Morgunblaðið - 15.12.1999, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 1999 35
www.saa.is
auglýsing
Fréttir
SÁÁ - Samtök áhugafólks um áfengis- og vímuefnavandann - Ármúla 18 - 108 Reykjavík
Sími 530 7600 - 9. tbl. 15. desember 1999 - Ábyrgðarmaður Theódór S. Halldórsson
www.saa.is
auglýsing
■ Margrét Halldórsdóttir sálfræðingur hjá SÁÁ:
Frá kvíða, niðurlægingu
og vanlíðan til betra lífs
Stutt viðtal við önnum kafinn sálfræðing
„Ein stúlka kemur til mín í stuðningsviðtöl einu sinni í mánuði austan af
landi ogþað er rösklega gert" segir Margrét Halldórsdóttir sálfræðingur.
Margar starfsstéttir koma að
áfengi8- ogvímuefnameðferð hjá
SÁÁ og má nefha lækna, hjúkrun-
arfólk, ráðgjafa og sálfræðinga
sem í sameiningu byggja upp þau
meðferðarúrræði sem í boði eru
hjá samtökunum. Fyrir um það bil
einu ári tók Margrét Halldórs-
dóttir sálfræðingur til starfa hjá
SÁA en hún starfar á Sjúkrahúsinu
Vogi, Meðferðarheimilinu Vík á
Kjalarnesi og á Göngudeild SÁA í
Síðumúla.
„Mér finnst það ákaflega mikill kostur
við starf mitt að ég skuli geta fylgt skjól-
stæðingum mínum svona lengi eftir,"
sagði Margrét í stuttu spjalli við SÁA
Fréttir. „Éghitti fólkið fyrst þegar það
er í afeitrun á Sjúkrahúsinu Vogi, fylgi
því síðan eftir á Vík og get að auki veitt
því stuðning í eftirmeðferð á Göngu-
deildinni í Síðumúla og sumir skjól-
stæðinga minna koma til mín frá sam-
býlum SÁA og einnig frá Dyngjunni.
Það getur verið erfitt fyrir skjólstæð-
ingí áfengis- eða vímuefnameðferð að
vera sífellt að hitta nýja leiðbeinendur
eftir þvi sem líður á meðferðina og þess
vegna mjöggott að sami aðili geti fylgt
ákveðnum einstaklingum svo að segja
frá upphafi til enda meðferðar. Ég veit
ekki til að þetta sé hægt annars staðar.
Lítið brottfall - mikil
ábyrgðartilfinning
Margir af mínum skjólstæðingum eru
ungar stúlkur eða ungar konur sem hafa
gengið í gegnum margvíslega og erfiða
reynslu í neyslunni, oft erfiða kynferð -
isreynslu eða einhverjar vondar upplif-
anir sem er erfitt eða ómögulegt að
ræða í grúppu eða hópvinnu. Ég reyni
að sinna þessum stúlkum með ein-
staklingsmeðferð ogviðtölum. Tengsl-
in milli þeirra og mín hefjast hérna á
Vogi og lýkur þegar þær enda stuðn-
ingsmeðferð á Göngudeild. Það hefur
komið mér mjög á óvart hversu brottfall
er lítið úr Göngudeildarmeðferðinni
og hvað stúlkurnar sýna mikla ábyrgð -
artilfinningu gagnvart þeirri vinnu sem
þær eru að reyna að leysa af hendi. Ég
held að mæting þeirra í viðtöl og
ábyrgðartilfinningþeirra sé síst minni
heldur en gengur og gerist hjá skjól-
stæðingum sálfræðinga — og þá heldur
meiri ef eitthvað er. Ein stúlka sem býr
austur á landi kemur til mín í stuðn-
ingsviðtöl einu sinni í mánuði og það
finnst mér rösklega gert.”
Þrjá daga í viku starfar Margrét á
SjúkrahÚ8Ínu Vogi.
„Á Vogi myndast tengslin við skjól-
stæðingana. Það er ekki svo að allar
konur sem til okkar koma hafi þörf fyrir
sérstaka sálfræðimeðferð enda mundi
ég ekki anna því og að auki eru skjól-
stæðingar mínir ekki eingöngu konur
heldur einnig karlar á ýmsum aldri.
