Morgunblaðið - 15.12.1999, Qupperneq 60

Morgunblaðið - 15.12.1999, Qupperneq 60
MORGUNBLAÐIÐ . 60 MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 1999 MINNINGAR GUÐFINNA ÓLAFÍA SIG URBJÖRG EINARSDÓTTIR + Guðfinna Ólafía (Lóa) Sígurbjörg Einarsdóttir fæddist að Deild á Alftanesi 26. febrúar 1913, en fluttist með Qöl- skyldu sinni til Hafnarfjarðar tveggja ára að aldri , og bjó þar eftir það. Hún lést á Hrafnistu í Hafnarfírði hinn 5. desember síðastlið- inn. Foreldrar henn- ar voru Einar Jóns- son, bóndi og sjómaður, f. 5.5. 1866, d. 4.4. 1948 og Kristín Guð- mundsdóttir, húsfreyja, f. 13.11. 1873, d. 2.12. 1955. Bróðir Ólafíu var Guðmundur Valdimar Einars- son, stýrimaður og síðar kaup- maður, f. 19.2. 1896, d. 1958. Upp- eldisbróðir Ólafíu var Karl Vilhelm Guð- brandsson, vélstjóri og útgerðarmaður, f. 3. 8. 1903, d. 1977. Hinn 23.10. 1937 giftist Ólafía Páli Þorleifssyni, f. 13.2. 1910. Páll starfaði lengi í Rafha og varð síðar umsjónarmaður Flensborgarskólans, þar sem þau bjuggu og störfuðu í tuttugu ár. Dætur þeirra eru: 1) Kristín (Ina), kenn- ari og bókasafnsfræðingur, f. 5.3. 1938, eiginmaður hennar er Magnús R. Aadnegard, vélvirkja- meistari. Þeirra börn eru: Páll Heiðar, vélfræðingur, f. 31.1. 1964 og Lóa María, lyfjafræðing- ur og kennari, f. 29.4. 1966. 2) Þóra Gréta, þjónustufulltrúi í Sparisjóði Hafnarfjarðar, f. 21.11. 1945, eiginmaður hennar er Magnús Jón Sigbjörnsson, vélvirkjameistari. Þeirra börn eru: Pálmar Óli, verkfræðingur, f. 15.5. 1966, Bjarki Þór, raf- eindavirki, f. 11.4. 1973, Ivar Smári, rafvirki, f. 24.3. 1976, Al- ma Björk, Verslunarskólanemi, f. 30.3. 1980. A sínum yngri árum vann Ólafía m.a. á sumrin við sfldarsöltun á Siglufirði. Einnig starfaði hún á saumastofu o.fl. Hún stundaði húsmóðurstörf eftir að hún giftist, auk þess sem hún var um skeið matráðskona hjá kennurum í Flensborg og starfaði þar við ræstingar. Ólafía var hannyrðakona og málaði olíumyndir í frístundum. Hún starfaði í Kvenfélagi Karla- kórsins Þrasta, Slysavarnadeild- inni Hraunprýði og í Kvenfélagi Hafnarfjarðarkirkju. Þá söng hún um skeið með Kirkjukór Hafnarfjarðarkirkju. Útför Ólafíu fer fram frá Hafn- arfjarðarkirkju í dag, miðviku- daginn 15. desember, og hefst at- höfnin klukkan. 13.30. þinni hrakaði og hann bar þig alla tíð á höndum sér. Þið voruð gift í sex áratugi og tveim árum betur. Pabbi orti margt fallegt til þín, mamma mín, á þessum árum og þessa vísu orti hann í tilefni af demantsbrúð- kaupi ykkar fyrir tveim ái-um: Sextíu ár í sælu hjónabandi sýnist ekki vera mikill vandi, ef viðkomandi vilja bæði og geta verið sátt og kunna það að meta. Við viljum gera þessar tvær fallegu vísur, sem pabbi orti til þín á fyrstu árunum ykkar saman, að lokakveðju okkar systranna og pabba til þín. Elskulegaástinmín. Almáttugurgætiþín. þess af alhug óska ég þér. Aldrei mátt þú gleyma mér. Svo bið ég Guð að geyma þig. Hann gerir það víst fyrir mig. Að vera með og vaka hjá vinunni einu, sem égá. Guð blessi þig um alla tíð, elsku mamma okkar, og hafðu þökk fyrir allt. Með ást og virðingu. Þínar dætur, Ina og Gréta. Elsku hjartans mamma. Það er erfitt að sætta sig við