Morgunblaðið - 12.10.1999, Page 76
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181, PÓSTHÓLF3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 5691122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
ÞRIÐJUDAGUR 12. OKTÓBER 1999
VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK
Vopnað rán framið
í söluturni
Ræninginn
- ófundinn
KARLMAÐUR sem framdi vopnað
rán í söluturninum Spesíunni í
Garðabæ skömmu eftir klukkan 23 á
laugardagskvöld er ófundinn, en leit
lögreglu að manninum hefur staðið
jdir síðan um helgina.
Ræninginn kom inn í söluturninn
með riffil, ógnaði afgreiðslumanni
með vopninu og hafði á brott með
sér um 50 þúsund krónur. Af-
greiðslumanninn sakaði ekki.
Ræninginn er talinn vera á aldrin-
um 18 til 25 ára og huldi andlit sitt
með lambhúshettu er hann framdi
ránið.
, Rannsóknardeild lögreglunnar í
' r'tfiafnarfirði hefur málið til rann-
sóknar og biður lögreglan þá sem
hafa einhverjar vísbendingar um
málið að hafa samband við sig.
----------------------
Hryggbrotn-
aði á björg-
unarsveit-
"*• aræfingu
TVÍTUGUR nýliði úr Björgunar-
sveit Ingólfs í Reykjavík var fluttur
með alvarlegan bakáverka á slysa-
deild eftir slys á æfingu með sveit-
inni á sunnudag. Var maðurinn að
æfa stökk í sjó fram í flotgalla og
hryggbrotnaði er hann lenti í sjón-
um. Viðstaddir voru félagar hans
sem voru við kennslu og æfingar og
komu honum til aðstoðar ásamt lög-
reglu og Slökkviliði Reykjavíkur.
Við skoðun á slysadeild kom í ljós
skaði á hryggjarlið. Gekkst hinn
slasaði undir aðgerð í fyrrinótt og
liggur nú á bæklunardeild Sjúkra-
húss Reykjavíkur.
Að sögn læknis á bæklunardeild
' Aamaðist maðurinn ekki vegna
áverkans og er líðan hans góð eftir
atvikum.
Kvennaráðstefnan
Framlög frá
mörgum
aðilum til
verkefna
‘"^ÁÐGERT er að jafnréttisskrif-
stofa Norrænu ráðherranefndar-
innar taki við verkefnum ráð-
stefnunnar Konur og lýðræði við
árþúsundamót, sem lauk í
Reykjavík á sunnudag. Sigríður
Dúna Kristmundsdóttir, formað-
ur framkvæmdanefndar ráð-
^ili
stefnunnar, kvaðst í samtali við
Morgunblaðið ánægð með fram-
lög margra fslenskra og er-
lendra fyrirtækja og stofnana til
verkefna sem vinna á að fram að
stu ráðstefnu, sem halda á í
ilnius í Litháen eftir 18 mán-
uði.
Hillary Rodham Clinton, for-
setafrú Bandarikjanna, sagði
meðal annars í ræðu sinni við lok
ráðstefnunnar, að margar konur
hefðu kannað nýjar lendur síð-
sta árþúsund, stefnt Iffi sinu f
ttu og þraukað langar ferðir í
von um að skapa nýja framt.íð.
_ast;
Ææ
Morgunblaðið/RAX
Stóra fikniefnamálið
Tíundi maðurinn
í gæsluvarðhald
KARLMAÐUR á fimmtugsaldri
var úrskurðaður í gæsluvarðhald til
19. október í Héraðsdómi Reykja-
víkur í gær í tengslum við rannsókn
á stóra fíkniefnamálinu.
Maðurinn var handtekinn í
Reykjavík á sunnudag og fékk efna-
hagsbrotadeiid ríkislögreglustjóra
hann úrskurðaðan í varðhald í gær.
Þetta er fyrsti sakborningurinn sem
efnahagsbrotadeildin fær úrskurð-
aðan í varðhald eftir að deildin hóf
að aðstoða lögregluna í Reykjavík
við rannsókn fjármálahliðar málsins.
Alls sitja því tíu manns í gæslu-
Hafnarskógur
stækkaður
Hafin er framkvæmd landbóta-
áætlunar fyrir svæðið undir
Hafnarljalli í Borgarfirði. Grædd-
ir verða upp víðáttumiklir melar í
Melasveit og trjám plantað til að
skýla þjóðveginum. Þá verður
Hafnarskógur tvöfaldaður til
austurs. Skógurinn hefur þolað
mikið vindálag, sjávarseltu og
beit í langan tíma. Af þeim ástæð-
um er hann talinn meðal merkari
birkiskóga landsins. Myndin var
tekin í Hafnarskógi, í baksýn sést
í Hafnarfjall.
■ Hafnarskógur/6
varðhaldi vegna málsins og er mað-
urinn, sem handtekinn var á sunnu-
dag, langelsti gæsluvarðhaldsfang-
inn í hópnum. Samkvæmt heimild-
um Morgunblaðsins stundaði hann
atvinnustarfsemi á höfuðborgar-
svæðinu.
Verðmæti þeirra eigna og pen-
inga, sem haldlögð hafa verið síðan
rannsókn hófst nema a.m.k. 70
milljónum króna og fer sú tala enn
hækkandi.
