Morgunblaðið - 15.12.1999, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 15.12.1999, Blaðsíða 32
32 r MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR „Skúffu- gallerí“ Morgunblaðið/Kristinn Sýningin í Hafnarhúsinu undirbúin. MYNDLIST F é I a g i ð í s I e n s k grafík /Ilafnarhúsinu VERK í SKÚFFUM ÝMSIR FÉLAGSMENN Opið fímintudaga til sunnudaga. kl. 14-18 til 19. desember. Aðgangur ókeypis. FÉLAGIÐ íslenzk grafík hefur opnað svonefnt, skúffugallerí, í húsa- kynnum sínum í Hafnarhúsinu, hafn- armegin. I tilefni þess hafa eigendur þessara smálisthúsa efnt til smá- myndasýningar í hinum litla en snotra sýningarsal. Mætti því ætla að starfsemi verkstæðisins væri komin á fullt skrið, en svo virðist þó ekki, því eftir er að koma skipulagi á aðgengi að pressunum. Grundvallaratriði sem hefur al- gjöran forgang á gi-ónum grafík- verkstæðum, auk þess að allir endar rekstrarfyrirkomulagsins skulu rækilega hnýttir saman. Þeir sem vinna á verkstæðinu hverju sinni eiga að geta gert það ótruflaðir með öllu, einkum af innrömmun og ann- arri hliðarstarfsemi sem koma graf- íkverkstæði lítið við. Þá má vísa til þess, að litósteinar félagsins virðast enn í geymslu (og notkun) í MHI, og þeir sem íyrir eru eru á þann veg raðað upp hver ofan á annan án þess að neitt sé á milli þeirra, að ég man ekki eftir að hafa séð slíkt fyrr. Vís- ast stranglega bannað og undariegt að nokkrum skuli láta sér detta þetta í hug, þarf ekki nema smákorn til að rispa yfirborðið. Eiga skiljanlega að vera reistir upp á endann og helst vera í þar til gerðum rekkum. Leiðinlegt að þurfa að benda á slík frumatriði í listdómi, en hjá því var ekki komist þar sem ábendingum hér um hefur ekki verið sinnt. Stóri draumurinn er grafíkverkstæði, þar sem menn ganga einbeittir og áhugsamir að alvarlegri vinnu, en komi ekki einungis í, kommersial, Tónleik- ar tónlist- arskóla Tónlistarskóli Reykjanesbæjar Tónleikar Tónlistarskóla Reykjanesbæjar verða í kvöld, miðvikudagskvöld, kl. 20, í Ytri-Njarðvíkurkirkju og kemur þar fram lúðrasveit skólans. A morgun, fimmtu- dag kl. 18 koma fram nem- endur söngdeildar og barna- kór. í Keflavíkurkirkju verða tónleikar strengjasveitar og gítarsamspilshópa föstudag- skvöldið 17. desember kl. 20. Laugardaginn 18. desember kl. 14 verða tónleikar í sal TR á Þórustíg og koma fram yngri nemdur Suzukideildar og í Ytri-Njarðvíkurkirkju kl. 16 koma fram eldri nemendur Suzukideildar. Nýi Tónlistar- skólinn Aðventutónleikar strengja- deildar verða í dag og á morgun, fímmtudag, kl. 19, báða dagana, í sal skólans, Grensásvegi 3. Jólatónleikar skólans verða kl. 18 föstudag- inn 17. desember. hugleiðingum á leið sinni með fram- leiðsluna í gjafavörugalleríin svo- nefndu. En kannski er slík hugsjón út úr myndinni, passé, í landi græðg- innar og stórmarkaðanna, glóru- lauss fyrirhyggjuleysis um leið... Skúffugalleríið minnir um sumt á það sem fínnst á öllum verkstæðum og nefnist, aririv, en í það ratar eitt eintak af öllum upplögum mynda sem þrykkt eru á staðnum. En graf- íkverkstæði eru einnig með sýning- ar, þótt helst kjósi þau að sjálf vinn- an á verkstæðunum beri uppi kostnaðinn, sem á einkum við um þau einkareknu. En sýningar þurfa líka sínar mörkuðu reglur og vit- ræna skipulag, þar sem fátt ef nokk- uð má út af bera. Þannig óraði mig ekki fyrir þeim möguleika að vera boðið til sýningar og um leið verða til að móðga ættingja og vini og fjölda fyrri kaupenda, sjálfur sá ég ekki boðskort á eigin sýningu fyrr en henni var að ljúka! En í því tilviki var minnst við sýningarnefnd að sakast sem skilaði sínu verki með bravúr. Þetta er sett fram hér, vegna þess að ef viðkomandi hafa ekki alla þræði í höndum sér má líkja þeim við mannahræður sbr. fuglahræður og eru dæmin um það alltof mörg hér í borg og helst þar sem síst skyldi... Smámyndasýningar eru erfiðar viðfangs og það hafa menn heldur betur fengið að kynnast á undan- förnum árum og er þessi ekki undan- tekning. Viðkomandi vinna þá verkin með sýningarnar í huga og vill þá út- koman verða eitthvað svo tilbúin, óupplifuð og stöðluð. í flestum tilfell- um eru gerendur að vinna langt und- ir getu, safna ekki skissum eða riss- um sem þeir eiga á lager heldur búa til myndir eftir einhverri ákveðinni forskrift, gefinni línu og markaðri stærð, í flestum tilvikum rétt fyrir framninginn. Þessi er lítil undan- tekning þótt finna megi frambæri- lega hluti, en