Morgunblaðið - 15.12.1999, Side 63

Morgunblaðið - 15.12.1999, Side 63
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 1999 63 MINNINGAR inum. Á æskuheimili okkar í Hólm- garðinum var eins og gefur að skilja oft líf og fjör og sjaldan lognmolla í stórum systkinahópi. Þar var margt brallað og fór Deddi þar oft fremstur í flokki. Bræðurnir skiptu oft liði og slógust frammi í kompu. Varð þá sumum þeirra oft heitt í hamsi í hita leiksins en Deddi tók því mátulega hátíðlega og hló að öllu saman. Hann hafði létta lund og var sérlega geð- góður. Sem ungur maður var Deddi nokkur ár til sjós. Þegar hann var í landlegu fylgdi honum iðulega hálf skipshöfnin og jafnvel skipshundur- inn líka heim til mömmu. Var þá oft þröng á þingi í Hólmgarðinum, sem var þó æði mannmargur fyrir. Við minnumst þess líka að þegar Deddi kynntist eiginkonuefni sínu og kynnti hana fyrir foreldrum og systkinum var hann mjög glaður og stoltur. Deddi var duglegur til vinnu og seint verður slegið yflrvinnumet sem hann setti í Áburðarverksmiðjunni um árið. Hann var veiðivörður í Korpu í þrjú sumur og hafði sérstak- lega gaman af að kenna bræðrum sínum og mágum veiðibrögðin. Deddi var matmaður mikill og fátt þótti honum betra en að setjast að snæðingi í góðum hópi og gæða sér á alls kyns kræsingum. Við eigum öll sérstakar minningar af matarveisl- um þar sem Deddi naut kræsing- anna af sérstakri innlifun. Við systkinin misstum tvo bræður okkar af slysförum fyrir mörgum ár- um og fyrr á árinu lést móðir okkar eftir erfið veikindi. Enn eitt skarðið hefur nú verið höggvið í fjölskylduna við sviplegt fráfall Dedda bróður. Við syrgjum hann og söknum hans en eftir situr minningin um góðan bróður og kæran vin. Hugur okkar er hjá eiginkonu hans og börnum. Elsku Sigrún, Gyða, Bryndís, Palli og fjölskyldur. Við biðjum góðan guð að styrkja ykkur í sorg ykkar. Okkur langar að kveðja Dedda bróður með ljóði eftir Huldu skáldkonu: Pá hinsti svefninn signir augun mín og sorg og gleði líkt og angan dvín, ég vildi að sál mín gæti gefíð þér þann geisla sem þig yfir húmið ber. Þó takmörk hafi týnst og lönd sé breytt í tímans bláa hafi — veit ég eitt: Að þér er allt hinn veiki vilji minn að vemda, friða og blessa arin þinn. Hvíl í friði, kæri bróðir. Systkinin. Þegar ég var um þrítugt kom ég oft inn á vinnustofu vinar míns sem starfaði í sama fagi og ég sjálfur. Þessi vinur minn hafði alist upp í Bústaðahverfinu í Reykjavík og átti nokkra góða kunningja þaðan frá æskuárunum. Þessir kunningjar hans voru líka tíðir gestii- á þessari vinnustofu. Þarna kynntist ég Guð- mundi Inga Ingasyni eða Dedda eins og vinir og ættingar hans nefndu hann sín á milli. Þegar leiðir okkar Dedda lágu þarna saman fyrir tutt- ugu og átta árum var hann sjómaður. Þarna eignaðist ég nýjan vin til við- bótar við þann sem ég var að heim- sækja og bundust fjölskyldur okkar þriggja vináttuböndum. Með fráfalli Dedda eru báðir þess- ir vinir mínir farnir yfir móðuna miklu. Það sem fyrst kemur upp í hugann þegar ég minnist Dedda var sá hressileiki sem ávallt fylgdi honum ásamt falslausri einlægni hans. Hús- ið fylltist af glensi og gleðilátum í hvert skipti sem hann heimsótti okk- ur hjónin.Væri hann ósáttur við eitt- hvað úr daglega lifinu ræddi hann það á jafn hressan og opinn hátt og það sem varð honum til gleði. Aldrei pukur eða óheilindi heldur kom hann