Morgunblaðið - 15.02.2000, Page 60
60 ÞRIÐJUDAGUR15. FEBRÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
HESTAR
Góðir kostir en
mismunandi dýrir
Afstaðin er óformleg könnun hestaþáttarins
á verði og gæðum fjögurra tegunda spóna
til undirburðar sem eru á markaði hér. I
tvær vikur vigtaði Valdimar Kristinsson
spæni undir hrossin sín og spáði í hvaða
tegund þurrkaði best og eyddi stækju.
KÖNNUNIN fór þannig fram að
borið var undir átta hross í fjórum
tveggja hesta stíum. Spænirnir voru
frá Astund, BYKO og MR-búðinni
en auk þess voru reyndir nýju spæn-
imir sem kallast Woody Pet og sagt
var frá í hestaþætti fyrir tveimur
vikum.
I öllum stíunum eru gegndrægar
gúmmímottur og úr þremur þeirra
var mokað daglega og borið undir
sama magn af spónum frá Astund,
Byko og MR-búðinni en úr fjórðu
stíunni var mokað vikulega þar sem
Woody Pet spænirnir voru bomir
undir. Af þremur fyrstnefndu teg-
undunum voru borin undir ýmist 3
eða 2 kíló sem þykir nokkuð ríflegt
miðað við daglegan útmokstur.
Svo virðist vera að þessir nýju
spænir henti eingöngu I safnstíur
þar sem ekki er mokað daglega. Var
notað innihald úr tveimur pokum í
upphafi og tað aðeins Mtillega
hreinsað úr flesta dagana. Ekki var
bætt spónum í stíuna en á sjötta
degi virtust spænirnir mettir og far-
ið að blotna í og þá var mokað út.
Áhugaverður en dýr kostur
Þessir spænir eru í raun kögglað
sag og eru geysilega rakadrægir.
Þegar sett var úr tveimur pokum
undir tvö hross var stían mjög þurr
og þægileg fyrir hrossin nánast all-
an tímann og eins virtist efnið hafa
góð áhrif á hófa, rakastigið hélst
jafnt og gott og þeir voru mjög
hreinir. A fyrsta sólarhringnum
molna kögglarnir og breytast í
mjúkan sagpúða. Gott er að hreinsa
taðkögglana úr meðan sagið er
þurrt, til dæmis með plastgaffli með
tveggja til þriggja sentimetra bili
milli álmanna. Hrynur þá sagið nið-
ur en taðið situr eftir. Eins er mikil-
vægt að róta í undirlaginu, til dæmis
með hrífu, svo þurrt sag safnist ekki
fyrir úti í homum og nýtist þar með
ekki til þurrkunar.
Það virðist ekki neinum blöðum
um það að fletta að þetta efni er mun
rakadrægara en aðrir spænir sem
hér hafa sést á markaðnum og eru
tvímælalaust besti kosturinn sem
völ er á hvað það varðar. Það má
hinsvegar setja spurningamerki við
þá fullyrðingu að einn poki af Woody
Pet jafnist á við átta poka af venju-
legum innlendum spónum eins og
fullyrt er. Að setja átta poka af
venjulegum spónum í eina tveggja
hesta stíu á sex eða sjö dögum þætti
mikið bruðl. Að setja úr hálfum
svörtum plastpoka á dag í slíka stíu
þætti vel útilátið og myndi tryggja
vel þurrt undirlag. Annar kostur
sem Woody Pet spænir hafa fram
yfir aðra í þessum samanburði er sá
að það þarf mikið minna að moka
heldur en ef borið væri undir úr
þremur svörtum plastpokum á sex
dögum. í verðsamanburði kemur
Woody Pet þó óhagstætt út, pokinn
kostar 790 krónur og þykir sjálfsagt
flestum mikið að greiða rétt tæpar
1600 krónur á viku undir tvö hross.
