Morgunblaðið - 15.12.1999, Síða 53

Morgunblaðið - 15.12.1999, Síða 53
f MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 1999 53 UMRÆÐAN Rarik - það er ég - Opið bréf til Hvergerðinga MIKLAR umræður hafa farið fram í Hveragerði að undan- förnu og reyndar í öll- um fjölmiðlum lands- ins hvort selja eigi Rafveitu Hveragerðis. Um þetta mál eru skiptar skoðanir og jafnframt ljóst, að á meðal kjörinna fulltrúa í bæjarstjórn er meiri- hluti fyrir sölu rafveit- unnar. Sá er þessar línur ritar er hins veg- ar þeirrar skoðunar að sala rafveitunnar byggist á lítið ígrund- uðum skammtímasjón- Knútur Bruun armiðum og sé vond hagfræði fyrir íbúa Hveragerðis til lengri tíma lit- ið. Öllum ber saman um að af- greiðsla þessa máls í bæjarstjórn Hveragerðis varðar hvern einasta íbúa bæjarins og hefur mikil áhrif á fjárhagsstöðu allra heimila og fyrir- tækja í bæjarfélaginu. Eðlilegt hefði því verið að boða til borg- ara8fundar um málið en meirihlut- inn ákvað þess í stað að ræða málið og afgreiða á lokuðum bæjai-stjórn- arfundi. Hvaða feimnismál liggja að baki þeirrar ákvörðunar getur meirihlutinn einn svarað. Og meh’i- hlutinn ræður og hann hefur sagt: „Rarik - það er ég.“ En víkjum nú að annarri hlið málsins. I bæjarstjórn Hveragerðis sitja sjö kjörnir fulltrúar sem er ætlað það hlutverk samkvæmt leik- reglum lýðræðisins og settum lög- um að gæta sameigin- legra hagsmuna bæjar- búa, taka ákvarðanir í öllum málum er varða stjóm bæjarins og leggja embættismönn- um þær línur sem þeir eiga að vinna eftir. Rík- ar siðferðiskröfur verð- ur að gera til þessara fulltrúa, einatt eiga þeir að víkja sérhags- munum til hliðai' og ætíð að starfa með heildarhagsmuni fyrir augum eða eins og stendur í sveitarstjóm- arlögum að gegna störfum af alúð og sam- viskusemi. Hvaða skilning sveitar- stjómarmenn leggja svo í þessi hugtök verða þeir að gera upp við sig sjálfir og miða þá m.a. við sið- ferðislegar grundvallarreglur sem gilda um viðskipti manna á milli og taka til allra stjórnvalda og þegna í þjóðfélaginu. Og nú kemur að tilefni þess að þetta opna bréf er ritað. A lokuðum fundi í bæjarstjórn Hveragerðis á fullveldisdaginn 1. desember sl. var eitt mál til um- ræðu og afgreiðslu, sala Rafveitu Hveragerðis til Rarik. Fundur þessi stóð í rúmar þrjár klukku- stundir með löngum og erfiðum hléum fyrir meirihlutann en fyrir fundinn var búið að taka ákvörðun um sölu rafveitunnar til Rarik burt- séð frá hagsmunum íbúa bæjarins og hagstæðari tilboðum frá öðram orkufyrirtækjum. Rarik-tilboðið FIX , ra+%cé/ Tegund: 340 og 390 Litir: Svart, brúnt, bordo Stærðir: 40-48 Verð frá kr. 4.495 DOMUS MEDICA við Snorrobraut • Reykjovik Sími 551 8519 STEINAR WAAGE SKÓVERSLUN KRINGLAN Kringlonni 8-12 • Reykjavik Sími 5689212 Póstsendum samdægurs - 5% staðgreiðsluafsláttur Reykvíkingar Munið borgarstjórnarfundinn á morgun kl. 13.00. Borgarbúar velkomnir í Ráðhúsið. Á dagskrá er m.a. seinni umræða og afgreiðsla fjárhagsáætlunar Reykjavíkurborgar fyrir árið 2000. Útvarpað verður á Nær flðfflKItpi Reykjavíkurborg Skrifstofa borgarstjórnar Raforkuverð Allar almennar við- skiptareglur hafa verið brotnar í þessu