Morgunblaðið - 12.10.1999, Qupperneq 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 12. OKTÓBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Tónskóli grunnskólanna f Grafarvogi starfar inni í skólunum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Tónskóli grunnskólanna í Grafarvogi býður upp á forskóla fyrir hljóðfæraleik og píanókennslu.
Færri
komast að
en vilja
Þeir Jón E. Hjaltason (t.v.) og Hreiðar Sigtryggsson
eru upphafsmenn tónskólans, og var hugmyndin á bak
við stofnun hans að skapa fleiri möguleika fyrir börn
sem hafa áhuga á tónlistarnámi.
Grafarvogur
TÓNSKÓLI grunnskólanna
í Grafarvogi hefur starfað
inni í grunnskólum hverfís-
ins frá árinu 1996, en í hon-
um er boðið upp á forskóla
fyrir hljóðfæraleik og píanó-
kennslu. Þetta kom fram í
samtali Morgunblaðsins við
Hreiðar Sigtryggsson, ann-
an af forstöðumönnum skól-
ans.
„Tónskólinn var fyrst
fremst stofnaður til að
skapa fleiri möguleika fyrir
böm sem hafa áhuga á tón-
listamámi," sagði Hreiðar.
„Boðið er upp á tónlistar-
nám inni í grunnskólunum
um leið og hefðbundnum
skóladegi lýkur og þannig
er verið að stuðla að heild-
stæðari skóladegi fyrir
bömin.“
Eins og kom fram í sam-
tali við Sigrúnu Magnús-
dóttur borgarfulltrúa í
Morgunblaðinu 29. septem-
ber þá stendur til að færa
forskóla tónlistamáms inn í
grunnskólana í auknum
mæli. Segja má að töluverð
reynsla sé komin á þetta
fyrirkomulag í Grafarvogin-
um og að unnið hafí verið
ákveðið brautryðjendastarf
í skólunum þar.
Kostaði mikið átak að
koma skólanum á legg
I Tónskóla grunnskól-
anna í Grafarvogi, sem
starfar í Húsaskóla, Hamra-
skóla og Foldaskóla, eru um
80 nemendur. Um 20 eru í
píanónámi og 60 í forskólan-
um. í forskólanum eru böm
í 6 til 8 ára bekk og fara þau
í tónlistartíma tvisvar sinn-
um í viku, í 40 mínútur í
senn. Píanónemamir em í 3.
til 10. bekk og eru þeir í pía-
nótímum tvisvar í viku í 30
mínútur í senn en síðan eru
þeir líka í eina kennslustund
í viku í tónfræði.
Að sögn Hreiðars hefur
skólanum verið mjög vel
tekið af nemendum og for-
eldrum, enda komast færri
nemendur að en vilja.
Hreiðar sagði að hann og
Jón E. Hjaltason tónlistar-
kennari hefðu fyrst rætt
hugmyndina að tónskólan-
um árið 1994 því, eins og áð-
ur sagði, þeir hefðu viljað
skapa íleiri möguleika fyrir
börn sem hefðu áhuga á
tónlistarnámi. Hann sagði
að það hefði kostað mikið
átak að koma skólanum á
legg, en það hefði tekist
með góðri samvinnu við
skólastjóra Hamra,- Húsa-
og Foldaskóla.
Stofur standa ónýttar
eftir að skóladegi lýkur
Þar sem grunnskólamir
em margir hverjir einsetnir
standa stofur jafnan ónýttar
eftir að skóladegi lýkur. Að
sögn Hreiðars hentar það
því vel að nýta húsnæðið
undir tónskóla og sagði
hann að hægt væri að spara
töluverða fjármuni með því
að skipuleggja tónlistamám
svona í stað þess að byggja
sérhúsnæði fyrir tónskól-
ana.
Hreiðar sagði að allir tón-
skólar fengju styrki frá
sveitarfélögunum til að
greiða tónlistarkennumm
laun, þar með talið Tónskóli
grannskólanna í Grafarvogi.
Hann sagði að tónskólamir
þyrftu hinsvegar sjálfír að
borga annað, t.d. standa
undir rekstri eigin húsnæðis
og.að það hlyti að hafa áhrif
á það hversu há skólagjöld
tónskólanna væra.
Að sögn Hreiðars á Tón-
skóli grannskólanna í Graf-
arvogi ekkert húsnæði og
því getur hann boðið upp á
tónlistamám á mjög sann-
gjömu verði, en ein önn fyr-
ir barn í forskóla kostar
8.000 krónur, en fyrir bam í
píanónámi kostar önnin
15.000 krónur. A vegum
skólans starfa 4 kennarar en
samtals eru stöðugildin 2,5.