Ef greiddar eru 250 krónur fyrir
poka af innlendum spónum væri
verið að greiða 750 krónur fyrir vik-
uskammtinn sem er mjög ríflegt og
væri hægt að hafa kostnaðinn með
góðu móti í 400 til 500 krónum. Kost-
ir á móti eru hinsvegar lítil fyrirferð
og þægilegt er að geyma Woody Pet
svo og öll meðferð. Þá má ætla að
Woody Pet bæti mjög loft í hesthús-
um því efnið eyðir eða dregur mjög
úr allri ammoníakstækju.
Woody Pet pokamir voru vigtaðir
og reyndust allir vera um fjórtán
kíló. Notaðir voru fjórir pokar í tvær
vikur.
í hinar þrjár stíumar vora notaðir
íslenskir spænir frá BYKO, sem
vora mjög þurrir og góðir, og inn-
fluttir þurrkaðir spænir sem Astund
og MR-búðin selja. Er þar um að
ræða spæni frá tveimur framleið-
endum en gæði þeirra virtust mjög
svipuð hvað varðar rakadrægni þótt
þeir innfluttu virtust heldur betri.
En það er margt annað en raka-
drægnin sem kemur við sögu þegar
meta skal gæði spóna og verð. Það
sem innfluttu spænirnir hafa helst
fram yfir þá innlendu er að þeim er
pakkað í ferkantaða plastbagga sem
era upp undir 25 kíló að þyngd og
vel pressaðir. Af þessum sökum er
mun minni íyrirferð af þeim heldur
en íslenskum spónum í svörtum
plastpokum og þeir staflast vel. Þá
era þessir spænir sagðir þurrkaðir í
ofni en það tryggir jöfn gæði sem
alltaf er hægt að ganga að vísum.
Óþrifnaður af lausum spónum
íslensku spænina er einnig hægt
að fá í gámum, stóram 20 feta eða
litlum gámum og þarf þá að setja þá
í poka eða blása inn eins og algengt
er að gert sé. Þótt oftast sé um að
ræða þurra og góða spæni getur
bragðið til beggja vona með gæðin
þegar verið er að vinna blautt tim-
bur í trésmiðjunum. Dæmi er um að
menn hafi fengið blauta spæni sem
þurrka lítið eða nánast ekki neitt en
slík tilfelli teljast vonandi til undan-
tekninga. Þá getur verið mismikið í
gámunum og era dæmi um að menn
hafi fengið allt frá 180 plastpokum
upp í 250 poka úr 20 feta gámi. Verð
á 20 feta gámum er frá 16 þúsund
krónum, sé spónunum sturtað, og
upp í 20 þúsund krónur, bíði bíllinn
meðan gámurinn er tæmdur. Verð á
poka úr gámi getur verið frá 64
krónum á poka upp í 111 krónur, en
það fer eftir magni í gámnum og því
hvort sturtað er eða bíllinn látinn
bíða meðan losað er. Vinnan við að
losa gám er líklega eitt það óþrifa-
legasta sem hægt er að komast í og
era margir tilbúnir að greiða fyrir
að losna við það og kaupa heldur
spæni í pokum. Annað atriði sem
vert er að minnast á er sá sóðaskap-
ur sem fylgir því þegar lausum
spónum er sturtað í hesthúsahverf-
um. Oft er kvartað í nærliggjandi
íbúðarhverfum þegar spænirnir
fjúka yfir lóðirnar og húsin. Þá kem-
ur oft fyrir að menn láta hrúgurnar
standa klukkustundum saman af því
að þeir hafa ekki tíma til að sekkja
spænina strax. Einnig er misjafnt
hversu vel menn þrífa eftir sig og
ekki óalgengt að sjá spónaleifar þar
sem menn hafa látið sturta þeim. Er
líklega tímaspursmál hvenær verð-
ur tekið á þessum málum því sóða-
skapurinn sem þessu fylgir er tals-
verður. Þá má ætla að í framtíðinni
verði stærstur hluti spóna seldur í
neytendaumbúðum.
Afgreiðslufrestur á lausum spón-
um er mjög langur yfir veturinn, í
dag líklega um fjórir til fimm mán-
uðir ef þeir fást á annað borð.
