Morgunblaðið - 15.12.1999, Síða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Morgunblaðið/Kristján
Guðbjörg Inga Jósefsdóttir, fyrir aftan standa Ómar Gylfason
verslunarstjóri og Sigmundur Einarsson.
Geðverndarfélag Akureyrar 25 ára gamalt í dag
Athvarf efst á óskalista
GEÐVERNDARFÉLAG Akureyr-
ar er aldarfjórðungs gamalt í dag,
miðvikudaginn 15. desember.
Ahugafólk á Akureyri og í ná-
grannabyggðum hefur í 25 ár stutt
dyggilega og af miklum krafti alla
viðleitni félagsins til að bæta hag
geðsjúkra á svæðinu. Félagið hefur
haldið úti fræðsluriti, Geðfræðslu,
og þá hefur félagið unnið að mörg-
um mikilvægum framfaramálum á
vegum heilbrigðisþjónustunnar,
fyrst og fremst Fjórðungssjúkra-
hússins á Akureyri. Má þar nefna
tilkomu iðjuþjálfunar og áfanga-
heimilis fyrir geðfatlaða.
Félagið hefur notið stuðnings
sem réð úrslitum um að vissh’ erfið-
ir áfanga náðust eftir mikla fyrir-
höfn. Geðverndai’félag Islands kom
að stofnun félagsins og veitti mikinn
og góðan fjárhagslegan stuðning í
upphafi. Kiwanishreyfingin á Is-
landi hefur einnig lagt sitt lóð á vog-
arskálar, en án stuðnings hennar
hefðu sumir mikilvægh’ áfangar í
stai’fsemi félagins sennilega aldrei
náðst. Þá hefur félagið einnig hlotið
styrki frá fjárveitinganefnd Alþing-
is og frá Akureyrarbæ. Stefnt er að
því að gefa út afmælisrit þar sem
gerð er gleggri grein fyrir starfi fé-
lagins í aldarfjórðung, en tímans
vegna hefur félagið frestað því fram
yfir næstu áramót að bjóða til af-
mælisfagnaðar.
Uiidirbúiiingnr hafinn
Næsta stóra verkefni á óskalista
Geðverndarfélags Akureyi’ar er
opnun og starfræksla athvarfs fyrir
geðsjúka og geðfatlaða á svæðinu.
Stefnt er að samstarfi við Akureyi’-
arbæ og Akureyrardeild Rauða
krossins. Undh’búningsstarf er þeg-
ar hafið og lofar það góðu. Aratugur
geðfatlaðra er senn á enda og þykir
forsvarsmönnum félagsins vart
hægt að hugsa sér glæsilegri lokaá-
fanga á Akureyri en að ná þessu
markmiði.
Vöruhúsið
París
HJÓNIN Sigmundur Einarsson
og Guðbjörg Inga Jósefsdóttir
opnuðu nýlega Vöruhúsið París
í kjallara húss síns við göngu-
götuna í Hafnarstræti, en það
er jafnan kallað París. Fyrir
reka þau í húsinu kaffihúsið
Bláu könnuna og Blómabúð
Akureyrar.
I Vöruhúsinu París er úrval
húsgagna, einkum tekkhús-
gagna frá Indónesíu, þá er þar
að fínna dúka af ýmsu tagi og
borðbúnað, glös og dúka og
fleira tengt heimilinu.
Vöruhúsið París verður opið
alla daga fram til jóla.
Bautamót-
ið í knatt-
spyrnu
HIÐ árlega Bautamót í knatt-
spyrnu fyrir meistaraflokk
karla verður haldið í KA-
heimilinu helgina 8.-9. janúar
árið 2000.
Þátttöku á að tilkynna í síð-
asta lagi mánudaginn 3. janú-
ar næstkomandi í KA-heimilið
og taka fram fjölda liða og
fjölda leikmanna. Þátttöku-
gjald er 12 þúsund krónur á
eitt lið, 18 þúsund á tvö lið og
22 þúsund á þrjú lið. Hægt
verður að útvega gistingu og
morgunverð í KA-heimilinu í
tengslum við mótið.
Vegleg verðlaun verða veitt
fyrir 1. sætið og eru þau frá
veitingastaðnum Bautanum
og þá verða verðlaunapening-
ar fyrir 2. og 3. sætið.
Matslíkaii fyrir skóla kynnt
Rannsóknarstofnun Háskólans á Akureyri
Morgunblaðið/Kristján
Stefán Jóhannsson, skrifstofustjóri, Benedikt Sigurðarson, höfundur
skólarýnis, og Trausti Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Rannsóknar-
stofnunar Háskólans á Akureyri.
SKÓLARÝNIR - innra matslíkan
fyrir skóla var kynnt skólastjórn-
endum á vegum Rannsóknarstofn-
unar Háskólans á Akureyri nýlega,
en höfundur þess er Benedikt Sig-
urðarson MEd og Stefán Jóhannes-
son skrifstofustjóri háskólans skrif-
aði tölvuforritið. Fjórir skólar,
Glerárskóli og Síðuskóli á Akur-
eyri, Varmahlíðarskóli í Skagafirði
og Þelamerkurskóli í Eyjafii'ði voru
í samstarfi við þróun líkansins og
fengu fulltrúar þeii'ra afhenta
fyrstu útgáfu af Grunn-Skólarýni
þegar líkanið var kynnt.
