Morgunblaðið - 15.02.2000, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 15. FEBRÚAR 2000 43
9
íi
MENNTUN
leiddi bæði til átaka á opinberum
vettvangi og jafnframt til uppgjörs
kynslóða inni á heimilum. Rótið
sem fylgdi og uppgjör við „úrelt
gildismat" varð til þess að forræð-
ishyggja var gagnrýnd harðlega.
Afleiðingar þessa náðu m.a. til
kennslustarfsins og leiddu til þess
að á næstu áratugum reyndu menn
að gera það sem hlutlausast gagn-
vart öllum gildum, taka til viðmið-
unar vísindi fremur en gildismat
trúarbragða, hefða eða mismunandi
menningar. Kennarar áttu ekki,
eða réttara sagt máttu alls ekki,
halda skoðunum sínum að nemend-
um og allir tilburðir til þess að
ræða gildismat í samfélaginu urðu
tortryggilegir. Kennsla átti að vera
hlutlaus athöfn, miðlun fræðilegrar
þekkingar en gildi áttu að vera val
nemenda, enda talin vera í eðli sínu
afstæð, byggð á því hver átti í hlut
og frá hvaða sjónarhorni var horft.
Breytingar á gildismati birtust
að sínu leyti einnig gagnvart upp-
eldi á heimilum með því að ögun
barna var gerð tortryggileg. Marg-
ir foreldrar áttu erfitt með að sjá
mörkin á milli þess að beita skyn-
samlegum aga í uppeldi og þess að
að brjóta börn niður með þvingun-
um og ofbeldi. Hið sama gilti um
væntingar manna til kennara. I
skólanum átti nemandinn oftast
rétt en sjaldnar skyldur. Aðlögun
að reglum skólasamfélagsins var
jafnvel talin vera forræðishyggja
og nauðung.
Þótt markmið laga og reglu-
gerða hafi lengi kveðið á um heild-
stæða mótun allra einstaklinga
gætir þeirra viðhorfa sem rætt hef-
ur verið um hér að framan ennþá
og þá líklega fremur í eldri en
yngri bekkjardeildum. Ennþá eru
nemendum kenndar fræðigreinar
og reynt að beisla minni þeirra sem
best. Fáir skólar virðast leggja
mikla áherslu á að kenna þeim að
vaxa og þroskast, persónulega og í
samfélagi við aðra. Kannski er of
djúpt í árinni tekið að segja að
skólar forðist almennt að láta „upp-
eldi“ af slíku tagi til sín taka en þó
verður þess víða vart að kennarar
telja sig ekki umkomna að sinna
öðru en „fagi“ sínu eða námsgrein
og telja að þeim beri ekki að taka
fram fyrir hendur foreldra hvað
uppeldi varðar.
Að vinna að bættu siðferði
Framansagt á trúlega, ásamt
öðru, sinn þátt í því að siðferði í
samfélögum okkar er ekki sterkara
en raun ber vitni. Án þess að taka
svo djúpt í árinni að tala um sið-
ferðilega upplausn er ljóst að sið-
ferðisbresti má merkja í smáum
sem stórum málum. Friður á undir
högg að sækja og víða átök þjóða,
þjóðarbrota, trúarhópa og kyn-
þátta. Umhverfisspjöll og mengun
ógna lífsskilyrðum. Ofbeldi af ýmsu
tagi, þar með talið kynferðislegt of-
beldi; eiturlyfjaneysla, misskipting
og fátækt; tilvistarkreppa sem birt-
ist m.a. í sjálfsvígum ungs fólks;
neysluæði, klámvæðing og firring
er ástand sem margir af leiðtogum
þjóðar og þjóðkirkju hér á landi
hafa séð ástæðu til að fjalla ítrekað
um. Öll þessi vandamál ógna
þroskamöguleikum einstaklinga og
samfélaga. Því miður hafa form-
legar umræðrn- og yfirlýsingar
ráðamanna eða það sem kallað hef-
ur verið forvarnir alls ekki náð að
breyta stöðunni. Rætur vandans
eru margþættar en okkur virðist
hefðbundin menntun og skólaganga
lítt stuðla að lausn hans.
Full ástæða er til að spyrja
ágengra spurninga í þessu sam-
bandi. Er unnt að skapa æskunni
betri uppvaxtarskilyrði? Geta skól-
ar haft áhrif á gildismat æskunnar?
Eiga þeir að ástunda mannrækt?
Er æskilegt að auka siðvit nem-
enda, þannig að ungt fólk geti t.d.
forðast að lenda í „neyslu“ og finni
tilgang með námi og starfi? Og get-
um við, þegar víðar er horft, alið
upp kynslóð sem getur lagt lóð á
vogarskál friðar og samlyndis á al-
þjóðlegum vettvangi? Ef svörin við
þessum spurningum eru jákvæð
liggur beint við að spyrja hverjir
eigi að vinna að úrbótum og hvern-
ig? Hvað þarf að koma til svo
breytinga til batnaðar megi vænta?