að þú sért farin frá okkur svo snögglega. ' Samt segir skynsemin okkur, að best sé að fara á þennan hátt og vissulega varstu orðin veikburða og kvalin í fót- um og öðrum liðamótum. Samt er eins og við séum aldrei viðbúin þegar kallið ber svo brátt að. Þið pabbi voruð gift í sextíu og tvö ár og voruð alltaf kjölfestan í lífi okk- ar systranna og síðar maka okkar og afkomenda. Þú varst alltaf reiðubúin að hjálpa okkur, gefa góð ráð, gleðj- ast með okkur á góðum stundum og taka þátt í erfiðleikum okkar, er á ■ móti blés. Gjafmildi þín var einstök, þú elskaðir að gefa fallega hluti. Okkar menn, Maggarnir eins og við kölluðum þá gjarnan, voru báðir af landsbyggðinni og þið tókuð þeim strax eins og kærum sonum ykkar. Börnin okkar áttu alltaf athvarf hjá ykkur pabba, bæði þessi tuttugu ár sem þið voruð í Flensborg og svo í sextán ár á Álfaskeiðinu og þar fóru einnig barnabarnabörnin að koma í heimsókn, ásamt foreldrum, síðari árin. Hjá ykkur var alltaf svo nota- legt að vera. Þið fluttust svo að Hrafnistu í Hafnarfirði 1997 og flytjum við hjart- ans þakkir til starfsfólksins þar fyrir elskulegt viðmót og notalega umönn- un og vissulega líður okkur betur að vita af pabba í svo góðum höndum þar, eftir þennan mikla missi. Þú varst falleg kona og elskaðir allt fallegt og skapaðir líka ótal fallega hluti. Þú litaðir svarthvítar ljósmynd- ir, málaðir gullfalleg olíumálverk, saumaðir út, heklaðir og prjónaðir, auk þess sem þú saumaðir fallegu föt- in okkar, þegar við vorum yngri. Þú varst einstaklega félagslynd og áttir gott með að eignast vini og kunningja úr öllum aldurshópum. A árunum í Flensborg (1961-1981) eignuðust þið pabbi góða vini meðal starfsfólks og nemenda. Eftir að þið fóruð úr Flensborg var ykkur oft boðið sem heiðursgestum, þegar gamlir árgangar hittust og ykkur voru oft gefnar góðar gjafir og færð blóm af nemendum skólans. Þið hafið fengið faðmlög, kossa, skeyti, kort og kveðjur frá gömlum nemendum Flensborgarskólans allt til þessa dags. Mamma, þú sagðir oft: „Við þekkt- um ekkert unglingavandamál, þetta voru allt svo elskulegir krakkar og miklir vinir okkar, sem voru í Flens- borg. Otal kveðjur hafið þið fengið frá gömlum nemendum, sem þökkuðu fyrir hlýju ykkar og hjálpsemi. Marg- + Elskulegur afi okkar og langafi, SIGURÐUR AUÐUNSSON, áður til heimilis í Varmahlíð 12, Hveragerði, lést á hjúkrunarheimilinu Ási mánudaginn 13. desember. Útförin fer fram frá Kotstrandarkirkju laugar- daginn 18. desember kl. 13.30. Sigrún Birna Dagbjartsdóttir, Kristján Þór Guðmundsson, Sigurður Vilberg Dagbjartsson,Kadri Hint, Stígur Lúðvík Dagbjartsson, Garðar Bragason, Baldur Bragason, Jónheiður Kristjánsdóttir og barnabarnabörn. t Elskulegur maðurinn minn, faðir okkar, tengda- faðir og afi, HREINN ÁGÚST STEINDÓRSSON, frá Teigi á Seltjarnarnesi, varð bráðkvaddur á heimili sínu, Hjaltabakka 32, þriðjudaginn 7. desember sl. Útförin fer fram frá Kópavogskirkju föstudag- inn 17. desember kl. 13.30. Þeim, sem vilja minnast hins látna, er bent á að láta Barnaspítala Hrings- ins njóta þess. Guðrún Ólafsdóttir, Auður Hreinsdóttir, Kristinn Bjarni Ögmundsson, Kristján Hreinsson, Edda