Morgunblaðið - 26.11.1999, Síða 1
STOFNAÐ 1913
270. TBL. 87. ÁRG.
FÖSTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Reuters
Plastskel utan af einum björgunarbáta kínversku ferjunnar sem fórst
í fyrrinótt sést hér þar sem henni skolaði á land ásamt öðru braki.
Mesta sjóslys við Kína í 50 ár
Tala látinna
hátt í 300
Peking. AFP, Reuters, AP.
> ••
Afrýjunardómstóll staðfestir dauðadóm yfir Ocalan
Dómurinn for-
dæmdur í Evrópu
Ankara. AP, Reuters.
Reuters
Kúrdísk kona í Hamborg hrópar vígorð yfir mynd af Kúrdaleiðtogan-
um Abdullah Ocalan, sem dauðadómur var staðfestur yfír í gær.
OTTAST var í gær, að hátt í 300
manns hefðu farist með farþega-
skipi eða ferju, sem sökk undan
Kínaströndum í fyrrakvöld. Varð
eldur laus um borð í skipinu, sem
hvolfdi síðan í mjög slæmu veðri og
hörkufrosti. Létust flestir úr kulda
um borð í björgunarbátum.
Talið er að um 312 manns, far-
þegar og áhöfn, hafi verið með ferj-
unni Dashun er hún sökk ekki fjarri
hafnarborginni Yantai á Shandong-
skaga. í gær var búið að finna lík
150 manna en 36 mönnum hafði tek-
ist að bjarga. Hinna var saknað,
meira en 120 manna. Ekki var vitað
hvort útlendingar voru um borð.
Synti til lands
Kínverska fréttastofan Xinhuu
sagði að veðrið hefði verið mjög
slæmt, um fimm metra háar öldur
og frost. Hamlaði veðrið björgunar-
starfinu en í því tóku þátt áhafnir
BORÍS Jeltsín Rússlandsforseti
fékk flensu og alvarlegt lungnakvef í
gær og varð því að fresta fundi sín-
um með Alexander Lúkashenko,
forseta Hvíta-Rússlands, sem ráð-
gerður var í dag til að undirrita sam-
bandssamning ríkjanna.
Jeltsín var á fundi með háttsett-
um embættismönnum í Kreml þeg-
ar hann fann skyndilega til vanlíðun-
ar, að sögn Dmítrís Jakúshkín,
talsmanns forsetans.
Jeltsín, sem er 68 ára, var fluttur
á sjúkrahús í Moskvu og læknar
hans sögðu að hann hefði fengið „al-
variegt lungnakvef‘. Síðar um dag-
inn var hann fluttur í embættisbúst-
að sinn og gekkst þar undir frekari
meðferð.
Jeltsín sást síðast í sjónvarpi á
laugardaginn var, daginn eftir að
hann sneri aftur til Moskvu eftir
leiðtogafund Öryggis- og samvinn-
ustofnunar Evrópu í Tyrklandi.
tuga skipa og meira en 5.000 manns
í landi leituðu með ströndinni.
Haft er eftir einum þeirra, sem
björguðust, Xu, 28 ára gömlum
manni, að eldurinn hefði átt mestan
þátt í að skipið fórst. Hefði hann
breiðst hratt út og hefðu þá allir far-
þegamir flúið upp á dekk. Kastaði
Xu sér í sjóinn þegar hann þoldi
ekki lengur við fyrir reyknum og
náði í land eftir klukkustundarsund.
Sagt er, að flestir þeirra, sem fór-
ust, hafi látist úr kulda og vosbúð í
björgunarbátunum. Lágu þeir alltaf
undir ágjöf í hörkufrosti.
Ljóst er, að manntjónið í skip-
skaðanum er það mesta í Kína í
meira en 50 ár en í desember 1948
fórust 1.100 manns er skip sprakk í
loft upp á Kínahafi.
Ekki er vitað hvað olli eldinum
um borð en upplýst hefur verið, að
olíufötum og stórum rafgeymum
hafi verið staflað saman í lestinni.