Er líklegt að við, fullorðna fólkið
sem er ábyrgt fyrir ástandinu, get-
um byggt upp betra siðferði hjá
börnum okkar?
Við teljum að hefja beri umbóta-
starf sem beinist að því að styrkja
siðvit, ekki síst yngstu kynslóðar-
innar þar sem mótunarmöguleik-
arnir eru mestir. Verkið er hvorki
einfalt né auðvelt og mun ekki
leysa allan tilvistarvanda núlifandi
kynslóða en við álítum að unnt sé
að bæta siðvit og gildismat, ekki
síst með markvissu samstarfi skóla
og heimila. Hvað fær okkur til að
vera svona sannfærðir um mögu-
leika skólans og færar leiðir? Höf-
um við einhvers staðar árangur í
þessa veru?
Gæskan hefur forgang
Til eru nokkur dæmi um skóla
sem hafa náð góðum, jafnvel frá-
bærum árangri við að þroska siðvit
nemenda. Einn þeirra skóla sem
hafa vakið verulega eftirtekt vegna
þessa er City Montessori School
(CMS) í Lucknow í Indlandi. Þótt
skólinn hafi nú komist í heimsmeta-
bók Guinnes fyrir að vera stærsti
einkaskóli í heimi, með rúmlega 23
þúsund nemendur eða álíka marga
og eru í grunnskólum Reykjavíkur,
þá er hann ekki síður athyglisverð-
ur vegna þess ótrúlega árangurs
sem nemendur hans ná. Fyrir 40
árum stofnuðu ung hjón, Jagdish
og Barthi Gandhi, skólann og reka
þau hann enn. í byrjun voru nem-
endurnir einungis fimm og stofnféð
var 10 dollarar. Hugsjónirnar voru
þó miklar og Gandhi hjónin ákváðu
í upphafi að megináherslur yrðu
ekki síður lagðar á siðvit nemenda
og gildismat en námsárangur.
Markmið skólans var og er „að
gera nemendur bæði góða og
fróða“. Gæskan hefur forgang því:
„Sá sem er fróður en ekki góður er
í besta falli einskis virði en í versta
falli hættulegur fyrir samfélagið.“
Arangur skólans hefur eins og áður
sagði vakið heimsathygli og hafa
nemendur hans m.a. unnið til
margvíslegra verðlauna í sam-
keppni víða um heim. Má þar nefna
keppni í stærðfræði, eðlisfræði,
smíði vélmenna, tónlist, tölvum og
„starfi í gæðahringjum". Það sem
vekur enn frekari athygli er öguð
og jákvæð framkoma nemenda sem
endurspeglar sterka siðferðiskennd
og skilning á samspili einstaklings
og samfélags. Reyndar segja
Gandhi hjónin að það hafi komið
þeim sjálfum á óvart hve siðfræði-
áherslur skólans hafi, þegar á
reyndi, reynst góð undirstaða fyrir
hefðbundinn námsárangur.
Það er athyglisvert að CMS er
ætlað að vera leiðarljós fyrir sam-
félagið en ekki spegilmynd af kost-
um þess og göllum. Sagt er skilið
við hlutleysi og ítarlega fjallað um
gildismat sem sameiginlegt er
trúarbrögðum og menningu hvar
sem er í heiminum. Þetta er rauði
þráðurinn í öllu starfi skólans og er
sameiginlega á ábyrgð allra kenn-
ara, fellt að öllum námsgreinum,
eftir því sem unnt er, og beint til
foreldra jafnframt. Með því að láta
umfjöllun um dyggðir birtast í
verkefnum og vinnubrögðum, innan
sem utan skóla, verða þær smám
saman óaðskiljanlegur hluti af sið-
ferðilegri hugsun og breytni nem-
enda. Eftir fimm vikna dvöl í
Lucknow getur Jón Baldvin stað-
fest að viðhorf og vinnubrögð nem-
enda eru sérlega góð og óvenjuleg.
Páil
Vídalín í
brenni-
depli
Félag um átjándu aldar
fræði og Góðvinir Grunna-
víkur-Jóns verða með mál-
þing um Pál Vídalín lögmann
(1667-1727) ísalÞjóðar-
bókhlöðunnar á 2. hæð næsta
laugardag, 19. febrúar árið
2000, og hefst það kl. 13.30.
Guðrún Ingólfsdóttir, bók-
menntafræðingur, stjórnar
málþinginu, en á því verða
flutt eftirtalin íjögur erindi:
1. Már Jónsson, sagnfræð-
ingur: Mörg er mér nú
stundin löng. - Embættis-
missir Páis Vídalíns sumarið
1713.
2. Guðrún Ása Grímsdótt-
ir, sagnfræðingur: Forn-
yrðaskýringar Páls Vídalíns.