Þrjú mót um
helgina þrátt
fyrir ófærð
ÞRJU mót vora haldin um helgina,
tvö samkvæmt mótaskrá LH og
Hestamiðstöðin á Ingólfshvoli skellti
á einu móti á laugardagskvöldið með
litlum fyrirvara. Það leit ekki björgu-
lega út með mótahald fyrri hluta
laugardagsins en öll él birtir upp um
síðir og það gerði það svo sannarlega
því Gustsmenn fengu ágætis veður
fyrir sitt mót sem haldið var utan-
dyra á laugardeginum. Þau era ekk-
ert að skríða í skjól með samkomur
sínar hjá Gusti þótt þau hafi þessa
líka fínu reiðhöU örfáa metra frá vell-
inum.
Hjá Sörla var hið árlega Grímutölt
sem er opið en frekar h'tið var um að-
komufólk enda færðin þung og getur
verið fyrirhafnarsamt að ferðast með
hross við slíkar aðstæður. Þeir létu
sig þó hafa það strákamir úr Kjósinni
Þorvaldur og Hreiðar og mættu gal-
vaskir tíl leiks og gerðu góða ferð í
fjörðinn. En í grímutöltið mæta
knapar í dulargervi og enginn á að
þekkjast fyrr en úrshtin eru ljós en
þá láta menn grímuna falla. Ágæt til-
breyting frá hinu hefbundna og góð
skammdegisskemmtun hjá Sörla.
Á IngólfshvoU var fámennt en góð-
mennt þar sem boðið var upp á hefð-
bundna töltkeppni og slaktaumatölt
sem menn virðast nú ekki alveg til-
búnir í því aðeins tveir tóku þátt í
þeirri glímu. Enginn kom af höfuð-
borgarsvæðinu enda heiðin sjálfsagt
ekki verið árennUeg tU hrossaflutn-
inga eftir óveðrið fyrr um daginn. En
þetta var almennUegt hjá þeim á Ing-
ólfshvoU, þrír dómarar og gefnar ein-
kunnir eins og á alvöra íþróttamót-
um.
Samkvæmt mótaskrá LH verða
tvö mót haldin um næstu helgi. Snæ-
feUingar verða með mót í Stykishólmi
og Andvari í Garðabæ verður með
mót á Andvaravöllum. Engar frekari
upplýsingar hafa borist um þessi
mót. En úrsUt helgarinnar era á
þessaleið.
Grímutölt Sörla haldið á Sörla-
stöðum
Barnaflokkur:
1. „Prinsessumar tvær“, Sandra L.
Þórðardóttir á Díönu frá Enni, Sörla
2. „Mexíkani“, Þorvaldur Hauks-
son á Perlu frá Eyjólfsstöðum, Herði
3. ,Álfur“, Hreiðar Hauksson á
Kulda frá Grímsstöðum, Herði
4. „Bangsi“, Margrét F. Sigurðar-
dóttir á SkUdi frá Hrólfsstöðum,
Sörla
5. „Batman“, SkúU Þ. Jóhannsson
á Kúlubrún frá Bæ, Sörla
Besti búningur í barnafl.: „Prins-
essurnar tvær“ Sandra Líf Þórðar-
dóttir á Díönu frá Enni
Unglingaflokkur:
1. „Indíáni", Margrét Guðrúnar-
dóttir á Blossa frá Árgerði, Sörla
2. „Brúðhjónin“, Pería D. Þórðar-
dóttir á Gný frá Langholti II, Sörla
\
'3
NÝTT-NÝTT
Ný sterk
fljótandi
bíótínblanda
flSTUflD
FREMSTIR FYRIR GÆÐI
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
Daníel Ingi Smárason fékk verðlaun á Tyson frá Búlandi en hér fer hann mikinn á Seiði frá Sigmundarstöðum.