Hreiðar sagði að tónskól-
inn hefði ekki borgað beina
leigu fyrir afnot sín af stof-
um skólanna, hinsvegar
hefði hann staðið fyrir kaup-
um á tveimur píanóum og
öðram hljóðfæram og
hljómtækjum, sem skólarnir
hefðu aðgang að. Hann
sagði að líklega yrði breyt-
ing á þessu fljótlega, þar
sem borgin hygðist semja
við tónlistarskóla um að þeir
bjóði upp á a.m.k. forskóla
tónlistarnáms inni í grunn-
skólunum, hann sagði að þá
mætti gera ráð fyrir að skól-
amir borguðu einhverja
leigu fyrir afnot af stofun-
um.
Breytt skipulag
Skúlagötu
Reykjavík
BORGARSKIPULAG aug-
lýsir nú breytt deiliskipulag
Skúlagötusvæðisins frá 1985,
en breytingin varðar lóðina
við Klapparstíg 20. I stað op-
ins svæðis er nú gert ráð fyr-
ir íbúðarhóteli með níu íbúð-
um.
Byggingarfyrirtækið Sér-
verk ehf. sótti um að fá að
reisa íbúðarhótelið, en gert
er ráð fyrir að það verði um
610 fermetrar, jarðhæð, tvær
hæðir og ris. Bifreiðastæða-
þörf fyrirhugaðrar byggingar
verður leyst með stæðakaup-
um í samráði við borgaryfir-
völd. Eins og staðan er nú er
lóðin ófrágengin og í óhirðu.
Elías Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Sérverks ehf.,
sagði að tillagan væri búin að
fara í grenndarkynningu og
þar hefði verið almenn
ánægja með hana. Hann
sagði að ekki væri ljóst hvort
Sérverk myndi eiga og reka
hótelið, þar sem allt væri enn
opið í þeim málum. Að hans
sögn munu framkvæmdir
hefjast um leið og leyfi fæst.
Tillagan liggur frammi í
sal borgarskipulags í Borgar-
túni 3 til 13. október, en
ábendingum og athugasemd-
um skal skfla skriflega fyrir
27. október.
Umferðaröryggi
verði aukið
Grafarvogur
SKIPULAGS- og umferðar-
nefnd fékk sent erindi í vor,
þar sem farið var fram á að
Lokinhamrar og Leiðhamrar
yrðu gerðir vistlegri og um-
ferðaröryggi aukið. Sá sem
sendi erindið býr við Leið-
hamra og í samtali við Morg-
unblaðið sagði hann að brýnt
væri að eitthvað yrði gert í
umferðarmálum Hamra-
hverfísins.
Að hans sögn eru „Lokin-
hamrarnir eins og formúla 1-
kappaksturbraut". „Það er
kannski ekki mjög mikið um
hraðakstur á götunni, en hún
býður samt óneitanlega upp á
þann möguleika, þar sem hún
er mjög breið.“
Lokinhamrar er aðalgatan
í hverfínu og liggur hringinn í
kringum það. Ibúinn sagði að
nauðsynlegt væri að setja
þrengingai- við götuna og
fleiri gangbrautir, þar sem
megnið af börnunum í hverf-
inu þyrftu að ganga yfír göt-
una á leið sinni í skólann.
Hverfisnefnd Grafarvogs
hyggst fjalla um málið á
næstu dögum og hefur beðið
þennan íbúa að senda annað
erindi sem stílað verði á
nefndina.
Námsmanna-
íbúðir í
Asahverfi
Garðabær
UNDIRBÚNINGUR , að
byggingu fjölbýlishúss í Asa-
hverfi með íbúðum fyrir
námsmenn er nú að komast á
lokastig. Byggingin er sam-
starfsverkefni Garðabæjar
og Félagsstofnunar stúdenta
og er búist við að gengið
verði frá samningum nú í
október.
Að sögn Ingimundar Sig-
urpálssonar, bæjarstjóra
Garðabæjar, hefur verið unn-
ið að undirbúningi málsins
um nokkurt skeið. Hann seg-
ir að byggt verði nýtt fjölbýl-
ishús, væntanlega með um
12-14 íbúðum, en fjöldi
þeiira liggi þó ekki fyrir enn-
þá. Um leið og gengið verður
frá samningum fer lokahönn-
un hússins í gang, en hús-
næðisnefnd bæjarins hefur
undanfarið fundað með arki-
tektum frá Arkís og farið yfír
hönnun og kostnað við bygg-
inguna.
Ingimundur segir ástæð-
una fyrir byggingunni vera
mikla eftirspurn eftir hús-
næði í Garðabæ, sérstaklega
fyrir ungt fólk. Hann segir
það vera á stefnuskrá meiri-
hlutans að koma upp húsnæði
fyrir námsmenn í bænum og
að þetta sé liður í þeim
áformum. Búið er að taka frá
lóð í Ásahverfi fyrir hús þess-
arar gerðar.