Morgunblaðið - 04.03.2000, Side 20
20 LAUGARDAGUR 4. MARS 2000
MORGUNBLAÐIÐ
-
LANDIÐ
Þjálfun hesta hafín fyrir Landsmót hestamanna
Myndarleg hestamið-
stöð opnuð á Hellu
Hellu - Um miðjan febrúar var ný og
glæsileg hestamiðstöð tekin í notkun
á Hesthúsvegi 13 á Hellu. Það eru
Þórður Þorgeirsson tamningamaður
og sambýliskona hans Inga Jóna
Kristinsdóttir sem hafa byggt upp
nýtt hús á gömlum grunni og rúmast
þar 32 hross í fyrsta flokks húsi. „Við
keyptum gamalt 12 hesta hús af
móður Ingu Jónu en úr því húsi eru
fáar spýtur eftir. Hér er allt nýtt,
bestu innréttingar sem fáanlegar
eru hér á landi, smíðaðar af Höskuldi
Hildibrandssyni, með opnanlegum
milligerðum sem gera kleift að vél-
moka út úr húsinu. Húsið sjálft, sem
Guðjón Sigurðsson smiður og
hrossabóndi í Kirkjubæ smíðaði, er
allt klætt að utan með stáli, eins og
loftið, en veggir að innan með eik.
Við höfðum áður aðstöðu í tamninga-
stöðinni í Gunnarsholti, en þegar
hún var lögð niður og húsinu breytt í
sæðingastöð urðum við að finna okk-
ur nýjan vettvang. Það kom til
greina að kaupa jörð en þetta varð
úr. Nú búum við á Hellu og höfum
okkar starfsaðstöðu hér,“ segja þau
Þórður og Inga Jóna.
Landsmótsefnin standa í röðum
Að sögn Þórðar og Ingu Jónu er
fyrirtak að vera nú búin að koma sér
upp góðri starfsaðstöðu, en yfir
stendur þjálfun hrossa fyrir Lands-
mót hestamanna sem haldið verður í
Reykjavík í júlí. „Hér eru 15 stóð-
hestar, allt frá ungum og efnilegum
upp í hátt dæmda fyrstu verðlauna-
gæðinga, sem að sjálfsögðu stefna á
landsmótið. Það má nefna t.d. þrjá
syni hins fræga stóðhests Orra, þá
Dyn frá Hvammi, Kvist frá Hvols-
velli og Stæl frá Miðkoti. Þá eru hér
höfðingjar eins og Spegill frá Kirkju-
bæ, Fengill frá Kjarri og Kveldúlfur
frá Kjamholtum. Auk þess eru hér
bráðefnilegar hryssur og geldingar
sem einnig er stefnt á landsmótið.
Þetta eru aðallega hross sem við er-
um að temja fyrir aðra, en auk okkar
starfa hér tveir tamningamenn í
fullri vinnu, enda næg verkefni fram-
undan,“ segir Þórður.
Morgunblaðið/Aðalheiður Högnadóttir
Glæsileg veisla var haldin í hestamiðstöð Þórðar og Ingu Jónu í tilefni
opnunarinnar og vinir og velunnarar fjölmenntu.
Morgunblaðið/Aðalheiður Högnadóttir
Við nýju hestamiðstöðina á Hellu, f.v. Inga Jóna Kristinsdóttir, Þórður
Þorgeirsson, Nicki Pfau og Ólafur Þórisson tamningamenn.
i
Morgunblaðið/Björn Bjömsson
Verðlaunahafar f.v.: Guðmundur Ingvi Einarsson, Egill Þórarinsson og
Jón Amar Magnússon.
Jón Arnar Magnús-
son íþróttamaður
Skagafjarðar
Sauðárkróki - Fjölmenni var sam-
ankomið í félagsheimilinu Ljós-
heimum við Sauðárkrók þar sem
fram fór tilncfning á íþróttamanni
Skagafjarðar 24. mars sl. Það var á
vegum menningar-, íþrótta- og
æskulýðsnefndar og í samvinnu við
Ungmennasamband Skagafjarðar
og sveitarfélagið sem þessi árlega
tilnefning fór fram og hafði undir-
búningi verið hagað á þann veg að
öllum íjjróttafélögum innan sveit-
arfélagsins hafði verið gefinn kost-
ur á tilnefningu í sinni grein og
bárust átta svör.