B. Lingaas, Svanberg Hreinsson, Ásta Rósa Magnúsdóttir og barnabörn. ir hafa kysst þig fyrir alla kaffisopana og brúnkökusneiðarnar, sem þú gafst þeim og þú áttir alltaf sælgætismola handa blaðburðarbörnum og öðrum bömum, sem komu til þín. Hjarta þitt var kærleiksríkt og þú máttir ekkert aumt sjá. Þú varst augasteinn foreldra þinna, sem voru komin á miðjan ald- ur, þegar þú fæddist. Mikill aldurs- munur var á ykkur systkinunum, Mundi, bróðir þinn var sautján ára, þegar þú fæddist, en Kalli fóstur- bróðir þinn var þá tíu ára gamall. Eft- ir að pabbi þinn dó tókst þú móður þína heim til okkar og bjó hún hjá okkur til æviloka. Þér þótti mjög vænt um bræður þína og þeirra fjölskyldur. Atvikin höguðu því þannig, að snemma á búskaparárum ykkar pabba leigðuð þið efri hæðina í húsi Kalla og hans fjölskyldu og eftir það keyptuð þið pabbi efri hæðina á Vest- urbraut 15, en neðri hæðina átti Mundi, bróðir þinn, og hans fjöl- skylda. Alla tíð lagðir þú, mamma mín, mikla alúð við að halda sem best- um tengslum við fjölskyldur bræðra þinna, sem þér þótti svo vænt um. Tengdafjölskylda þín var þér einnig mjög kær. Elsku mamma, nú er komið að kveðjustund um sinn. Við vökum yíir pabba fyrir þig og reynum að hjálpa honum yfir þennan erfiða tíma sem framundan er. Guð blessi hann ævinlega. Líf ykkar var svo samtvinnað og ást ykkar var ein- stök. Pabbi annaðist þig og hlúði svo vel að þér síðustu árin, eftir að heilsu Kæra amma mín. Mikið ósköp var erfitt að vera svona langt í burtu, þegar fréttin barst. Þú varst alltaf einn af þessum föstu og öruggu punktum í lífi okkar, barnabama þinna, og alls konai- minningar hafa verið að streyma yfir mig. Minningin um börn, sem þurftu pössun eða félagsskap og dyrnar ykkar í Flensborg stóðu okkur opnar, hvenær sem var. Þar var endalaus gestagangur, því að þið nutuð því- líkra vinsælda meðal kennara og nemenda skólans, að okkur þótti ótrúlegt. Minningin um takmarkalausa þol- inmæði gagnvart hávaðasömum leikjum okkar krakkanna, sem stundum enduðu með rifrildi eða jafnvel slagsmálum. Minningin um skapstóran ungling, sem ekki gat alltaf lynt við aðra en gat þá alltaf komið til þín og fengið skilning og skipti þá engu þótt maður oft hefði á röngu að standa. Minningin um óþrjótandi áhuga, sem þú sýndir áhugamálum mínum og starfi, enda þótt ég vissi, að sjó- mennska var ekki það starf, sem þú helst hefðir viljað fyrir drenginn þinn. Minningin um hversu vel þú tókst Lenu, eiginkonu minni, þegar hún kom til að hefja líf í nýju landi og hversu stóran þátt þú áttir í því, að hún og Olga okkar fundu sér stað í fjölskyldu okkar. Eg færi þér kveðjui- þeirra og þakklæti. Mér þótti alltaf svo gott að koma til þín og sjá ávallt uppáhaldskökurnar + Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma, MARGRÉT SIGURÐARDÓTTIR BLÖNDAL, Hrafnistu, Hafnarfirði, sem lést föstudaginn 10. desember, verður jarðsungin frá Víðistaðakirkju I Hafnarfirði fimmtudaginn 16. desember kl. 15.00. Tryggvi G. Blöndal, Benedikt Blöndal, Ragna Blöndal, Sigurður G. Blöndal, Irma Blöndal, Margrét Þ. Blöndal, Sigurjón Finnsson, barnabörn og barnabarnabörn. + AÐALHEIÐUR JÚLÍUSDÓTTIR, Munaðstungu, Reykhólasveit, lést