þá skal vel skoðað og leitast við að hugsa einstakar myndir í öðru umhverfi. Þannig eru myndir nær allra í sjálfum skúffunum allt annar hand- Lit- brigði MYJVDLIST S ó I v a 11 a g a l a 1, vinnustofa MYNDVERK ÓLÖF KJARAN Opið alla daga frá kl. 14-18. Til 19. desember. Aðgangur ókeypis. VINNUSTOFUSÝNINGAR eru full fátíðar hér í borg og kannski ættu listamenn að taka sig saman og opna þær almenningi einu sinni á ári eins og gert er víða erlendis, hafa sérstakan vinnustofudag. All- ir þeir sem hafa áhuga og sjá sér það fært. í millitíðinni verða menn einfaldlega að láta sér nægja fram- tak einstakra, og ég hef tekið eftir því að áhugi er drjúgur, hef sjálfur mjög góða reynslu af því, þótt sýnu meira mál sé að fremja slíkan gjörning í fjölbýlishúsi. Ber að koma til móts við áhuga fólks í þessum efnum, því upplýstur al- menningur er helstur bandamaður listamanna. Ólöf Kjaran er ein af þeim mörgu konum sem undanfarna áratugi hafa sest í myndlistarskóla á miðjum aldri, útskrifaðist úr málunardeild MHÍ 1996, hefur verið vel virk síðan og haldið eina sjálfstæða sýningu í listhúsinu leggur, hvað vinnubrögð og listræn- an metnað snertir. Og þá eru menn komnir að mikilvægasta þættinum, sem er að skúffugalleríið opnar gest- umog gangandi möguleika á að nálg- ast úrval verka viðkomandi lista- manna milliliðalaust. En að vekja athygli á framtakinu með snotuiri en metnaðarlítilli sýningu var ekki far- Fold. Eðlilega til muna erfiðara fyrir fullþroska fólk að setjast á skólabekk í skapandi atriðum, einkum ef það er ekki gætt nævskri kennd, en þá á það raunar helst ekki að koma nálægt skólum. sælasta leiðin. Engu að síður skal fólk hvatt til að mæta á staðinn og kynna sér fyrirkomulagið, sem er al- veg nýr flötur í grafíkmiðlun á landi hér. Væri því æskilegt að sem flestir njótendur myndlistai- gæfu framtak- inu gaum. Fullþroska fólk þarf nokkra sér- þjálfun og ber að halda því ræki- lega við efnið, gera hér fáir kenn- arar sama gagn og margir ógagn. Það er einfaldlega lengur að til- einka sér hlutina en unga fólkið, Nýjar plötur • HVAR sem sólin skín er með 13 lögum Gunn- ars Thoroddsen í flutningi Björns Thoroddsen. Dr. Gunnar Thoroddsen (1910-1983) var aðeins fimm ára er hann hóf að læra á píanó með því að fýlgjast með tónlistar- kennslu eldri systkina sinna. Þegar hann stálpaðist naut hann frekari leiðsagnar og var um tíma í orgelnámi hjá Páli ísólfssyni. Snemma komu í ljós hæfileikar hans til tónsmíða og eru elstu lagasmíðar hans frá 1930 er hann stóð á tvítugu. Björn Thoroddsen hefur nú tek- ið lög Gunnars frænda síns og út- sett þau í nýjum búningi. Björn fékk aðgang að nótum, skissum og gömlum upptökum sem Gunnar skildi eftir sig og valdi lögin með það í huga að þau yrðu einvörð- ungu leikin þó að mörg væru þau samin sem sönglög og nokkur færð í djassbúning. Útgefandi er Vaka-Helgafell. Verð: 1.990 kr. Málverka- sýning- á gallery.is HELGI Hálfdánarson sýnir olíumálverk í Gallery.is á Skólavörðustíg 21 a og undir á slóðinni www.gallery.is á vefnum. Helgi hefur áður haldið nokkrar sýningar, en er núkominn með fastan sýning- arstað á vefnum. Sá staður býður einnig upp á möguleika á samsýningu með öðrum, segir í fréttatilkynningu. svona líkt og tölvukyn- slóðin lærir það strax sem hinir eldri verða að tileinka sér stig af stigi, er beinlínis fætt inn í tækniheiminn. Kemur þar fram hin undursam- lega hæfni mannsins til aðlögunar. Ólöf er nátt- úrubarn hvað litameð- ferð snertir, sem enn er sterkasta hlið hennar, hins vegar er burðar- grind verkanna meira mál en hún ræður jafn- aðarlega við, sem ber vott um að grunnþjálfun hafi verið nokkuð laus í reipum. Þetta eru nefni- lega atriði sem menn geta tileinkað sér eins og að læra að lesa, og það tekur mislangan tíma eins og margur veit. Loks er vandinn mestur að gæða mynd- flötinn listrænum neista, og það verður ekki kennt. Gagnsæi lita er helst- ur styrkur Ólafar, og kemur það til muna best fram í vatnslita- myndunum í þriðja sal. Þar kemst hún næst hinum dýpri lífæðum myndflatarins um leið og mesta öryggisins gætir, litaflæðið létt og leikandi. Anægja listakonunnar af hand- verkinu, sjálfri meðhöndlan pent- skúfsins og snertifleti hans eins og skín út úr þessum myndum. Bragi Asgeirsson Bragi Ásgeirsson Ljósmynd/Bragi Ásgeirsson Uppstilling, vatnslitir, 1999. Björn Thoroddsen Gunnar Thoroddsen
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.