Morgunblaðið - 15.02.2000, Blaðsíða 70
,70 ÞRIÐJUDAGUR 15. FEBRÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
Áhugahápur
um almenna
dansþátttöku
á íslandi
557 7700
Netfang: KomidOgDansid@tolvusl<oli.is
Heimasíða: wwwtolvuskoli.is/KomidOgDansid/
Höfundur Smá-
fólksins látinn
Múmían
fer hvergi
MUMIAN trónir enn á toppi listans
yfír vinsælustu myndbönd vikunn-
ar, og einnig heldur „Analyze
This“, eða Sálgreindu þetta sæti
sínu frá fyrri viku. Meðal þeirra
mynda sem eru í efstu 20 sætum
eru fjórar nýjar á lista og er mynd
Drew Barrymore, „Never Been
Kissed" efst þeirra. í fímmta sætinu
situr myndin „Election“ eða Frama-
pot með þeim Reese Witherspoon
og Matthew Broderick sem einnig
er ný á lista. í sjötta sætinu er enn
ein ný mynd á lista, „Run Lola
Run“, eða hlauptu Lola, hlauptu,
sem sýnd var á kvikmyndahátíð
hérlendis síðasta haust.
Brendan Fraiser, Rachel Weisz
og John Hannah horfast í augu
við múmiuna.
CHARLES M. Schulz, höfundur
teiknimyndanna um Smáfólkið, lést
á laugardag úr krabbameini. Síðasti
dálkurinn um Smáfólkið birtist í
dagblöðum á sunnudag en fyrir
nokkru tilkynnti Schulz að hann
ætlaði að draga sig í hlé og að síðasti
myndaþátturinn myndi birtast þann
13. febrúar. Þann þátt lifði Schulz
hins vegar ekki til að sjá í dagblaði.
Schulz var 77 ára að aldri og
greindist með ristilkrabbamein
seint á síðasta ári. Að sögn sonar
hans, Craig, lést hann í svefni.
Schulz hafði samið, teiknað, litað og
skrifað inn á hverja einustu teikni-
myndaröð af Smáfólkinu síðustu
fimmtíu árin en teiknimyndaþáttur-
Reuters
Charles Schulz teiknaði Smá-
fólkið í fimmtíu ár en er nú fall-
inn frá.
inn birtist í um 2500 dagblöðum víða
um heim, þar með talið á síðum
Morgunblaðsins. Er hann ákvað að
hætta að semja Smáfólkið sagði
hann: „Eg hef verið þakklátur í
gegnum árin fyrir þá tryggð sem
ritstjórar dagblaða og aðdáendur
Smáfólksins hafa sýnt mér. Kalli
Bjarna, Snati, Lúlli, Lísa ... ég mun
aldrei gleyma ykkur.“
Börn betri en fullorðnir
Schulz þótti lýsa amerísku hvers-
dagslífi á óvenjulegan hátt sem í
senn var bitur og gamansamur.
Kalli Bjarna, einn af Smáfólkinu,
var önnur hlið Schulz sjálfs og í
gegnum hann kom hann skoðunum
sínum á framfæri. Hann hélt því
ætíð fram að böm væru siðferðis-
lega betra fólk en fullorðnir en með
Smáfólkinu náði hann til fólks á öll-
um aldri.
Schulz var frægur á sinn hátt en
hélt einkalífi sínu ætíð frá sviðsljós-
inu. Andlit hans birtist stöku sinn-
um í blöðum og tímaritum en það
kom honum ávallt á óvart er einhver
þekkti hann úti á götu. Á síðasta ári
skrifaði hann: „Þegar ég var krakki
fannst mér andlit mitt svo venjulegt
að fólk myndi aldrei muna eftir mér.
Það kom mér alltaf á óvart er ég var
í miðbænum að versla með móður
minni og við hittum kennara eða
nemendur sem þekktu mig.“ Þannig
lifði hann lífi Kalla Bjarna, sem
lagði metnað sinn í að hafa engan
metnað eins og honum er gjarnan
lýst. Þegar Kalli Bjarna mætti í
veislu og afsakaði sig fyrir að vera
of seinn sagði gestgjafinn iðulega:
„Eg var ekki einu sinni búinn að
taka eftir því að þú værir ekki
mættur."
