðalræðisskrifstofunnar í
Reykjavík, kanadíska sendiráðsins í
Ósló og Nýsköpunarráðs austur-
strandar Kanada, ACOA, sem skipu-
lögðu viðburðinn.
Stofnað var til Kanadadaga, 3.-7.
október, m.a. til að gefa íslenskum og
kanadískum fyrirtækjum tækifæri til
þess að ná saman og auka möguleika
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Marie-Lucie Morin, sendiherra.
á viðskiptum þeirra í báðum löndum.
Og jafnframt til að kynna kosti vænt-
anlegs íríverslunarsamnings milli
Kanada og EFTA-landanna. Þrjátíu
og flmm fyrirtæki frá sjö umdæmum
í Kanada tóku þátt í átakinu.
„Kanadísku dagarnir hafa gengið
mjög vel,“ segir Morin. „Ástæðan
fyrir því að við ákváðum fyrir einum
sex mánuðum að stofna til þessara
daga var að við vildum vekja athygli
Islendinga og kanadíska viðskipta-
samfélagsins á þeim möguleikum
sem fríverslunarsamningurinn mun
opna í viðskiptum í náinni framtíð.“
Viðræður um samninginn hafa
staðið í liðlega eitt ár og Morin segist
vongóð um að samningar náist fyrir
árslok. „Viðskipti hafa aukist á milli
landanna á síðustu tveimur til þrem-
ur árum og ég held að fríverslunar-
samningur milli Kanada og EFTA-
landanna muni virka sem vítamín-
sprauta á þau viðskipti."
Hátíðahöld vegna árþúsunda
Morin segist ánægð með svörun ís-
lenskra aðila við framtakinu og lofar
jákvætt samstai’f við viðskiptaráð og
viðskipta-, utanríkis- og iðnaðarráðu-
neyti. „Við erum líka að reyna að
hvetja fleiri íslensk fyrirtæki til að
koma til Kanada. Þar hafa nokkur
þeirra þegar komið sér fyrir og hafa
þar til dæmis útflutningsmiðstöðvar.
Eg held að fleiri fyrirtæki muni fylgja
í kjölfarið. Kanada er mjög opið fyrir
erlendum fjárfestum. Efnahagsum-
hverfíð er mjög samkeppnishæft og
aðlaðandi fyrir erlenda fjárfesta. Fyr-
irtæki í Kanada hafa auðvitað aðgang
að markaðslöndum í NAFTA.“
Morin þykist viss um að fjölbreytt
hátíðahöld í Kanada og á Islandi í til-
efni árþúsunda, landafunda, kristni-
töku á Islandi og 125 ára búsetu ís-
lenskra vesturfara í Kanada muni
efla menningarleg, og þar með við-
skiptaleg, tengsl landanna. Að sögn
Morin mun Kanada taka þátt í
nokkrum viðburðum hérlendis, t.d. í
tilefni af „Reykjavík - Menningar-
borg Evrópu“ og ýmsu öðru. Megnið
af viðburðum fari þó fram í Kanada.
„Það verður mikið um að vera, allt frá
Nýfundnalandi til Bresku-Kólumbíu.
Nærri 100 viðburðir munu styrkja
tvíhliða samband landanna.
Kanadíska ríkisstjórnin er ákaflega
vinveitt þessu framtaki og hefur veitt
beinan fjárstuðning til margra þess-
ara hátíðahalda. Við hlökkum því
mikið til og höldum að þetta muni
færa íslenskan anda til Kanada,
stranda á milli.
I þau tvö ár sem ég hef verið sendi-
herra Kanada á Islandi hef ég séð að
íslendingar þekkja Kanada nokkuð
vel. Flestir virðast meira að segja
eiga frændfólk í Kanada! Sama er
ekki hægt að segja um Kanadamenn.