Fyrir utan viðtölin á Vogi sinni ég þar
lika greiningarvinnu ýmiss konar svo
semgeðrænu mati oggreindarmati. Því
miður er það ekki óalgengt að ungt fólk
sé svo skert vitsmunalega af mikilli
vímuefnaneyslu að það þurfi að meta
hæfni viðkomandi til að hafa gagn af
því að fara í gegnum meðferð."
Einn dag vikunnar starfar Margrét á
Meðferðarheimilinu Vík sem SAÁ
rekur á Kjalarnesi. Þar flytur hún
fyrirlestur sem fyallar um kvíða og
leggur einnigsérstaka áherslu á nokk-
urs konar einstaklingsmeðferð, það
er að segja viðtöl við konur eða stúlk-
ur undir tvítugu.
Og einn dag í viku starfar Margrét í
Göngudeild SÁÁ í Siðumúla.
Geta haft stjórn
á eigin líffi
„Á Göngudeildinni fæst ég einnig við
aðstandendaviðtöl," segir Margrét, „en
það eru viðtöl við aðstandendur fólks
sem farið hefur í meðferð. Margir
aðstandendur, kannski einkum makar.
þurfa mjög á viðtölum að halda til að
átta sig á þeirri stöðu sem skyndilega
er komin upp þegar mótaðilinn er
skyndilega farinn að reyna að breyta
lífsmunstri sínu. Þessir aðstandendur
sumir hverjir eru mjög illa farnir af
langvarandi meðvirkni og ráðleysi.
Þessi vinna með aðstandendum finnst
mér mjög gefandi í mörgum tilvikum,"
heldur Margrét áfram, „ekki síst þegar
það fer að renna upp fyrir meðvirkum
aðstandendum að þeir bæði þurfa og
geta tekið eigin ákvarðanir og ráðið
sínueiginlífi."
Margrét Halldórsdóttir lauk BA- prófi
í sálfræði frá Háskóla Islands árið
1981 oghélt siðan til Noregs til fram-
haldsnáms og lauk embættisprófi í
sálfræði frá Háskólanum í Osló árið
1984. Margrét starfaði síðan í a ár í
Noregi sem skólasálfræðingur, fyrir-
tælqasálfræðingur ogað fyölskyldu-
ráðgjöf. Hún fluttist aftur til Islands
ogtók til starfa sem sálfræðingur hjá
Ungiingaheimili rildsins í nóvember
1986 ogá Göngudeild 1986 til 1994
og síðan á Geðsviði Borgarspítalans
í 4 ár oghætti þar umáramót 1998-
1999 enþarstarfaðihúnm.a. íneyð-
armóttöku vegna nauðgunarmála í 3
ár. Ogaukþessahefur Margrétunnið
síðan árið 1993 á vegum Styrktar-
félags krabbameinssjúkra barna.
„Það erumiklarannirhjáméristarfinu
hjá SAÁ," segir Margrét. „Það er svo að
segja hver mínúta fullbókuð og skipu-
lögð fram að jólum að ekki sé meira
sagt. En þessu starfi fylgir sú umbun að
fá að fylgjast með skjólstæðingum sem
taka verulegum stakkaskiptum og feta
sig hægt og bítandi frá kvíða, niður-
læginguogvanlíðantilbetralífs." □
V
Nú nálgastjól og aldamöt og í því tilefni senda Samtök áhugafólks um áfengis- ogvímuefnavandann
öllum skjólstæðingum.félagsmönnum, starfsmönnum, vinum og velunnurum samtakanna bestu óskir
um gleðilega jólahátíð oggott ogfarsælt komandi ár og gifturíka tíma í upphafi nýrrar aldar.
Við hlökkum til jólahátíðarinnar og vonum að starf samtaka okkar á síðustu áratugum þeirrar aldar
sem nú er að líða hafi stuðlað að því að sönn jólagleðifái að ríkja á sem flestum heimilum i landinu.
Fiá hlökkum sérstaklega til nýársdags árið 2000 en á þessumfyrsta degi nýrrar aldar og nýs árþúsunds
ætlum við að vigja ogtaka í notkun langþráða unglingadeild við Sjúkrahúsið Vog, glæsilega sjúkrahúsdeild
þar sem við vonumst til að geta veitt,, aldamótakynslóðinni" okkargóða aðhlpmingu og stuðning til
þess að takast á við alvarlegasta sjúkdóm sem herjar á ungtfólk á okkar tímum, áfengis- og vímuefna-
vandann.