En Schulz verður minnst um
ókomna tíð sem einum fremsta og
snjallasta teiknimyndahöfundi 20.
aldarinnar og Smáfólkið hans og
hinar hárbeittu athugasemdir munu
lifa þótt skapari þeirra sé horfinn á
braut.
DANSSVEIFLU
Á TVEIM
DÖGUMi
um helgina
VINSÆLUSTU
' MYNDBÖNDIN
A ISLANDII'uV
Nr.; var vikur Mynd i Otgefandi i Tegund
1. '; 1. 3 THe Mummy ; CIC myndbönd : Spenna
2. i 2. 4 Analyze This 1 Warner myndir : Gaman
3. 1 Ný 1 Never Been Kissed 1 Skífan : Gaman
4. i 4. 5 Office Spoce : Skífan : Gaman
5. | Ný 1 Election ; CIC myndbönd ; Gamon
6. ; Ný 1 Run Lolo Run i Stjörnubíó ; Spenna
7. ; n. 2 Virtual Sexunlity i Skífan i Gnman
8.; 5. 5 Instinct i Myndform ! Spenna
9. i 3. 3 The Bloir Witch Project ; Sam myndbönd i Spenna
10.! 15. 2 Inferno 1 Myndform : Spenna
11. i 8. 7 The Out-of-towners : CIC myndbönd 1 Gaman
12.: 7. 8 Entrapment : Skífan i Spenna
13.j 9. 8 Notting Hill • Hóskólabíó ; Gamon
14.; 6. 4 Universol Soldier: The Return ; Skífan i Spenna
15.; i2. 4 Alit um móður míno i Bergvík ; Dramo
16. i 13. 11 EdTV i CIC myndbönd i Gamon
17. i 14. 9 10 Things 1 Hote About You : Som myndbönd : Gaman
18. i Ný 1 Breok Up : Myndform : Spenna
19.; 16. 2 Storm Of The Century : Sam myndbönd : Spenna
20.1 10. 6 Go : Skífan : Gaman
zu.. i u. . o . uo ■ iKiran • uaman
mjmm
tm
í tilefni sýningarinnar fá nokkrir heppnir áskrifendur
vinninga með bíómiðunum í boði Stjörnubíós:
• 10 íþróttatöskur
• 6 Swiss Quarts úr
• 5 geisladiska með tónlist úr kvikmyndinni
Áskrifendur Morgunblaðsins geta sótt miða sem gilda fyrir
tvo í áskriftardeiid Morgunblaðsins, Kringlunni 1,
103 Reykjavík. Til að fá miðana afhenta þurfa áskrifendur að
gefa upp kennitölu hjá áskriftardeildinni. Áskriftardeildin er
opin virka daga frá kl. 9 til 17. Fyrstur kemur fyrstur fær.
Vinsamlegast sækið miðana fyrir 16. febrúar.
Ath! Kíkið á heimasíðu Stjömubíós: stjomubio.is og lesið meíra um myndina
Framttðarmaðurinn er gamanmynd eftir leikstjðrann Chris Columbus (Mrs. Doutfire, Nine Months,
Stepmon, Home Alone). Með aðalhlutverk [ myndinni fara Robin Williams og Sam Neill. Richard Martin
(Sam Neill) kaupir gjðf handa fjðlskyldu sinni, glænýtt módel af NDR-114 vélmenni. Framleiðslunafn
vélmennisins er Andrew (Robin Williams). Fyrr en varir gera meðlimir Martin fjölskyldunnar sér grein
fyrir að hér er enginn venjulegur róbót á ferðinni þv( með tímanum fer Andrew að þróa með sér
tilfinningar, smitandi sköpunargáfu og gervigreind með meiru.
MT JT
FRITT I
FYRIR
ÁSKRIFENDUR
MORGUNBLAÐSINS
FYRSTIR K0MA
FYRSTIR FÁ!
Morgunblaðið og
Stjörnubíó bjóða upp á
sérstaka forsýningu á
gamanmyndinni
Framtíðarmaðurinn
(Bicentennial Man) fyrir
áskrifendur
Morgunblaósins.
Sýningin verður í
Stjörnubíói fimmtudaginn
17. febrúar kl. 21.
FJÖLDI B0ÐSMIÐA ER
TAKMARKAÐUR!