Morgunblaðið - 04.03.2000, Blaðsíða 70

Morgunblaðið - 04.03.2000, Blaðsíða 70
70 LAUGARDAGUR 4. MARS 2000 MORGUNBLAÐIÐ Dýraglens BREF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 Ferdinand Smáfólk Skrattínn. Enn Lífið hefur sínar Ijdsu og dökku Það rignir / dag ein falleinkunin. hliðar herra minn, skyn og / lægðinni minni. skúrir, hæðir og lægðir. Opið bréf til lögreglustjórans í Reykjavík Frá Þráni Sigurbjamarsyni: Reykjavík 3. febrúar 2000 Lögreglustjóri Böðvar Bragason Hverfísgötu 113-115 105 Reykjavík Varðar: Verklagsreglur og skyld- ur lögreglu við rannsókn afbrota. 18. janúar síðastliðinn var brotist inn í íbúðarherbergi á fyrstu hæð í blokk hér í bæ og þaðan stolið verð- mætum tölvubúnaði. Þegar er uppljóst varð um stuld- inn, tilkynntu íbúar lögreglu um at- burðinn. Laganna verðir brugðust skjótt við og komu ekki færri en fjór- ir þjónar á vettvang skömmu síðar. Allar kringumstæður voru vandlega skoðaðar og íbúar sem og nágrannar inntir eftir vitneskju. Að skilnaði voru húseigendur beðnir að hafa samband við lögreglu sem fyrst, ef eitthvað kæmi í ljós sem leitt gæti til þýfisins og lausnar málsins. Sama kvöld fékk íbúðareigandi mjög ákveðnar vísbendingar um hverjir gætu hafa verið að verki og hafði þegar samband við lögregluna. Þá hafði ekki verið gefin út skýrsla og að sögn varðstjóra því ekkert hægt að gera í málinu þá stundina. Næstu daga var ítrekað reynt að koma umræddum vísbendingum til löggæslu, en þó skýrslan hafi fund- ist, hafði málinu ekid verið ráðstafað til rannsóknaraðila og vísaði hver deildin á aðra. Tóku lögreglumenn þó alltaf fram að mjög áríðandi væri að koma upplýsingum á framfæri eins fljótt og unnt væri svo leysa mætti málið áður en þýfinu væri komið í lóg. Loks þann 27. janúar, tókst að koma ábendingum um grunsemdir til þess aðila sem þá hafði verið skip- aður til rannsóknar. Ekki virðist þó hafa komist skriður á málið því mér vitanlega hefur ekkert verið gert til að hafa hendur í hári þeirra sem grunaðir eru um aðild að verknaðin- um. Við þessar aðstæður virðist það fundið fé að stunda þjófnaði. Alla- vega gefst nægur tími til að koma þýfi fyrir án þess að hætta sé á að viðkomandi sé ónáðaður af löggæslu. Heyrst hefur til þeirra grunuðu gorta af þessum ákveðna verknaði. Sem skattgreiðandi og löghlýðinn borgari spyr ég nú: •Hver er skylda lögreglu í máli sem þessu og hvaða reglum er fylgt við rannsókn slíkra mála? •Er eindregnum ábendingum, sem komið er til lögreglu, fylgt eftir og þá innan einhvers ákveðins tíma? •Hver eru samskipti lögreglu við vátryggingafélög í slíkum málum? Gefur lögregla skýrslu til trygginga- félags um rannsókn máls, eða hve- nær mál telst óleysanlegt og þá inn- an hvaða tímamarka? Svar óskast sem fyrst. ÞRÁINN SIGURBJARNARSON, Hraunbæ 84,110 Reykjavík Hvort er ávallt mein að peini? Frá-Guðna Kolbeinssyni: Indriði G. Þorsteinsson hefúr um all- langt skeið skrifað vikulega pistla í Morgunblaðið. Bera pistlar þeir heitið Sjónvarp á laugardegi og flytja hugleiðingar Indriða um sjónvarpsefni vikunnar - og raunar sitthvað fleira, eftir því sem andinn innblæs honum. í þættinum á laugardaginn var sendi Indriði mér heldur kaldar kveðjur fyrir vont mál í sjónvarps- þýðingu. Hann helgaði mér fyrir- sögnina, sendi mér skeyti um leið og hann hrósaði rangæskri heimasætu fyrir málfar og tók svo að lokum fyr- ir afbrot mitt ægilega og sagði: „... þýðanda varð heldur betur á í mess- unni.“ Og skömmu síðar: „... þegar, í Frasier, kemur fyrir orðskrípið „pein“, og mun þá átt við sársauka, er manni nú öllum lokið...“ Ekki ætla ég að bera á móti því að hafa notað orðskn'pið pein í þýðingu á umræddum þætti; það gerði ég ekki bara einu sinni heldur þrisvar. En hefði Indriði horft á þáttinn og lesið jafnframt þýðinguna hefði hann að minnsta kosti átt að sjá að ekki merkti orðið sársauki heldur leið- indaskarfur eða eitthvað í þá áttina. Hins vegar tel ég mig eiga nokkra vöm í málinu og vil ekki sitja þegj- andi undir misskilningi Indriða sem fer ekki einu sinni rétt með hvaða kvöld þátturinn var sýndur. Við skulum líta aðeins á ástæður þess að ég valdi þessa lausn í þýðing- unni. Niles, bróðir Frasiers, er geð- læknir eins og hann, menningar- snobb eins og hann og talar menntamannamál eins og hann. En í þessum þætti brá svo við að Niles fór að vera með ungri stúlku sem hafði þau áhrif á hann að hann fór að klæða sig eins og unglingur, haga sér eins og unglingur og tala eins og unglingur. Frasier skildi varla hvað hann átti við og skammaði hann fyrir orðfærið. Síðar í þættinum notaði hann reyndar sjálfur orðskrípið sem hann hafði lært af Niles, samstarfs- konu sinni til mikillar furðu, þótt hún gripi svo líka til þess skömmu síðar. Þetta var það sem þurfti að kom- ast til skila í þýðingunni og ég valdi þá leið að láta Niles biðja bróður sinn að vera ekki svona mikið pein - þýddi slangur með slangri. Og þrátt fyrir ást mína á íslenskri tungu finnst mér það betri þýðing en að láta Niles segja: „Lát af að spilla gleði várri,“ þótt það hefði vafalaust hugnast skáldjöfrinum betur. GUÐNI KOLBEINSSON, þýðandi. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.