Morgunblaðið - 26.11.1999, Side 40

Morgunblaðið - 26.11.1999, Side 40
40 FÖSTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Stokkið fram á sviðið ÞÓRSTEINA Þórs- dóttir er kennari af guðs náð, aðferðir hennar eru út- hugsaðar - og hún gefur aldrei gramm eftir. Tilvera hennar er í traustum skorð- um, sama á hverju dynur, hún er alltaf ofan á - gerandi í at- burðarásinni, stolt og glæsileg. Eða er ekki svo? Frá Þórsteinu þessari greinir í nýj- ustu skáldsögu Kristínar Marju Baldursdóttur, Kul- ar af degi. En hvaðan kemur þessi makalausa kona? „Það var eiginlega einu sinni á ágústkvöldi, í orðsins fyllstu merkingu, sennilega 1993, að dóttir mín fór að segja mér frá konu sem hún hafði kynnst lítil- lega. Konu sem hafði skoðun á öllu - sem er afar sjaldgæft, kon- ur þora yfirleitt ekki að hafa álit á öllu - og stóð svo hjartanlega á sama um álit annarra. Hún bjó ein. Meira vissi ég eiginlega ekki um hana," segir Kristín Marja. Segir hún þessa frökku konu hafa hcillað sig. „Samt ýtti ég henni út af borðinu í fyrstu - veigraði mér við að skrifa um hana. Hún barði aftur á móti stöðugt á og þar kom að ég gat ekki skorast Iengur undan.“ - Og þú menntar hana til kennslu? „Ætli nærtækasta skýringin á því sé ekki sú að ég þekki þann vígvöll vel, starfaði um árabil sem kennari. Samt var ég ekki viss í upp- hafi, bæði kemst ég í uppnám þegar ég hugsa um skólamál í dag og svo fannst _mér ég vera að fara út á hálan ís. Ég lét þó slag standa og þegar ákvörðunin lá fyrir varð pers- ónan fljótlega mjög skýr.“ - Þú gægist sem fyrr inn í sál- arlíf kvenna? „Það er fyrst og fremst tilgan- gurinn. I mínum huga er heimur kvenna stúdia og ég set í sífellu fram kenningar um konur. Vel á minnst, má ég koma nýjustu kenningu minni á framfæri?" - Endilega! _ „Ég lít á heiminn sem leikhús. Á lciksviðinu standa karlarnir, leika og láta ljós sitt skína, taka við lófaklappi áhorfenda. Baksv- Kristín Marja Baldursdóttir iðs eru konurnar, búa til leik- muni, sauma búninga, farða leik- endur og hella upp á könnuna. Það er yfirleitt miklu meira fjör hjá þeim - hlegið, flissað og grín gert að náunganum. Samheldnin ríkir. Svo tekur ein konan upp á því að stökkva fram á sviðið, hinum til lítillar ánægju. Auðvitað lang- ar þær allar að gera þetta en þora ekki. Þær eru alltaf að gera öðr- um til hæfis og vilja ekki styggja hver aðra. Fyrir vikið mætir sú sem stekkur fram á sviðið mikilli mótstöðu hinna kvennanna og það er ekki fyrr en hún hefur sannað sig að hún er tekin í sátt. Þórsteina er dæmi um svona konu. Hún tekur stökkið í þeim skilningi að hún hugsar ekki og framkvæmir ekki eins og ráð er fyrir gert af konu.“ - Samt mótar hún sína eigin veröld? „Af því að hin veröldin er ekki nógu fáguð fyrir hana.“ - Það er gömul saga og ný að karlar skrifi bækur um konur. Hvað finnst þér um það? „Það þekkja allir karlar konur utanfrá en ég hef alltaf haldið að þeir þekktu ekki þennan innri heim - konur eiga sér allt aðra sögu en karlar. Og sagan hefur mótað þær. Sjálf á ég fullt í fangi með að skilja konur. Ég get því ekki annað en dáðst að þessum mönnum." - Má álykta sem svo að þú skrifir öðrum þræði til að hvetja konur til dáða og jafnvel kenna körluni ofurlitla lexíu í leiðinni? „ Af hverju ekki? Er það ekki tilgangurinn, að hafa áhrif á ann- að fólk? Rithöfundurinn á að mínu mati jöfnum höndum að geta skrifað um þjóðfélagið og fegurð ijallauna. Vitaskuld vona ég að Þórsteina hristi upp í ein- hverjum - hún hristir upp í mér. Mig hefur alltaf dreymt um að hafa skoðun á öllu og hafa ekki áhyggjur af annarra manna áliti.