Morgunblaðið - 04.03.2000, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 04.03.2000, Blaðsíða 16
16 LAUGARDAGUR 4. MARS 2000 MORGUNBLAÐIÐ ' AKUREYRI Kristinn skrifar undir styrktar- samning KRISTINN Bjömsson, skíðakappi, heimsótti heimabæ sinn sl. fimmtu- dag, en þangað hafði hann ekki kom- ið síðan síðastliðið sumar. Aðaltil- gangur fararinnar var að skrifa undir styrktarsamning sem gerður hefur verið við hann árlega síðan hann hóf keppni sem atvinnumaður í skíðagreininni. Samningurinn hefur verið gerður á haustin en vegna mikilla anna og veikinda Kristins í janúar gat ekki orðið af því fyrr en nú. Kristinn bauð hann öllum bömum í bænum til leiks í Iþróttamiðstöð- inni, þar sem hann fór í hina ýmsu leiki. Hugmyndin hafði verið að hafa skíðaæfingu í fjallinu, en af henni gat ekki orðið vegna mikillar snjókomu og ekki var búið að troða fjallið. Fyr- ir vikið mættu mun fleiri krakkar og skemmtu allir sér konunglega. Mikil eftirvænting ríkti hjá bömunum og má með sanni segja að kennslan um morgunin hafi farið fyrir ofan garð og neðan vegna þess sem í vændum var. Um kvöldið var veglegt hóf í fé- lagsheimilinu Tjamarborg, þar sem Foreldrafélag Leifturs sá um kaffi- veitingar. Öllum bæjarbúum var boðið og þar var skrifað undir styrktarsamning við Kristin. Ólafs- fjarðarbær, ásamt eftirtöldum fyrir- tækjum styrkja Kristin með fjárf- ramlögum: Sparisjóður Ólafsfjarðar, Þormóður rammi - Sæberg, Vél- smiðja Ólafsfjarðar, Sigvaldi Þor- leifsson hf., Kristbjörg hf., Verslunin Strax, Garðar Guðmundsson hf, Arni Helgason, Sjómannafélagið, ásamt Tréveri og Múlatindi. Auk þessa fékk Kristinn að gjöf iBook fartölvu frá fyrirtækinu extra.is sem er net- og auglýsingamiðill. Kristinn hélt stutta ræðu að und- irskrift lokinni og þakkaði hann Ól- afsfirðingum og fyrirtækjum í bæn- um fyrir stuðninginn undanfarin ár og sagði að án hans hefði honum alls ekki tekist að stunda íþrótt sína af þeim krafti sem hann hefur gert. Hann sagði að heimsóknin til síns gamla bæjar hefði gefið sér mikið og var hann greinilega þakklátur og hrærður. Morgunbiaðið/Helgi Jónsson Kristinn Björnsson tekur við iBook fartölvu sem fyrirtækið extra.is færði honum. Þorvaldur Jónsson framkvæmdastjóri afhendir tölvuna. Morgunblaðið/Helgi Jónsson Kristinn brá á leik í fþróttamiðstöðinni með krökkunum i Ólafsfirði. Hér er hann i stórfiskaleik. Kaupmannafélag Akureyrar segir skilið við Kaupmannasamtök fslands Agreiningur um skil á gjöldum KAUPMANNAFÉLAG Akureyrar hefur sagt skilið við Kaupmanna- samtök íslands og Samtök verslunar og þjónustu. Úrsögn úr Kaupmanna- samtökunum var samþykkt á fundi stjómar Kaupmannafélags Akureyr- ar í vikunni en ástæðan er ágrein- ingur um innheimtu félagsgjalda á Akureyri og skil á þeim til Samtaka verslunar og þjónustu. Ragnar Sverrisson, formaður Kaupmannafélags Akureyrar, sagði að félagið hefði ávallt haldið eftir 50% af félagsgjöldum félagsmanna sinna en að helmingurinn hefði verið greiddur til Kaupmannasamtaka ís- lands. Hann sagði að þegar Kaup- mannasamtökin gengu til liðs við Samtök verslunar og þjónustu sl. haust hefðu norðanmenn talið sig hafa loforð fyrir því að ekki yrði um neinar breytingar að ræða varðandi félagsgjöldin en það hefði ekki geng- ið eftir. I sóknarhug HvaÖ boðar nýárs Byggðastofnun? Hádegisverðarfundur með Krístni H. Gunnarssyni, nýkjömum stjórnar- formanni Byggðastofnunar, á Fiðiaranum, Skipagötu 14, miðvikudaginn 8. mars frákl. 