Hann hefur lengi
átt við vanheilsu að
stríða og var síðast
lagður inn á
sjúkrahús í októ-
ber. Hann gekkst
undir hjartaskurð-
aðgerð í nóvember
1996 eftir að hafa
fengið að minnsta
Jeltsín kosti tvö hjarta-
áföU.
Ákveðið var að fresta fundinum
með Lúkashenko þar til í næsta
mánuði. Fréttastofan Interfax hafði
eftir heimildarmönnum sínum að íg-
or ívanov utanríkisráðherra hefði
verið beðinn að semja um að heim-
sókn litháískrar sendinefndar til
Moskvu, sem var fyrirhuguð 3. des-
ember, yrði frestað. Engin áform
eru þó um að fresta heimsókn Leon-
íds Kútsjma, forseta Úkraínu, sem
ráðgerð er 6. desember.
ÆÐSTI áfrýjunardómstóU Tyrk-
lands staðfesti í gær dauðadóm yfir
Kúrdaleiðtoganum AbduUah Öcal-
an. Mannréttindasamtök og
Evrópusambandið fordæmdu dóm-
inn sem vafalaust spillir verulega
íýrir möguleikum Tyrkja á að telja
leiðtoga ESB á að bjóða Tyrkland
velkomið í sínar raðir eins og þeir
sækjast eftir. Aðildarumsókn Tyrk-
lands er meðal þess sem til stendur
að ræða á leiðtogafundi ESB í
Finnlandi 6. desember nk.
„Við vUjum minna Tyrkland og
önnur þau ríki sem sækjast eftir að-
ild á að við ætlumst til þess af þeim
að leggja dauðarefsingar niður ef
þau vilja eiga möguleika á inn-
göngu,“ sagði talsmaður Evrópu-
sambandsins í Brussel.
Lögmenn Öcalans hafa þegar til-
kynnt að þeir muni skjóta dómnum
til Mannréttindadómstóls Evrópu í
Strassborg en það kann að taka aUt
að tvö ár að ná niðurstöðu í málinu
þar. Tyrkneskum stjórnvöldum ber
að fullnægja ekki dauðadómnum
íyrr en MannréttindadómstóUinn
hefur kveðið upp sinn úrskurð.
En þrýstingur á að Öcalan verði
hengdur er mikill í Tyrklandi. Fyrir
utan dómhúsið í Ankara var múgur
manns í gær sem hrópaði: „Hengj-
um hann, hengjum hann! “Fólkið
veifaði tyrkneskafánanum og hélt á
loft myndum af Öcalan, öllum blóði
drifnum.
Mannréttindasamtökin Amnesty
International, sem hafna dauða-
refsingu rétt eins og ESB, Evrópu-
ráðið og fleiri alþjóðasamtök, for-
dæmdu dóminn. „Fullnægi Tyckir
dauðadómnum mun það einangra
Tyrkland í Evrópu,“ sagði Heidi
Wedel, talsmaður Amnesty.
BARDAGAR héldu áfram í gær á
milli hersveita Rússa og skæruliða
Tsjetsjena, aðallega við bæinn Ur-
us-Martan skammt suður af
héraðshöfuðborginni Grosní. Loft-
árásir héldu einnig áfram en skýja-
veður hamlaði þeim nokkuð.
