Morgunblaðið - 15.12.1999, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 15.12.1999, Qupperneq 28
ERLENT 28 MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ Bandaríkjamenn varaðir við hættu á hermdarverkum Meintir hryðju- verkamenn handteknir Washington. AP, AFP. TÓLF menn hafa verið handteknir í Miðausturlöndum á síðustu tveimur vikum vegna gruns um að þeir hafí skipulagt bermdarverk gegn Bandaríkjamönnum, að sögn banda- ríska dagblaðsins The New York Times í gær. Nokkrir mannanna eru grunaðir um að tengjast Sádi- Arabanum Osama bin Laden, sem hefur verið sakaður um að hafa staðið fyrir sprengjuárásum á bandarísku sendiráðin í Kenýa og Tansaníu sem kostuðu 220 manns lífið í ágúst á síðasta ári. The New York Times hafði eftir embættismanni í Washington að bandarískum yfirvöldum hefðu borist „mjög áreiðanlegar upplýs- ingar“ um að mennirnir hefðu und- irbúið hryðjuverk gegn Bandaríkja- mönnum, en ekki kom fram hvar þeir voru handteknir. Blaðið hafði ennfremur eftir heimildarmanninum að bandarísk yfirvöld teldu sig vita hvar menn- irnir hefðu ætlað að fremja hermd- arverkin en hann vildi ekki nefna staðina. Áður hafði bandaríska stjórnin varað Bandaríkjamenn, sem búa eða ferðast erlendis, við hermdar- verkum á næstu vikum og embætt- ismaður í Washington sagði í gær að þær viðvaranir hefðu meðal ann- ars verið byggðar á handtökunum í Miðausturlöndum. Bandaríska utanríkisráðuneytið sagði á laugardag að Bandaríkja- menn þyrftu að vera á varðbergi vegna hugsanlegra hermdarverka nú í desember og fyrstu vikuna í janúar. „Bandaríkjastjóm hefur fengið trúverðugar upplýsingar um að hryðjuverkahreyfingar hafí skipulagt árásir gegn bandarískum borgurum og þessi hætta nær yfir allan heiminn," sagði James B. Foley, talsmaður ráðuneytisins. Foley sagði að hættan á hryðju- verkum tengdist hátíðahöldunum vegna árþúsundamóta og föstumán- uði múslima, sem lýkur í janúar. Bandaríkjamönnum var ráðlagt að forðast fjöldasamkomur og fjöl- menn hátíðahöld. Madeleine Albright, utanríkisráð- herra Bandaríkjanna, sagði á sunnudag að Bin Laden, sem dvelur í Afganistan undir vemdarvæng Talebana, kynni að hafa skipulagt hryðjuverk en bætti við að hætta stafaði af „margvíslegum hreyfing- um“ án þess að útskýra það frekar. Fréttastofa sjónvarpsstöðvarinn- ar ABC sagði að meðal annars væri hætta á árásum á helga staði krist- inna manna í ísrael og á hemumdu svæðunum. Þriðja sjónvarpseinvígi frambjóðenda repúblíkana Bush breytir um stíl Des Moines. AP. GEORGE W. Bush, sem er lang- líklegastur til að verða frambjóð- andi bandarískra repúblikana í forsetakosningunum á næsta ári, hefur breytt nokkuð um stíl í baráttunni við helsta keppinaut- inn, John McCain. Fram að þessu hefur framkoma Bush þótt ein- kennast af litlausri gætni en nú vill hann sýna, að honum geti sollið móður í brjósti og jafn- framt, að hann sé ekki sá andlegi iéttvigtarmaður, sem margir telja hann vera. Þeir Bush ogMcCain hafa tek- ist á í sjónvarpi þrisvar sinnum og þótt Bush hafi sloppið fyrir horn í fyrstu tveimur umferðun- um urðu stuðningsmenn hans fyrir vonbrigðuin með frammi- stöðuna. Þótti hann fara heldur halloka fyrir McCain í umræðum um skatta og fjármögnunarað- ferðir fiokkanna og það kann að eiga einhvern þátt í því, að McCain hefur nú gott forskot á Bush í New Hampshite. Bush hefur að vísu miklu meira fylgi í öðrum ríkjum en New Hamps- hire er mikilvægt að því leyti, að þar verða fyrstu forkosningarnar 1. febrúar nk. Niðurstöður tveggja kannana i New Hampshire voru birtar sl. föstudag og hafði McCain forystu í þeim báðum, 43% á móti 28% og Bökum það besta Þrátt fyrir hörð orðaskipti fór vel á með þeim Bush og McCain að þættinum loknum. Reuters. 37% á móti 30%. Það hafa því orðið mikil umskipti á fáum dög- um því að Bush hafði forystuna, 38% á móti 30%, á mánudeginum áður. Ekki nógu forsetalegur? Bush hefur borið ægishjálm yf- ir aðra frambjóðendur innan Repúblikanafiokksins allt frá upphafi, jafnt í skoðanakönnun- um sem í íjárútvegun og sagt er, að hann hafi sett sér það eitt mark8mið að komast í gegnum forkosningabaráttuna án þess að verða mikið á í messunni. Hann, ráðgjafar hans og aðrir stuðn- ingsmenn óttast nú, að það sé ekki nóg. Bush virðist vera öruggur með sjálfan sig en líka ákaflega líf- laus. Hann endurtekur sjálfan sig, flytur sitt mál í ræðuformi og lætur auðveldlega koma sér úr jafnvægi. Því oftar sem hann hefur komið fram, því meiri efa- semdir eru um þckkingu hans í ýmsum greinum, t.d. erlendum málefnum. Sumum finnst hann einfaldlega ekki nógu forsetaleg- ur og benda á, að játningar hans um sukksamt líferni á yngri ár- um og lélegar einkunnir í há- skóla sýni, að þarna sé fyrst og fremst á ferðinni pabbadrengur með nóg af peningum. Hristi af sér slenið Þriðja einvígi þeirra Bush og McCains fór fram í fyrrakvöld og þá var frammistaða hans miklu betri en áður. Aðstoðarmenn hans höfðu þá ráðlagt honum að tala meira um smáatriðin í stefnu sinni, t.d. hvað varðaði skatta, menntamál og hermál, til að kveða niður grunsemdir um, að hann skildi þessi mál ekki til hlít- ar. Tókst honum það nokkuð vel og McCain hafði þau orð um á eftir, að Bush hefði augljóslega dregið sfna lexíu af fyrstu tveim- ur umferðunum. l»phui|Kikhf>i, aiiyrlliiittOfaiÓlr, mid«t Ixuly middhort, ctinkn|t|nilluii Reebok SPA KUR Hótel Esja • Sími: 5881700 I
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.