12.00 til 13.00 • Hver er framtíð Byggðastofnunar? •Er von á breytingum á starfsemi Byggðastofnunar? • Verður Byggðastofnun hugsanlega flutt út á land? • Hvaða hlutverki gegnir Byggöastofnun í að framfylgja stefnu stjórnvalda í byggöamálum? • Hvaða áherslur verða hjá stofnuninni í lána- og styrkjamálum? • Hvernig hugsar Byggðastofnun uppbyggingu þróunarstarfs á landsbyggðinni? •Mun rannsóknarstarf atvinnuveganna halda áfram að byggjast upp á höfuðborgarsvæðinu? Petta, og ýmislegt fleira, mun Kristinn fjalla um og svara spurningum fundarmanna Verð kr. 1.000 (léttur hádegisverður innifalinn) Allir velkomnir Skráning hjá Atvinnuþróunarfélagi Eyjafjarðar í síma 461 2740 eða á netfangi benedikt@afe.is. „Þetta mál snýst fyrst og fremst um sjálfstæði Kaupmannafélags Ak- ureyrar. Félagið studdi mjög ein- dregið stofnun Samtaka verslunar og þjónustu á síðasta ári og ég full- yrði að stuðningur okkar hafi skipt þar verulegu máli ogjafnvel ráðið úr- slitum. Við höfðum munnlegt loforð frá Kaupmannasamtökunum um að ekki yrðu neinar breytingar á högum okkar félags við að ganga til liðs við Samtök verslunar og þjónustu en annað hefur komið á daginn. Sam- tökin gera kröfu um að öll félags- gjöld okkar fari suður og vilja þar með svipta okkur eigin tekjustofni og það getum við ekld sætt okkur við. Viljum ekki ölmusu aðsunnan Tæplega 70 verslanir eru í Kaup- mannafélagi Akureyrar, eða um 95% verslunareigenda í bænum og er fé- lagið stærsta einstaka félagið í Kaupmannasamtökum Islands. Ragnar sagðist ávallt hafa verið tals- maður þess að verslunarmenn stæðu sameinaðir í öflugu félagi og því hafi þessi ákvörðun verið erfið en tekin að mjög vandlega athuguðu máli. „Við viljum ekki senda alla peninga suður, til þess svo að þurfa að sækja um ölmusu ef við þurfum á peningum að halda til þarfra verkefna hér. Samtök verslunar og þjónustu hafa með bréfi til Kaupmannafélags Akureyrar í vikunni ítrekað enn og aftur að félagið hafi ekki umboð til neinnar innheimtu í nafni Samtak- anna né Samtaka atvinnulífsins. Jafnframt er óskað eftir tafarlausri greinargerð og uppgjöri vegna inn- heimtu í nafni umræddra samtaka í lok síðasta árs og áréttað að umrædd samtök áskilji sér allan rétt varðandi innheimtu Kaupmannafélags Akur- eyrar í nafni þeirra á þessu ári. „Við teljum því best fyrir alla aðila að losa vini okkar fyrir sunnan við þá áþján að hafa okkur norðanmenn í samtökunum og þess vegna höfum við sagt okkur úr þeim. Þá taka menn líklega gleði sína á ný,“ sagði Ragnar. Útboð Framkvæmdir við Ketilhúsið í Listagili á Akureyri Byggingadeild Akureyrarbæjar óskar eftir tilboðum í framkvæmdir innan- og utanhúss við Ketilhúsið á Akureyri. Helstar framkvæmdir eru: Innveggir, hurðir, loftaklæðningar, gólfefni, innréttingar, flísalögn, frágangur hita-, neyslu- og loftræsilagna, raflagnir, lýsing, málningarvinna o.fl. Gögn verða afhent hjá Verkfræðistofu Norðurlands ehf., Hofsbót 4, 600 Akureyri, frá 6. mars nk. Tilboð verða opnuð hjá Byggingadeild Akureyrar, Geislagötu 9, 600 Akureyri, 27. mars 2000 kl. 11.00. Byggingadeild Akureyrarbæjar. Kirkju- starf AKUREYRARKIRKJA: Kirkju- vika hefst á morgun, sunnudag með fjölskylduguðsþjónustu