Morgunblaðið - 26.11.1999, Blaðsíða 70
70 FÖSTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
Grettir
Hundalíf
Ljóska
Smáfólk
Hvað er Neðansjávar- Hún tekur myndir Ég held að
þetta? myndavél. neðansjávar. hún sé hiluð.
M
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Frábærir
sj ónvarp sþættir
um Laxness
Frá Sveini Krístinssyni:
ENNÞÁ er ég stundum, mér til
skemmtunar og fróðleiks, að horfa
á þættina þrjá, sem Sjónvarpið
sýndi um Halldór Laxness stuttu
eftir andlát hans á síðasta ári og
endursýndi síðar á árinu. Þetta eru
mjög fróðlegir þættir. Ber að
þakka fjölmiðlum fyrir það, sem
þeir gera vel, ekki láta nægja að
gagnrýna það, sem miður fer. Eg er
ekki að segja, að ekki megi finna að
sumu í þáttunum, en tel hið já-
kvæða vera yfirgnæfandi.
Líklega hefði mátt draga skýrar
fram en gert er andóf Halldórs
gegn ýmsum ríkjandi hefðum,
framan af rithöfundarferli hans, og
þá kannski einnig andóf gegn hon-
um á sama tíma. Róttækar stjórn-
málaskoðanir Halldórs voru þáttur
í þessu andófi, en segja hvergi
nærri alla söguna. Þótt hann
hneigðist á tímabili til samúðar með
kommúnismanum, þá finnst mér
ekki ólíklegt, að hann hefði líka orð-
ið andófsmaður undir kommúnista-
stjóm. Auðna hefði svo ráðið því,
hvort það andóf hefði beinst fremur
gegn stjórnarstefnunni sjálfri,
heldur en, til dæmis, slæmri tann-
hirðu, öðrum óþrifnaði, drykkju-
skap eða lélegu málfari ráðandi
manna. Halldór var fjölhæfur í
gagnrýni sinni.
Hefði hann átt Stalín fyrir hús-
bónda hefði hann vonandi, heilsu
sinnar vegna, gætt þess að fara
ekki yfir markið í gagnrýni sinni.
Kannski hefði hann látið tannhirð-
una nægja. Er þó raunar tvísýnt,
hvort slík hófsemi hefði nægt til að
forðast boðaföllin. Stalín kann að
hafa verið viðkvæmur fyrir orðstír
tanna sinna, eins og öðru því er laut
hans stjórn.
Halldór Laxness var byltingar-
maður um stíl og málfar. Stíllinn
var afskaplega frjór og tilbrigðar-
íkur. Það er næstum eins og að lesa
nýtt tungumál að lesa ritverk hans.
Eldmóðurinn er líka heillandi, eink-
um þegar þung þjóðfélagsádeila
kyndir undir, svo sem í „Sölku
Völku“, „Sjálfstæðu fólki“ og
„Ljósvíkingnum“. „íslandsklukk-
an“ finnst mér þó fremsta ritverk
Halldórs, og skal þó játað, að erfitt
er að gera upp á milli fremstu verka
hans, og má það víst kallast
smekksatriði. I „Islandsklukkunni"
er ádeilan í senn duldari og meitl-
aðri og beinist meir að öðrum efn-
um en í skáldsögunum þremur, er
ég nefndi.
Hins vegar er þjóðfélagsádeilan
hvergi opinskárri en í „Atómstöð-
inni“. Þar fær margur íslenskur
„góðborgarinn" „gúmorinn á lat-
ínu“ eins og sagt var á kreppuárun-
um. Sumir virðast telja „Atómstöð-
ina“ einna lökustu skáldsögu
Halldórs. Mér óar við að samsinna
því áliti. Það er bók, sem er reglu-
lega hressandi að lesa, þótt bestu
bækur skáldsins risti dýpra og séu
ritaðar af agaðri list. En það getur
líka verið gaman, þegar agaður höf-
undur sleppir fram af sér beislinu.
Það var víst engin tilviljun, að
þekktur bókmenntamaður og
„betri borgari" (Kristján Alberts-
son) kallaði „Atómstöðina" „skítug-
an leir“. Sá hinn sami hafði þó verið
einna fyrstur til að dást opinber-
lega að snilld Halldórs. - En svona
var þetta. Menn vissu ógjarnan,
hvar þeir höfðu skáldið. Það var
óútreiknanlegt, bæði hvað varðaði
efni, stíl og rithátt.
Eldmóður Halldórs og það, sem
gerði stíl hans mest lokkandi, finnst
mér taka að slævast, eftir að hann
sættist að nokkru við hin borgara-
legu öfl. Nóbelsverðlaunin voru áf-
angi á þeim ferli. Stílsnilld hans
heldur þó velli, en hjarta skáldsins
slær hægar. Halldór mun hafa orð-
ið fyrir vonbrigðum með þróun rót-
tækra þjóðfélagshugmynda, og af-
slappandi boðskapur taóismans
hefur, ef til vill, af þeim sökum orð-
ið nærtækari.
Öllum aðkomuhugmyndum ljær
Halldór sitt persónulega svipmót.
Þær ganga í þjónustu töframanns-
ins frá Laxnesi, fremur en hann
gerist háður þeim.
Islendingar standa í ærinni
þakkarskuld við Halldór Laxness.
Tölfræðilega er ólíklegt, að við
eignumst annan eins snilling oftar
en á hundrað ára fresti.
SVEINN KRISTINSSON,
Þórufelli 16, Reykjavík.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Hefur þú engan að tala uið
til að deila með sorg og gleði?
Uinalína Rauða krossins,
sími 800 6464
öll kuöld frá kl. 20-23