Viðþökkum Islenskuþjóðinnifyrirþannfrábæra stuðning sem hún hefur veitt okkur á þeirrí öld sem nú
erað líða ogþökkum sérstaklega liðið ár. Meðykkarstuðningi hefur okkur tekist að lyfta Grettistaki og
meðykkar stuðningi munum við halda áfram baráttu okkar og setja takmarkið sifellt hærra.
Við þökkumAlþingi lslendinga ogRíkisstjómfyrirskilningogliðveislu við hugsjónamál okkarí baráttunni
við áfengis- og vímuefnavandann.
Við óskum íslendingum öllum gleðilegra jóla og Guðs blessunar.
Stjóm Samtaka áhugaíólks um áfengis- ogvímuefnavandaim
Fyrir alla fjölskylduna:
Jólaball
aldarinnar
í Ráðhúsinu
SÁÁ heldur sfðasta og glæsilegasta
jólaball 20. aldarlnnar á fjórða dag jóla,
28. desember kl. 17.00 í Ráðhúsi
Reykjavíkur og er aðgangur ókeypis
fyrir börn og fjölskyldur SÁÁ fólks og
vina og velunnara samtakanna. Það
er ráðlegt að tryggja sér (ókeypis)
miða á jólaballið með góðum fyrirvara.
Tommi og Þorleifur sem hafa borið hit-
ann og þungann af skipulagi þessa
mikla jólafagnaðar verjast allra frétta
um skemmtiatriði en segja þó aö stefnt
sé aö því aö á þessu jólaballi verði
fleiri og meiri jólasveinar en áður eru
dæmi um að hafi verið samankomnir
á einu jólaballi. Þarna verða á ferðinni
meðal annarra: Andrés Sigurvinsson,
Kertasníkir, Ellen Kristjáns, Jakob Jóns-
son, Hurðaskellir, Grétar Örvarsson,
Bjarni Ara, Bjúgnakrækir, Hemmi Gunn,
Pétur Pókus, Gluggagægir, Eyþór Gunn-
arsson, Jóhann Ásmundsson, Stekkja-
staur, Land og synir, Sigfús Óttarsson,
Giljagaur, KK, Rúnar Júlíusson, Stúfur,
Pottasleikir, Gunnar Ólafsson í Skíta-
móral og fleiri jólasveinar og jólameyjar
eins og húsrúm leyfir.
9 eða 13 eða 30.000?
Hvað eru
jólasveinarnir
margir?
SÁÁ bíður eftir liðveislu frá 30.000
jólasveinum. Það er útbreidd skoðun
að jólasveinarnir séu 9 eða 13 talsins
og búi í Esjunni og leggi af stað til
byggða 13 dögum fyrir jól. Það kann
því að hljóma eins og ýkjusaga að SÁÁ
bíður nú eftir allmörgum jólasveinum,
nánar tiltekiö um 30.000, sem eru á
leið til landsins og spurðist síðast til
þeirra í Kúala Lúmpúr í gær. Þessir
ágætu jólasveinar eru á leið til (slands
til að leggja SÁÁ lið í baráttunni gegn
áfengis- og vimuefnavandanum.
Þannig er að á hverju ári þarf SÁÁ að
afla milli 50 og 60 milljón króna með
frjálsum fjárframlögum frá almenningi
til að standa undir rekstri sjúkrastofn-
ana SÁÁ sem sinna á þriðja þúsund
skjólstæðingum á hverju ári. SÁÁ-
Álfurinn hefur verið duglegur við að
atla SÁÁ nauðsynlegra tekna á undan-
förnum árum en vegna mikilla fram-
kvæmda við nýbyggingu yfir ungl-
ingadeildina og nýja göngudeild við
Sjúkrahúsið Vog er þörf á sérstöku
fjáröflunarátaki til viðbótar á þessu
sfðasta ári aldarinnar. 30.000 Jóla-
sveinar gáfu sig fram til að leggja
samtökunum lið og eru nú á leiðinni til
landsins og ná vonandi hingað fyrir jól.
SÁÁ-fólk mun selja þessa litlu jólasveina
síðustu dagana fyrir hátiðarnar og er
það von okkar að hinir langt að komnu
SÁÁ-jólasveinar verði aufúsugestir á
heimilum landsmanna um hátíðarnar
rétt eins og gömlu, góðu jólasveinarnir.