3. Gottskálk Þór Jensson,
fomfræðingur: Hversu mik-
ið er „nonnulla"? - Skuld
Sciagraphiu Hálfdanar Ein-
arssonar við Recensus Páls
Vídalíns.
4. Þómnn Sigurðardóttir,
bókmenntafræðingur: Ást-
vinum til þakklætis og þén-
ustumerkis. - Erfiljóð Páls
Vídalíns um Þorleif Gislason
frá Hliðarenda.
Guðrún Kvaran, prófes-
sor, slítur svo málþinginu, en
flutningur hvers erindis tek-
ur um 20 mínútur. Veitingar
verða fáanlegar í veitingast-
ofu í Þjóðarbókhlöðu á 2.
hæð.
Aðalfundur Félags um
átjándu aldar fræði verður
haldinn í sal Þjóðarbókhlöð-
unnar, 2. hæð, laugardaginn
19. febrúar 2000, og hefst
hann á undan þinginu, eða
kl. 12.30. Fundarefni: Venju-
leg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
Hvort sem þeir eru í kennslustund-
um, að leik úti, að ræða við gesti
eða að taka þátt í fundum og ráð-
stefnum eru þeir lifandi sönnun
þess að unnt er að gera nemendur
bæði góða og fróða.
Margt má læra af því sem vel er
gert í CMS og enginn vafi að
byggja má upp svipaða eða sam-
bærilega hluti hér á landi. Vissu-
lega verður að hafa sterka fyrir-
vara um aðlögun vinnubragða og
hefða, enda eru samfélagsgerðirnar
gjörólíkar.Vilji og trú á að ná megi
árangri eru forsenda allra umbóta.
Með góðum undirbúningi, m.a. með
samstilltu átaki heimila og skóla,
skýrri markmiðssetningu, efnisöfl-
un og skipulagðri þjálfun kennara,
mætti gera stórátak í mannrækt
innan íslenska menntakerfisins.
„Sjálft hugvitið, þekkingin
hjaðnar sem blekking sé hjarta ei
með sem undir slær,“ sagði Einar
Benediktsson.
skó8ar/g?ámskeið
tungumát
■ Enskunám í Englandi
Bjóðum enskunám við einn virtasta mála-
skóla Englands. Skólinn sér þér fyrir fæði
og húsnæði hjá enskri fjölskyldu.
Um er að ræða alhliða ensku 18 ára og
eldri og viðskiptaensku.
Unglingaskóli í júlí og ágúst.
Upplýsingar gefur Jóna María Júlíusdóttir,
sími 862 6825 eftir kl. 18.00.
nudd
■ www.nudd.is
Upplýs-
ingaskrif- t
stofur um
Evrópumál
LEIÐBEININGUM um atvinnu-
leit hefur verið bætt inn á heima-
síðu EES-Vinnumiðlunar (www.-
vinnumidlun.is/EES). Á heima-
síðunni er líka að finna tengingar
við margar upplýsingaveitur Evr-
ópusambandsins um atvinnu- og fé-
lagsmál.
EES-Vinnumiðlun hefur flutt að
Fjarðargötu 13-15, 2. hæð, í Versl-
unarmiðstöðinni Fjörður, nýtt sím-
anúmer er 554 7600, fax 554 7601.
Nánari upplýsingar: jon.s.kar-
lsson@svm.
www.rit.ee
þýðingar á ensku
- vefsíður, ársreikningar o.fl.
ýj> mbl.is
_ACLTAf= eiTTH\SA0 NÝTT
Opinn fundur
ú Grand Hótel við Sigtún
íkvöld kl. 20.00.
RæSumenn:
• GuSni Ágústsson, landbúnaðarráðherra
• Olafur Örn Haraldsson, alþingismaður
• Jónína Bjartmarz, alþingismaður
• HjálmarÁrnason, alþingismaður
Fundarstjóri: Vigdís Hauksdóttir, varaþingmaður
FRAMSÓKNARFLOKKURINN
Með fólk í fyrirrúmi
llli
.
Kennslustund í hönnun
Óvenjuskemmtileg og djörf hönnun sem svo sannarlega hefur
slegið í gegn í Evrópu. Multipla var valinn bili ársins í Danmörku
M.a er hann eini bíllinn tii sýnis á Nýlistasafninu í New York sem
dæmi um frábæra hönnun. Sex sæti, gott aðgengi og yfirdrifið
pláss fyrir alla. Undrabíll sem þú verður að skoða og prófa til að
trúa. Multipla Fiat er hinn fullkomni fjöiskyldubíli.
Fiat Muitipia Verð kr. 1.630.000
*ABS hemlalæsivörn
*4 loftpúðar
*6 sæti
'Rafstýrð hæðarstilling framsætis
*6 x þriggja punkta belti
*160w hljómflutningstæki
*Fjarstýrðarsamlæsingar
‘Grindarbyggður
*Upphitaðirog rafdrifnirspeglar
*8 ára gegnumtæringarábyrgð
Opið á laugardögum 13-17
r