Morgunblaðið - 15.12.1999, Side 57
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 1999 57
BÓKARKAFLI
bjarga ekki móður þinni í misgrip-
um fyrir fánann!
Þessum orðum laust niður í 14
ára kollinn með þvílíkum krafti að
allar viðmiðanir í hugarheimi
Johan Martin jr. skekktust. Jún-
íorinn var alveg fyi'ii'varalaust
kominn undir sjónarhorn
kirkjunnar og eilífðarinnar. Hann
stóð nú nær vitstola þarna í þessu
brennandi helvíti og tók umsvifa-
laust mannslíf fram yfir sigursæl-
an og ginnheilagan silkifána ættar-
innar.
Johan Martin Fleichdeck jr.
sagðist síðar svo frá, að hann hefði
brugðist því mikilvægasta hér í
heimi, aganum, ættarsómanum,
hugsjóninni, sjálfum fánanum.
Skömmin hvíldi á herðum hans
þyngri en svo að hann fengi risið
undir henni til lengdar. 10 árum
síðar hengdi hann sig í orðubandi
stórriddarakrossins og ættin logn-
aðist út af.
Karamellur gegn málæði
[...] Samkvæmt þingsköpum er
það réttur einstakra þingmanna að
hamla með maraþonræðum gegn
flýtimeðferð á fi-umvörpum sem
stríða gegn réttlætiskennd þeirra.
En í slíkum málum sem öðrum er
oftar en ekki til krókur á móti
bragði. Ég er ekki að leggja til við
þingforseta að hann útbýti tyggi-
gúmmíi sem varnaraðgerð, mér
hrýs hugur við tilhugsuninni einni
saman, samanber það sem segir í
ljóði Jónasar Svafár: “...meðan
varir mínar sóru/ mættust tennur/
þær fóru tryllt í talandi húmi í tog-
leðursgúmí.
Um karamellur gegnir allt öðru
máli. Eitt sinn voru þeir þing-
mennirnir Karl Guðjónsson, Al-
þýðubandalagi, og Jón Pálmason
frá Akri, Sjálfstæðisflokki, harð-
vítugir andstæðingar í afstöðu
sinni til frumvarps, og þegar það
var til þriðju og síðustu umræðu í
þingsal og komið að Jóni á mæl-
endaskrá, þá vantaði Jón í salinn
og Karli var skemmt, en óþol í
þingforseta að vonum, og gerði
hann með hraði þingvörð út af örk-
inni að gera dauðaleit að Akur-
bónda. Þingvörður fann loks Jón á
snyi'tingu karla álútan yfir vaski
og með fíngurna uppí sér.
„Eruð þér veikir, Jón?“ spurði
þingvörður samúðarfullur.
„Nei,“ hvæsti Jón. „Helvítið
hann Karl Guðjónsson gaf mér
karamellu!“ [...]
Safnaðarstarf
Jólatónleikar í
Fíladelfíu
í KVÖLD verða haldnir árlegir
jólatónleikar í Ffladelfíu til styrkt-
ar þeim sem minna mega sín í
þjóðfélaginu. Það verður mikil og
fjölbreytt dagskrá, m.a. kemur
fram lofgjörðarhópur Fíladelfíu
ásamt einsöngvurum og hljóðfæra-
leikurum og nýstofnaður sönghóp-
ur mun flytja syrpu af jólalögum.
Flutt verður stutt jólahugvekja og
í lokin tendi'um við jólakerti og
syngjum saman. Aðgangur er
ókeypis en tekinn verða samskot
sem renna óskipt til þessa málefn-
is.
Tónleikarnir hefjast kl. 20 og
það eru allir velkomnir meðan hús-
rúm leyfir.
Opinberun Jóhannesar í
Hallgrímskirkju
I dag, miðvikudaginn 15. des.,
verður síðasti Biblíulesturinn fyrir
jól, en nú lesum við Opinberunar-
bók Jóhannesar með hliðsjón af
Listsýningu Leifs Breiðfjörðs í for-
kirkjunni, en myndir hans þar eru
allar við texta úr Opinberunarbók-
inni. Biblíulesturinn hefst kl. 20, en
að honum loknum eða kl. 21 er
sunginn náttsöngur í kirkjunni.
Bústaðakirkja. Félagsstarf aldr-
aðra í dag kl. 13.30.
Dómkirkjan. Samvera fyrir
mæður með ung börn kl. 10.30-12 í
safnaðarheimilinu. Hádegisbænir
kl. 12.10 í safnaðarheimilinu.
Orgelleikur á undan. Léttur máls-
verður á eftir.
Grensáskirkja. Jólasamvera
eldri borgara hefst kl. 12.10 með
helgistund í kirkjunni. Jólamatur í
safnaðarheimili. Þar les sr. Jón
Bjarman úr nýútkominni ævisögu
sinni. Starf fyrir 10-12 ára börn kl.
17. Unglingastarf kl. 20.
Hallgrímskirkja. Opið hús fyrir
foreldra ungra barna kl. 10-12.
Fræðsla: Svefn og svefnvandamál.
Sesselja Guðmundsdóttir, hjúkrun-
arfræðingur. Jólatónleikar Tón-
skóla þjóðkirkjunnar kl. 18. Biblíu-
fræðsla um Opinberunarbók
Jóhannesar kl. 20-21. Náttsöngur
kl. 21.
Háteigskirkja. Kvöldbænir og
fyrirbænir kl. 18.
Langholtskirkja. Starf eldri
KIRKJUSTARF
borgara í dag kl. 13-17. Spil, lest-
ur, handavinna. Kaffí og meðlæti
kl. 15. Djákni flytur hugvekju.
Söngstund undir stjórn Jóns
Stefánssonar organista.
