Morgunblaðið - 04.03.2000, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 4. MARS 2000 37
Draumurinn um Heklu
Draumstafir Kristjáns Frímanns
„Eldur er í norðri, ey hefir reista móðir
yfir mar, beltað bláfjöllum, blómgað
grasdölum, faldað hvítri fónn.“
Jónas Hallgrímsson.
Helgin brotnaði upp úr deyfð og
drunga vetrarins þegar Hekla
vaknaði enn og aftur af værum
blundi um síðustu helgi. Þegar hún
lyfti hvítum faldinum svo skein í
bert og heitar tilfinningar brustu
fram, hitnaði manni í hamsi við að
sjá rauða kvikuna og fylltist löng-
un að komast nær þessum lokk-
andi hita. Margir létu þann draum
rætast en máttu fyrir löngun sína
og kvika lund, dúsa niðurkældir í
fönn á heiði uppi langa nótt.
Vetur konungur lætur ekki að
sér hæða þótt drottning undir-
djúpanna taki nokkur heit spor á
lendum hans og reyni að kveikja í
kalli vorsöng. Draumurinn hefur
frá fyrstu tíð nýtt sér náttúruöflin
í sagnagerð sinni og birt manni
innra líf manns sjálfs í gegnum
eldgos eða freðinn svörð. Hann
hefur tekið þetta ótrúlega sjónar-
spil raunveruleikans þegar fjall
rífur sig á hol svo út falla iðrin
glóandi og sett það upp sem dæmi-
sögu eða leikþátt um tilfinningar:
„Eg var á leiðinni í erfitt próf í
skólanum og mig dreymdi nóttina
áður að það sprytti blóð út af mag-
anum á mér eins og sviti.“ „Ég var
að skilja og mig dreymdi ítrekað
eldgos, bíla og fólk á flótta.“
Draumar um innri átök, hættur,
umskipti, ást og hatur birtast oft í
eldgosi. Einnig gleði, sigur og
frami getur fengið útrás í eldgosi
draumsins sem rennandi blóð úr
sprungum á holdi. Brennandi þrá,
logandi kvíði og aðrar geðsveiflur
birtast sem hluti af eldsumbrotum
í draumi næturinnar og gera
manni kleift að skilgreina og skilja
betur þau innri öfl sem gera okkur
að þeim tilfinningaverum sem við
erum. Það er því ekki bara spenn-
andi skemmtun að sjá Heklu í ham
heldur einnig fræðandi stund um
eigin hag, getu ogvilja.
Gos tilfínninga.
„Draumey“ sendir draum
Minn draumur er svona: Mér
fannst ég vera heima hjá mér, en
ætlaði að skjótast eitthvert burtu.
Ég hljóp út úr húsinu og að bílnum
mínum sem stóð fyrir utan. Við bíl-
inn stóð eitthvert fólk sem mér
fannst ég þekkja en ég veit samt
ekki hvaða fólk þetta var. Uti var
sólskin og blíða og allt mjög fallegt
og bjart. Þegar ég kom að bílnum
varð mér starsýnt á hann því hann
var svo fallegur. Þetta var lítill
einkabíll, ljósgulur á litinn og
lakkið glansaði mjög fallega. Hann
var auðsjáanlega alveg nýr og
hann kom mér einhvernveginn á
óvart, en ég átti hann jú og var
með lykilinn í hendinni. Ég geng
svo að bflnum, opna hann og sest í
ekilssætið (fólkið varð eftir fýrir
utan) og ætlaði að stinga lyklinum
í svissinn. Þá finnst mér mæla-
borðið verða eitthvað einkennilegt.
Það var þakið einhverskonar
áfellu úr leðri eða leðurlíki sem var
svört á litinn og með götum fyrir
mælana. Ég verð mjög undrandi á
að sjá þetta og tek í áfelluna og
lyfti henni. Undir henni á mæla-
borðinu var allt þakið í köngulóm
og smáeðlum sem byltust þarna
hvert um annað. Mér fannst þetta
náttúrlega slæmt, en var að flýta
mér svo ég lagði áfelluna á sinn
stað og ákvað að laga þetta seinna.
Ráðning
Farartæki raunveruleikans svo
sem bflar og flugvélar eru ímyndir
draumsins af ferð sálarinnar og
líkamans um lífið og tímans rúm.
Bflar geta túlkað líkamlegt ástand
jafnt sem sálrænt og þá spila inn í
þættir eins og litur bflsins, tegund
og árgerð ásamt viðhaldi. Bfllinn
kemur í stað hestsins enda eru
tengslin sterk þar
á milli, sá streng-
ur er sálrænn og
því notar draum-
urinn bflinn sem
sérstakt tákn við
sérstök tilfelli.
Af innihaldi
draums þíns virð-
ist hann á sálræn-
um nótum og
snúast um þætti í
þér sem eru nú
óðum að verða
sýnilegir en sem
hafa til þessa ver-
ið þér duldir. Bfll-
inn lýsir með út-
liti sínu og lit,
sálrænni heild
sem birtist þegar
á reynir. Sú heild
eða það sálræna
öryggi sem þú
sýnirvið
ákveðnar aðstæð-
ur, kemur sjálfri
þér mest á óvart.
Þær aðstæður
tengjast eðlunum
og köngulónum
en þessi smádýr tengjast bæði
andlegum og líkamlegum sviðum.
Eðlumar tengjast líkamanum og
frumkröftunum en í þínu tilfelli
gætu þær verið að kveikja upp
þætti úr æsku þinni. Köngulær
eru tákn velfarnaðar en einnig
merki um andlega getu til að setja
upp aðstæður og vinna úr þeim.
Köngulærnar vega því bæði and-
legt og veraldlegt jafnvægi svo að
gmnnurinn að draumi þínum og
því er hann kveikir gæti verið
hugsanleg ráðagerð þín á sviði
fjármála.
• Þeir lesendur sem vilja fá
drauma sína birta og ráðna
sendi þá með fullu nafni, fæðing-
ardegi og ári ásamt heimilis-
fangi og dulnefni til birtingar til:
Draumstafír
Morgunblaðið Kringlunni 1
103 Reykjavík
eða á heimasíðu Draumalands-
Mynd/Kristján Kristjánsson
mmmmmmmmmm.
Faxafeni 8
alla daga 1 2-1 9
www.mbl.is
Ævisaga
VILHJÁLMS STEFÁNSSONAR
heimskautafara
á Bókamarkaðinum í Perlunni
Mysupróteinið sem spurt er um!
Immunocal
hefur náð að auka GLUTATHION í
frumum líkamans á náttúrulegan hátt.
Hvað er GLUTATHION?
Leitið upplýsinga.
Immunocal er aðeins selt í
Ármúla 29 2. hæð.
Sími : 533 3010
Immunocal á Islandi ehf.
immunocal@isl.is
immunocal.org