Þeir eru sér ekki allir jafn meðvitandi
um Islendinga og því munu þessi há-
tíðahöld vera einkai’ góð kynning fyr-
ir ísland. Ég á von á því að þetta
verði mikil lyftistöng fyrir samskipti
þjóðanna."
Morin bendir á að Kanadabúar og
Islendingar eigi vel saman enda
margt líkt í menningu þjóðanna. „Við
skiljum hvort annað samstundis. Þeg-
ar efnt er til menningarviðburða
verður fólki hugsað til þess hvað það
er sem gerir sambandið svona sér-
stakt milli landanna. Einn af aðalvið-
burðum hátíðahaldanna á næsta ári
verður þegar víkingaskip tekur land á
Nýfundnalandi og það mun minna á
að það voru íslendingar sem fyrstir
komu frá Evrópu. Þetta vita ekki enn
allir Kanadamenn og ekki skrýtið;
það er nýfarið að minnast á þetta í
skólum."
Ekkert ákveðið
um stofnun sendiráða
Fjölmiðlaumfjöllun um hátíðahöld-
in mun, að sögn Morin, verða gríðar-
mikil. ,Áður en árið 2000 er úti mun
hver einasti Kanadamaður hafa heyrt
um Island!“ segir hún og hlær.
Um skeið hefur komið til álita hjá
ríkisstjórnum landanna að setja upp
sendiráð. ,Á þessari stundu hefur
ekkert verið ákveðið. Ráðherrar
beggja landa hafa rætt máhð. Til
dæmis þegar útflutningsmálaráð-
herra Kanada var hér í heimsókn síð-
sumars." Hún segir að málið verði
áfram til skoðunar hjá ríkisstjórn
Kanada. „En svona mál taka alltaf
sinn tíma. Þetta er spurning um for-
gangsröðun íTkisstjóma og einnig
fjármagn. Og að því leyti eru ríkis-
stjórnir landanna á sama báti. En það
ríkir mikill velvilji á milli landanna og
þangað til sendiráð verða sett upp
munum við reyna að halda uppi virku
sambandi milli landanna í gegnum
ræðisski-ifstofurnar og sendiráðið í
Ósló.“
Áhugi kanadískra á Islandi hefur
aukist mikið að undanförnu, ekki síst
vegna nýrra flugleiða í gegnum Hali-
fax og líka Minneapolis í Bandaríkj-
unum sem Morin segir auðvelda íbú-
um í Mið-Kanada að fljúga til Islands.
„Island er í huga Kanadamanna
sveipað dulúð og goðsögnum. Mjög
margir láta í ljós ósk um að heim-
sækja landið. ísland er að verða meiri
og meiri ferðamannastaður og ég
held að kanadískum ferðamönnum
muni fjölga mikið á komandi árum.
Morin áréttar hversu fjölþætt sam-
band þjóðanna sé og á mörgum svið-
um. Eitt þessara sviða segir hún
kanadísk stjórnvöld vilja efla. „Við
höfum lagt mikla áherslu á að fá fleiri
íslendinga í háskólanám í Kanada.
Menntakei’fíð í Kanada nýtur virðing-
ar og ég held því að það sé mikilvægt
fyrir samband ríkjanna og viðskipti
að hvetja fleiri nemendur til að koma
til okkar. Við bjóðum upp á bestu og
ódýrustu menntun sem völ er á.“
Hún kveður það ekki hafa komið
sér á óvart að þó nokkrir Kanadabúar
séu hérlendis við háskólanám. „Við
eigum margt sameiginlegt. Umhverfí
okkar er norrænt, og heilmikil skipti
eiga sér þegar stað á milli skóla. Allt
þetta lofar góða. I samskiptum þjóða
verður að byggja á fjölþættum
tengslum, menningarlegum jafnt sem
viðskiptalegum."
.
brpyttir
M * .
s toppum tímonn vpqna brpytinqa
lokað: mánuda% II. okt.
þriðjudaz !2. okt.
miðvikudaq 13. okt.
Jj