máli, segir Knutur Bruun, og það gefur sterklega til kynna að hér sé á ferðinni eitthvað sem þolir ekki dagsins ljós. var eina tilboðið sem hafði í för með sér hækkun raforkutaxta til allra íbúa og fyrirtækja í Hveragerði. Og allt kom fyrir ekki, enda þótt inn á fundinn bærast bréf frá tveimur orkufyrirtækjum sem vora hag- stæðari en Rariktilboðið og án hækkunar á raforkutöxtum varð meirihlutanum ekki haggað. Rarik skyldi það vera. I lok fundarins lét bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins m.a. bóka „Bæjarmálafélag Hveragerðis er greinilega hagsmunafélag fárra út- valinna, ekki heildarinnar.“ Horfum nú aðeins til undirbún- ings málsins og aðdraganda. Bæjaryfirvöld í Hveragerði kalla eftir tilboðum í kaup á rafveitunni og þrjú orkufyrirtæki skila inn sundurgreindum tilboðum með kaupverðsupphæðum og orku- taxtatilboðum. Rarik gerir ekki tilboð en lýsir yfir áhuga á viðræð- um og hefði því eftir öllum við- skiptai’eglum átt að vera úr leik. Eftir að tilboð lágu fyrir og höfðu verið opnuð að viðstöddum fulltrú- um bæjaryfirvalda og tilboðsgjafa var haldinn fundur með fulltrúum Rarik, sem síðan afhentu kauptil- boð eilítið hærra í krónutölu en til- boð annarra tilboðsgjafa en jafn- framt eina tilboðið með hækkun raforkuverðs. Allar almennar viðskiptareglur hafa verið brotnar í þessu máli og það gefur sterklega til kynna að hér sé á ferðinni eitthvað sem þolir ekki dagsins ljós. Ákall bæjaryfir- valda til orkufyrirtækja um tilboð í Rafveitu Hveragerðis er óheiðar- legur leikfarsi þar sem tilboðsgjaf- ar sitja ekki við sama borð. Fyrir- fram er búið að ganga frá sölunni til Rarik sem eitt tilboðsgjafa fær í hendur tilboð hinna og er síðan leyft að stinga inn síðbúnu tilboði með leyfi viðkomandi ráðuneytis. Skyldi það ráðuneyti hafa gert sér grein fyrir viðskiptasiðferðinu í þessu máli. En hver skyldu svo verða eftir- mál þessara makalausu viðskipta ef þau verða að veraleika. Hvað Hvergerðinga varðar þýða samningar við Rarik hærra raf- orkuverð til heimila og fyrirtækja miðað við að tekið hefði verið til- boðum einhverra hinna þriggja orkufyrirtækjanna sem hefðu skil- að af sér sömu krónutölu í bæjar- kassann. Óneitanlega vaknar spurning um hverra erinda er verið að ganga með þessum samningum. Pegar málið kemur til kasta Al*’’ þingis, fær Rarik þá aukafjárveit- ingu upp á 215 milljónir úr ríkis- sjóði til þess að kaupa Rafveitu Hveragerðis í óheiðarlegri sam- keppni við önnur orkufyrirtæki I landinu? Fari slík fjárveiting í gegn verða alþingismenn að gleyma jafn- ræðisreglunni, heiðarleika í útboðs- málum og nýjum veraleika á sviði orkumála í íslensku þjóðfélagi. Allra efst trónir sú spurning sem tíminn einn getur svarað - ef henni yfirleitt verður einhvern tímann svarað. Hvers vegna er Bæjarmálafélag- ið í Hveragerði Rarik? Eða eins og lagt var í munn eins bæjarfulltrúa þeirra: „Rarik - það er ég.“ Höfundur er bæjarfulltrúi í Hveragerði. SNYRTISTOFAN GUERLAIN Óðinsgötu 1 s:562 3220 V7ww.guerlain. is vertu í sam iandi um jóiin jólatilboð á símum NOKIA321Q Hallarmúla 2 • Sími 5Ó0 2060 og 540 2078 4-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.