Laugarneskirkja. Kirkjuprakk-
arar kl. 14.30. Starf fyrir 7-9 ára
börn. Jólafundur. TTT kl. 16. Starf
fyrir 10-12 ára börn. Jólafundur.
Aðventugleði kl. 20 í matsalnum á
9. hæð í Hátúni 10 með Þorvaldi
Halldórssyni, Margréti Scheving,
Guðrúnu K. Þórsdóttur, djákna og
sr. Bjarna Karlssyni og ýmsum
íbúum hússins og starfsfólki ÖBÍ.
Mætum sem ílest.
Neskirkja. Mömmumorgunn kl.
10-12. Jólagleði. Biblíulestur kl. 16.
Fílemonsbréfíð lesið. Kaffíveiting-
ai’. Opið hús kl. 17. Baldur Sveins-
son annast efnið. Bænamessa kl.
18.05. Sr. Frank M. Halldórsson.
Seltjarnarneskirkja. Kyrrðar-
stund kl. 12. Söngur, altarisganga,
fyrirbænir. Léttur hádegisverður í
safnaðarheimilinu. Starf fyrir 11-
12 ára börn kl. 17-18.15.
Árbæjarkirkja. Félagsstarf aldr-
aðra. Opið hús í dag kl. 13.30-16.
Handavinna og spil. Fyrirbæna-
guðsþjónusta kl. 16. Bænarefnum
er hægt að koma til presta safnað-
arins.
Breiðholtskirkja. Kyrrðarstund
kl. 12.10. Tónlist, altarisganga, fyr-
irbænir. Léttur málsverður í safn-
aðarheimilinu á eftir. Kirkjuprakk-
arar, starf fyrir 7-9 ára börn kl. 16.
Digraneskirkja. Unglingastarf á
vegum KFUM & K og Digra-
neskirkju kl. 20.
Grafarvogskirkja. Kirkjukrakk-
ar í Engjaskóla kl. 17-18 fyrir 7-9
ára börn. Æskulýðsstarf fyrir ungl-
inga í 8., 9. og 10. bekk kl. 20-22 í
Engjaskóla.
Hjallakirkja. Fjölskyldumorgnar
kl. 10-12. Starf fyrir 10-12 ára kl.
17.
Seljakirkja. Kyrrðar- og bæna-
stund í dag kl. 18. Beðið fyrir sjúk-
um, allir velkomnir. Léttur kvöld-
verður að stund lokinni. Tekið á
móti fyrirbænaefnum í kirkjunni
og í slma 567 0110.
Víðistaðakirkja. Opið hús fyrir
eldri borgara kl. 14-16.30. Helgi-
stund, spil og kaffi.
Vídalínskirkja. Foreldramorg-
unn kl. 10-12.
Hafnarfjarðarkirkja. Kyrrðar-
stund kl. 12. Hugleiðing, altaris-
ganga, fyrirbænir, léttur málsverð-
ur á eftir í Ljósbroti, Strandbergi
kl. 13.
Þorlákskirkja. Mömmumorgnar
á miðvikudögum kl. 10. Sóknar-
prestur.
Landakirkja, Vestmannaeyjum.
Kl. 20 opið hús hjá æskulýðsfélag-
inu í KFUM & K húsinu.
Kletturinn, kristið samfélag.
Bænastund kl. 20. Allir velkomnir.
Ffladelfía. Jólatónleikar kl. 20.
Fram kemur lofgjörðarhópurinn
ásamt einsöngvurum. Aðgangur er
ókeypis en tekin verða samskot til
styrktar þeim sem minna mega sín
um jólin. Allir hjartanlega vel-
komnir.
Húlaneskirkja, Skagaströnd. Kl.
12 bæn og súpa. Allir velkomnir.
★náttserkir
★náttfatnaöur
★boxer ★sloppar
a ★inniskór
I__k rympía.
Kringlunni 8-12, 553 3600
SígDesoa |élai|»
— eoaMwe aw euw
Síðustu ár hefur skátahreyfingin selt sígraen
eðaltré, í hcesta gæðafiokki og prýða þau nú
mörg hundruð íslensk heimili.
** / 0 ára ábyrgð s* Eldtraust
í*- 12 stærðir, 90 - 500 cm t*. Þarfekki að vökva
** Stálfótur fylgir t* íslenskar leiðbeiningar
í* Ekkert barr að ryksuga i* Traustur söluaðili
<■»■ Truflar ekki stofublómin <* Skynsamleg fjárfesting
Bandalag íslenskra skóta
Afl til að breytast
Athyglisverö bók sem minnir mann
á aö þaö er þrennt sem skiptir höfuö
máli til aö ná árangri í lífinu; skipulag,
sjálfsagi og markmið .
Linda Pétursdóttir
HVÍTTMIIT
honnun | C8%Prenlun
Breyttu hugsun þinni - breyttu líkama þínum - breyttu lífi þínu
SPACE'
SAVER
Hægt að legg-
|a saman
Mikið úrval göngu- og hlaupabrauta ásamt mesta úrvali landsins
af allskyns þrek- og æfingatækjum. Aðeins topp-merki.
WE5LO
CADENCE 935EX
Rafdrifin göngu- og hlaupabraut
Hraði 0-13 km/klst.
Fjaðrandi bretti sem minnkar álag á liðamót.
Einfaldur hæöarstillir, vandaður tölvumælir,
statíf fyrir vatnsbrúsa og handklæði.
Hægt að leggja saman og því hentug
fyrir heimili og vinnustaði.
Stgr. 108.370,
kr. 114.073.
Stærö: L 144 x br. 70 x h. 133 cm.
r r 1
ÖRNINNP*
STOFNAÐ1925
- ÞREKTÆKJADEILD -
Skeifan 11, sími 588 9890
<
>