Ómar Bragi Stefánsson, for-
maður nefndarinnar, bauð gesti
velkomna og ræddi gildi íþrótta í
daglegu lífi nútimafólks sem ætti
nú mun fleiri fristundir en áður
þekktist og benti á að íþróttir og
aðstaða til iðkunar þeirra væri ein
aðalforsenda fyrir búsetu á hveij-
um stað.
„Agi, staðfastur vilji og rétt
þjálfun auk góðrar aðstöðu til þess
að iðka íþróttir, er það sem hefur
skilað þessu sveitarfélagi fþrótta-
fólki í fremstu röð,“ sagði Ómar
Bragi.
Þá kynnti Haraldur Jóhannes-
son, formaður UMSS, þá átta
íþróttamenn sem tilnefningu hlutu
og voru þeim afhent blóm og viður-
kenningarskjöl vegna þessa.
Þá voru kallaðir til þeir íþrótta-
menn sem höfðu skarað framúr en
í þriðja sæti var Guðmundur Ingvi
Einarsson kylfingur frá Golfklúbbi
Sauðárkróks en hann varð íslands-
meistari í flokki 18 ára og yngri og
landsliðsmaður í þeim flokki. í
öðru sæti var Egill Þórarinsson,
hestamannafélaginu Svaða, en
hann vann til fjölmargra verðlauna
á síðasta ári í iþrótt sinni og í
fyrsta sæti var Jón Arnar Magnús-
son en fáum mun hafa komið á
óvart að Jón hlyti þennan titil svo
langt sem hann hefur náð í frjáls-
um íþróttum og hefur þar skipað
sér í raðir þeirra bestu í heiminum.
■0
ára
15—30%
afsláttur
af öllum vínþrúgusafa
r
v
Opið alla helgina
Laugardag A. mars opið kl. 11 —18
Sunnudag 5. mars opið kl. 13—17
J
Vei\ilunin Vínliet
Laugavegi 178, Reykjavík, sími 562 5870.
Hafnargötu 25, Keflavík, sími A21 7414.
Stunda samtímis nám í framhaldsskóla o g grunnskdla
Frumkvöðlastarf
unnið í grunnskóla
Grindavík - Það eru um það bil 4 ár
síðan fyrstu nemendur Grunnskóla
Grindavíkur fóru að eiga þess kost
að flýta sínu námi og taka sam-
ræmdu prófin ári á undan jafnöldr-
um. Þess hefur verið gætt að félags-
legi þátturinn í þessu námi
gleymdist ekki og því sitja viðkom-
andi nemendur áfram í Grunnskóla
Grindavíkur þó þeir hafi tekið sam-
ræmd próf ári áður.
Þessa dagana glíma þeir Daníel
Pálmason og Hjalti Sigvaldason við
námsefni framhaldsskólans í
kjamagreinunum 4 en eru með
bekkjarfélögunum í öðru námi.
Pálmi Ingólfsson hefur verið um-
sjónarmaður þessa máls öll árin og
sagði að þetta hefði byrjað með
einni grein fyrir 4 árum en síðustu
þrjú árin hafa greinarnar verið 4
þar sem menntamálaráðuneytið gefi
ekki færi á að taka einungis hluta af
samræmdu greinunum.
„Undirbúningur hófst í 9.bekk
hjá fyrstu hópunum en best er að
þetta sé undirbúið frá 8. bekk.
Krakkarnir taka samræmd próf ári
á undan, þ.e. í 9. bekk, en fylgja
bekkjarfélögunum í öllum öðrum
greinum. Við leggjum sérstaka
áherslu á að passa félagslega þátt-
inn. Samvinnan við F.S. hefur geng-
Morgunblaðið/Garðar Páll Vignisson.
Þeir voru brosmildir félagarnir Hjalti Sigvaldason og Daníel Pálmason
þegar Morgunblaðið leit við hjá þeim á dögunum.
ið mjög vel, þau fá áætlanir og
fylgja sama efni og aðrir nemendur
í F.S. Þeir taka prófin í F.S. og
ljúka allt að 24 einingum yfir árið.
Þetta er sameiginleg ákvörðun
nemendanna, foreldra þeirra og
skólans. Bæjarfélagið styrkir líka
þetta verkefni með auknu tíma-
magni fyrir þennan hóp og árang-
urinn er ótvíræður. Það er greini-
lega meiri námsáhugi ekki bara hjá
þeim krökkum sem eru þarna á
undan heldur smitar þetta út frá sér
því það er litið upp til þessa hóps.
Þá er þetta nauðsynlegt til að geta
komið til móts við þarfir þessara
nemenda eins og annarra þannig að
allir fái nám við hæfi,“ sagði Pálmi.
f
I