3. „Nom“, Katrín Sif Sævarsdóttir
á Lokki frá Hafnarfirði, Sörla Besti
búningur í unglingaf.: „Brúðhjónin"
Perla D. Þórðardóttir á Gný frá
Langholti II, Sörla
Ungmennaflokkur:l. „Indíáni",
Daníel I. Smárason á Tyson frá Bú-
landi, Sörla
2. „Tommi“, Hinrik Sigurðsson á
Garra frá Grand, Sörla
3. „Batman", Eyjólfur Þorsteins-
son á Kolfinnu frá Skarði, Sörla
4. „Víkingur" Pétur Siguijónsson á
Nökkva frá Hæringsstöðum, Sörla
5. „Hippi“, Kristín Ósk Þórðardótt-
ir á Tý frá Lambleiksstöðum, Sörla
Besti búningur í ungmennafl.:
„Nom“ Vaka Ý. Sævarsdóttir á Páfa
fráBakka, Sörla
Opinn flokkur:
1. „Víkingatrúður“, Elsa Magnús-
dóttir á Loka frá Vogsósum II, Sörla
2. „Monsa“, Inga C. Campos á
Þrándi frá Auðsstöðum, Sörla
3. „íþróttamaður Sörla“, Sigurður
Ævarsson á Leið frá Ögmundarstöð-
um, Sörla
4. „Arabahöfðingi", Pjetur Pjet-
ursson á Fjöður frá Hólavatni, Sörla
5. „Lionbar", Hjörtur Bergstað á
Fiðlu frá Fjöreggi, Fáki
Besti búningur í opnum fl.: „
íþróttamaður Sörla“ Sigurður
Ævarsson á Leið frá Ögmundarsöð-
um, Sörla
Tilþrifaverðlaun: „Batman“, Eyj-
ólfur Þorsteinsson ungmennafl.
Vetrarleikar Gusts í Glaðheimum
Pollar:
1. Sigrún Sigurðardóttir á Degi frá
BúðarhóU
2. Guðný B. Guðmundsdóttir á
Litla-Rauð frá Svignaskarði
3. Guðlaug R. Þórsdóttir á HUn frá
Múlakoti
Böm:
1. Bjamleifur S. Bjamleifsson á
Sóma frá Laxámesi
Unglingar
1. Berglind R. Guðmundsdóttir á
Sjöstjömu frá Svignaskarði
2. Ölafur Guðmundsson á Óðni frá
Skógskoti
3. Reynir A. Þórsson á Baldri frá
Miðey
4. María Einarsdóttir á Ferli frá
Hjaltastöðum
5. Elka Halldórsdóttir á Ábóta frá
Bólstað
Ungmenni:
1. Pála Hallgrímsdóttir á Kára frá
Þóreyjamúpi
2. Sigríður Þorsteinsdóttir á Blesa
frá Kópavogi
Konur:
1. Linda Reynisdóttir á Þrá frá
Skógarholti
2. Björg M. Þórsdóttir á Snerpu
frá Stóra-Asgeirsá
3. Ásta D. Bjamadóttir á Eldi frá
Hóli
4. Oddný M. Jónsdóttir á Brodda
frá Svignaskarði
5. Helga JúUusdóttir á Hrannari
frá Skeiðháholti
Karlar:
1. Sigurður Leifsson á Sörla frá
KálfhóU
2. Guðmundur Skúlason á Maíst-
jömu frá Svignaskarði
3. Steingrímur Sigurðsson á Nótt
frá Blesastöðum
4. Hlynur Þórisson á Krumma frá
Vindheimum
5. Will Covert á Röðli frá Ási
Heldri menn:
1. Hilmar Jónsson á Toppi frá
Skíðbakka
Töltmót Ingólfshvoli
Tölt, T1
Steindór Guðmundsson á Val frá
Hellubæ, 5,8/6,1
2. Elka Guðmundsdóttir á Ófeigi,
5,56/5,94
Jón R. Jónsson Guðni frá Heiðar-
brún, 5,56/5,85
Hallgrímur Birkisson á Gormi frá
Grímsstöðum, 5,56/5,70
Hulda Brynjólfsdóttir Þórdísi frá
Kotströnd, 5,53/5,656. Rakel Ró-
bertsdóttir á Pílu frá SvínafelU, 5,53/
5,66
Slaktaumatölt, T 2
Steindór Guðmundsson á Blóma
fráDalsmynni, 6,0
Áslaug F. Guðmundsdóttir
á Vin frá Hala, 5,4