Morgunblaðið - 15.02.2000, Page 64
64 ÞRIÐJUDAGUR 15. FEBRÚAR 2000
MORGUEBLAÐIÐ
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Dýraglens
Kringlunni 1103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Grettir
Ferdinand
Islensk erfðagrein-
ing og læknarnir
Frá Jóni Ragnarssyni:
í UMRÆÐUNNI nú undanfarið
hefur mikið verið rætt og ritað um
íslenska gagnagrunninn og Is-
lenska erfðagreiningu, hefur nán-
ast verið um einstefnu að ræða þar
sem læknar hafa haft hátt um að
setja ekki gögn í þennan alræmda
gagnagrunn.
I huga sjúklings sem gengur
með ólæknandi sjúkdóm og staul-
ast við hækjur eða situr í hjólastól
og getur sig lítið hreyft er þetta
hin undalegasta umræða og í huga
fer hvers
vegna læknar, sem eiga að hafa
heill sjúklings í huga, eru á móti
stofnun sem hefur það eitt að
markmiði að finna orsök sjúkdóma
sem engin lækning er til við.
Eru læknar hræddir við að
sjúkragögn þeirra fari í grunninn
og leiði síðan í ljós mistök í verkum
þeirra eða hvað er um að vera? Hér
áður mátti ekki anda á ykkur lækn-
ana vegna þess að þið lituð á ykkur
eins og heilaga en það vill svo til að
nú er árið 2000 og allur almenning-
ur er vel upplýstur og gamla
lækna....er liðin undir lok.
MS-sjúklingur sem situr heima
og er að berjast við að halda sér
gangandi etandi verkjalyf til að
lina þrautir og finnur lömun stöð-
ugt ágerast skilur ekki þessi sjón-
armið ykkar lækna sem hafa komið
fram fyrir almenningssjónir og er-
uð á móti gagnagrunninum vegna
þess að þessar rannsóknir eru okk-
ar eina von, ef ekki fyrir okkur sem
erum veikir í dag þá fyrir komandi
kynslóðir.
Ég hef orðið þess aðnjótandi að
koma inn í hús Islenskrar erfða-
greiningar og hafði gaman af að sjá
allt þetta unga og menntaða fólk
vinna að rannsóknarstörfum sínum
af elju og ákafa, nú veit ég ekki
hversu margt fólk vinnur þarna en
væntanlega hefði þetta fólk ekki
fengið vinnu hér á landi við sitt
hæfi ef ÍE hefði ekki komið til.
Ein er sú persóna sem ég vil lítil-
lega minnast á en það er hinn mál-
gefni svokallaði kvótaskelfir sem
nú kemur fram fyrir skjöldu og
segir íslensku þjóðinni að selja sín
gen, ég veit ekki hvað blessuðum
manninum gengur til en hugsan-
lega ætti IE að kaupa hann til
rannsóknar, því genin hans hljóta
að vera stórmerkileg og hugsan-
lega í framtíðinni finnast lyf við
þeim sjúkdómi sem virðist þjá
þessa persónu. I millitíðinni getur
einhver góðhjartaður útgerðar-
maður gefið honum eitt til tvö tonn
af kvóta og sett undir hann smá-
horn og sent hann á miðin svo hann
verði til friðs en sennilega væri það
illa gert gagnvart þorskinum í
sjónum ef hann lenti í návígi við
nafna sinn á þurru landi.
Er ekki kominn tími til að þeir
læknar sem eru á móti gagna-
grunninum staldri við og hugsi
sinn gang og snúi sér að því sem
starfsheiti þeirra segir til um, þ.e
að lækna fólk og gefi IE tíma til að
sinna sínum rannsóknarstörfum,
þá hugsanlega kemur sá tími að
þeir geti sagt við sjúklinginn sem
leitar til þeirra og greinist með
MS, þetta er ekkert mál vinur/vin-
an, þú færð bara sprautu.
JÓN RAGNARSSON,
MS-sjúklingur
og býr á Akureyri.
Miðbærinn
lagður í eyði
Jl
Frá Davíð Magnússyni:
MIÐBÆR Reykjavíkur hefur átt
undir högg að sækja undanfarin ár
og ástandið á enn eftir að versna
með tilkomu stærstu verslunar-
miðstöðvar landsins í Kópavogi og
stækkun annarra verslunarkjarna.
Það er afar óæskilegt fyrir þró-
un borgar að miðbær hennar missi
gildi sitt, enda eru flestir sammála
um að vinna beri að almennri upp-
byggingu miðbæjarins.
R-listinn lofaði að styrkja stöðu
miðbæjarins. Hann hefur hins veg-
ar valdið mér og öðrum gífurlegum
vonbrigðum.
Nýjasta uppátækið er ótrúleg
hækkun á stöðumælagjöldum og
sektir sem jaðra við rán og renna
munu stoðum undir þá fullyrðingu
að miðbær Reykjavíkur sé hættu-
legur staður.
Eigi fólk yfir höfði sér þá ógn að
þegar það kemur að bíl sínum í
rigningunni bíði þess 1.500 eða
2.500 króna sekt hvetur það menn
varla til að keyra fram hjá hættu-
lausum bílastæðum verslunarmið-
stöðvanna á leiðinni í bæinn. Bíl-
eigandi sem fær 1.500 kr. sekt
fyrir að koma 5 mínútum of seint
að stöðumælinum sem hann borg-
aði 150 kr. í kemur seint aftur í
miðbæinn ótilneyddur.
Þessar hækkanir eru dæmi um
fáránlega skammsýni sem valdið
getur ómældum skaða. Sú stað-
hæfing að gjaldtakan sé réttlætan-
leg, vegna þess að í framtíðinni
eigi að byggja fleiri bílastæðahús,
minnir á þá stefnu konunga að
gera út sjóræningja til að standa
straum af kostnaði við uppbygg-
ingu öflugs flota (landinu til varn-
ar).
Það er lýsandi fyrir þessa fram-
kvæmd að ein helsta röksemd
borgaryfirvalda fyrir hækkuninni
er sú að það þurfí að hækka gjaldið
til að geta keypt nýja stöðumæla
til að hægt sé að hækka gjaldið.
DAVÍÐ MAGNÚSSON,
nemandi í borgarskipulagsfræði
í Svíþjóð.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.