Morgunblaðið - 26.11.1999, Page 4

Morgunblaðið - 26.11.1999, Page 4
4 FÖSTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Ok á brunahana Bifreið var ekið á brunahana á gatnamótum Sigtúns og Kringlumýrar- að koma í veg fyrir hálku. Ungur piltur ók bflnum og varð óhappið í brautar síðdegis í gær og flæddi vatn niður á Borgartún. Starfsmenn kjölfar þess að hann þurfti að snarbeygja þegar bifreið var skyndilega Reykjavíkurborgar unnu að því síðdegis í gær að bera salt á svæðið til ekið út á Kringlumýrarbraut. Boða frek- ari aðgerðir í Sultar- tanga FÉLAG járniðnaðarmanna hefur ritað Vinnumálastofn- un bréf þar sem farið er fram á að stofnunin svipti nú þegar erlenda starfsmenn frá Skoda atvinnuleyfum sem eru við málmiðnaðar- störf án atvinnuleyfa til þeirra verka. Félag járniðnaðarmanna vakti athygli á þessu máli með aðgerðum í Sultartanga fyrir tveim vikum. I fram- haldi af aðgerðunum taldi Vinnumálastofnun að lausn væri komin á málið þar sem verktakinn myndi fara að fyrirmælum stofnunarinnar um að ráða 6-8 íslenska málmiðnaðarmenn. Félag járniðnaðarmanna segir að það eitt hafi gerst að ráðnir hafa verið tveir íslenskir málmiðnaðarmenn í þessi verkefni en á sama tíma hafí verið fækkað um einn. Er- lendu starfsmennirnir séu hins vegar ennþá í málmið- naðarstörfum. í yfirlýsingu frá Félagi járniðnaðarmanna segir að málmiðnaðarmenn vilji ekki una því að lög um atvinnu- leyfi útlendinga séu brotin og traðkað á atvinnuréttind- um þeirra og munu því aftur grípa til aðgerða gegn þess- ari ólögmætu starfsemi. Samkomulag náðist um aðild Grikklands að Schengen-samkomulaginu í Brussel í gær Reykjavíkurborg sýknuð af kröfum eins eigenda Hafnarstrætis 20 Grikkir fá ferðafrelsi á Schengen-svæðinu SAMNINGAR, náðust um aðild Grikklands að- Schengen-sam- komulaginu og hvernig staðið verður að framkvæmd ferðafrelsis milli Grikklands og annarra Schengen-ríkja, á fundi fastafull- trúa Evrópusambandsins í Bruss- el í gær. Gunnar Snorri Gunnars- son, sendiherra Islands í Brussel, stjórnaði fundinum en hann sátu fulltrúar Noregs og íslands auk fulltrúa Evrópusambandsríkj- anna. Að sögn Gunnars verður formleg ákvörðun um aðild Grikk- lands og framkvæmd gildistöku samningsins tekin á fundi dóms- málaráðherra aðildarríkja Schengen-samkomulagsins sem haldinn verður í Brussel 2. desem- ber næstkomandi. Mun Sólveig Pétursdóttir dómsmálaráðherra stýra þeim fundi. Grikkir hafa verið með í samstarfinu frá 1997 A fundinum í morgun var geng- ið frá því hvernig og hvenær hægt verði að aflétta landamæraeftirliti með þegnum Schengen-aðildar- ríkja til Grikklands. í því felst meðal annars samkomulag um hvernig Grikkir munu tryggja að framkvæmdin verði eðlileg og samkvæmt þeim reglum sem gilda á Schengen-svæðinu. Grikkir hafa verið með í þessu samstarfi frá 1997. Þeir hafa undanfarið byggt upp sitt kerfí auk þess sem eftirlit hefur verið með þeirri aðstöðu sem þeir hafa og nauðsynleg er til að hafa sterkt landamæraeftirlit. Um aðild þeirra hefur verið rætt síðastliðin þrjú ár svo það var viss áfangi sem náðist á fundinum í morgun," sagði Gunnar í samtali við Morgunblaðið í gær. Formleg ákvörðun bíður ráðherrafundar Formleg ákvörðun bíður ráð- herrafundarins sem verður 2. des- ember en á fundinum í gær var ákveðið að 1. janúar 2000 verður landamæraskyldu Grikkja á Schengen-svæðinu aflétt í höfnum og landamærastöðvum við sjó. Skyldu þeirra á flugvöllum verður aflétt í síðasta lagi 26. mars nk., að sögn Gunnars. Að sögn Gunnars