Morgunblaðið - 12.10.1999, Page 62
62 ÞRIÐJUDAGUR 12. OKTÓBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Grettir
Hundalíf
Smáfólk
/I TH0U6HT YOU
| MI6HT LIKE TO
6ETAN EARLY
FOR. UIHAT? I'M
NOT SOINö
ANYLOHEKE..
Vaknaöu, Vakna?! Vakna?!! Mér datt í hug Á hverju?
stóri brdöir! Af hveiju ertu að þú vildir Ég er ekki að
að veiga raig? byrja snemma. fara neitt.
THAT'S TOO BAP..
YOU COULP HAVE BEEN
THE FIK5TONE THEKE..
Það var nú verra.
Þú hefðir getað orðið
fyrstur þangað.
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Skólamálayfírvöld
framleiða baksjúk-
linga framtíðarinnar
Frá Þorgerði M. Kristiansen:
ÉG get ekki lengur orða bundist!
I fyrrahaust byrjaði dóttir mín í
Hagaskóla - fluttist úr grunnskóla
yngri barna yfir í grunnskóla eldri
barna. Önnur dóttir mín fór sömu
leið nú í haust.
Dætur mínar þurfa á venjuleg-
um degi að taka með sér skóla-
töskur sem vega að meðaltali 8-10
kfló. Samt leggja þær það á sig að
fara heim í hádegishléi, fá sér bita
og skipta um bækur í töskunni, til
þess að þurfa ekki að fara með all-
an bókastaflann strax á morgnana.
I Hagaskóla er engin aðstaða fyrir
nemendur að geyma eitt né neitt,
hvorki bækur né fatnað.
Þetta þurfa allir unglingar í
Hagaskóla að láta yfir sig ganga,
bömin okkar sem eru í örum vexti
- með líkama sem breytast frá
mánuði til mánaðar. Skólatími
þeirra er flesta daga frá kl. 8:05-
15:10. Þau sem búa lengst frá
þurfa að leggja af stað um 15 mín-
útum fyrir skólabyrjun og ganga
1-1,5 kflómetra í skólann með
þungar byrðar á bakinu. Þegar
vegalengdin er orðin meiri en hálf-
ur annar kflómetri eiga þau rétt á
strætisvagnamiðum. Síðan í skóla-
lok, þreytt - að starfsdegi loknum,
eiga þau eftir að burðast aftur
heim með skólatöskur sem þau
valda varla og setjast síðan heima
við heimalærdóm.
Fyrirspurnum okkar foreldr-
anna og spumingum unglinganna
sjálfra varðandi þetta geymslu-
leysi hefur ávallt verið svarað á
sama hátt. Beiðni hefur verið lögð
fram um nemendaskápa undanfar-
in ár - á hverju einasta ári. Þessu
er alltaf hafnað - svörin eru ævin-
lega á þá leið að ekki fáist fjárveit-
ing v/peningaskorts - óskum um
endurbætur er hafnað v/kostnað-
ar. Ég dreg það ekki í efa að
kostnaðurinn er einhver - en er
ekki stundum talað um forvarnir?
Hvers vegna er þessi skammsýni?
Hver ætlar að annast baksjúklinga
framtíðarinnar, endurhæfingu
þeirra og greiða þeim örorkubæt-
ur? Hvers vegna í ósköpunum era
yfirmenn skólamála hér á íslandi
svona skammsýnir? Er skýringin
kannski sú að skólamálayfirvöld
hafa ekkert með þessa sömu ung-
linga að gera eftir að þeir verða
fullorðnir - þá verða þeir og þeirra
vandamál á höndum annarra, t.d.
heilbrigðis- og félagsmálayfirvalda
vegna þeirra stoðkerfisvandamála
sem eru sköpuð af skólayfirvöld-
um?
Unglingar þessa lands eru þeir
sem landið munu erfa. Framtíð
þjóðarinnar byggist á framtíðar-
vinnuframlagi þess dugnaðarfólks
sem stundar sitt nám í grunnskól-
um landsins. Er ekki röng sú
stefna að leggja á þau þvílíkar
byrðar árum saman á þessu við-
kvæma vaxtarstigi að þau munu
varla sleppa án skaða. Spurningin
er ekki hvort þau bíði tjón af þessu
- heldur hversu mikið tjónið verð-
ur - hversu vel þau geti sloppið
miðað við óbreytt ástand.
Er framtíðarsýn okkar þjóðfélag
baksjúklinga og öryrkja? Ég vona
ekki - og trúi því ekki! Ég vona að
skólayfirvöld sjái að sér og horfí til
framtíðar! Útvegið grunnskólunum
nemendaskápa og léttið þunganum
af löngu, mjóu bökunum!
Höfum í huga að það er allt of
seint að byrgja brunninn þegar
barnið er dottið ofan í.
ÞORGERÐUR M. KRISTIANSEN,
Hringbraut 91, Reykjavik.
Morgunblaðið
og reykingar
Frá Guðna Tryggvasyni:
ÁKVÖRÐUN Halldórs Blöndals,
forseta alþingis, um að senda
þingmönnum bréf og banna þeim
að reykja er leiðaraefni Morgun-
blaðsins. Er alþingisforseta hrós-
að mjög fyrir framtakið, og sann-
arlega á hann hrós skilið að hafa
tekið á sig rögg og tilkynnt starfs-
mönnum sínum að þeim bæri líka
að fara eftir lögum og reglugerð-
um sem alþingi hefur sjálft sett.
Ingibjörg Pálmadóttir, heil-
brigðisráðherra, hóf máls á reyk-
ingum í alþingishúsinu, og hefur
sætt gagnrýni samstarfsmanna
og pólitískra andstæðinga fyrir
baráttu sína. Þetta kom fram í
Dagblaðinu í síðustu viku og hjá
ríkissjónvarpinu í þessari viku,
þegar hún sagði að sömu reglur
yrðu að gilda í alþingishúsinu og
á öðrum vinnustöðum í landinu.
Þá hafði Halldór Blöndal leyft
reykingar í alþingishúsinu frá því
15. júní, en hefur greinilega
kippst við þegar ráðherra tjáði
sig. Væri ekki ráð fyrir Matthías
og Styrmi að taka niður
flokkspólitísku gleraugun og sjá
hvort raunveruleikinn kemur þá
ekki í fókus.
GUÐNI TRYGGVASON,
Jörundarholti 119, Akranesi.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt i upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
tii birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.