Með nýjum lögum um giunn-
skóla var lögfest „að sérhver
grunnskóli skuli innleiða aðferðir til
að meta skólastarfíð, þar á meðal
kennslu- og stjórnunarhætti, sam-
skipti innan skólans og tengsl við
aðila utan skólans". Lítil reynsla er
hjá skólum við slíkt mat og því hafa
kennarar og skólastjórnarmenn
leitað ýmissa leiða. Til stuðnings
við þetta starf skólanna sótti Rann-
sóknarstofnun HA um styrk úr
Þróunarsjóði grunnskóla til að þróa
líkan til innra mats og hefur það
hlotið nafnið Skólarýnir.
Skólarýnir er 1.000 punkta ein-
kunnarkerfi og er byggt á vinnu-
hefðum altækrar gæðastjórnunar.
Gengið er út frá rannsóknarþekk-
ingu „skilvirkra skóla“ við skil-
greiningar á samhengi stjórnunar,
skipulags og starfsþátta við árang-
ur af skólastarfinu. Skólarýnir hef-
ur verið skrifaður í tölvuforrit þar
sem vinna má matið, taka saman
niðurstöður og birta skýrslur og
töflur beint að matinu loknu eða
flytja niðurstöðurnar yfir í önnur
vinnuskjöl skólans um leið og það
liggur fyi’h’.
Jákvæðar viðtökur
Mikil eftirspurn er eftir hjálpai’-
tækjum við sjálfsmat skóla vegna
þessara nýju lagaákvæða og hefur
skólarýnir fengið jákvæðar viðtök-
ur þegar á vinnslustigi. Nú er jafn-
framt unnið að gerð útgáfu fyrir
framhaldsskóla, Framhalds-
skólarýni, og í undirbúningi er að
þróa útgáfu fyrir leikskóla.
Nemendur Húsabakka-
skóla hlutu verðlaun
NEMENDUR í 5. og 6. bekk í
Húsabakkaskóla í Svarfaðardal
hlutu fyrstu verðlaun í verk-
efnasamkeppni sem Minjasafnið
á Akureyri stóð fyrir.
Þeim bekkjum í skólum í
Eyjafirði sem eru að læra um
kristnitökuna var boðið að taka
þátt í keppninni. Tilefnið var
sýningin Gersemar sem sett var
upp í Minjasafninu í sumar og
stendur til áramóta, en hún var
sett upp til að minnast 1.000 ára
afmælis kristnitökunnar.
Bekkirnir höfðu frjálst val um
form verkefna en eina skilyrðið
var að fjallað yrði um kristnitök-
una.
Krakkarnir í bekknum tóku
við verðlaunum við athöfn á
Minjasafninu ásamt kennara sín-
um, Magneu Helgadóttur. Þau
fengu bókina Dans hinna dauðu
og ársmiða í Minjasafnið og þá
fékk bekkurinn tölvuleikinn
Tímaflakkarann.
Nemendur í Grunnskóla Hrís-
eyjar og Þelamerkurskóla skil-
uðu einnig inn verkefnum í sam-
keppnina.
Morgunblaðið/Kristján
Nemendur í 5. og 6. bekk Húsabakkaskóla ásamt Magneu Helgadóttur
kennara þeirra við verkefni sitt í Minjasafninu.
Blaðbera
vantar í eftirtalin hverfi
Huldugil — Vættagil,
Eyrina — norðurhluta,
Gerðahverfi
Blaðburður verður að hefjast um leið og blaðið kemur í
bæinn. Góður göngutúr sem borgar sig Morgunblaðið
Kaupvangsstræti 1, Akureyri.
f I sími 461 1600
Morgunblaðið leggur áherslu á að færa lesendum sínum vandaðar og áreiðanlegar
fréttir og upplýsingar. Morgunblaðið er eina dagblaðið á íslandi sem er í
upplagseftirliti og eru seld að meðaltali rúmlega 54.000 eintök á dag. Höfuðstöðvar
Morgunblaðsins eru í Kringlunni 1 í Reykjavik þar sem eru yfir
300 starfsmenn. Á Akureyri er starfrækt skrifstofa í Kaupvangsstræti 1.
Morgunblaðið kom fyrst út 2. nóvember 1913.
Árvakur hf. er útgefandi Morgunblaðsins.
Afgreiðsla
íslands-
banka í nýtt
húsnæði
ÍSLANDSBANKI opnaði fyrir
helgina afgreiðslu í nýbyggingu
Hrísalundar, verslunar KEA á
brekkunni á Akureyri. Afgi’eiðslan
var flutt frá Hrísalundi 1, þar sem
bankinn hefur verið með starfsemi
til fjölda ára. Eygló Birgisdóttir
hefur tekið við starfi afgreiðslu-
stjóra á þessum tímamótum. Hún
er því komin í samkeppni við föður
sinn, Birgi Svavarsson, sem sér um
útibú Landsbanka Islands í
Kaupangi, um 400 metrum frá
Hrísalundi.
Afgreiðslutími íslandsbanka í
Hrísalundi verður frá kl. 12-18 en
með breyttum afgreiðslutíma er
bankinn að koma til móts við við-
skiptavini sína. Fjölgað hefur verið
um einn starfsmann á brekkunni og
þá hefur verið settur upp hraðbanki
í Hrísalundi. Einnig hafa verið
gerðar lagfæringai’ á gatnakerfinu
við Hrísalund og er nú einnig hægt
að aka frá bílastæðinu og inn á
Þingvallastræti.
Morgunblaðið/Kristján
Á myndinni er Guðjón Steindórs-
son útibússtjóri Islandsbanka á
Akureyi’i með starfsstúlkum í Hrí-
salundi. F.v. Sólveig Sigurgeirsdótt-
ir, Guðjón, Eygló Birgisdóttir,
Regína Siguróladóttir og Lára
Heimisdóttir.