“ Franski elskhuginn frá Marseilles var mættur. Hann kyssti mig í þrí- gang á vangann svosem Frakka er siður, beið eitt andartak meðan við horfðumst í augu, tók svo karlmannlega um lendar mér með lausu höndinni og þrýsti mér að sér. Kvenfólkið ofan af íslandi stundi í bílnum. Tilvist hins franska þótti þar með fullsönnuð. I kjölfar hins dramatíska augnabliks fór fram sýnikennsla í framkomu franskra heiðursmanna, elskhuginn aðstoð- aði kennslukonurnar við að komast út úr farartækinu og kyssti á hönd hverrar og einnar um leið og þær voru kynntar. Athöfnin minnti á hirðsiði í tíð Loðvíks fjórtánda. Nóttinni eyddi svo sólkonungurinn með hirðmeyjum sínum í glaumi og gleði Parísarborgar. Undir morg- un skildu leiðir, elskendur hurfu til herbergja sinna en ölvaðar og kjaftforar kennslukonur leituðu sér að stað þar sem þær gátu feng- ið koníak með morgunkaffinu. Að sjálfsögðu langaði mig meira í morgunkaffið með kerlingunum en að hverfa upp á herbergi í miðju fjöri. En það var óhjákvæmilegt, ég varð að launa vininum fram- úrskarandi móttökur. tír Kular af degi. „Da da da dam!...“ BÆKUR llnjrl ingasaga LEIÐARVÍSIR PUTTA- FERÐALANGS UM VET- RARBRAUTINA eftir Douglas Adams. Þýðing: Kri- stján Kristmannsson. tímbrot og útlit: Sigurþór Jakobsson. Teikning á kápu: Brian Pilkington:_Prentun: Prentsmiðjan Viðey ehf. títgefandi: títgáfan Bjarg 1999 - 183 sfður. ER ég sá snilldarteikningu Bri- ans á kápu og las líka, að BBC (Radio 4) hefði keypt flutningsrétt efnis, þótti mér einsýnt, að eg væri með frábæra bók í höndum. Það telja líka milljónirnar mörgu í Bretlandi, Bandaríkjunum, Astra- líu, Þýzkalandi og Svíþjóð, sem hugfangnar eru sagðar liggja yfir bókum höfundar. Eg hóf því lest- urinn glaður og sæll. Og ekki brást það, að hér var þetta allt sem skemmtanaiðnaðurinn hampar í dag: Heimsendi, úr skjóðu sér- trúarhópa, veifað. Jörð og allt líf splundrast við árekstur gulra efn- isbrota utan úr geimnum. Ekki allt líf þó, því Ford Perfect og Arthur Dent komast í geimskipið Gull- hjartað, þar sem tvíhöfðinn Zap- hod og Trillian hans ráða ríkjum. „Gerist nú allt brjálæðislega flók- ið,“ því lesandinn er ekki aðeins kominn á hraðferð um hnattahyl- inn, heldur lentur líka í hringiðu tækniundra tölvualdar. Höfundur hrærir í af slíkum jötunmóð, að lesandinn reynir ekki að standa, heldur hendir sér niður og grípur dauðahaldi í sjálfan sig. Er hann æpir á hjálp, þá öskra ausufaldarn- ir við eyra hans, að ráðning lífsgát- unnar felist í tölunni 42. Vélar tala; verur arka um á mörgum fótum, - marghentar og marghöfða. Ekkert af þessu er nýtt, því ekki einu sinni frumlegt utan þess að vera lýst „... með yndislegum hryllingi“. Arthur kemst að því, með hjálp Slartibar- tfasts, að verið er að gera nýja jörð sjö og hálfri milljónum ára eftir tortíminguna miklu. Dómsdags, hér „Svardags" hefir mannkyn beðið lengi, og lýst á margan veg. Eg dáist að dugnaði þýðandans, - það þarf kunnáttu og sjálfsaga til að ljúka slíku verki, skila því á svo skiljanlegu máli sem hér er gert. Er eg hugsa til milljónanna allra sem telja Douglas Adams meðal merkustu hugsuða, og jafnvel Disney-kvikmyndafyrirtækið sér sölumynd í söguþræði, þá þori eg ekki fyrir mitt auma líf að leika barnið í ævintýrinu Nýju fötin keisarans. Við, þú og ég, skulum því láta sem við skiljum vel heiti þessara þanka minna. Gerum við það ekki teljumst við sjálfsagt til kynslóðar, sem er „... þjáð af bráðu tilfelli af forvitnisskorti“, hvítar „mýs“ forði okkur frá því. Prent- verk er vel unnið. Sig. Haukur Nýjar bækur • LEIKIR og létt gaman - Leikir fyrir barna- og æskulýðsstarf, skóla og heimili er eftir Hreiðar Orn Stefánsson. I fréttatilkynningu segir m.a. „I starfi með börnum og ungl- ingum eru leikii' mikilvægur þátt- ur í hópeflingu og kennslu. í nú- tímaþjóðfélagi sem einkennist af hraða og mötun efnis er það því enn nauðsynlegra að kenna böm- um, unglingum og uppalendum leiki.