til dyranna eins og hann var klædd- ur. Deddi var í eðli sínu félagslyndur. Hann átti mörg systkini sem hann heimsótti og ræktaði vináttu við. Móðir hans sem dó á síðasta ári var honum mjög kær. Föður sinn missti hann snemma á lífsleiðinni. Hann bar ríka ábyrgðartilfinningu í brjósti og elskaði konu sína og börnin þeirra þrjú. Hann var góður afi. Deddi eignaðist marga kunningja enda opinn og skrafhreyfinn. Hann var snyrtimenni og í gleðskap var hann hrókur alls fagnaðar. Hann þekkti til vinnu bænda og sjómanna af eigin raun og var fljótur að til- einka sér þau störf önnur sem hon- um voru falin á lífsleiðinni. Á þessum tuttugu og átta árum sem við höfum þekkst og ástundað samfelldan kunningsskap varð okkur aldrei sundurorða sem er merkilegt þegar þess er gætt að báðir voru nokkuð orðhvatir. Þess í stað glöddumst við með konum okkar yfir góðum árangri bamanna sem við ólum upp og bárum saman bækur okkar um heimili og atvinnuafkomu. Deddi var vinum sínum trúr, hjálpsamur og greiðvikinn. Hann var hugmaður til allrar vinnu og hangs og slór var eit- t Innilegt þakklæti til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð við andlát og útför föður okkar, tengdaföður og afa, SIGMARS GUÐMUNDSSONAR, Hrafnistu, Hafnarfirði, áður til heimilis á Nönnugötu 10a Reykjavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks deildar 4B, Hrafnistu, Hafnarfirði. Emilía M. Sígmarsdóttir, Ragnar Ó. Steinarsson, Jónína B. Sigmarsdóttir, Ingveldur H. Sigmarsdóttir, Hermann Norðfjörð, barnabörn og barnabarnabörn. t Alúðar þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur hlýju og samúð við fráfall og útför MARGRÉTAR ALBERTSDÓTTUR (Maggýjar) frá ísafirði. Sérstakar þakkir til Blindraheimilisins og starfsfólks Grundar, fyrir góða umönnun. Fyrir hönd aðstandenda, Herdís Albertsdóttir, Ágúst Ólafsson, Albert Karl Sanders. Lokað Grein ehf., Smiðjuvegi 16, Kópavogi, verður lokað í dag, 15. desember, vegna jarðarfarar BJÖRNS R. LÁRUSSONAR. Grein ehf. ur í hans beinum. Hann var skemmtilegur veiðifélagi og gaman var að fá að smakka á nestinu hans því hann bar af flestum í því að útbúa gott nesti. í Dedda eignaðist ég vin sem ég gat ávallt trúað fyrir hverju sem var og mér er heiður að því að hann virti mig eins í þeim efnum. Stundum komu upp vandamál í lífi okkar sem voru af sama toga og lögðumst við þá oft saman á árarnar til að leysa þau. Á þessari stundu er mér efst í huga sá sári harmur sem kveðinn er að Sigrúnu og börnunum. Þessi jól verða þeim og öðrum vandamönnum Dedda erfið en sá sem öllu ræður og allt græðir gleymir ekki þeim sem um sárt eiga að binda. Um leið og ég kveð vin minn, Guðmund Inga Inga- son, og þakka honum samfylgdina bið ég Guð að varðveita sál hans og eftirlifandi ástvini. Bjami Guðmundsson. Hann Deddi okkar er dáinn. Drottinn tók hann til sín, af hverju allt of fljótt skiljum við ekki. Deddi var okkar besti vinur í gegnum lífið og margar áttum við góðar og eftirminnilegar stundh- saman. Alltaf var gott að leita til hans þegar á þurfti að halda og er okkur sérstaklega minnisstætt þegar við þurftum að bregða okkur til Noregs fyrir þremur árum. Þá leituðum við til hans og báðum hann um að líta til með öldruðum foreldrum okkar meðan við værum í burtu. Ekkert var sjálfsagðara og leit hann til þeirra á hverjum degi og stytti þeim stundir. Æ síðan leit hann til þeirra og