á heimili sínu þriðjudaginn 7. desember. Útför hennar fer fram frá Reykhólakirkju laugardaginn 18. desember kl. 14.00. Ásmundur Sigvaldason. mínar teknar fram. Þú fékkst mann alltaf til að að maður væri merkileg- asta persóna, sem kæmi inn fyrir dyr hjá þér. Þú snerist alveg endalaust í kring- um barnabörnin þín og síðar börnin okkar, löngu eftir að fætur þínir hættu að bera þig með góðu móti. Ég er þakklátur fyrir að þú fékkst að kveðja án langvarandi þjáninga og varst á stað, þar sem þú fékkst góða umönnun, ásamt maka þeim, sem þú hafðir lifað með hamingjusömu lífi í sextíu og tvö ár. Kæri afi minn. Trúlega getur ekk- ert okkar skilið líðan þína í dag. Þið voruð allt í senn hjón, vinnufélagar og bestu vinir í rúm sextíu ár, sem hljómar ótrúlega á þessum tíma skilnaða og skyndikynna. Við getum aðeins vonað, að sorgin muni á end- anum víkja fyiir jákvæðum minning- um og tilfinningunni fyrir því að vel hafi tekist. Mamma og Gréta. Þið haf- ið líka misst mikið, en við verðum að trúa því að amma sé núna á stað, þar sem hún nýtur þeirrar blíðu og ástúð- ar, sem hún sýndi okkur öllum í þessu lífi. Páll Heiðar. Amma og afi hafa alltaf verið stór hluti af minni tilveru. Þegar ég var lítil og alveg fram á fullorðinsár var ég með annan fótinn inni á þeirra heimili, fyrst í Flensborg og síðar á Alfaskeiðinu. Amma bar mikla um- hyggju fyrir okkur barnabörnunum og fylgdist með því sem við tókum okkur fyiir hendur og kynnti sér það. Þegar bróðir minn fór á sjóinn fylgd- ist amma með skipafréttunum og vissi upp á hár hvar á hnettinum hann var staddur og hvert hann færi næst. Sama átti við þegar frændi minn flutti um tíma til Þýskalands, þá fylgdist amma með öllum fréttum þaðan og uppfræddi okkur hin. Amma hafði góða nærveni, ég man hvað mér fannst gott að vera hjá henni þegar ég var lítil og á unglings- árunum. Það var mikill gestagangur hjá henni í Flensborg og alltaf fullt af fólki í kaffi og mér fannst afskaplega gaman að fylgjast með og hlusta á umræðumar. Amma bakaði líka bestu brúnköku og jólaköku sem ég hef fengið enda hurfu þær fljótt þó margar væru bakaðar í einu. Hjá ömmu komst ég í að lesa gamlar ást- arsögur, hún átti nóg af þeim og hafði sjálf gaman af því að lesa. Amma var mikil handavinnukona og ég lærði hjá henni að meta handa- vinnu. Hún var afskaplega vandvirk og rakti miskunnarlaust upp það sem hún var ekki ánægð með. Hún saum- aði föt á sig og dæturnar og hún saumaði á okkur elstu bai'nabörnin. Amma heklaði mikið og tók þá upp úr dönskum handavinnublöðum alls kyns uppskriftir. Útsaumuðu mynd- h-nai- hennar eru þær fallegustu sem ég hef séð. Amma málaði líka með ol- íulitum og ég er svo heppin að eiga myndir sem hún málaði sérstaklega fyrir mig og gaf mér þegar ég var lít- il. Amma hafði gaman af því að gefa t ÚTFARARST OFA HAFNARFJARÐAR Stapahrauni 5, Hafnarfirði, sími 565 5892 Persónuleg, alhliða útfararþjónusta. Áralöng reynsla. Sverrir Olsen, útfararstjóri Sverrir Einarsson, útfararstjóri Útfararstofa Islands Suðurhlíð 35 ♦ Sími 581 3300 Allan sólarhringinn. www.utfararstofa.ehf.is/
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.