“ I bókinni eru um 140 leikir sem eru flokkaðir í þrá efnisflokka: Isbrjóta, hópleiki og einstakl- ingsleiki íyrir minni hópa. Útgefandi er Skálholtsútgáfan. Bókin er 75 bls. Skerpla annaðist hönnun og umbrot en Steindór- sprent - Gutenberg prentaði. • GULLIÐ í höfðinu er önn- ur skáldsaga Diddu. í fréttatil- kynningu segir m.a.: „Hún er alltaf róleg. Hún heitir Katla og er vistmaður á geðdeild í talar ekki, hefur ekki sagt neitt í langan tíma en segir okkur sögu sína. Kötlu vant- ar svar við einni spurningu og verður að reiða sig á gullið í höfð- inu til að finna það og skilja. Árið 1997 kom út bókin Erta, frásögn í dagbókarformi, en tveimur árum fyrr kom út ljóða- bókin Lastafans og lausar skrúf- ur. _ Útgefandi er Forlagið. Bókin er 159 bls. prentuð í Grafík. Kápuhönnun: Jón Asgeir í Aðal- dal. Verð: 3.680 kr. Verð: 1.980 kr. Didda Reykjavík. Hún • ÆVINTÝRIÐ um himneska tréð er barnabók eftir Mary Josl- in í þýðingu Hreins S. Hjartar- sonar. I fréttatilkynningu segir að bókin sé um umhverfisvernd; sköpun, eyðileggingu og upp- byggingu. Bókin er prýdd lit- myndum listamannsins Meilo So sem undirstrika þann boðskap að hver og einn getur haft áhrif á umhverfið og spornað við eyðileg- gingu og auðn. Útgefandi er Skálholtsútgáfan, útgáfufélag þjóðkirkjunnar. Bók- in er 26 bls. þýddi bókina. Um- brot annaðist Skerpla ehf. Verð: 990 kr. Merkisverk BÆKUR H e i in s p e k i FRUMSPEKIN I eftir Aristúteles. 1999. Hið íslenzka búkmenntafélag, Reykjavík. 103 bls. EF einhver rit eiga tilkall til þess að vera nefnd klassísk eru það verk forn-grísku heimspekinganna Pla- tóns og Aristótelesar. Ef eitthvert rit Aristótelesar telst vera grund- vallarrit þá er það Frumspekin sem svo hefur verið nefnd á íslenzku. Nú er hún komin út á íslenzku og hljóta að teljast nokkur tíðindi. Það er raunar einvörðungu fyrsti kafli Frumspekinnar sem kemur út á bók á íslenzku nú. Það er ekki einsdæmi að gefa einungis út fyrsta kaflann sérstaklega heldur tíðkast það orðið nokkuð enda er Frum- spekin öll umfangsmikil bók og ekki einföld til lesturs og skilnings. Aristóteles vann skipulega úr þeirri fræðahefð sem hafði mótazt í Grikklandi til forna. Hann var einn glæsilegasti vísindamaður fornal- darinnar allrar og iðkaði flestar greinar vísinda, til dæmis líffræði. En hann er að líkindum merkastur fyrir heimspeki sína og virðist þá sama hvar borið er niður. Þar er hvert verkið öðru glæsilegra. í sumum þeirra tókst honum að búa til heilar fræðigi'einar eins og rök- fræði sem hafa verið iðkaðar æ síð- an. Þótt menn lesi vísindaleg verk hans einungis vegna sögulegs mik- ilvægis þeirra nú á dögum þá gildir ekki það sama um heimspekilegu verkin. Þau halda gildi sínu enn og þau eru enn lesin vegna rakanna og niðurstaðnanna sem finna má í þeim. Svo að ég nefni eitt dæmi þá er ein áhrifamikil kenning í sam- tíma siðfræði dyggðafræði sem er beinlínis byggð á kenningu Arist- ótelesar um siðferði. Það hafa orðið miklar framfarir í rökfræði síðustu eitt hundrað árin en sú grein hafði þá ekki breytzt í höfuðatriðum frá því Aristóteles mótaði hana fyrir rúmum tvö þúsund árum. Það er enn þess virði að lesa verk Arist- ótelesar