gladdi þau með glaðværð sinni og hressileika. Kæri Deddi, þau þakka þér innilega fyrir þessar stundir sem þú gafst þeim. Við Deddi áttum oft skemmtilegar stundir saman. Einu sinni bauðst þú okkur til þín í sumarbústað á Laug- arvatni, þar sem við grilluðum öll svínarifin sem þú hafðir keypt í ótrú- legu magni. Þú keyrðir okkur um sveitirnar í kring og við sögðum við þig að þú kynnir ekkert að keyra, en þú hlóst bara á þinn einstaka máta því að akstur var þitt starf og aldrei kom neitt fyrir. Margar voru heimsóknir þínar til okkar með konfektpoka handa mér og alltaf var jafn hressandi að fá þig í heimsókn. Elsku Deddi, þú sem ætlaðir að að koma til okkar með Sigrúnu þinni á laugardaginn kemur og borða með okkur laufabrauð, síldog magál sem þér þótti svo góður. Elsku Deddi, við kveðjum þig með söknuði. Það verður erfitt að fylla þitt skarð í hjarta okkar. Elsku Sigrún, Gyða, Bryndís og Palli, við biðjum Guð að styrkja ykk- ur öll, minningin um góðan mann lif- ir alltaf. Þínir vinir, Kristmundur og Margrét. Vinur minn Deddi er farinn á svið þess óþekkta. Þegar slys verður er þetta allt svo snöggt og ótímabært, maður verður svo dapur og veit ekki hvemig maður á að vera. Deddi eins og hann var alltaf kall- aður af okkur félögunum úr Hólm- garðinum, hann var góður drengur og vinur vina sinna. Hólmgarðurinn var og er sérstakur í lífi okkar félag- anna. Þangað fluttum við um 1950. Það vora stórar fjölskyldur sem voru að byrja buskap. Þessi gata var svo sérstök, við þurftum ekki nema að fara út í glugga til að athuga hvort við værum tilbúnir að fara út. Þetta var allt svo gott fólk. Þar byrjaði lífið hjá okkur vinunum. Það voru allir velkomnir, til Gyðu mömmu Dedda. Þar var stór barnahópur. Svo eigum við öll okkar gleðidaga. Þeir voru margir sem við vinh'nir áttum sam- an. En svo komu áföllin. Sjórinn hefur höggið stór skörð í þessa fjölskyldu og hafa verið margir sorgardagar þar. Þegar ég skrifa þér þessar línur minnist ég þess að þú varst alltaf fyrri til að hringja, vinur. Elsku Sigrún Gyða, Bryndís, Palli og fjölskylda, systkinin úr Hólm- garði 9 og fjölskyldur þeirra, og aðr- ir ættingjar. Ég og fjölskylda mín._- vottum ykkur innilega samúð. Deddi minn, ég kveð þig að sinni með þess- um línum. Þú komst af sjó með gleðibros oggleðifærðiröllum. Þú fórst á sjó með gleðibros oggleðifærðiröllum. x Þinn vinur, Vignir Bjamason. Heimabíó Sprengjan IQ | Nýjasta og fulikomnasta tækni á einstöku veröi! Framtíðarútlit - vönduð hönnun Super-5 Digital Blackline myndlampi 180 W - 300 W magnari 6 framhátalarar 2 bassahátalarar 2x2 bakhátalarar 3 Scarttengi að aftan 2 RCA Super VHS/DVD tengi að aftan Super VHS, myndavéla- og heyrnartækjatengi að framan Barnalæsing á stöðvar Glæsilegur skápur á hjólum með 3 hillum TOSHIBA heimabíótækin kosta frá aðeins kr. 134.900 stgr. með öllu þessuU T0SHIBA Pro-Logic tækin eru marguerðlaunuð af tækniblöðum í Evrópu og langmest seldu tækin í Bretlandi! T0SHIBA ERU FREMSTIR í TÆKNIÞRÓUN. Hönnuðir Pro-Logic heimabíókerfisins - DVD mynddiskakerfisins og Pro-Drum myndbandstækjanna. Önnur TOSHIBAtæki fást í stærðunum frá 14" til 61" •StaOgreiflsluatsláttur er 10% Fáðu þér framtíðartæki hlaðið öllu því besta - Það borgar sig! HOHEC i/A' Einar Farestvelt &Cahf. Borgartúnl 28 ■ Símar: 562 2901 & 562 2900 ■ www.ef.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.