er stefnt að því að Schengen-samkomulagið komi til framkvæmda á Norður- löndunum, þar með talið á f slandi í október á næsta ári. Hugsanlega geti það tafíst um nokkrar vikur þar sem framkvæmd samkomu- lagsins á Norðurlöndunum stend- ur á undirbúningi sem meðal ann- ars felst í gerð tölvuhugbúnaðar og breytingum á landamærastöðv- um á flugvöllum. Aðilar að Schengen-samkomu- laginu eru öll Evrópusambands- ríkin nema Bretland og írland, auk Noregs og íslands, sem eru aukaaðilar að Schengen þar sem þau eru ekki aðilar að ESB. VÍÐFRÆG METSÖLUBÓK Hlutafélagalög höfðu áhrif HÆSTIRÉTTUR sýknaði í gær Reykjavíkurborg, Triton ehf., Gerpi sf. og Renötu Erlendsson, af kröfum Valdimars Jóhannessonar og horfði til hlutafélagalaga við úr- lausn málsins. Valdimar krafðist þess aðallega að tilgreindir aðilar yrðu dæmdir til að færa útveggi í austurenda 1. hæðar Hafnarstrætis 20 í Reykja- vík í það horf, sem gert er ráð fyrir í teikningu, samþykktri af bygging- arnefnd Reykjavíkur 22. desember 1977. Þá krafðist Valdimar 4,5 mil- ljóna króna skaðabóta. Valdimar er einn eigenda húsnæðis á umræddri hæð, en þar er m.a. að finna biðstöð SVR. Hæstiréttur félist ennfremur á kröfur Reykjavíkurborgar, Tri- tons, Gerpis og Renötu Erlends- son, um að felldur yi'ði úr gildi úrskurður setts umhverfisráðherra frá 8. desember 1997 þess efnis að ákvörðun byggingarnefndar Reykjavíkurborgar frá 14. nóvem- ber 1996, þar sem nýjar dyr á norð- ur- og suðurhlið biðsalar í austur- hluta 1. hæðar Hafnarstræti 20, voru heimilaðar. Settur umhverfis- ráðherra var Þorsteinn Pálsson, en Guðmundur Bjarnason vék sæti, þar eð Framsóknarflokkurinn átti hlut í umræddu húsi. Reykjavíkurborg eignaðist hluta 1. hæðar Hafnarstrætis með maka- skiptasamningi árið 1978. Triton, Gerpir og Renata Erlendsson seldu borginni að auki 55% af sínum eign- arhluta í 1. hæð hússins árið 1996 og hugðist borgin í framhaldinu gera breytingar á húsnæðinu, setja upp veggi og fjölga inngönguleið- um í húsið. Áður en kaupsamningur milli borgarinnar, Tritons, Gerpis og Renötu var gerður hafði verið haldinn fundur í húsfélagi Hafnar- strætis 20 þar sem greidd voru at- kvæði um breytingarnar. Fulltrúar 78,76% eignarhluta hússins sam- þykktu breytingarnar en fulltrúi Valdimars, sem átti 3,65%, mót- mælti henni. í dómi Hæstaréttar segir m.a. að samkvæmt sameignar- og eigna- skiptasamningi sem eigendur Hafnarstræti 20 gerðu með sér árið 1978 skyldi fai'a eftir hlutafélaga- lögum um stjórn húsfélagsins þannig að eigendur hefðu atkvæð- isrétt á félagsfundum í hlutfalli við eignarhluti sína, en ekki voru sér- stök ákvæði um málsmeðferð við ákvarðanatöku á húsfélagafundi um breytingar á sameign eða af- mörkun séreignar einstakra eig- enda. Var talið að líta yrði til ák- væða hlutafélagalaga við úrlausn málsins og að Valdimar yrði á grundvelli þess að hlíta umræddum breytingum. —— ------------— Gengið að kauptilboði í Kerið EIGENDUR Kersins í Grímsnesi gengu í fyrrakvöld að kauptilboði af hálfu Óskars Magnússonar, fyrir hönd óstofnaðs eignarhaldsfélags. Að sögn Braga Halldórssonar, fulltrúa eigenda Kersins, er kaup- verð trúnaðarmál. Grímsneshrepp- ur og ríkið, sem eiga forkaupsrétt að landinu, hafa frest fram á föstu- dag í næstu viku til að svara því hvoi't gengið verði inn í tilboðið. Eigendur eignarhaldsfélagsins um Kerið eru auk Óskars bræðurn- ir Sigurður Gísli Pálmason og Jón Pálmason, gjai'nan kenndir við Hagkaup.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.