um rökfræði. Frumspekin er nokkuð sérstök grein heimspekilegra fræða. Hún fæst ekki við að lýsa, skilja eða greina tiltekna hluti eða tiltekna gerð hluta heldur fæst hún við að greina almennt hvað það merkir að hlutir séu til, að hugsa um hluti sem veru svo að notað sé það orðalag sem sjá má í formála bókarinnar. Fyrir almenna lesendur segir þessi lýsing sennilega fremur lítið. Þetta mætti orða með öðrum hætti og segja að frumspeki fjallaði um al- mennustu skilyrði þess að hlutir séu til. Nefna mætti þrjú dæmi. Það gildir um hvern hlut að hann er einn en ekki ekki eitthvað tvennt. Það er rétt að taka eftir að auðvitað á það við um nánast alla þekkta hluti að þeim má skipta í fleiri en einn hluta. Stóll til dæmis hefur setu, bak og fætur. En það er ein- ungis þegar þetta þrennt kemur saman að við tölum um stól og hver stóll verður að vera einn afmarkað- ur hlutur. Annað dæmið er að hver hlutur er hann sjálfur og ekki eitt- hvað annað. Þetta eru eins augljós sannindi og möguleg eru því þau segja ekkert annað en að borð er borð og ekki eitthvað annað, stóll er stóll og ekki eitthvað annað. Þriðja dæmið er að hver einstakur hlutur er ólíkur öðrum að einhverju leyti en líkur þeim að öðru. Hver ein- stakur þorskur er sérstakur en um leið líkur öllum öðrum þorskum. Þetta eru dæmi um viðfangsefni frumspeki en Aristóteles hafði flókna kenningu um hvert væri við- fangsefni frumspekinnar. Aristóteles rekur þær kenningar sem fyrir- rennarar hans höfðu um eðli og uppruna heims- ins. En viðfangsefni hans er dæmigert frum- spekilegt viðfangsefni: frumorsakir allra hluta. Aristóteles rekur skoð- anir fyrri fræðimanna og fínnur á þeim veik- leika og hafnar þeim. Flestar þessar skoðanir . eða kenningar eru nokkuð framandlegar fyrir nútímafólk. En forvitnilegust eru rök Aristótelesar gegn frummyndakenningu Platóns sem lesa má á þessum síðum en þau eru bæði skarpleg og markviss. Kenn- ing Aristótelesar um frumorsakir er fjórskipt. Hann telur að þegar grannt sé skoðað megi greina allar orsakir í fernt: formlega orsök, til- gangsorsök, efnislega orsök og af- lvakaorsök eins og það er orðað í formálanum (bls. 11). Það er ekki ástæða í stuttum ritdómi að lýsa þessari greiningu á orsökum en þessi fjórskipting orsaka er ein af frægustu kenningum Aristótelesar. Þýðingin á þessum fyi’sta kafla Frumspekinnar hefur tekizt vel. Textinn er alls staðar læsilegur og það er ekkert verið að einfalda hann eða draga úr framandleikan- um. Inngangurinn er prýðilega heppnaður, þar er dreginn saman nokkur fróðleikur um Frumspekina í heild og um frum- speki sem fræðig- rein. Svavar Hrafn Svavarsson þýðir og ritar inngang og hef- ur skilað því verki vel og skilmerkilega. Það má spyrja sig af hverju ástæða sé að reyna að skilja verk eins og Frum- speki Aristótelesar á íslenzku. Þegar spurt er þannig geta menn átt við það hvort yfirleitt er nokkur ástæða til að reyna að skilja verk á borð við Frumspekina. Svar- ið við því er að sjaldan hefur verið skyggnzt jafn skarplega um á þessu fræðasviði og í þessari bók Aristótelesar. A hinn bóginn geta menn átt við af hverju að glíma við svona verk á íslenzku, af hverju yf- irleitt að þýða svona verk. Svarið við því er að íslenzkan þarf að þróast í glímu við hina vestrænu hugsunarhefð. Það er nauðsynlegt til að hún verði þjált tæki til að orða rökhugsun. Ef mönnum þykir rök- hugsun nokkurs verð hljóta þeir að sjá mikilvægi útgáfu Frumspeki Aristótelesar á íslenzku. Guðmundur Heiðar Frímannsson Aristóteles

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.