Sögðu talsmenn rússneska hers-
ins að skæruliðarnir í Urus-Mart-
an, sem taldir eru vera um 3.500,
hefðu verið umkringdir. Rússnesk-
ir herflugmenn sögðust hafa séð
litla hópa skæruliða hörfa til fjalla, í
suðurátt frá bænum. En AFP hefur
eftir gömlum manni sem flúði það-
an, að leiðtogi skæruliðanna í bæn-
um biði þess að hermenn Rússa
legðu í að koma inn í Urus-Martan,
þar sem skæruliðar hefðu sett upp
sterkar varnir. Fram að þessu hef-
ur herstjórn Rússa opinberlega úti-
lokað að taka bæinn í áhlaupi vegna
„Dauðarefsing er ótæk,“ sagði
Gunnar Jansson, fulltrúi þing-
mannasamkomu Evrópuráðsins,
sem var viðstaddur dómsuppkvaðn-
inguna í Ankara í gær. „Eg geri
mér vonir um að tyrknesk stjóm-
völd muni haga sér í samræmi við
staðla Evrópuráðsins, sem gera ráð
fyrir afnámi dauðarefsingar [í öllum
aðildarríkjum],11 segir í yfirlýsingu
sem Jansson dreifði til fjölmiðla.
Kúrdar mótmæla
Kúrdar, sem hundruðum þús-
unda saman búa í útlegð víðs vegar
um Evrópu, mestmegnis í Þýzka-
landi, efndu til mótmæla í gær, en
ekki varð viðlíka ofbeldisaðgerða
vart og þeir stóðu íyrir er Öcalan
var fyrst handtekinn á Italíu fyiT á
árinu. Þýzk stjómvöld lýstu yfir
þess mikla mannfalls sem það
myndi að líkindum kosta.
Bjóða sakaruppgjöf
En herstjórnin er sigurviss, og
lætur sig gagnrýni Vesturlanda
engu skipta. „Eg er 100% viss um
sigur okkar,“ hefur Itar-Tass-
fréttastofan eftir Vladimír Sham-
anov hershöfðingja.
En Moskvustjórnin hefur enn-
fremur hert á þrýstingi á aðskiln-
aðarsinna í Tsjetsjníu að láta af
tryggð sinni við Aslan Mashkadov,
forseta uppreisnarlýðveldisins
Tsjetsjníu, og herforingja hans.
Vladimír Pútín, forsætisráðherra
Rússlands, sagði á miðvikudags-
kvöld að öllum þeim yrði boðin sak-
amppgjöf, „sem borið hafa vopn en
hafa ekki blóð rússneskra borgara
á höndunum".
vonbrigðum sínum og finnska ríkis-
stjómin, sem fer með formennsku í
ESB fram að áramótum, sagðist
vona að úrskurður tyrkneska áfrýj-
unardómstólsins væri „ekki síðasta
orðið" af hálfu tyrkneskra yfirvalda
í máli Öcalans.
Segjast
geta fram-
leitt allt að
250 kg lax
Blenheim. AP.
VÍSINDAMENN við klakstöð
á Nýja-Sjálandi segjast hafa
ræktað erfðabreyttan lax
sem geti orðið allt að 250 kg
þungur, að sögn dagblaðsins
New Zealand Herald í gær.
Stærsta tegund villtra
Kyrrahafslaxa getur vegið 50
kg. „Þessir fískar geta orðið
á stærð við sleðahunda,"
sagði Paul Steere, einn vís-
indamanna klakstöðvarinnar
í Blenheim, nyrst á Suðurey,
en hann segir físk með
breyttum vaxtarhorménum
hafa verið ræktaðan í stöð-
inni sem geti orðið fimm eða
sex sinnum stærri.
Steere sagði að laxinum
hefði verið slátrað áður en
hann náði fullri stærð. Hann
viðurkenndi að við fyrri til-
raunir hefði haus erfða-
breyttra laxa afmyndast en
sagði að nýi eldislaxinn væri
„eðlilegur í útliti".
Erfðabreytt matvæli em
orðin að kosningamáli fyrir
þingkosningarn í landinu á
morgun. Græningjaflokknum
er spáð fimm eða sex þing-
sætum af 120, einkum vegna
baráttu hans gegn erfða-
breyttum matvæluin.
Moskvu. AP.
Jeltsín með
lungnakvef
Barizt við bæ nærri Grosní
Skæruliðar bíða
innrásar Rússa
Grosní, Aehkoi Martan í Tsjetsjníu. AP, AFP.