Lögreglan segir að rannsókninni
miði vel, en þar sem að mörgu sé að
hyggja sé hún seinunnin.
77 tonna
grafa valt
77 TONNA grafa valt af tengivagni
vöruflutningabifreiðar á veginum á
milli Hrauneyjafossvirkjunar og
Vatnsfellsvirkjunar í gær.
Óhappið varð þegar bifreiðar-
stjóri flutningabifreiðarinnar vék
fyrir umferð. Kanturinn gaf sig
með þeim afleiðingum að grafan
valt af.
Grafan skemmdist talsvert og
var unnið að því í gærkvöld að
koma henni á réttan kjöl með
tveimur krönum, einni jarðýtu og
hjólaskóflu.
Davíð Oddsson um frumvarp til laga um dreifða eignaraðild að viðskiptabönkum
Væntir þess að málið verði
tekið til rækilegrar skoðunar
Morgunblaðið/Sverrir
Hillary Rodham Clinton forsetafrú Bandaríkjanna og Davíð Oddsson
yfirgefa Borgarleikhúsið við lok ráðstefnunnar á sunnudag.
Kvaðst hún hafa fundið sér nýja
helju í Guðríði Þorbjarnardóttur,
sem ung hefði siglt til Ameríku
og alið þar fyrsta evrópska barn-
ið sem vitað sé að fæðst hafi í
Norður-Ameríku.
Vigdís Finnbogadóttir, fyrr-
verandi forseti, sem flutti hátíð-
arræðu á laugardagskvöld, kvað
ráðstefnuna hafa verið málefna-
lega og einbeitta og sagði vinnu-
hópana hafa sinnt verkefnum
sfnum af þekkingu.
AIls voru 305 þátttakendur á
ráðstefnunni, frá 10 löndum,
Rússlandi, Eystrasaltsrfkjunum,
Norðurlöndunum og Bandaríkj-
unum.
■ Konur og lýðræði/Cl
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra
sagði við fyrstu umræðu um laga-
frumvarp um dreifða eignaraðild að
viðskiptabönkum og öðrum lána-
stofnunum, sem tveir þingmenn
Vinstrihreyfingarinnar - græns
framboðs hafa lagt fram á Alþingi,
að hann vænti þess að efnahags- og
viðskiptanefnd Alþingis kynnti sér
rækilega með hvaða hætti væri
staðið að þessum málum í öðrum
löndum þegar nefndin fengi málið
til umfjöllunar. Hann greindi jafn-
framt frá því að nú væri til umræðu
í ríkisstjórninni frumvarp sem hefði
það að markmiði að styrkja mjög
vald Fjármálaeftirlitsins.
Þótt forsætisráðherra vildi ekki
taka afstöðu til einstakra þátta
frumvarps Vinstri grænna sagði
hann það á ölium réttum forsendum
flutt og lýstu fleiri þingmenn þeirri
skoðun að frumvarpið væri þarft
innlegg í umræðu um dreifða eign-
araðild að viðskiptabönkum og öðr-
um lánastofnunum. Fram komu þó
athugasemdir við einstök atriði þess
og m.a. efuðust nokkrir þingmenn
um að hægt væri að setja reglur í
þessu efni sem héldu.
Forsætisráðherra benti hins veg-
ar á í þessu samhengi að víða er-
lendis væru skráðar reglur um
eignaraðild að viðskiptabönkum og
þótt þær væru ekki alls staðar eins
hnigju þær ávallt að sama marki, að
tryggja dreifða eignaraðild. „Og ég
fæ ekki séð að það sé hægt að færa
sannfærandi rök fyrir því að mönn-
um hafi tekist, og vilji þeirra hafi
staðið til þess, að komast framhjá
slíkum reglum.“
Hvatti forsætisráðherra til þess
að efnahags- og viðskiptanefnd Al-
þingis tæki þessi mál til rækilegrar
skoðunar þegar hún fengi frum-
varpið til umfjöllunar að aflokinni
fyrstu þingumræðu.
Ekki mótfallinn
skriflegum reglum
I máli forsætisráðherra kom fram
að hann væri ekki á móti skriflegum
reglum ef ekki væri með öðru móti
hægt að tryggja það meginmarkmið
að eignaraðild að viðskiptabönkum
væri dreifð. Sagði forsætisráðherra
að full sátt ríkti um þetta markmið í
ríkisstjóminni þótt vissulega væru
innan stjómarflokkanna skiptar
skoðanir um leiðir að því marki.
Greindi forsætisráðherra frá því
að nú væri til umræðu í ríkisstjóm-
inni framvarp, sem viðskiptaráð-
herra hefur undirbúið, sem hefði
það að markmiði að styrkja mjög
vald Fjármálaeftirlitsins.
„Og það má vera að slíkt vald geri
það líklegra að sú skipan sem mér
er kæmst, að hægt sé að búa við
óskrifaðar reglur í þessum efnum,
geti náð fram að ganga,“ sagði
Davíð. „Ég get alveg sagt fyrir mig
að ég treysti slíkum hlutum jafnvel
og skrifuðum lögum ef þeir hafa
haldið áratugum saman.“
■ Fékk góðar/10