Morgunblaðið - 26.11.1999, Side 63
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1999 63
UMRÆÐAN
Hugleiðing um
húsaleigubætur
STÚDENTARÁÐ
og fulltrúar þess hafa
margsinnis bent á það
hróplega óréttlæti sem
felst í þeirri tilhögun
sem nú er við lýði á
húsnæðismarkaði og
farið fram á úrbætur.
Með óréttlæti á ég að
sjálfsögðu við þá mis-
munun sem viðgengst
á milli þeirra sem
þiggja vaxtabætur í
formi skattalækkunar
og hinna sem þiggja
húsaleigubætur og
greiða af þeim skatt.
Skattskyldar
Já, húsaleigubætur eru skatt-
skyldar og eru þannig einu greiðsl-
umar sem hið opinbera beitir tíl
jöfnunar aðstöðumunar sem em
skattskyldar. Þannig era tekju-
lægstu þegnar samfélagsins í þeirri
annarlegu aðstöðu að greiðslur sem
upphaflega var ætlað að bæta þeim
upp mikinn leigukostnað, era tekju-
skattskyldar þannig að tæp 40%
þeirra renna beint í ríldssjóð. Hér er
auðvitað rétt að benda á þann
skattaafslátt sem við getum öll notið
í formi persónuafsláttar. Það er
semsagt hægt að leggja inn skatt-
kort fyrir húsaleigubótunum. Það er
rétt en ekki allur sannleikm-inn.
Námsmenn hafa aðeins sumarmán-
uðina þrjá til að afla sér tekna fyrir
allt árið, það er því mjög alvarlegt
þegar stór hluti af þeim persónuaf-
slætti sem ætti að hafa safnast upp
að vori hefur þegar verið nýttur tfl
húsaleigubóta. Þetta er ekki aðeins
ósanngjamt heldur líka í miklu
ósamræmi við þá stað-
reynd að vaxtabætur
tfl húseigenda era
greiddar sem skattaaf-
sláttur.
Húsaleigubætur
skerða námslán lán-
þega hjá LÍN. Þannig
era þær ekld aðeins
skattskyldar, þær
lækka námslán um
50% af upphæð leigu-
bótanna. Húsaleigu-
bætur tfl lánþega era
því í raun tvískattaðar.
Engar bætur
Það er af nógu að
taka þegar gagnrýni á húsaleigu-
bótakerfið er sett saman. Eitt af því
sem gengur algerlega gegn anda
þess að hafa húsaleigubætur er að
fólk sem leigir stök herbergi hefur
ekki rétt tfl húsaleigubóta. í þeim
aðstæðum sem nú era uppi á hús-
næðismarkaði færist mjög í vöxt að
námsmenn leigi stök herbergi.
Astæðan er hið háa verð leiguhús-
næðis í dag, námsmenn hafa fæstir
hveijir ráð á að leigja íbúð. Þama
kemur inn sú klásúla laga um húsa-
leigubætur sem segir að aðeins séu
greiddar bætur vegna leigu á íbúð-
um með sérbaðherbergi og eldhúsi.
Óþarft er að taka fram hversu illa
þetta kemur fólki sem leigir her-
bergi þar sem tvö til fjögur herbergi
era um eitt baðherbergi og eldhús
eins og algengt er.
Ómögulegt að leigja saman
Við útreikning húsaleigubóta era
lagðar tfl grandvaflar samanlagðar
tekjur allra þeirra sem hafa lög-
Stúdentar
Pað er ekki að ósekju,
segir Pétur Maack Þor-
steinsson, þegar því er
haldið fram að markmið
húsaleigubótakerfisins
sé að letja fólk til töku
húsaleigubóta.
heimili eða aðsetur í viðkomandi
íbúð. Þá gildir einu hvort fjárhagur
fólks er samaeiginlegur eður ei, eða
hver er hlutdefld hvers og eins í
heildarapphæðinni. Þetta torveldar
vandalausum sambýflngum mjög að
sækja um húsaleigubætur, þrír
námsmenn sem hafa haft sæmflegar
sumartekjur era ekki gjaldgengir tfl
húsaleigubóta að hausti.
Þrátt fyrir góðan ásetning með
húsaleigubótum er það kerfi sem við
búum við í dag svo flókið og ósveigj-
anlegt að undran sætir. Það er því
ekki að ósekju þegar því er haldið
fram að markmið húsaleigubóta-
kerfisins sé öðram þræði að letja
fólk til töku húsaleigubóta. Það er
Ijóst að fjármunir þeir sem hið opin-
bera veitir tfl húsaleigubótakerfisins
era óveralegir t.d. miðað við vaxta-
bætur. Eg skora því á stjómvöld að
bregðast við þessum athugasemd-
um og gera úrbætur á kerfinu,
þeirra er svo sannai'lega þörf.
Höfundur er Stúdentaráðsliði
Röskvu.
Pétur Maack
3 ára/60.000 km verksmiðjuábyrgð.
Skoðun eftir 1000 km innifalin.
Grand Cherokee jeppar eru
fulltrúar fyrir það besta í
bandartskum bílaiðnaði enda
hafa bílasmiðir Cherokee
fengist við að bæta þá og fága
áratugum saman.
ýmissa nýjunga. Nægir að nefna
Qudra Track II mitlikassann sem
er einstakur í sinni röð.
Innflutningun Bílastúdíó
Sala: Bílasala Reykjavíkur
Varahluta- og viðgerðaþjónusta: Bíljöfur
Grand Cherokee Laredo er
eðaljeppi sem fullnægir ítrustu
kröfum Evrópubúa um búnað
og aksturseiginleika enda settur
saman f Evrópu og stenst alla
evrópska gæðastaðla.
Aukahlutir á mynd:
Samlitt grill. stuðarar og hliðar.
Grand Cherokee Laredo er nýr
jeppi sem er byggður á þessum
trausta grunni en markar
jafnframt tímamót vegna
pííMM
Bitastudío ehfi
Bíldshöfða 10 • Sfmi: 587 8888 • Fax: 587 8891 • Netfang: bilasalarvk@simnet.is
Yf,5oooaiÞi^^7;;s
sötanbend
a Omega-3 fiwsyrur
fóðnheilsufólksognauð-
þánur i goör eiálfcarm
i oUt ftá fósturstigi>
Vertu í sátt við samviskuna. Plús3 er fitusk
viðbit með smjörbragði sem inniheldur hinar
eftirsóttu Omega-3 fitusýrur sem fást að
öðrum kosti helst úr sjávarfangi og lýsi.
Samviskuviðbit
s/ Gottfyrir hjartaÖ
s/ Gottfyrir heilann
Gott á brauðið