í kirkjunni. Guðsþjónusta verður á Seli kl. 14 á morgun. „Heimsmessa verður í kirkjunni kl. 20 um kvöld- ið, kór Menntaskólans syngur, fé- lagar úr æskulýðsfélagi kirkjunnar aðstoða í messunni, fermingarbörn sérstaklega velkomin, léttar veit- ingar eftir messu í safnaðarheimili. Guðmundur Sigvaldsson kynnir Staðardagskrá 21. Biblíulestur á mánudagskvöld um siðfræði Drott- ins. Morgunsöngur í kirkjunni kl. 9 á þriðjudag. Kyrrðar- og fyrir- bænastund kl. 12 á hádegi á fimmtudag og hefst hún með or- gelleik, bænarefnum má koma til prestanna, hægt að fá léttan há- degisverð eftir stundina í safnað- arheimili. Opið hús fyrir eldri borgara á fimmtudag kl. 15-17, kammerkór tónlistarskólans í Pieta í Svíþjóð syngur, Þóra Björg Magnúsdóttir segir frá Afríkudvöl sinni í máli og myndum. Rútur koma við í Hlíð, Víðilundi og Kjamalundi. Indlandskvöld næsta föstudag, Gunnar Kvaran sellóleik- ari segir frá hjálparstarfi og Ind- landsferð sinni. Hádegistónleikar næsta laugardag. GLERÁRKIRKJA: Barnasamvera og messa kl. 11 á morgun, sunnu- dag. Sameiginlegt upphaf. Þor- steinn Pétursson flytur hugleið- ingu og Gideonfélagið verður kynnt. Foreldrar, afar og ömmur hvött til að mæta með börnunum. Hátíðarfundur æskulýðsfélagins verður kl. 20 um kvöldið. Kyrrðar- og tilbeiðslustund kl. 18.10 á þriðjudag. Hádegissamvera kl. 12 til 13 á miðvikudag, upphaf föst- unnar. Orgelleikur, fyrirbænir og sakramenti, léttur hádegisverður á vægu verði að stundinni lokinni. Opið hús fyrir mæður og börn alla fimmtudaga frá 10 til 12. HRÍSEYJARPRESTAKALL: Fjöl- skylduguðsþjónusta í Stærri-Ár- skógskirkju kl. 11 á morgun, sunnudag. Sunnudagaskóli í Hrís- eyjarkirkju kl. 11 á morgun, fjöl- skylduguðsþjónusta verður í kirkjunni kl. 14 sama dag. HVITASUNNUKIRKJAN: Aðal- fundur safnaðarins verður í dag, laugardag, kl. 13, safnaðarmeðlim- ir hvattir til að mæta. Brauðs- brotning er um kvöldið kl. 20. Sunnudagaskóli fjölskyldunnar á morgun, sunnudag, kl. 11.30, kennsla úr Orði Guðs fyrir alla al- durshópa. G. Theodór Birgisson kennir. Léttur málsverður að stundinni lokinni. Vakningasam- koma sama dag kl. 16.30, Stella Sverrisdóttir predikar. Fyrir- bænaþjónusta og barnapössun. LAUFÁSPRESTAKALL: Hátíðar- guðsþjónsuta fyrir allt prestakallið í tilefni upphafs kristnihátíðar í Þingeyjarprófastsdæmi á morgun, sunnudag, í Grenivíkurkirkju og hefst hún kl. 14. Sameiginlegur kór kirknanna í prestakallinu syngur. Börnum úr báðum kirkju- skólum prestakallsins taka lagið og sýna tvo brúðuleikþætti. Ferm- ingarbörn aðstoða í messunni. Ibúar prestakallsins eru hvattir til að sameinast í þessari guðsþjón- ustu. Kyrrðar- og bænastund verð- ur í kirkjunni kl. 21 á sunnudags- kvöld. KAÞÓLSKA KIRKJAN: Messa í dag, laugardag, kl. 18 og á morg- un, sunnudag, kl. 11 í kirkjunni við Eyrarlandsveg 26. KFUM og K: Bænastund kl. 17 á morgun, sunnudag. Fundur í yngri deild. KFUM og K fyrir drengi og stúlk- ur 8 ára og eldri kl. 17.30 á þriðju- dag. MOÐRUVALLAPRESTAKALL: Messa í Möðruvallakirkju kl. 14 á sunnudag fyrir allt prestakallið. Væntanleg fermingarbörn munu aðstoða. Organisti verður Birgir Helgason og verða þessir sálmar sungnir: 504 - 121 - 503 - 505 - 357. Eftir messu verður stuttur fundur með foreldrum fermingarbarna. Í I 1
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.